Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2000, Qupperneq 10
EŒ 1 1 f 1 ÖL e F J I R V I N N U
V-ika n 15. sent ember til 21. september
Ifókus
17/09 !
•Krár
■ ÚTÓPÍA Á OAUKNUM Útópía heldur útgáfu
tónleika sína á Gauknum í kvöld, en hún er aö
senda frá sér plötuna Efnasambönd. Sveitin
spilar draumkennt koks-rokk og hefst leikurinn
klukkan 22. Aögangseyrir er 500 krónur.
•Klassík
■ TÓNLEIKAR l' SKÁLHOLTSKIRKJU í dag, kl.
16.00, munu Sigurgeir Agnarsson sellóleikari
og Andrew Paul Holman orgelleikari halda tón-
leika í Skálholtskirkju. Á efnisskránni eru sex
fjölbreýtt verk fyrir selló og orgel eftir Kurt
Wiklander, Kjell Merk Karlsen, Saint-Saéns,
Daniel Pinkham, Joseph Jongen og Hugo
Alfvén. Þetta eru endurteknir tónleikar síðan í
gær í Neskirkju.
■ CAPUT ÖRHÁTÍÐ Á M20Q0 Seinni tónleikar
Caput-orhátíöarinnar veröa í dag. Þeir fyrri voru
haldnir í Salnum síöastliðið miðvikudagskvöld.
Flytjendur á tónleikunum verða James Clapp-
erton píanóleikari og Sharleen Harshenin fiölu-
leikari. Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir
Ruben Sverre Gjertsen, Salvatore Sciarrino,
lannis Xenakls, James Clapperton og Atla Ing-
ólfsson. Tónleikarnir eru samstarfsverkefni
CAPUT og Bergen menningarborgar 2000.
Tónleikarnir fara fram í Norræna húsinu í dag
og hefjast klukkan 17.00.
•Sveitin
■ HANPVERK Á EYRARBAKKA I dag, frá kl.
14-18, tekur á annan tug handverksfólks þátt í
sölusýningu á handverki í samkomuhúsinu
Staö á Eyrarbakka. Selt verður kaffi og heitar
vöfflur. Enn er hægt að bæta við nokkrum selj-
endum. Upplýsingar fást hjá Katrínu Ósk, s.
483-1295, Þórdísi, s. 483-1394, og Páli, s.
482-1968.
■ SKEIÐFLATARKIRKJA100 ÁRA Skeiöflatar-
kirkja í Mýrdal á 100 ára vígsluafmæli og því
verður hátíðarguðsþjónusta í dag, kl. 14. Sr.
Óskar H. Óskarsson, sóknarprestur í Ólafsvík,
prédikar og kórinn syngur undir stjórn Kristínar
Björnsdóttur organista. í lokin verður kaffi-
drykkja í Ketilsstaðaskóla. Afmælishátíðin er
liðurí hátíðarhöldum Skaftafellsprófastsdæmis
vegna 1000 ára kristni á Islandi.
■ HANDVERK Á EYRARBAKKA í dag, kl. 14
til 18, tekur á annan tug handverksfólks þátt í
sölusýningu á handverki í samkomuhúsinu
Staö á Eyrarbakka. Selt veröur kaffi og heitar
vöfflur á staðnum.
©Leikhús
■ 4. SÝNING Á PÓTTUR SKÁLDSINS The
lcelandic Take Away Theatre sýnir Dóttur
skáldsins eftir Svein Einarsson í Tjarnarbiói í
kvöld. Sjá það, verkið fær fína dóma.
■ PANODIL JÓNS GNARRS Sýning í kvöld í
Loftkastalanum kl. 20. A, B, C, D og E kort
gilda. Um Panodii þarf ekki að hafa fleiri orð.
Jón Gnarr.
■ SJÁLFSTÆTT FÓLK ENN Á FJÓLUNUM Leik
gerð Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar Mar-
grétar Guðmundsdóttur á Sjálfstæöu fólki eftir
Halldór Laxness er enn þá sýnd í Þjóöleikhús-
inu við góöar undirtektir. Sýningin er nýkomin
frá Expo 2000 í Þýskalandi þar sem hún fékk
einstakar viðtökur. Það er langur leikhúsdagur í
dag og því þáöir hlutarnir sýndir. Sýnngafjöldi er
takmarkaður.
■ VÓLUSPÁ ÞYKIR FRÁBÆR Völuspá eftir
Þórarin Eldjárn hefur hlotið einróma lof gagn-
rýnenda. Það er hátlðarsýning í dag í Möguleik-
húsinu kl. 16 og enn eru örfá sæti laus. Hring-
ið strax í síma 562 5060.
■ LÝKUR í SEPTEMBER Sýningum á Sex í
sveit í Borgarleikhúsinu fer óðum fækkandi.
Verkið er sýnt í kvöld kl. 19. Það að þetta er
fjóröa sýningarárið segir allt sem segja þarf.
■ STORMUR OG ORMUR Stormur og Ormur
er sýnt í Kaffileikhúsinu, Hlaðvarpanum, Vest-
urgötu 3 kl. 15 í dag. Sýningin hefur fengið
mjög góða dóma og áhorfandanum er haldið
hugföngnum til enda.
('/jfHiwMdAíosTii s'f’ln vcrid hanv(vn
Beindu allri þinni athygli
að akstrinum, veginum
og umferðinni
I 'lltij f I , j n I:. !. 111 rj I | • c.íi} jt f 11| /n.) |.h •! |.IMKlð >-j f 'lljOlTlt'itfkjaStjÓITí j
I’'"'"" "<*;
mÉUIVIFEMÐAR ?
al «0 IIAI ) . uml.nh-
■ 2. SÝNING Á LÓMU Það er Möguleikhúsið
við Hlemm sem sýnir Lómu eftir Guörúnu Ás-
mundsdóttur. Það var frumsýnt þann 15. sept-
ember sl. Skemmtilegt verk enda ekki við öðru
að búast. Miðapantanir í slma 562 5060. Sýn-
ingar hefjast kl. 14.
•Kabarett
■ LISTAMENN AÐ STÓRFUM I tilefni af
Kringludekri 14.-17. september verða lista-
menn að störfum I Gallerí Fold í Kringlunni. í
dag kl. 13 mun Hjördís Guðmundsdóttir renna
leir. Kl. 14 mun Birna Matthíasdóttir þrykkja á
fyrstu grafíkpressu sem flutt var til íslands. Kl.
15 munu svo lifandi og léttir djasstónar óma.
gott myndlist
„Það eru
helst tvær
sýningar sem
ég er spennt
fyrir, hvor á
sínum enda
myndlistarinnar.
Sú fyrri er i hinu
nýja listasafni
Reykjavikur í
Hafnarhúsinu
og nefnist
cafe9.net.
Þ e t t a
f i n n s t
m é r
v e r a
spenn-
a n d i
framtak
og for
vitnilegt að
skoða.
í Ráðhúsinu
hefur einnig ver-
ið sýning af allt
öðrum toga, á
handverki og
hönnun, sem vert
er að skoða. Þar
var unnið með
náttúruna í hand-
verki og þemað í
því sambandi vatn.
Ég hef fylgst nokk-
uð vel með því sem hefur ver-
ið að gerast í handverki og
verð að segja að þessi sýning
er að mörgu leyti mjög góð.
Veitt voru verðlaun fyrir
bestu hönnvm á sýningunni
og það var gaman að sjá að
þau hlaut Helga Kristin ker-
amiker. Því er við að bæta að
hér á landi er staða
keramiksins svo-
lítið sérstök þvi
að engar fram-
leiðsluverk-
smiðjur er
hér að
f i n n a .
L i s t a -
maður-
i n n
verður
því að
v i n n a
v e r k i ð
allt sjálfur,
frá hug-
mynd að
fullgerðum
hlut og er því
ef til vill á
mörkum hönn-
unar og hand-
verks.“
Ólöf Erla Bjarnadóttir keramiker.
Teiknisamkeppni fyrir börn yngri en 12 ára
hefst kl. 13 I samvinnu viö Eymundsson.
■ ÞING HINNAR FUÓTANDI UMRÆÐU (
cafe9.net kl. 16.00 I dag býður Þóroddur
Bjarnason gestum og gangandi upp á kaffi og
með því um leið og hann hvetur til virkrar þátt-
töku í Þingi hinnar fljótandi umræðu. Um er að
ræða þrískipta vefsíðu þar sem hversdagsleg
umræðuefni eru í brennidepli. Gestir cafe9.net
fá umræðuhvata frá Þórhaili eða brydda sjálfir
upp á málefni sem þeim er hugleikið. Umræðu-
efnið er sett á vesíðuna þar sem það getur orð-
ið uppspretta fyrir aðra gesti cafe9.net að frek-
ari umræðu eða kveikjan að einhverju allt öðru.
cafe9.net er í Hafnarhúsinu.
•Opnanir
■ MINNISVARÐI UM VELGERÐARSTARF
JÓSEFSSYSTRA ( dag kl.11.45 verður afhjúp-
aður minnisvaröi á lóð kaþólsku dómkirkjunnar
I Landakotl um kærleiksrlkt velgerðarstarf St.
Jósefssystra á íslandi. Minnisvarðinn er gerður
aö frumkvæði Menningarmálanefndar Reykja-
víkur og með liðsinni Kristnihátíöarnefndar I
þakklætisskyni fyrir fórnfúst starf systranna að
hjúkrun sjúkra og uppfræðslu barna á líðandi
öld. Listamanninum Steinunni Þórarinsdóttur
var falin gerð höggmyndarinnar sem hún nefnir
Köllun. Yfirpriorinna St. Jósefssystra I Dan-
merku, systir Ansgaria Riemann, mun afhjúpa-
minnisvarðann. Afhjúpunin fer fram að lokinni
hámessu I Kristskirkju sem hefst kl.10.30.
Viðstaddir messuna verða biskupar kaþólsku
kirkjunnar á Norðurlöndum sem halda hér
haustfund sinn og svo skemmtilega vill til að
sama dag eru liöin 50 ár síðan séra George,
sem stjórnaði Landakotsskóla I nærfellt 40 ár,
vann klausturheit sitt.
■ OLÍA OG PASTEL Á CAFÉ MÍLANÓ í dag kl.
13.00 opnar Hólmfríöur Dóra Sigurðardóttir
sýningu slna á olíumálverkum og pastelmynd-
um I Café Milanó, Faxafeni 11. Á sýningunni
eru sýnd 18 verk. Dóra hefur ekki sýnt áöur I
Reykjavík en haldið einkasýningar og tekið þátt
I nokkrum samsýningum á landsbyggðinni. Hún
býr á Hvammstanga og starfrækir þar galleri
sem sérhæfir
sig I persónuleg-
um gjöfum. Café
Mílanó er opið j
alla virka daga j ’
kl. 9 til 23.30, 1
laugardaga kl. 9
til 18, sunnu-
daga kl. 13 til 18. Sýningin verður til október-
loka.
•Síöustu forvöö
■ EPWARDS FUGLÓ í dag lýkur sýningu á
verkum Edwards Fugló I Norræna húsinu.
■ UÓSMYNDIR LANDMÆLINGAMANNA (
dag lýkur sýningunni “Vörðuð leið” I Listasetr-
inu Kirkjuhvoli á Akranesi. Til sýnis eru forn-
kort og gamlar Ijósmyndir I eigu Landmælinga
íslands. Um er að ræða 50 kort frá árunum
1547-1901 og Ijósmyndir sem danskir land-
mælingamenn tóku hér á landi á ferðum slnum
á tímabilinu 1900-1910. Sýningin er opin frá
kl. 15-18.
■ PORTRETTUÓSMYNDIR í dag lýkur Ijós
myndasýningu Goethe-Zentrum Reykjavík og
Ljósmyndasafns Reykjavíkur á verkum Bar-
böru Niggl Radloff. Sýningin nefnist “Barbara
Niggl Radloff Portrettljósmyndir
1958-1962” og er i Grófarsal, Grófarhúsinu að
Tryggvagötu 15. Á sýningunni gefur að líta
mannamyndir af ýmsum þekktum rithöfundum,
myndlistamönnum og heimspekingum; Asger
Jorn, Gúnter Grass, Truman Capote, Heinrich
Böll, Evelyn Waugh og Otto Dix, svo nokkrir
séu nefndir. Sýningin er opin á opnunartíma
Grófarhúss, 10-16.
■ RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR í dag kl. 18.00
lýkur sýningu Ragnheiðar Jónsdóttur I sýningar-
sal félagsins íslensk Grafik við Tryggvagötu
15, Hafnarhúsinu. Allir velkomnir.
■ SKAFTFELL ( dag lýkur sýningu á verkum
Olafs Christophers Jensen í Skaftfelli á Seyö-
isfirði.
Þú nærð alltaf sambandi
Smáauglýsingar
(ö
550 5000
Wj j alla virka daga kl. 9-22
sunnudaga kl. 16-22
550 5000
við okkur!
dvaugl@ff.is
hvenær sólarhringsins sem er
■ SNORRI, JÓN OG JÓHANN Síðasti séns að
sjá sýning Listasafns íslands “Listamenn
fjóröa áratugarins” hjá Miöstöö símenntunar
áSuðurnesjum, að Skólavegi 1 í Kefiavík. Sýnd
eru 16 verk listamannanna Snorra Arinbjarnar,
Jóns Engilberts og Jóhanns Briem sem allir
komu fram eftir 1930. í verkum þessara
manna komu fram ný róttæk viðhorf, jafnt I vali
á myndefni sem túlkun. Ný myndefni eins og
maðurinn við vinnu sína, götumyndir og nán-
asta umhvefi listamannsins verða meginvið-
fangsefnið I stað landslagsmálverkins á blóma-
skeiði þeirra Ásgríms, Kjarvals og Jóns Stef-
ánssonar. Sýningin verður opin frá kl. 13-17 og
er aðgangur ókeypis.
■ ÞÝSKT LANDSLAG í GERÐARSAFNI Nú fer
hver að verða slðastur til að sjá sýningu I Gerð-
arsafni á grafíkverkum og skissum eftir 6 þýska