Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2000, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2000, Page 3
Arnviður Snorrason hefur tekið sér nafnið Exos og undir því þeytir hann skífur af þrótti og semur eigin teknótón- list við góðan orðstír, Nokkrar af plötum hans eru þekktar á klúbbum Þýska- lands, mekku teknósins, og þangað hélt hann í pílagrímsferð snemma sumars með plötuspilara í farteskinu. Teknóhaus Addi Exos hefur ekki setið auðum höndum síðan hann byrjaði að snúa plötum og búa til sína eigin teknótón- list. Hann er tvítugur að aldri en eftir hann liggja um tíu útgefnar plötur í Bretlandi og Þýska- landi. Flestar eru þær fjögurra laga smáskífur en einnig ein breiðskífa að nafni „eleventh" eða ellefti. Hann gaf afkvæmi sinu þetta nafn vegna þess að vinnslan á lögunum tók ár og fór fram frá nóvember til nóvember en nóvem- ber er einmitt ellefti mánuður árs- ins. Gömlu dansarnir á Kanarí „Ég er búinn að vera í þessu í sex ár eða frá ’94. Þá fékk ég áhuga fyrir þessari tegund tónlistar og hef verið á kafi i henni síðan,“ seg- ir tónsmiðurinn og bendir á að 1994 hafi verið mjög merkilegt ár í danstónlistinni. „Þetta ár mætti segja að Drum’n’Base hafi orðið til og skilin á milli teknótónlistarinn- ar og trans urðu greinilegri," seg- ir hann. TónlistarferiU Adda hófst bak við trommusettið. Pabbi hans hafði gefið syni sínum gítar en stráksi vildi ekki sjá gripinn og heimtaði almennilegt slagverk. Hann kom fyrst fram með föður sínum og Örvari Kristjánssyni harmónikuleikara og fór ungur með þeim tii Kanaríeyja þar sem djammað var fyrir ellilífeyrisþega á þjóðlegum nótum. Hann segir tónlistarsmekk sinn snemma hafa þróast í átt að danstónlist og eitt leitt af öðru þar til hann var byrj- aður að þeyta skífum fyrir aðra og búa til sína eigin takta. „Ég skil ekki fólk sem ákveður bara einn góðan veðurdag að gerast plötu- snúðar. Þetta gerist bara af sjálfu sér,“ segir hann enda teknóhaus og vínylklórari af köllun. e f n i Einar Örn Kon- ráðsson: IKominn í bæinn til 'að meika’ða Guðmundur Ingi Þor- valdsson: Leikur stúlku á háum hælum Frægur í Þýskalandi Addi spilaði i Berlín fyrri hluta sumarsins, á klúbbnum Tresor. Það reyndist honum auð- sótt að komast að því þýskararnir þekktu til hans. „Skemmtana- stjórinn átti mikið af stöffinu mínu og mér var almennt vel tek- ið,“ segir hann um Þýskalandsför- ina. Fýrir skömmu leituðu tveir frægir teknógúrúar, hinn breski Ben Sims og Þóðverjinn Pascal Fevors, til Arnviðs og sóttust eft- ir endurhljóðblöndun hans á sínu efni og hefur hann verið upptek- inn við það undanfarið. Sjálfur gekk hann nýlega aftur til liðs við Thule-útgáfuna eftir langt hlé á því samstarfi. Þrátt fyrir vel- gengnina segist Addi ekki hafa orðið var við að peningaveskið sé að þykkna eða að núllin bætist við reikningsyfirlitin og á meðan svo er heldur hann sínu striki í námi við MH. Eða eins og hann orðar það sjálfur: „Þetta er lífs- stíll, ég spila og sem tónlist til að tjá mig.“ Arnviður vill stuðla að uppgangi teknómenningar á ís- landi og stendur fyrir svo kölluð- um 360" kvöldum á tuttuguog- tveimur, annan fimmtudag hvers mánaðar, og fær til liðs við sig valinkunna plötusnúða hverju sinni. En í kvöld verður hann við mixerinn á Kaffi Thomsen og geta áhugasamir barið hann aug- um þar og látið hann endurgjalda greiðann með barningi á hljóð- himnum sínum. Þorsteinn Guð- mundsson. Er íbúi við Elliðavatn Ólympíufólkið í Sydney: Hvað gerir i það þegar 1 það dettur út? ®§# : ..... Fegurðarsamkeppni íslands, meistara- flokki kvenna, Anna Lilja Björnsdóttir, til Japans. Þar mun hún koma fram sem fulltrúi íslenskrar fegurðar og etja kappi við erlendar ufsagrýlur í kroppasýningunni Miss International. „Ég er nú aðallega bara að máta kjóla og trimma,“ segir Anna Lilja um undirbúninginn fyrir keppnina og gerir lítið úr setum fyrir framan spegilinn. Hún brosir þó sjálf að því hversu tímafrekt þetta hefur reynst. Lítill tími hefur gefist til að sinna öðrum hugðarefn- um og á tímabili var kærastan- um hætt að lítast á blikuna. Svo er að skilja á fegurðardís- inni að hennar fáu tómstundir fari að mestu í skyrát, enda hefur skyrið verið undirstaðan í mataræði hennar síðustu mánuðina. Þrátt fyrir allt er hún ekki orðin leið á því en undirstrikar að rjómaskyrið rati ekki inn fyrir sinar varir. Afmæli með Pokemon Anna flýgur til Parísar síðla sunnudagskvölds. Þar hittir hún flestar stúlkurnar í keppn- inni og verður þeim samferða til Japans, hvar hún lendir á 19 ára afmælisdegi sinum. Hún ferðast á vegum Fegurðar- samkeppni íslands en heldur utan ein síns liðs. „í París tek- ur á móti mér kona og ég verð í hennar umsjá ásamt hópi af enskumælandi stúlkum. Það er vel passað upp á okkur,“ segir Anna. Keppnin fer fram í Tokyo 4. október en þangað til sækja keppendurnir góðgerða- samkomur og fara í skoðunar- ferðir um landið. Unnum ’63 Keppnin er þrískipt. Um 60 stúlkur taka þátt í henni og 15 komast í úrslit. Anna kvíðir lítið fyrir en þykir hálfkjána- legt að þurfa að sýna fótafimi sína á sundbol einum fata. Feg- urðardrottningin vill sem minnst ræða möguleika sína og vonir og segist aðallega vera að þessu sér til skemmtunar. „ís- lendingum hefur ekki gengið nógu vel. Þó höfum við einu sinni unnið keppnina, með Guðrúnu Bjarnadóttur 1963, og einu sinni komist í úrslit,“ segir hún. Gott gengi gæti skapað Önnu Lilju mörg tæki- færi en hún segist lítið hugsa um það og ætlar bara að ein- beita sér að námslokum sínum á alþjóðabraut Verzlunarskól- ans næsta vor, á milli þess sem hún hámar í sig skyrið. De la Soul & LL Cool J: Góð sending úr gamla skólanum Hljómsveit- in Toploader: Algjörir kanna- biskettir Dóra og Mariko: Svamla í Djúpu lauginni 33 ástæður: Þú ættir að gerast fatafella I# 1 f Frumsvning Dancer in the Dark Lausaleikskróainn von Trier Draakeponi á Spotliaht Óvæntir bólfélaaar um helgina f ókus fylgir DV á föstudögum Forsíðumyndfna tók Teítur af Guðmundi Inga Þorvaldssyni 22. september 2000 f Ó k U S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.