Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2000, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2000, Qupperneq 9
24 MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 2000 Sport Fram-Afturelding 25-24 1-0, 1-1, 44, 6-i, 8-5, 12-6, 13-9, (14-10), 14-11, 15-12, 18-14, 21-15, 23-18, 24-22, 25-24. Fram: Mörk/viti (skot/viti): Hjálmar Vil- hjálmsson, 6 (9), Maxime Fedioukine, 5/3 (5/3), Róbert Gunnarsson, 4 (4), Gunnar Berg Viktorsson, 3 (6/1), Guð- laugur Arnarsson, 2 (2), Guðjón F. Drengsson, 2 (4), Njörður Árnason, 1 (2), Vilhelm G. Bergsveinsson, 1 (2), Björgvin Þór Björgvinsson 1 (3). Mörk úr hraðaupplilaupum: 6 (Guð- laugur 2, Gunnar 1, Hjálmar 1, Maxime 1, Róbert 1). Vitanýting: Skorað úr 3 af 4. Varin skot/víti (skot á sig): Sebastian Alexandersson, 1 (9/2, 11%, eitt víti dæmt af), Magnús Erlendsson, 4 (19, 21%). Brottvísanir: 18 mínútur (Njörður rautt spjald fyrir 3x2 mín.). Aftureldine: Mörk/víti (skot/víti): Galkauskas Gin- tas, 8 (10), Savukynas Gintaras, 5 (5), Bjarki Sigurðsson, 5/2 (11/3), Magnús Már Þórðarson, 3 (3), Þorkell Guð- brandsson, 2 (4), Hjörtur Arnarson, 1 (1), Páll Þórólfsson (1). Mörk úr hraóaupphlaupum: 5 (Gintaras 2, Þorkell 1, Hjörtur 1, Gintas 1). Vitanýting: Skorað úr 2 af 3. Varin skot/víti (skot á sig): Reynir Þór Reynisson, 5/1 (25/4, 20%), Ólafur Gíslason 4 (9, 44%). Brottvisanir: 12 mínútur. Dómarar (1-10): Guðjón Sigurðsson og Ólafur Haraldsson (6). Gœði leiks (1-10): 4. Áhorfendur: 350. Maður leiksins: Hjálmar Vilhjálmsson, Fram. Staðan Fram 5 5 0 131-108 10 Haukar 4 4 0 131-95 8 Valur 5 4 1 143-120 8 ÍBV 4 3 1 126-100 6 Afturelding 5 3 2 144-129 6 Grótta/KR 5 3 2 117-123 6 KA 5 2 3 127-123 4 ÍR 4 2 2 92-102 4 FH 4 1 3 97-100 2 Stjarnan 5 1 4 132-142 2 HK 5 0 5 114-143 0 Breiðablik 5 0 5 100-169 0 Leik FH og ÍBV, sem vera átti í Kaplakrika í gær, var frestað þar sem Eyjamenn komust ekki til lands. Leikurinn hefur veriö settur á í kvöld klukkan átta. Sebastian Alexandersson, fyrirliði Fram, fór út af um miðjan fyrri hálfleik en mun vera kviðslitinn og þarf að fara í aðgerð. Ákvörðunin mun verða tekin í dag og aögerðin gæti jafnvel verið framkvæmd í dag. Sebastian sagði þó að þetta væri smávægilegt og að hann yrði ekki lengi frá. -ÓK Stjarnan-Breiðablik 29-26 0-2,2-4, AA, 7-6,9-7,11-9, (14-14), 17-14, 20-15, 21-17, 22-19, 25-20, 29-26. Stiarnan: Mörk/viti (skot/víti): Björgvin Rún- arsson, 8 (11), Arnar Pétursson, 7/2 (10/2), Magnús Sigurðsson, 4 (9), Bjarni Gunnarsson, 3 (7), Eduard Moskalenko, 2 (5), Kristján Kristjánsson, 2 (2), Haf- steinn Hafsteinsson, 1 (2), Vilhjálmur Halldórsson, 1 (2), Sigurður Viðarsson, 1(2). Mörk úr hraóaupphlaupum: 7 (Björg- vin, 6, Hafsteinn). Vitanýting: Skorað úr 2 af 2. Varin skot/víti (skot á sig): Birkir ív- ar Guðmundsson, 18 (44/4, 41%). Brottvisanir: 10 mínútur. Breiðablik: Mörk/viti (skot/viti): Zoltan Belányi, 8 (11), Halldór Guðjónsson, 4/4 (4/4), Andrei Lazarev, 3 (3), Davíð Ketilsson, 3 (4), Bjöm Hólmþórsson, 3 (16), Sig- tryggur Kolbeinsson, 2 (4), Slavisa Rakanovic, 2 (8), Gunnar B. Jónsson, 1 (1). Mörk úr hraðaupphlaupunu 4 (Belányi, 3, Davíð). Vitanýting: Skorað úr 4 af 4. Varin skot/viti (skot á sig): Rósmund- ur Magnússon, 13 (42, 31%). Brottvisanir: 8 minútur. Dómarar (1-10): Stefán Arnaldsson og Gunnar Viðarsson (8). Gceði leiks (1-10): 6. Áhorfendur: 120. Maður leiksins: Zoltan Belányi, Breiöabliki. Æsispennanai - lokamínútur þegar Fram vann sinn fimmta leik í röð í Nissandeildinni Framarar mega vera þakklátir að hafa sloppið með öll stigin í leiknum gegn Aftureldingu í Nissandeildinni í gærkvöldi. Eftir spennandi lokamínút- ur höfðu heimamenn sigur, 25-24, eftir að hafa leitt allan leikinn, mest með 6 mörkum. Fram skoraði fyrsta mark leiksins og var upp frá því alltaf skrefinu á undan og náði mest sex marka forystu í fyrri hálfleik, 12-6. Afturelding náði þó að laga aðeins stöðuna undir lok hálfleiks- ins, einkum fyrir tilstilli þjálfarans, Bjarka Sigurðssonar, sem kom inn á undir lokin. Siðari hálfleikurinn byrjaði svipað og sá síðari endaði með marki frá Bjarka en síðan fór aflt í vitleysu um tíma og bæði lið klúðruðu góðum færum og dómaramir réðu lítið við leikinn. Fram- arar héldu góðri forystu áfram en í stöð- unni 23-18 tóku gestimir leikhlé og fóm upp frá því að saxa rækilega á forskot heimamanna og undir lokin, eftir mik- inn gauragang og rautt spjald á Njörð Árnason Framara, fengu gestimir víti sem hefði getað tryggt þeim framleng- ingu. Bjarki fór á línuna og tók gabb- hreyfingu, Magnús Már Þórðarson, línumaður Aftureldingar, steig inn fyrir punktalinuna og dómararnir dæmdu vitið af. Framarar fengu aukakastið með tólf sekúndur eftir af leiknum og náðu að halda boltanum allt til loka og sigra, 25-24. „Ég held að leikurinn hafi verið of þægilegur fyrir okkur,“ sagði Sebastian Alexandersson, fyrirliði Fram, eftir leikinn í gær. „Á móti svona góðu liði, eins og Afturelding er, getur verið erfitt að vera svona lengi með þægilega for- ystu, ósjáifrátt fara menn aðeins á hæl- ana og við sjáum í kvöld hvað gerist þá á móti svona liði. Þetta verður allt í einu losaralegt og menn fara að gera hluti sem þeir myndu að öllu óbreyttu ekki gera. Þetta lofar góðu og ég er ánægður með það að við höfum sigrað í öllum fimm leikjunum. Við erum ekki að spila nógu vel, við eigum helling inni. Við þurfum að fara að klára 60 minúturnar. Hefðum við gert það í kvöld hefði leik- urinn getað farið á allt annan veg. Þetta var hins vegar góð áminning. Það er hins vegar mjög ánægjulegt að við séum að skila fullu húsi með minna en 100% frammistöðu,“ sagði Sebastian að lok- um. Bjarki Sigurðsson var að vonum ekki ánægður í lok leiks. „Við fórum ekkert í gang, það verður bara að segjast eins og er. Við mættum ofjörlum okkar í fyrri hálfleik og leikmenn voru ekki að spila sinn bolta. Það var ekkert sem kom okkur á óvart í leik Fram en menn voru einfaldlega ekki tilbúnir. Við spil- uðum ekki eins og vera ber í sóknar- leiknum og því fór sem fór. Það var pirringur út i dómarana á báða bóga, þeir einfaldlega réðu ekki við þennan leik,“ sagði Bjarki. -ÓK Pele sextugur - í dag, 23. október Brasilíska knattspyrnugoðið Edson Arantes do Nascimento, betur þekktur sem Pele, á afmæli í dag. Þessi frábæri knattspymumaður, sem af flestum er talinn vera besti knattspymumaður heims fyrr eða síðar, er sextugur. Pele vakti fyrst athygli í heimsmeistarakeppninni í Sviþjóð árið 1958, þá aðeins 17 ára gamall. Alls spilaði hann í fjórum heimsmeist- arakeppnum, 1958,1962, 1966 og 1970, og í þrjú skipti stóð hann uppi sem sigurvegari. Hann spilaði með brasilíska liðinu Santos stærstan hluta ferilsins og gerði liðið að einu besta félagsliði heims. Félagið vann m.a. tvisvar sinnum heimsmeistarakeppni fé- lagsliða. Pele skoraði 1283 mörk í opinberum leikj- um á ferlinum og er ólík- legt að nokkur knatt- spyrnumaður eigi eftir að leika þann leik eftir. Hann var valinn íþrótta- maður aldarinnar í Vin árið 1999 og menn eru sammála um það að jafn- góður knattspymumaður eigi ekki eftir að koma fram. -ósk Stjarnan vann Blika með „aðeins“ þremur mörkum: Blikaseigla gegn Stjörnunni Blikar veittu Stjörnunni verðuga keppni í Nissandeild karla í Garðabæ í gær. Gestimir töpuðu 29-26 en staðan í hálfleik var 14-14. Blikar höföu tapað öllum leikjum sín- um með tiu mörkum eða meira en Blik- ar léku vel á köflum og voru duglegir að leysa inn á línu og fengu mörg færi þannig sem nýttust ágætlega. Stjömumenn þurfa að taka sig á til að eiga möguleika á að vera meðal átta efstu liðanna i deildinni. Þeir unnu þarna aðeins sinn fyrsta sigur, og hann nauman, á langneðsta liði deildarinnar. Birkir lokaði markinu Vendipunkturinn í leiknum var um miðjan seinni hálfleik þegar Birkir ívar lokaði Stjörnumarkinu og liðið náði hraðaupphlaupum upp úr því og náði flmm marka forskoti, 20-15. Blikar komu aðeins til baka undir lok leiksins. Tíminn ekki nægur En tíminn var ekki nægur til að brúa bilið sem hafði myndast. Hjá Blikum lék Rósmundur vel í markinu ásamt Belányi og Daviði Ketilssyni. Hjá Stjömunni lék Birkir vel í markinu og Björgvin var öflugur í hraðaupphlaup- unum og Arnar Pétursson skilaði sínu ágætlega, þó sérstaklega í vöminni. Eduard Moskalenko kom inn á í seinni hálfleik og munaði mikið um hann. -BB ORKA - SNORRI G. CUÐMUNDSSON HF. Allt sem eerir goí>an £»/| betri síminn © SKJÁRE/NN BILVERK Bilasprautun og réttingar Eirfkur Kjerulf Óskum eftirtöldum t\\ hamingju með íslands- og bikarmeistaratitlana Götuspyrna Eiríkur Sveinþórsson Ingólfur Jónsson Bjarni Knútsson Kristinn Guðmundsson Birgir Karl Birgisson Einar Birgisson Go-kart Guðbergur Guðbergsson Sandspyrna Stefán Þengilsson Róbert Hjörleifsson Birgir Karl Birgisson Jónas Karl Harðarson Bjarni Hjaltalín Einar Gunnlaugsson Kristján Skjóldal Torfæra Gunnar Pálmi Pétursson Enduró Einar Sigurðsson Motocross Viggó Viggósson Snjókross Helgi Reynir Árnason Halldór Oskarsson Alexander Kárason Skarphéðinn Eymundsson Kvartmíla Hilmar Björn Hróðmarsson Kristinn Gísli Guðmundsson Einar Birgisson Jens Herlufsen Valur Jóhann Vífilsson Eiríkur Sveinþórsson Lúðvík Halldórsson Rallycross Hilmar B. Þráinsson Sigurður Unnsteinsson Ingimar Baldvinsson Yfir mm «nda í ísl^nskum kepp@i akstursíþróttum velja að keppa með okkur. Flu?björ?unariveitin Hellu START liV luöbyr lálslellllibll jeppaklúbbur A, f * REYKJAVÍKUR Olafsfjaroar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.