Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2000, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2000, Blaðsíða 14
30 MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 2000 JOV Sport Búð, sem Páll Magnússon er í forsvari fyrir, hefur leigt Svartá til þriggja ára og meðal þeirra sem eru í þessum hópi er Ágúst Pét- ursson og Hilmar Hansson sem skrifað hefur um veiði á Strik. is. Þótti Hilmar Hansson fara langt út fyrir velsæmismörk fyrir skömmu þegar hann hakkaði við- tal þeir bræðra úr DV í sig og kall- aði þá öllum illum nöfnum. En ekki meira um það í bili. Lítió hefur frést af framboðs- málum hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur en það styttist í aðal- fundinn. Eins og greint var frá í fjölmiðlum ætlaði Kristján Guð- jónsson ekki að hætta sem for- maður en heyrst hefur að hann ætli að hætta. Fleiri eru víst að hætta í stjóminni og gæti því breytingin orðin töluverð á næsta ári. Árni Baldursson og Lax-á slá ekki slöku við í leigu á laxveiðiám eins og DV greindi frá fyrst fjöl- miðla. Samingur við Blöndubænd- ur var gerður til þriggja ára og borgar Lax-á 11 miiljónir á ári. Byggja á veiðihús við Blöndu fyr- ir þá veiðimenn sem veiða munu í ánni á næstu árum. Þaó styttist i aö Landssam- band stangaveiðifélaga verði með afmæli sitt núna seinna í þessum mánuði. Þá verður félagið 50 ára en formaður þess er Ragnar Hólm. Mönnum hefur gengið misvel á rjúp- unni það sem af er og hætt við þvi að sumir veiðimenn þurfi að breyta um jólamat að þessu sinni ef fram heldur sem horfír. Við Klakveiðin fréttum á dög- unum af þrem- ur vönum mönnum sem gengu til rjúpna á Trölla- tunguheiði fyrir vestan og sáu ekki fugl í fjóra daga. -G.Bender Rjúpnaveiðin hefur oft gengið betur en núna. Reyndar segja reyndir veiðimenn að minna sé bara af rjúpunni en oft áður. Bara þess vegna er bannið á rjúpu i Eyjafirði og kringum Reykjavík rétt. Þótt það hafi komið allt oft seint til framkvæmda í Eyjafirðinum. Rjúpnaveiðimenn sem DV-Sport ræddi við fyrir norðan sögðu miklu minna af fugli en á sama tíma í fyrra þegar þeir gengu til rjúpna. - „1 fyrra fengum við góða veiði en . núna var þetta mjög rólegt og við Klakveiði er víða lokið í veiði- ánum eða að ljúka þessa dagana. Þessi veiðiskapur hefur gengið ^vel þar sem fiskur er fyrir hendi. í Eystri-Rangá fengust á milli 300 og 400 laxar í klakið sem verð- ur að teljast mjög gott. „Klakveiðin gekk vel bæði í Ytri-Rangá og Breiðdalsá. Við luk- um þessum veiðiskap fyrir fáum dögiun í Breiðdalsánni en veiðum enn þá í Rangánni," sagði Þröstur Elliðason í gærdag er við spurð- um hann um klakveiðina í ánum. „Sá stærsti sem við fengum í Breiðdalsánni var 20 pund og svo fengum viö nokkra væna 16 punda fiska. Þaö var veitt á stöng í sumar í ánni og svo núna í haust, ætli við höfum ekki átt um 20 laxa í kiak í Breiðdalnum. í Ytri-Rangá er veitt enn þá i klakveiðinni, bæði á stöng og i net. Veiðiskapurinn hefur gengið ágætlega og eitthvað hafa menn verið að setja af laxi í klak í sum- ar í Ytri-Rangá,“ sagði Þröstur í lokin. Klakveiðin hefur víða gengið vel og flestir fengið þá fiska sem fengum fáa fugla,“ sagði veiðimaðurinn enn fremur. Um helgina fjölmenntu veiðimenn til rjúpna en margir bíða eftir að snjórinn komi. „Ég fer ekkert fyrr en snjórinn kemur, þá tekur maður fram byssuna,“ sagði Sverrir Sch. Thorsteinsson og bætti við, „eitthvað hefur verið að fást héma 1 kringum Hornafjörö." Erfitt er að segja til um aflamagn en einhver þúsund af rjúpu hafa verið skotin. -G.Bender Rjúpnaveiðimenn hafa víða leitað fanga og fengið sæmilega veiði. DV-mynd G.Bender þeir hafa sóst eftir. í Laxá í Döl- um var klakveiði og gekk sá veiði- skapur ágætlega. Reyndar ijölgar þeim veiðiám þar sem laxinn er alveg látinn vera og leyft að leika sér í hyljum ánna. Bleikjan er byrjuð að hrygna fyrir nokkru, vestur Dölum var fyrir fáum dögum allt á fullu í Hvolsánni. Hængar og hrygnur voru að búa sig und- ir tilhugalífið og gekk ýmis- legt á. Sami leikurinn átti sér stað norður í Hrútafjarðará hjá bleikj- unni í Dumbsfljótinu fyrir fáum dögum en þar er alveg ótrúlega mikið af vænum og fallegum bleikjum sem eiga eftir að koma ánni til góða á næstu vikum. Stærstu bleikjumar í hylnum eru um 5 pund. -G.Bender - líflegt í Eystri-Rangá. Einn 20 punda lax dreginn í Breiðdalsá Rjúpnaveiðin: Oft gengið miklu betur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.