Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2000, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000
DV
13
Útlönd
Einræðisherrann
hrakinn á flótta
Leiötogi herforingjastjómarinnar
á Fílabeinsströndinni, Robert Guei,
er sagður hafa flúið með þyrlu frá
flugvellinum í Abidjan til óþekkts
staðar. Heimildarmaður Reuters-
fréttastofunnar sagði Guei hafa
haldið á brott ásamt innanríkisráð-
herra sínum, Mouassi Grena. Ann-
ar heimildarmaður sagði að þeir
væru á leið til Líberíu og að Guei
hefði haft með sér tvo lífverði. BBC-
fréttastofan hefur það eftir heimild-
armönnum sínum að Guei hafi flúið
til Benin. Einnig er orðrómur á
kreiki um að hann sé enn í landinu.
í gær lýsti forsætisráðherra Fíla-
beinsstrandarinnar, Seydou Diarra,
því yfir að leiðtogi stjórnarandstöð-
unnar, Lauren Gbagbo, hefði sigrað
í forsetakosningunum á sunnudag-
inn. Áður hafði Guei lýst yfir sigri
þrátt fyrir loforð um að hann ætlaði
að virða dóm kjósenda. Guei, sem
rændi völdum á Fílabeinsströnd-
inni í desember síðastliðnum, hafði
Einræðisherra Fílabeinsstrandarinnar
Robert Guei rændi völdum í desember síðastliðnum. Hann hunsaði úrslit
kosninganna á sunnudaginn en gafst upp í gær.
þó með hæstaréttarúrskurði tekist
að útiloka helsta keppinaut sinn frá
þátttöku í kosningunum.
Er Guei hafði lýst yfir sigri héldu
þúsundir íbúa Fílabeinsstrandar-
innar út á götur og torg og efndu til
mótmæla á þriðjudaginn. Mótmælin
héldu áfram í gær og að sögn sjón-
arvotta gengu sumir hermenn til
liðs við mótmælendur. Áður höfðu
þó um 60 mótmælendur látið líflð í
átökum við hermenn, að þvi er
stjórnarandstaðan greinir frá.
Sú ákvörðun Gueis að boða til
kosninga og hunsa siðan úrslitin
þykir minna á aðferðir Slobodans
Milosevics, fyrrverandi Júgóslavíu-
forseta. Á forsíðu franska blaðsins
Le Monde í gær var teikning af
Guei þar sem hann lýsti yflr sigri
samtímis því sem Milosevic biður
um hæli í landinu.
Þýska blaðið Tageszeitung skrifar
að nú ári illa fyrir einræðisherra.
Fremstur í fiokki
Fujimori Perúforseti fór fyrir hópi
manna sem leitaði að fyrrum
njósnaforingja landsins í gær.
Fujimori lætur
hundelta spæjara
Alberto Fujimori Perúforseti fór
fyrir flokki þungvopnaðra varð-
manna og hunda þegar leitað var að
fyrrum yfirmanni leyniþjónustu
landsins í hæðunum norður af höf-
uðborginni Lima í gær. Þyrlur voru
einnig notaðar við leitina.
Fujimori hefur heitið þvi að leita
dyrum og dyngjum að njósnafor-
ingjanum fyrrverandi, Vladimiro
Montesinos, en andstæðingar forset-
ans segja þetta helbert sjónarspil.
Montesinos setti allt á annan end-
ann í Perú á mánudag þegar hann
sneri óvænt heim eftir mánaðar út-
legð. Honum hafði þá mistekist að
fá pólitískt hæli í Panama.
Fujimori sagði fréttamönnum að
hann hefði ekki í hyggju að hand-
taka Montesinos, heldur vildi hann
aðeins finna hann, öryggis hans
vegna. Montesinos var miðpunktur-
inn í hneykslismáli sem varð til
þess að Fujimori boðaði til kosninga
áður en kjörtímabilið var á enda.
Fujimori ætlar ekki að bjóða sig aft-
ur fram.
Stjörnur í afmælisveislu hjá Hillary
Fræga, ríka og fallega fólkiö fjöimennti í afmælisveislu sem haldin var fyrir Hillary Rodham Clinton, forsetafrú í Banda-
ríkjunum, í gærkvöld. Þar mátti sjá kvikmynda- og sjónvarpsstjörnur margs konar. Fremstur í flokki fór leikarinn Tom
Cruise sem sést lengst til vinstri á þessari mynd. Fjölskylda Hiilary var einnig í veisiunni, dóttirin Chelsea og eigin-
maðurinn Bill. Afmælisveislan var öðrum præöi fjáröflunarsamkoma vegna framboðs Hillary til öldungadeildar Banda-
ríkjaþings. Forsetafrúin á annars afmæli í dag og er 53 ára.
Beðist vægöar
Forseti Serbíu hefur beðið um að
ekki verði veist að Milosevic.
Fjölmiðlar ráðist
ekki á Milosevic
Forseti og forsætisráðherra
Serbíu hvöttu ijölmiðla í gær til að
misnota ekki nýfengið frelsi sitt til
að ráðast með óviðurkvæmilegum
hætti að stjórnmálaandstæðingum
sínum, þar á meðal Slobodan Milos-
evic, fyrrum forseta Júgóslavíu, og
fjölskyldu hans.
„Það er erfltt að skilja þessar
ruddalegu og ósæmilegu árásir á
Milosevic og fjölskyldu hans,“ sagði
Milan Milutinovic forseti við frétta-
menn eftir að hann hafði leyst upp
þing Serbíu og þar með gert kleift
að boða til kosninga á næstunni.
Hvorki Milutinovic né Milomir
Minic forsætisráðherra tilgreindu
við hvaða árásir þeir ættu. Mil-
utinovic hefur verið ákærður fyrir
stríðsglæpi, eins og Milosevic.
Göran Persson
Lögreglan leitaði að sprengju við
ráðuneyti hans í nótt.
Óttuðust tilræði
við Persson
Lögreglan í Stokkhólmi girti í
nótt af stórt svæði kringum forsæt-
isráðuneytið eftir að öryggisverðir
höfðu séð ökumann bíls, sem ekið
var að ráðuneytinu rétt eftir mið-
nætti, stökkva út úr bílnum og
hlaupa á brott. Litið var alvarlega á
málið vegna hegðunar mannsins og
voru sprengjusérfræðingar því kall-
aðir á vettvang. Klukkan sex í
morgun var staðfest að engin
sprengja væri i bílnum.
Eiganda bílsins, Svía á sextugs-
aldri, var leitað i alla nótt. Hann
hefur verið fjarverandi frá heimili
sínu í nokkra daga. Röskun varð í
morgun á umferð í Stokkhólmi
vegna lokananna.
Persson svaf í nótt í forsætisráð-
herrabústaðnum rétt hjá ráðuneyti
sínu og þinghúsinu.
Hlutabréf í ríkiseigu seld til að
fjármagna sjálfstæði Færeyja
Færeysk stjórnvöld eru
tilbúin með sérstakan að-
lögunarsjóð til að róa
landsmenn vegna væntan-
legs sjálfstæðis Færeyja.
Tekna í sjóðinn verður
meðal annars aflað með
sölu á hlutabréfum land-
stjómarinnar í til dæmis
Atlantic Air-ways flugfé-
laginu og í Færeyjabanka.
Landstjómin áformar þvi
að fastsetja andvirði allra
eigna rikisins, að sögn
Hogni Hoydal
Fundar í Kaupmanna-
höfn í dag.
danska blaðsins Poli-
tiken.
„Peningarnir munu
koma frá húgsanlegri
sölu á hlutabréfum í eigu
ríkisins. Við ætlum þó
ekki að selja meirihluta-
eign okkar í Atlantic
Airways eða Færeyja-
banka,“ segir Hogni Hoy-
dal, ráðherra sjálfstæðis-
mála í færeysku land-
stjóminni.
Fjórða lota samninga-
viðræðna landstjómarinnar við
dönsk stjómvöld um sjálfstæði Fær-
eyja fer fram í forsætisráðuneytinu i
Kaupmannahöfn í dag.
Færeyingar vilja að Danir veiti
þeim 15 ára aðlögunartíma áður en
ríkisstyrkur Dana verður af lagður,
fái eyjamar sjálfstæði. Danir segja
aftur á móti að aðlögunartímabilið
verði fjögur ár að hámarki. Fari
Danir sínu fram vantar Færeyinga
um fimmtíu milljarða íslenskra
króna í kassann. Salan á hlutabréf-
um á að bæta það upp að hluta.
Cadillac Fleetwood
ekinn aðeins 85 þús. m., leðurinnrétting.
sóllúga, rafdr., vél 4,1, ssk.
Gott eintak
Eðalvagn á eðalverði: aðeins 690.000
Upplýsingar í síma 869 3017