Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2000, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2000, Blaðsíða 27
31 FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000 I>V Tilvera Hillary á afmæli í dag Forsetafrú Banda- ríkjanna, Hfllary Rod- ham Clinton, verður fimmtíu og þriggja ára gömul í dag. Nú þegar seta eiginmanns hennar í Hvíta hús- inu er að renna sitt skeið hefur Hill- ary gert lýðnum ljóst að hún ætli að taka við af eiginmanninum og vera pólitíkusinn í fjölskyldunni og býður sig fram sem öldungardeildarþing- maður fyrir New York. Hillary, sem er lögfræðingur að mennt, hefur ekki haldið sig í skjóli eiginmannsins og hefur á forsetaferli hans látið til sín taka í mörgum málum. Gildir fyrir föstudaginn 27. október Tvíburarnlr (2 >ví ~s( ! Taktu Kvöld Vatnsberinn (20. ian.-ts. fehr.i: . Einhver biður þig um ‘ að lána sér fjármuni. Það kann að vera ailt í lagi ef vel er gengið fra málunum. Fjárhagur þinn fer batnandi. Fiskarnir (19. febr.-20. mars): [ Gerðu þér far um að Ikoma vel fyrir og vandaðu þig í sam- skiptum við annað fólk. Þú munt fá það margfalt endurgreitt. Hrúturinn (21. mars-19. apríH: j Þú hefur óþarflega miklar fjárhagsáhyggjur. Fjár- ^ málin standa ekki eins iila og þú heldur. Þú ættir að bregða út af vananum og sletta ær- lega úr klaufunum einu sinni. Nautið (20. aoríl-20. maii: Ástin blómstrar þessa dagana og það er greinilegt að sumarið er komið hjá þér. Það væri ékki svo vitlaust að fara í smáferðalag. Tvíburarnlr (21. maí-2i. iúníi: Gefðu þér betri tíma ' fyrir sjáifan þig en þú hefur gert undanfarið. Þú þarfnast þess. Taktu'kvöldinu rólega í faðmi fjölskyldunnar. Krabbinn <22. iúní-22. íúitu Þér lætur betur að | vinna með öðrum en ' einn í dag. Þú nærð _____ góðum árangri í vinn- unm og sjálfstraust þitt eykst til muna. Uónlð (23. iúlí- 22. áeúst): Þeir sem eru ástfangnir gætu lent í smávægi- legri deilu. Þeir sem eru ekki ástfangnir verða það von bráðar. Næstu dagar verða fjölbreyttir og skemmtilegir. Mevian (23. ágúst-22. seot.l: /t. Misskilningur gæti Ayft orðið á milli manna og y^röng skilaboð borist. ™ F Fjölskyldan stendur þétt saman ef erfiðleikar koma upp. Vogin (23. sept.-23. okt.l: Þú færð nýtt áhugamál sem á eftir að færa mikla gleði inn í líf þitt. Þú kynnist áhuga- verðri persónu í tengslum við þetta áhugamál. Sporðdreki (24. okt.-2i. nóv.l: | Vinur þinn er eitthvaö niðurdreginn þessa jidagana og þarf á þér Jað halda. Talaðu við harin og reyndu að benda honum á björtu hliðamar á tilverunni. Bogamaður (22. nnv.-?i. dfis.h JNiðurstaða fæst í dag eða fnæstu daga í máli sem hefur lengi beðið úrlausnar. Niðurstaðan er þér mikill léttir og er svo sannar- lega tilefni til að halda upp á það. steingeltin (22. des.-19. ian.l: Þú tekur þér eitthvað nýtt fyrir hendur í dag. Það er ekki víst að þér lítist vel á það í byrjun en líklega venst þú þessu fljótt. wu5m ý Heimasíða á að færa I jörna fulltrúa nær íbúunum og öfugt: Einn af í yrstu íbúunum opnaði h|eima- síðuna Óboðinn gestur í baðkeri Britney Feit af því að hún gat ekki farið í ræktina Kryddpían Mel C viðurkennir að hún hafi þyngst svolítið. „Ég meiddi mig í mjöðminni í janúar síðastliðn- um og einni viku fyrir tónleikaferða- lagið datt ég í stiga og braut á mér fót- inn. Það er því svolítið langt síðan ég hef getað farið í líkamsrækt," segir Mel C í nýlegu viðtali. Það hefur ekki farið fram hjá bresku pressunni að Mel C hefur ekki stundað líkamsræktina af krafti. Slúð- urblöðin í Bretlandi hafa keppst við að segja fréttir af holdafari Mel C og uppnefnt hana fitubollu. Reyndar hefur athygli fjölmiðla einnig beinst að holdafari annarrar Kryddpíu, Victoriu, sem er orðin grindhoruð. Victoria viðurkenndi síð- astliðinn vetur að hún hefði lést og ætti við átröskun að stríða. Gamall grínisti heiðraður Bandaríski grínistinn og leikstjórinn Carl Reiner fékk gamanverölaun sem kennd eru viö háöfuglinn Mark Twain vestur í Washington um daginn. Sonur verðlaunahafans, leikarinn og leikstjórinn Rob Reiner, stendur hjá. DV, EGILSSTODUM:_____________________ „Heimasiða getur fært kjörna fulltrúa nær íbúum sveitarfélagsins og íbúana nær okkur og það er geysilega mikilvægt," sagði Katrín Ásgrímsdóttir, forseti bæjarstjórar Austur-Héraðs, þegar opnuð var viðamikil heimasíða sveitarfélags- ins með.pomp og prakt. Það var Bjarghildur Sigurðardótt- ir ásamt langömmubarni, Brynjari Þórhallssyni, sem opnaði síðuna formlega. Bjarghildur var einn af allra fyrstu ibúum Egilsstaðaþorps, flutti inn í hús sitt 1946. Á heima- síðu Austur-Héraðs er að finna allt um stjóm og starfsmenn sveitarfé- lagsins, fyrirtæki, fréttir og jafnvel er hægt að komast inn á heimasíður vinabæja Egilsstaða á Norðurlönd- um. Heimasíðan verður færð upp daglega. -SB Óboðnum gesti tókst nýlega að komast inn í nýbyggða 300 milljóna króna lúxusvillu söngkonunnar Brit- ney Spears þrátt fyrir öflugt öryggis- kerfi. Gesturinn gekk úr einu her- berginu í annað og lauk heimsókninni með þvi að leggajst í baðker söngkon- unnar. Þar tók hann myndir af sjálf- um sér og sendi Britney. „Honum tókst einnig að reikna út hvaða herbergi verður svefnherbergið hennar. Það er óhugnanlegt," segir Britney Spears Óboöni gesturinn sendi Britney myndir frá heimsókn sinni. umboðsmaður Britney, Johnny Wright, í viðtali við breska blaðið The Sun. Söngkonan hefur að undanfórnu verið á tónleikaferðalagi í Þýskalandi. Hún er ekki hrifm af því að vera um- kringd lífvörðum en neyðist til þess. Að sögn Johnnys hafa aðdáendur tán- ingastjörnunnar falið sig á salerninu í rútunni sem Britney og samstarfs- menn ferðast í. Nýtt hús átti að veita Britney meira öryggi. Hinum óboðna gesti tókst þó að komast fram hjá vörðunum og skríða inn um baðherbergisgluggann. LúxusviOan er í heimabæ Britney, Kentwood í Louisiana. Gert er ráð fyr- ir að söngkonan flytji í húsið ásamt foreldrum sinum um jólaleytið. Innbrotið er ekki eini atburðurinn sem hrætt hefur Britney að undan- fómu. Fjölmiðlar greindu nýlega frá því að 17 ára pfltur hefði hótað að myrða kærasta Britney, Jstin Timber- lake, og aðra meðlimi hljómsveitar- innar N’Sync þar sem þeir lokkuðu tfl sín svo margar faOegar stúlkur. Móð- ir pfltsins gerði lögreglu viðvart. Sharon og Phil ekki sammála Leikkonan Sharon Stone og eig- inmaður hennar, ritstjórinn Phil Bronstein, eru ekki alveg sam- mála um hvar hann er í pólitík- inni. „Ég er gift repúblikana," sagði Sharon um daginn. Hún er aftur á móti eldheitur demókrati og stuðningsmaður Als Gores vara- forseta í forsetakosningunum í næsta mánuði. Phil neitar hins vegar að gefa upp stjórnmálaskoðanir sínar. „Ég tel ekki að Sharon hafi sagt þetta vitandi vits um hvernig ég er skráður né hverjum ég greiði atkvæði mitt,“ sagði ritstjórinn í samtali við bandaríska slúður- dálkahöfunda. Phil hefur mikið álit á gáfnafari eiginkonunnar, segir hana skarp- greinda og með einarðar skoðanir. Það er eflaust rétt hjá honum. Sharon segir til dæmis um George W. Bush, forsetaefni repúblikana, að hann sé ekki enn tilbúinn til að gegna forsetaembættinu. „Hann er greindur og íhugufl stjómmála- maður sem er að byrja andlegan þroska sinn. „Ég segi ekki að hann verði aldrei tilbúinn til að gegna for- setaembættinu en hann er ekki tilbúinn til þess núna,“ sagði Sharon á dögunum. Þá vitum við það. Vonandi kost- ar þetta þó ekki miklar erjur á heimili leikkonunnar og ritstjór- ans sem ættleiddu ungan dreng í sumar. Viltu vekja athygli! Ódýr lausn fyrir verslanir og veitingahús. Falleg Ijósasýning úti eða inni. i Ljósafossar, Ijósanet, Ijósaslöngur með stilli (kveikt/slökkt/blikk). Englar, stjörnur, bjöllur, hjörtu, blóm, snjókarlar, hreindýr o.fl. Allt búið til úr Ijósaslöngum. Úrval Ijósaskreytinga í glugga. Útbúum Ijósaskilti og húsnúmer. Dalbrekku 22 - sími 544 5770 ■< t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.