Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2000, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2000, Page 7
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2000 23 Sport Fram meö fullt hús eftir sex leiki: Sm': hjá Anatoli Fedioukine, þjálfara Fram til ungu strákanna í Safamýri ramarar unnu sinn sjötta sig- sem hefur stóraukið breiddina í leystu þá af komu síðan sterk \T ií'f'níirlnilrl inní í vn A /Til tVorviliAÍMii Ktti nnn 11 v* Knnn A /T n ivm í nninvii Vinlflnll/ivivi /irr winv Framarar unnu sinn sjötta sig ur í Nissandeildinni í röð, héldu sínu fulla húsi og stöðvuðu sigur- göngu nýliðanna í Gróttu/KR á Nesinu í gærkvöldi. Fram vann leikinn með fimm mörkum, 24-29, en fyrstu 50 mínútur leiksins mátti ekki sjá á milli liðanna og höfðu Gróttu/KR lengstum frum- kvæðið í leiknum. Framarar léku án fyrirliða sinna og lykilmanna Sebastians Alexanderssonar, markvarðar og Njarðar Árnasonar en Anatoli Fedioukine sýndi enn einu sinni hve mikið traust hann ber til ungu strákanna í Safamýri og einu sinni sem oftar brugðust þeir ekki þessu trausti hans. Róbert Gunnarsson og Vilhelm Bergsveinsson skoruðu dýrmæt mörk í lokin auk þess Róbert átti mjög góðan leik i vöminni ásamt þeim Gunnari Berg Viktorssyni og Guðlaugi Amarssyni. Alls tók Framvörnin ellefu af skotum ný- liðanna þar af varði Gunnar Berg fimm þeirra. Magnús Erlendsson varði líka vel þegar Fram sigldi fram úr. En það er ekki bara stjómun Anatoli Fedioukine á bekknum sem hefur stóraukið breiddina í Framliðinu því sonur hans Max- im fór hamfóram í horninu í leiknum í gær og skoraði 10 mörk úr 11 skotum, þar af úr öllum fimm vítum sínum. Strákurinn hefur nú nýtt 22 af 24 skotum sín- um í vetur, þar af öll 9 vítin sín. Einhæfur sóknarleikur Gróttu/KR var þeim af falli í gær, Alexander Petersons og Hilmar Þórlindsson skoraðu 15 af fyrstu 19 mörkum liðsins á fyrstu 43 mín- útunum en þá sagði Framvörnin hingað og ekki lengra og þeir fé- lagar fundu leiðina í markið að- eins einu sinni hvor síðustu 17 mínútur leiksins. Petersons var sérstaklega sterkur en alls skoraði hann 8 mörk utan af velli auk þess að eiga 6 stoðsendingar og fiska tvö víti. Gróttu/KR-liðið var fyrir leik- inn búinn að vinna fimm heima- leiki í röð í efstu deild, síðasta tap- ið kom einmitt gegn Fram þegar Safamýrarliðið kom síðast í heim- sókn út á Nes. „Við vorum ekki sannfærandi í fyrri hálíleik, fjarvera Sebastians og Njarðar höfðu kannski of mikil áhrif á liðið. Mennirnir sem leystu þá af komu síðan sterkir inn í seinni hálíleikinn og menn fóru að spila vamarleik sem vant- aði algjörlega í fyrri hálfleik. Við erum mjög ósattir við rauða spjaldið sem Hjálmar fær. Þetta er annað rauða spjaldið sem þessir dómarar gefa okkar leikmönnum í vettir og þau er bæði gagnrýni- verð. Fedioukine er að gera frá- bæra hluti, hann er óhræddur við að nota 2. flokks-strákanna, setur sem dæmi strák inn í dag sem hef- ur aldrei spilað meistaraflokksleik áður og sýnir að hann ber mikið traust til þeirra. Hann er bara að leggja grunninn að mjög bjartri framtíð," sagði Heimir Ríkharðs- son, aðstoðarþjálfari Framliðsins. „Við vorum að klára of snemma og vorum óskynsamir og þá sér- staklega ég. Menn voru orðnir of gráðugir þegar ýmislegt hafði gengið upp og héldu kannski að þeir væru orðnir of góðir. Fram- arar spila jafnt, halda fullum styrk út leikinn og biða eftir að mótherjamir gefa eftir. Okkur vantar smá í viðbót en við erum bjartsýnir," sagði Hilmar Þór- lindsson hjá Gróttu/KR. -ÓÓJ Haspenna ÍBV tók á móti ÍR á laugardaginn var en lið- in voru jöfn að stigum fyrir viðureign þeirra og þvi mikið í húfi. Vamir beggja liða buðu upp skemmtilegan leik en það voru Eyjamenn sem skoruðu siðasta mark leiksins og tryggðu sér dýrmætan sigur, 22-21. ÍR-ingar byrjuðu leikinn mun betur og var vamarleikur liðsins traustur á upphafsmínút- unum. Þeir komust tveimur mörkum yfir áð- ur en Jón Andri Finnsson minnkaði muninn fyrir ÍBV. Eyjamönnum gekk erfiðlega að komast i gegnum vöm gestanna og tvö fyrstu mörk ÍBV komu úr vitum. ÍR-ingum tókst ekki að nýta sér góðan varnarleik hinum meg- in á vellinum og heimamenn komust fljótlega yfir. Hægt og sigandi jókst forskot ÍBV og munurinn fjögur mörk í hálfleik, 13-9. Eyjamenn héldu áfram á sömu braut í upp- hafi seinni hálfleiks, skoruðu fyrsta markið og komust þar með fimm mörkum yfir, 14—9. Þá tók við afar slakur leikkafli hjá ÍBV og gest- imir náðu að sýna á sér klærnar. Fremstur fór Erlendur Stefánsson sem skoraði mikilvæg mörk á þessum leikkafla. ÍR-ingar skoruðu úr næstu tíu sóknum á meðan lítið gekk hjá leik- mönnum ÍBV og Ólafur Sigurjónsson kom gestunum yfir, 19-20, þegar tíu mínútur vom eftir. Áfram héldu ÍR-ingar og allt i einu var munurinn orðinn tvö mörk, 19-21, en Eyja- menn skoruðu þrjú síðustu mörk leiksins og tryggðu sér tvö mikilvæg stig. ÍR-ingar geta nagað sig i handabökin fyrir að hafa lotið í lægra haldi fyrir ÍBV á einum sterkasta heimavelli landsins. Liðið spilaði góða vörn stærstan hluta leiksins en heppnin var í þetta skiptið á bandi ÍBV, Eyjamenn misstu boltann í stöðunni 22-21 og tíu sekúnd- ur eftir en skot Róberts Rafnssonar á síðustu sekúndu hatnaði í stöng. Eyjamenn virðast vera að fmna taktinn. Varnarleikur liðsins hefur ekki verið góður í síðustu leikjum en var sterkur gegn ÍR. „Við vorum að spila fina vörn í byrjun, þeir vom líka að spila ágætis vöm en við héldum boltanum og spiluðum skynsamlega. Við leit- uðum eftir góðum færum enda voram við ekki að klikka oft í sókninni. Við náðum góðri for- ystu í byrjun seinni hálfleiks en svo var eins og menn héldu að þetta væri búið og við klúðr- um forystunni sjálfir. Við náðum að rifa okk- ur upp í lokin og næla okkur í þessi tvö stig. Mér fannst góður karakter í liðinu að koma aftur til baka eftir að hafa lent undir og vinna leikinn. Við erum ennþá að vinna í okkar leik, mér finnst við eiga aö geta spilað betri vöm en sóknarleikurinn er svona hægt og síg- andi að koma,“ sagði Guðfinnur Kristmanns- son, leikmaður ÍBV, eftir leikinn. -jgi Maxim Fedioukine, þjálfari Fram, sést hér önnum kafinn viö aö stjórna sínum mönnum, sem hafa unniö sex fyrstu leiki sína í Nissandeild karla í handbolta. DV-mynd Hilmar Þór „■ .y; Asa KA vann Aftureldingu: Osamræmi - dómara bitnaði á gæðum leiksins Leikur KA og Aftur- eldingar var mjög jafn. Afturelding var með yf- irhöndin fyrstu tuttugu mínútumar í leiknum en síðan ekki söguna meir. KA menn tóku þá forystu og fóru inn í hálfleik með tveggja marka forystu. í upphafi seinni hálf- leiks náði KA fjögurra marka mun sem Aftur- elding átti erfitt með að minnka niður. Aftur- elding náði að minnka muninn niður í tvö mörk þegar um sex mínútur vora eftir. En á aðeins tveimur mín- útum höfðu KA náð að vinna inn fimm marka forskot og sigurinn blasti við þeim. Aftur- elding gafst ekki upp heldur þvert á móti barðist til síðasta manns. KA missti Jónatan Magnússon útaf og Aft- urelding nýtti sér liðs- muninn og náði að minnka muninn niður í eitt mark þegar um ein mínúta var eftir af leiknum. KA fór í sókn, fullmannaðir, sóknin varð að takast annars ætti Aftureld- ing möguleika á að jafna leikinn og knýja fram framlengingu. Heimir Örn Árnason náði að skora fyrir KA og tryggja þeim sigur- inn. Heimamenn hylltir Áhorfendur létu heldur betur ánægju sína í ljós og hylltu menn sína í leikslok. Galkauskas Gintas náði að skora fyrir Aft- ureldingu á síðustu sekúndinni en ósigur var þeirra hlutskipti í þetta skipti. KA menn mega vera ánægðir með leikinn enda spiluðu þeir mjög vel. Hörður Flóki var góður í marki KA þótt hann hafi aðeins varið funm skot í seinni hálf- leik. Heimir Öm og Guðjón Valur voru bestu menn KA ásamt Jónatani Magnússyni sem stóð sig frábær- lega í leiknum. I liði Aftureldingar var Bjarki Sigurðsson góð- ur á vítalínunni en úti vora Páll Þórólfsson og Savukynas Gintaras þeirra bestu menn. Mikið ósamræmi var hjá dómurum leiksins sem bitnaði ótvírætt á gæðum leiksins en spila- mennska KA og Aftur- eldingar bætti það upp og áhorfendur upp- skáru skemmtilegan leik. -JJ KA-Afturelding 25-24 0-2, 2-4, 4-4, 8-8, 10-8, (11-9), 13-9, 15-11, 17-15, 20-16, 21-19, 24-19, 24-23, 25-23, 25-24 KA Mörk/víti (Skot/viti): Heimir Örn Ámason 6 (11), Guðjón Valur Sigurðsson 6/2 (12/2), Jónatan Magnússon 5 (6), Giedrius Csemiavskas 4(4), Sævar Árna- son 1 (3), Halidór Sigfússon 1 (1), Andre- as Stolmokas 1 (4), Hreinn Hauksson 1 (1). Mörk úr hraóaupphlaupum: 3 (Giedri- us 2, Guðjón 1). Vitanýting: Skorað úr 1 af 2. Varin skot/viti (Skot á sig): Hörður Flóki Ólafsson 15 (37/6 41,7%), Hans Hreinsson 1/1 (2/2, 50%). Brottvisanir: 10 mínútur (Jónatan Magnússon á 56. mín.). Aftureldine Mörk/viti (Skot/viti): Bjarki Sigurðs- son 6/5 (10/6), Savukynas Gintaras 5 (10), Páll Þórólfsson 5/1 (8/2), Gal- kauskas Gintas 4(12), Magnús Már Þórð- arson 3 (4), Hilmar Stefánsson 1 (2). Mörk úr hradaupphlaupunu 2(Hilmar 1, Savukynas 1) Vitanýting: Skorað úr 6 af 8. Varin skot/víti (Skot á sig): Reynir Þór Reynisson 14 (38/2 36,8%). Brottvisanir: 8 mínútur. Dómarar (1-10): Hlynur Leifsson og Anton Pálsson (5). Gceöi leiks (1-10): 8. Áhorfendur: 450. Maður leiksins: Heimir Orn Árnason, KA. Grótta/KR-Fram 24-29 0-1, 2-2, 3-5, 6-5, 7-7, 9-9, 10-10, 13-10 (13-12), 13-13,15-13,16-16,19-18,21-19, 21-23, 22-25, 23-26, 24-26, 24-29. Grótta/KR Mörk/viti (Skot/viti): Hilmar Þórlinds- son, 9/3 (24/3), Alexander Petersons, 8 (14), Magnús A. Magnússon, 3 (4), Gísli Kristjánsson, 2 (2), Kristján Þorsteins- son, 1 (1), Davíð ðlafsson, 1 (4), Atli Þór Samúelsson, (5). Mörk úr hradaupphlaupum: 1 (Peter- sons). Vitanýting: Skorað úr 3 af 3. Varin skot/viti (Skot á sig): Hreiðar Guömundsson, 11/1 (30/5, 37%), Hlyn- ur Morthens, 3 (13/3, 23%). Brottvísanir: 6 mínútur Fram Mörk/viti (Skot/viti): Maxim Fedi- oukine, 10/5 (11/5), Róbert Gunnarsson, 4 (4), Vilhelm Bergsveinsson, 4 (7), Gunnar Berg Viktorsson, 4/2 (11/3), Þorri B. Gunnarsson, 3 (5), Hjálmar Vil- hjálmsson, 2 (4), Guðjón Drengsson, 1 (1), Ingi Þór Guðmundsson, 1 (2), Björgvin Þór Björgvinsson (2). Mörk úr hraöaupphlaupum: 2 (Fedi- oukine, Guðjón) Vitanýting: Skorað úr 7 af 8. Varin skot/viti (Skot á sig): Magnús Erlendsson, 12 (29/2, 41%), Sigurjón Þórðarson, 4 (11/1, 36%). Brottvisanir: 4 mínútur. Rautt spjald: Hjálmar á 40. mín fyr- ir brot á Petersons. Dómarar (1-10): Bjami Viggósson og Valgeir Ómarsson (5). Gœói leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 200. Maöur leiksins: Maxim Fedioukine, Fram. IBV-iR 22-21 0-1, 2-2, 4-3, 7-5, 11-7, (13-9), 14-9, 16-11, 17-14, 18-18, 19-21, 22-21. ÍBV Mörk/viti (Skot/víti): Mindaugas Andriuska, 6 (11), Jón Andri Finnsson 6/5 (6/5), Guöfmnur Kristmannsson, 4 (12), Aurimas Frovolas, 2 (6), Svavar Vignisson, 2 (3), Daöi Pálsson, 1 (2), Erlingur Richardsson, 1 (1), Sigurður Ari Stefánsson, (3). Mörk úr hraðaupphlaupum: 3 ( Svavar Vignisson, Daði Pálsson, Jón Andri Finnsson). Vitanýting: Skorað úr 5 af 5. Varin skot/víti (Skot á sig): Gisli Guðmundsson 11 (32/3 34 %), Kristinn Jónatansson (1/1). Brottvísanir: 8 mínútur ÍR Mörk/viti (Skot/viti): Bjarni Fritzson, 6/4 (8/4), Erlendur Stefánsson, 5 (9) Ólafur Sigurjónsson 5 (7), Finnur Jó hannsson 2 (4), Róbert Rafnsson 1 (2), Ingimundur Ingimundarsson, 1 (4), Kári Guðmundsson, 1 (3), Einar Hólmgeirs- son, (2), Brynjar Steinarsson, (5). Mörk úr hraðaupphlaupum: 3 (Ólafur 3). Vítanýting: Skorað úr 4 af 4. Varin skot/víti (Skot á sig): Hrafn Margeirsson 9 ( 26/3,35%), Hallgrímur Jónasson 7 (14, 50%). Brottvisanir: 10 mínútur. Dómarar (1-10): Einar Hjaltason og Yngvar Reynisson (3). Gœöi leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 140. Maður leiksins: Guðfinnur Kristmannsson, ÍBV.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.