Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2000, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2000, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2000 29 i Sport — i>v I 1 I :} Ekki Iri Tony Cascarino, leikjahæsti landsliðsmaður Ira í knattspyrnu, greinir frá því í nýrri bðk sinni að hann hafi aldrei verið löglegur með írska landsliðinu, hann hafi verið gervi-íri. Móðir hans, sem er ensk, mun hafa verið ættleidd af írskum hjónum og þannig hafi Cascarino lengi vel haldið sig af írsku ættemi eða allt þar til móð- ir hans greindi honum frá þessu árið 1996. Leikmaðurinn var í þann mund að fá irskt vegabréf en hætti við það og ákvað að halda þessu leyndu og spilaði eftir það 24 leiki en í heild spilaði Casacarino 88 landsleiki fyrir írland. Milan rekið úr keppni? Svo gæti farið að ítalska liðið AC Milan yrði sett út úr Meistara- deildinni eftir að upp komu vanda- mál varðandi skráningu mark- varðarins Dida sem Evrópubúa. Markvörðurinn var skráður með portúgalskt ríkisfang þegar hann kom til Ítalíu í sumar og spilaði sem Evrópumaður framan af leik- tlð. Þegar hins vegar upp komst aö vegabréf hans var falsað þá breytti félagið skráningu hans en það var eftir leikinn við Leeds 19. septem- ber. Þessi staða hefur ekki komið upp áður hjá Knattspyrnusam- bandi Evrópu og enn á eftir að ráða í málið. Ef af brottrekstrinum verður fara Barcelona og Leeds áfram í keppninni. Maradona tekur fram skóna Diego Maradona tók um helg- ina við stöðu knattspymustjóra hjá argentínska liðinu Almagro og ofti strax fjaðrafoki þegar forseti félagsins sagði að goðið ætlaði sér að spila 20 mínútur í leik með fé- laginu á næsta ári ef hann stæðist læknisskoðun. Maradona, sem verður fertugur í dag, ætlar sér stóra hluti hjá Almagro og hyggst bjóða krökkum hvaðanæva að tU æfinga hjá félaginu. Zidane í bann Franski knattspyrnumaðurinn Zinedine Zidane, leikmaður Juventus, hefur verið dæmdur í fimm leikja bann í Evrópuleikjum eftir að hafa skaUað Jochen Kientz, leikmann Hamburger SV, í leik liðanna á þriðjudag. Jafnframt hefur Juventus verið sektað um rúmlega eina miUjón króna vegna slæmrar hegðunar leikmanna og áhangenda meðan á leiknum stóð. Félagið hyggst áfrýja banni Knattspyrnusambands Evrópu og segja sambandið fara Ula með góðan dreng. -ÓK Jose Antonio Pikabea, Real Sociadad, reymr hér að stöðva Luis Figo, Real Madrid, en Portúgalinn er á fljúgandi ferð eins og reyndar allt Real-liðiö. Reuter m r'-’T --‘irílii Valencia efst - Barcelona lá fyrir Mallorca og Real vann auðveldlega Valencia heldur toppsætinu á Spáni eftir leiki helgarinnar eftir nauman sigur gegn fersku liði Osa- sirna. Spánarmeistarar Deportivo La Coruna eru komust stuttlega aftur í toppsætið eftir 2-1 sigur á Numancia og 2-0 tap Barcelona gegn Real MaUorca en Deportivo situr nú í þriðja sætinu, tveimur stigum á eftir toppliðinu. Barcelona virkaöi þreytt Frammistaða stórliðsins Barcelona var ekki merkileg á Mið- hjarðarhafseyjunni Mallorca enda þurftu stórstjömumar að lúta í gras fyrir heimamönnum eftir mörk frá Samuel Etoo og Ariel Ibagaza, mörk sem bæði komu eftir vamarmistök Katalóníumanna sem virkuðu þreyttir eftir mikla töm síðustu tvær vikur. Deportivo voru nokkuð heppnir að sleppa með öll stigin úr leiknum gegn Numancia en bæði mörk heimamanna komu í fyrri hálfleik. Gestirnir náðu síðan að minnka muninn um miðjan síðari hálfleik og sóttu eftir það án afláts en einnig án árangurs. Gengur vel hjá Las Palmas Las Palmas, lið Þórðar Guðjóns- sonar, heldur áfram að gera góða hluti í deildinni og er nú komið í áttunda sæti deildarinnar, einu stigi á eftir Barcelona, eftir góðan 2-1 sigur á Racing Santander. Þórð- ur kom inná sem varamaður i leiknum á 76. mínútu. Evrópumeistarar Real Madrid eru greinilega á góðu róli þessa dagana en þeir sigruðu Real Sociadad auð- veldlega á úti- velli 1-4, ekki góð byrjun hjá nýjum þjálfara Sociadad, Periko Alonso. Alaves er á fleygiferð þessar vik- umar, sigraði Lilleström 1-3 í Nor- egi um miðja viku, og er sem stend- ur í þriðja sæti spænsku deildar- innar. Þeir urðu um helgina fyrsta liðið til að vinna Rayo Vallecano í vetur þegar þeir tóku þá á útivelli 0-1. Það átti svo sannarlega ekki fyr- ir markaskoraranum Jaime Mor- eno að skora annað mark i þessum leik en það eina sem hann skoraði þar sem eitt mark var dæmt af hon- um og að hann brenndi einnig af víti. -ÓK fP m SPANN Las Palmas-R. Santander .... 2-1 1-0 Oulare (28.), 1-1 Amavisca (57., víti), 2-1 Oulare (82., víti). Numancia-Deportivo..........1-2 0-1 Donato (15.), 0-2 Femando (30.), 1-2 Navarro (60.). Real Zaragoza-Malaga........1-1 O-l Silva (48.), 1-1 Montenegro (57.). Viallarreal-Athletic Bilbao .. 0-0 Celta Vigo-Real ValladoUd . . . 2-1 1-0 Karpin (34.), 2-0 Edu (77.), 2-1 Ciric (90.) Espanyol-Real Oviedo........2-0 1-0 Gonzalez (19.), 2-0 Tamudo (59.) Osasuna-Valencia ............1-2 1-0 Mateo (6.), 1-1 Cruchaga (18., sjálfsm.), l-2Carew (85.). Real Sociadad-Real Madrid . . 1-4 0-1 Guti (13.), 0-2 Hierro (42., víti), 0-3 Figo (46.), 04 Savio (62.). 1-4 Jankauskas (78.). Rayo Vallecano-Alaves .......0-1 0-1 Moreno (5.). Real Mallorca-Barcelona .... 2-0 1-0 Etoo (12.), 2-0 Ibagaza (52.). Staða efstu liða: Valencia 7 5 1 1 17-5 16 Real Madrid 7 2 2 1 16-8 14 Alaves 7 4 2 1 104 14 Deportivo 7 4 2 1 11-6 14 Celta Vigo 7 4 1 2 11-9 13 Norska bikarkeppnin: Odd meistarar - eftir 2-1 sigur á Viking í Osló í gær Odd Grenland varð í gær norskur bikarmeistari í knattspyrnu þegar liðið sigraði Viking, 2-1, í fram- lengdum leik. Þetta er fyrsti bikarmeistaratitill liðsins síðan 1931 og er því kærkominn. Ríkharður Daðason og Auðun Helgason voru báð- ir í byrjunarliði Viking í þessum þeirra síðasta leik þeirra fyrir liðið. Viking hóf leikinn af krafti en fyrsta markið kom ekki fyrr en eftir að venjulegum leiktima . var lokið í fyrri hálfleik en þar var að verki Bjom Dahl. Umdeilt þótti að dómarinn skyldi bæta við svo mikl- um tíma sem raun var en markið samt staðreynd. Það var síðan Hannu Tihinen, vamamaður Vik- ing sem jafnaði leikinn þeg- ar hann skoraði sjálfsmark á 65. mínútu. Hvomgu lið- inu tókst að skora fleiri mörk í venjulegum leik- tíma og því var framlengt. í síðari hálfleik fram- lengingar náði Daninn Christian Flindt Berg að skora og tryggja Odd lang- þráðan titil. Ríkharður fékk einkun- nina 4 á netmiölinum netta- visen.no en Auðun 5. Mað- ur leiksins var hins vegar markmaður Odd Grenland, Erik Holtan. -ÓK Rivaldo, leikmaður Barcelona, lýtur hér í gras fyrir Miguel Angel Nadal, fyrrum félaga sínum og leikmanni Real Mallorca, en Rivaldoi náði sér engan veginn á stik í leik liðanna. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.