Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2000, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2000
27
Teddy Sheringham skoraöi þrennu fyrir Manchester United gegn Southampton. Hér er hann í baráttu við Matthew Oakley, varnarmann Southampton. Á
innfelldu myndinni er Teddy Sheringham meö bolta leiksins sem honum var færöur aö gjöf fyrir þrennuna sína. Reuter
Toppliðin í ensku úrvalsdeildinni léku andstæðinga sína grátt:
Markasú pa
- Arnar Gunnlaugsson tryggði Leicester sigurinn gegn Derby
Tvö efstu liðin í ensku úr-
valsdeildinni, Manchester
United og Arsenal, fóru á
kostum í leikjum sínum á
laugardaginn var. Það bend-
ir allt til einvígi þessara
liða en þau hafa verið að
leika áberandi best upp á
síðkastið.
Fyrsta þrennan
Teddy Sheringham hefur
heldur betur verið í sviðs-
ijósinu og nýtt tækifærið
sem Alex Ferguson gaf hon-
um. Sheringham gerði sína
fyrstu þrennu fyrir
Manchester United þegar
Southampton heimsótti Old
Trafford. Það var alveg ljóst
frá fyrstu mínútu hvað í
stefndi. United réð lögum og
lofum á vellinum og fimm
marka sigur var síst of stór.
„Það var allt annað að sjá
til liðsins í þessum leik en
gegn Anderlecht í meistara-
deildinni," sagði Ferguson
og hrósaði sínum mönnum í
hástert.
Þess má geta að þegar
þessi lið mættust á sama
stað í fyrra varð jafntefli,
3-3, og átti þá Massimo
Taibi, þá markvörður liðs-
ins, afleitan leik.
Arsenal hefur unnið alla
sína leiki á Highbury í vet-
ur. Nýliðarnir í Manchester
City fengu útreið gegn
Arsenal og þurftu fimm
sinnum að hirða knöttinn
úr netinu. Að vísu setti það
svip sinn á leikinn að
Manchester City lék einum
færri allan síðari hálfleik-
inn en Danny Tiatto fékk
að sjá sitt annað gula spjald
undir lok fyrri hálfleiks.
John Lukic stóð í marki
Arsenal og var þetta hans
fyrsti leikur í úrvalsdeild-
inni í þrjú og hálft ár. Dav-
id Seaman var meiddur.
Royie ósáttur
Joe Royle, knattspyrnu-
stjóri Manchester City, var
ókátur í leikslok og sagði að
þessi stóri ósigur hefði alls
ekki gefið rétta mynd af
leiknum.
Derby er enn án sigurs í
deildinni. Liðið byrjaði vel
gegn Leicester, komst yfir,
en heimamenn komu síðan
æ meira inn í leikinn. Arn-
ar Gunnlaugsson gerði sig-
urmark Leicester á 76. mín-
útu. Hann hafði þremur
mínútum áður komið inn á
sem varamaður. Amar er
greinilega allur að koma til
og verður spennandi að
fylgjast með honum á næst-
unni.
Claudio Reneri er að
koma Chelsea inn á réttar
brautir en ekki valdi hann
Eið Smára Guðjohnsen í
leikmannahópinn fyrir leik-
inn á móti Tottenham. Jim-
my Floyd Hasselbaink er ið-
inn við kolann þessa dag-
ana, skoraði tvö mörk og
hefur skorað tíu í síðustu 11
leikjum Chelsea.
Hermann Hreiðarsson og
félagar í Ipswich eru komn-
ir í 5. sætið eftir sigur á
Middlesbrough. Þetta er
mun betri byrjun en bjart-
sýnustu menn þorðu að
vona fyrir tímabilið.
Brasilíumaðurinn Emer-
son Thome skoraði sitt
fyrsta mark fyrir Sunder-
land og það nægði til sigurs
gegn Coventry.
West Ham vann sinn
fyrsta sigur á Upton Park á
tímabilinu gegn Newcastle.
Frederic Kanoute skoraði
sigurmarkið eftir sendingu
frá Davor Suker. Newcastle
hefur ekki unnið sigur á
Upton Park í 20 leikjum.
-JKS
Úrvalsdeild
Arsenal-Man. City...........5-0
1-0 Cole (44.), 2-0 Bergkamp (48.), 3-0
Wiltord (75.), 4-0 Henry (82.), 5-0
Henry (88.)
Aston Villa-Charlton .......2-1
1-0 Taylor (33.), 2-0 Merson (41.), 2-1
Dublin (82. sjálfsm.)
Chelsea-Tottenham...........3-0
1-0 Hasselbaink (13.), 2-0 Zola (39.),
3-0 Hasselbaink (87)
Ipswich-Middlesbro .........2-1
1-0 Naylor (25.), 2-0 Venus (28.), 2-1
Gordon (68.)
Leicester-Derby................
0-1 Delap (12.), 1-1 Izzet (31.), 2-1 Arn-
ar Gunnlaugsson (76.)
Man. Utd-Southampton .... 5-0
1-0 Cole (9.), 2-0 Sheringham (45.), 30
Sheringham (51.), 4-0 Sheringham
(55.), 5-0 Cole (73.)
Sunderland-Coventry........ 1-0
1-0 Thome (52.)
West Ham-Newcastle..........1-0
1-0 Kanoute (73.)
Liverpool-Everton ..........3-1
1- 0 Barmby (12.), 1-1 Campbell (17.),
2- 1 Heskey (55.), 3-1 Berger (78. víta-
sp.)
Bradford-Leeds............. 1-1
1-0 Collymore (20.), 1-1 Viduka (79.)
Staðan í úrvalsdeild
Man Utd 11 7 3 1 31-8 24
Arsenal 11 7 3 1 22-10 24
Liverpool 11 6 3 2 20-14 21
Leicester 11 5 4 2 9-7 19
Ipswich 11 5 3 3 16-12 18
Chelsea 11 4 4 3 22-14 16
Aston Villa 10 4 4 2 13-9 16
Newcastle 11 5 1 5 11-10 16
Sunderland 11 4 4 3 9-11 16
Leeds 10 4 3 3 15-14 15
Charlton 11 4 3 4 17-18 15
Tottenham 11 4 2 5 15-17 14
Man. City 11 4 2 5 14-19 14
Everton 11 3 3 5 14-19 12
West Ham 11 2 5 4 13-14 11
Coventry 11 3 2 6 11-22 11
Middlesbro 11 2 4 5 16-18 10
S’hampton 11 2 4 5 12-20 10
Bradford 11 1 4 6 5-17 7
Derby 11 0, 5 6 16-28 5
1. deild:
Bolton-Crystal Palace ......3-3
1-0 Guðni Bergsson (20.), 1-1 Freed-
man (41.), 2-1 Ricketts (75.), 3-1
Frandsen (77.), 3-2 Freedman (87.),
3-3 Morrison (90.)
Gillingham-Crewe ...........0-1
0-1 Little (52.)
Huddersfield-Blackbum .... 0-1
0-1 0stenstad (73.)
Portsmouth-Birmingham . . . . l-l
1-0 Bradbury (41.), 1-1 Eaden (48.)
Sheffield Wed-Fulham .......3-3
1-0 Sibon (41.), 1-1 Saha (47.), 1-2
Hayles (55.), 2-2 Morrison (72.), 2-2
Melville (82.), 3-3 Westwood (90.)
Stockport-Nott. Forest .....1-2
1-0 Edwards (48. sjálfsm.), 1-1 Lester
(75.), 1-2 Lester (88.)
Tranmere-Q.P.R..............l-l
1-0 Koumas (58.), 1-1 Connolly (83.)
Wimbledon-Sheffield Utd .... 0-0
Wolves-Watford .............2-2
0-1 Cox (33.), 0-2 Mooney (39.), 1-2
Muscat (47.), 2-2 Dinning (75.)
Grimsby-W.B.A...............2-0
1-0 Ailen (59.), 2-0 Nielsen (84.
Staöan í 1. deild
Watford 14 11 3 0 30-11 36
Fulham 14 11 2 1 34-10 35
Birmingh. 15 9 3 3 24-12 30
Preston 15 8 4 3 18-11 28
W.B.A. 16 8 3 5 18-18 27
Bolton 15 7 5 3 23-17 26
Burnley 14 7 4 3 15-16 25
Blackburn 14 7 3 4 22-15 24
Nott. Forest 14 7 3 4 19-16 24
Sheff. Utd 14 7 3 4 16-13 24
Portsmouth 16 5 6 5 18-19 21
Barnsley 15 5 4 6 23-25 19
Wimbledon 14 4 6 4 21-14 18
Grimsby 14 5 2 7 11-15 17
Wolves 15 3 7 5 15-15 16
Gillingham 16 3 7 6 18-23 16
Tranmere 16 4 4 8 18-25 16
Crewe 15 4 3 8 10-19 15
Norwich 13 3 5 5 13-16 14
Q.P.R. 14 2 6 6 14-21 12
Sheff. Wed 15 3 3 9 14-27 12
Stockport 16 2 5 9 17-30 11
Crystal P. 15 2 3 10 13-24 9
Huddersf. 15 1 4 10 10-22 7
ENGLAND
Eiður Smári Guðjohnsen var ekki í
leikmannahópi Chelsea annan leikinn í röð í úr-
valsdeildinni.
Arnar Gunnlaugsson leysti Steve Cuppy af
hólmi á 73. mínútu þegar Leicester sigraði Der-
by á Filbert Street.
Guðni Bergsson átti góðan leik fyrir Bolton
og var hann inni á allan tímann.
Heiðar Helguson kom inn á hjá Watford
þegar tíu mínútur voru til leiksloka gegn
Wolves.
Bjarki Gunnlaugsson kom inn á hjá
Preston á 67. mínútu.
Liðið tapaði á heimavelli
fyrir Barnsley, 1-2.
Stoke vann dýrmætan
sigur á Bournemouth.
Bjarni Guðjónson og
Brynjar Björn Gunn-
arsson léku allan tím-
ann með Stoke. Stefán
Þórðarson fór af leik-
velli á 69. mínútu.
Bjarnólfi Lárussyni
var skipt út af á 77. mín-
útu hjá Scunthorpe sem
vann Carlisle á útivelli í
3. deild. Scunthorpe hefur
gengið vel að undanfömu
og er komið i sjöunda
sætið í deildinni.
Ólafur Gottskálksson og ívar Ingimarsson
léku báðir allan tímann hjá Brentford sem gerði
sér lítið fyrir og skellti Walsall. Ólafur þótti
standa sig vel í marki Brentford en hann hefur
leikið sérlega vel með liðinu. -JKS