Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2000, Síða 15
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2000
3%
Sport DV
■■ IIIIBI IIHII II—1 ■■■! hll Bl 1 ■)■ • 1 MIIIBIIIIIIII — "1 1
„Þetta er allt að skýrast með
veiðitölumar í veiðiánum okkar,
enda styttist í árshátíðina hjá
Stangaveiðifélagi Keílavíkur, hún
verður 11. nóvember og þar verða
veitt verðlaun fyrir stærstu flsk-
ana,“ sagði Gunnar J. Óskarsson,
formaður félagsins, í samtali við
DV-Sport í gærdag.
Svo virðist sem meiri sjóbirt-
ingsveiði hafl verið alls staðar fyr-
ir austan nema í Geirlandsá, ef
miðað er við árið i fyrra.
Sá stærsti 14 pund
„Stærsti sjóbirtingurinn í Geir-
landsá var 13 punda og stærsti sjó-
birtingurinn í Vatnamótunum var
14 punda. Það veiddust um 50
færri birtingar í Geirlandsá í vor-
og haustveiðinni núna en fyrir
einu ári. Laxveiðin var einum
laxi betri en fyrir ári í Geir-
landsánni. í Vatnamótunum var
betri sjóbirtingsveiði en í fyrra.
Það sama má segja um Hörgsá of-
an brúar, svo við getum ekki ver-
ið annað en hress með það,“ sagði
Gunnar ennfremur.
Uppskeruhátíð
Ungir veiðimenn í Stangaveiðifé-
lagi Reykjavíkur hafa veitt víða í
sumar eins og fleiri á besta aldri. Og
margir þeirra hafa veitt vel, bæði lax
og silung. Stangaveiðifélag Reykja-
víkur hefur boðið sínum ungu félags-
mönnum veiðidag í Elliðaánum
tvisvar og einu sinni í Laxá í Kjós.
í gær var haldin uppskeruhátíð
hjá félaginu og voru veitt verðlaun
fyrir þá sem voru fengsælastir í sum-
ar í veiðinni. Veiðimaðurinn og
söngvarinn Pábni Gunnarsson sagði
nokkrar veiðisögur frá sumrinu og
einn og einn ungur veiðimaður gat
ekki á sér setið að segja eina veiði-
sögu frá sumrinu.
Þrátt fyrir að veiðileyfi hækki og
hækki í laxveiðinni fjölgar ungum
veiðimönnum, enda renna þeir
kannski á önnur mið en laxveiðimið-
in. Þetta framtak Stangaveiðifélags-
ins, að bjóða ungum veiðimönnum í
laxveiði, er þarft og hefur því vaxið
fiskur um hrygg. Fleiri félög ættu að
taka sér félagið til fyrirmyndar og
taka unga veiðimennina upp á sína
arma. -G.Bender
Gæsaveiði:
Véiddi gæsina
með höndunum
- styttist í lok tímabilsins
Jón Gunnar Grjetarsson fréttamaður
er einn af þeim fjölmörgu sem fór í sjó-
birting í haust sem leið í Grenlækinn.
Fyrst veiddi hann 12 punda sjóbirting,
síðan rúmlega 10 punda sjóbirting og
loks 9,5 punda. Ekki svo slæmt hjá
Jóni.
Þeim fjölgar veiðiánum þar sem ein-
göngu er leyfð fluga næsta sumar en
fyrir skömmu var það geflð út að stór-
an hluta sumars yrði fluga aðeins leyfð
í Hítará á Mýrum. Þetta á við svæði
eitt, aðalsvæðið.
Maókatínarar eru orðir uggandi um
sinn hag og telja að þeir verði orðnir
atvinnulausir eftir nokkur ár. En þá
verði flestallar laxveiðiárnar flugu-
veiðiár og þeir fáu sem veiði á maðk
tíni bara maðkinn sinn sjálfir. Og það
gæti þýtt nokkurra milljóna tap fyrir
alla þá fjölda tínara sem tína maðk á
hverju sumri.
Þaó voru margir sem komu í afmælið,
á aðalfundinn og ráðstefnu Landssam-
bands stangaveiðifélaga um helgina.
Landssambandið er greinilega að lifna
við, enda veitir ekki af eftir nokkur
mögur ár. Formaður L.S. er Ragnar
Hólm.
Þaö hafa ekki margir selt allt
byssusafnið sitt fyrir þetta veiðitímabil
en einn af þeim er Bubbi Mortens.
Hann kom með allar byssur til Jó-
hanns Viljálmssonar byssusmiðs og
Jói seldi þær fyrir hann. Bubbi geng-
ur ekki lengur til rjúpna en veiðir bara
fisk á stöng, ennþá.
Margir biða eftir því hvað Kristján
Guójónsson, formaður Stangaveiðifé-
lags Reykjavíkur, muni gera og hvort
hann muni gefa kost á sér aftur sem
formaður. Hann kom frá útlöndum fyr-
ir fáum dögum en fyrir 12. nóvember
ætti málið að skýrast.
Ennþá er veitt í Ytri-Rangá í klak og
hefur það gengið vel. Einn og einn
vænn sjóbirtingur hefur verið að veið-
ast líka í bland við laxinn. í ám eins og
Rangánum er nauðsynlegt að hafa
nokkra góða laxa í klakið.
Rjúpnaveiðimönnum fjölgar ár frá
ári og erfiðara veröur að fá veiðisvæði
til að skjóta á. Enda er farið að leigja
lönd undir rjúpnaveiði og þeir sem eru
ekki með nein svæði fá bara ekki alltaf
að skjóta. Þrátt fyrir að hafa skotið þar
til fjölda ára.
Vió fréttum af einum sem fékk að
skjóta fyrir náð og miskunn fyrir vest-
an en þar var lítið að hafa. Hann gekk
og gekk en sá enga rjúpu, þrátt fyrir að
hann labbaði í sjö Úukkutíma, og það
eina sem hann hafði upp úr krafsinu
var góður, langur labbitúr. Reyndar
voru nokkrir búnir að labba svæðið og
þeir höfðu aðeins fengið eina rjúpu.
Sjóstangaveiðin hefur sjaldan verið k
öflugari en núna og fleiri og fleiri lax-
veiðimenn sækja í sportið. Enda
kannski ekkert skíýtið þegar laxveiðin
er ekki betri. Flest mótin sem haldin
voru í sumar voru yFmfull og komust
víst færri að en vildu.
-G. Bender
Það styttist í að gæsaveið-
in endi á þessu veiðitíma-
bili og gæsin láti sig hverfa
vestur yflr haf. Margir
veiðimenn hafa fengið góða
veiði víða um land og einn
og einn veitt meira en aðrir.
Við fréttum af tveimur
sem fóru vestur í gæs og
fengu leyfi á einum bænum
í Dölunum. Það var auðsótt
mál og þegar þeir voru að
labba frá bænum sjá þeir
gæsahóp fljúga upp af einu
styttinu. Hlaupa þeir til og
ætla að athuga hvort fleiri
gæsir séu á svæðinu. Sjá
þeir allt í einu gæs í skurði
við stykkið og labbar annar
að skurðinum.
A6 grípa gæsina meö-
an hún gefst
Þetta sá meðai annars
heimilsfólkið á bænum og
hafði gaman af. Þegar
veiðimaðurinn kemur að
skurðinum lyftir gæsin sér
upp og gerir veiðimaður-
inn sér þá lítið fyrir og gríp-
ur hana. Með þessu fylgist
veiðifélagi mannsins og
heimilsfólkið á bænum og
þóttu aðfarimar miklar.
Seinna þennan sama dag
er knúið dyra á bænum og
eru þar komnir aðrir veiði-
menn til að spyrja um gæsa-
leyfi. Bóndinn varð fyrir
svörum og sagði að þeir
þyrftu ekki skotvopn heldur
veiddu menn með höndun-
um gæsimar. Þessum veiði-
mönnum leist síður á slíkan
veiðiskap og létu sig hverfa
á önnur stykki.
-G. Bender