Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2000, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2000, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 9 DV Fréttir DV-MYNL) NJUHUUK HtUiAbUN Lok og læs Nú veröa Stokkseyringar aö leita annað í jólabaðið því að sundlaug staöarins hefur verið lokað tíma- bundið. Héraðsdómur Vesturlands: Bæjarstjóri sýknaður af um- mælum um skólabílstjóra DV. BORGARNESI:____________________ Héraðsdómur Vesturlands sýknaði nýlega Stefán Kalmansson, bæjar- stjóra í Borgarbyggð, vegna ummæla sem hann viðhafði um Halldór Gunn- arsson, sem hafði annast skólaakstur í Álftanes- og Hraunhreppi um 17 ára skeið. Undir lok ágústmánaðar 1999 barst bilstjóranum bréf frá bæjar- stjóra Borgarbyggðar þar sem honum var tilkynnt að ekki væri óskað eftir því að hann annaðist skólaakstur fyr- ir Borgarbyggð veturinn 1999-2000. í bréfinu sagði m.a. í rökstuðningi fyr- ir ákvörðuninni: „Áhrif á þessa ákvörðun hafði einnig viss óánægja foreldra með samskipti þín við börn- in s.l. vetur sem ekki er hægt að líta fram hjá.“ Þessi orð bæjarstjóra vildi bílstjórinn fá nánar útskýrð og rök- studd, auk þess sem hann krafðist af- sökunarbeiðni frá bæjarstjóranum. Sérstaklega tók hann fram í bréfi sínu að á 17 ára farsælum starfsferli sem skólabílstjóri hefði honum aldrei borist kvörtun. Engin afsökunar- beiðni kom frá bæjarstjóra og fór Halldór bílstjóri með málið fyrir dómstól. Stefnandi gerði þær dóm- kröfur að dæmd yrðu dauð og ómerk ummælin sem áður er vitnað í og komu fram í bréfi bæjarstjórans. Mörg vitni voru kölluð fyrir og staðfestu nokkur þeirra að óánægja hefði verið með Halldór. Héraðsdóm- ur féllst ekki á kröfu hans og var báð- um aðilum málsins gert að greiða kostnað. Finnur Torfi Hjörleifsson dæmdi. -DVÓ Ekkert jóla- bað hér! Ekki verður farið í jólabaðið í sundlaug þeirra Stokkseyringa. Þeir koma nú að lokuðum dyrum sund- laugarinnar. Bæjarráð Árborgar samþykkti 23. nóvember síðastlið- inn tímabundna lokun Sundlaugar Stokkseyrar frá 1. desember 2000 til 28. febrúar 2001. Jafnframt var emb- ættismönnum falið að vinna áfram að hagkvæmniathugun vegna rekst- urs laugarinnar. -NH Norðurland eystra: Konu dæmdar 5 milljónir í bætur DV, AKUREYRI:_____________ Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri hefur verið dæmt til að greiða konu á sextugsaldri tæpar 5 milljónir króna í bætur ásamt vöxtum og dráttarvöxtum og 875 þúsund króna greiðslu málskostnaðar til ríkis- sjóðs. Konan sem um ræöir gekkst árið 1993 undir skurðaðgerð á fæti á sjúkrahúsinu á Akureyri sem hald- ið var fram að síðar hafi leitt til var- anlegs heilsubrests hennar og að að- gerðin hafi haft varanlegar afleið- ingar fyrir andlega og líkamlega heilsu konunnar. Þá var því haldið fram að um mistök lækna hafi ver- ið að ræða. Dómurinn taldi að með tilliti til aldurs konunnar, þunga hennar, vaxtarlags og þess hversu slit á lið- brjóski í vinstra hné hennar var orðið mikið hafi sú ákvörðun að framkvæma aðgerðina verið vafasöm. Freyr Ófeigsson, dómstjóri Hér- aðsdóms Norðurlands eystra, hvað upp dóminn ásamt meðdómsmönn- um hans sem voru Ásgeir Pétur Ás- geirsson héraðsdómari og Brynjólf- ur Jónsson, sérfræðingur í bæklun- arskurðlækningum. -gk íslendingar eiga víkingaskip Margir hafa lýst því yfir að und- anfömu að íslendingar eigi að eign- ast víkingaskipið Islending. íslend- ingar eiga hins vegar víkingaskip, því árið 1974 fengu þeir tvö víkinga- skip að gjöf frá Norðmönnum og eru þau eftirlíkingar af skipum af gerð- inni Aafjord, sem byggja á samnor- ræni byggingarhefð. Annað skipið fengu Reykvíkingar en hitt var gef- ið til Húsavíkur. Skip Reykvíkinga er ekki lengur notað til siglinga og er það til sýnis utandyra í Árbæjar- safni. Reynt er að halda skipinu við þannig að það skemmist ekki. Hitt skipið er í mjög góðu ástandi og var síðast siglt á því árið 1987. Frá og meö næsta vori verður það til sýnis í nýrri sjóminjadeild Safnahússins á Húsavík. -MA VERÐ ABEINS 7.900 kr. • Gæðaprófað • Fæst í fimm iitum: bláum, svörtum, rauðum, gulum og grænum • Góð taska fylgir (takmarkað magn) • 100 mm, sterk PU hjól • íslenskar leiðbeiningar fylgja Speedy er I STER HLAUPAHJ0LIÐ m auðvelt er að brjóta saman!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.