Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2000, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2000, Side 32
36 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 Tilvera lí f iö Sóldögg í ís- lensku óperunni Hljómsveitin Sóldögg heldur útgáfutónleika í íslensku óper- unni vegna útkomu disksins Popp. Húsið verður opnaö kl. 20.30 og hefjast tónleikarnir kl. 21.00. Forsala miða verður í Skífubúðunum. Eftir tónleika verður svo farið á Gaukinn og róað sig niður í boði Carlsberg. POPP_________________________ ■ BJORN JORUNDUR A GAUKI A STONG Björn Jörundur ætlar að halda útgáfutónleika á Gauknum með sóloskífuna og hljómsveitina Luxus. Sálin hans Jóns míns sér um aö hita upp. Krár ■ PITCHER-KVOLD A VEGAMOT- UIW I kvöld, eins og önnur fimmtu- dagskvöld, verður Pitcher-kvöld á Vegamótum og mun DJ Ýmir spila ásamt gestaspilara. Pitcher verður á frábæru verði, 1,6 I á aðeins 1290, einnig veröur boðið upp á Buffalo vængi á vægu veröi fram til lokunar. ■ PJ TF-STEFAN Á NELLYS í kvöld verður Dj TF-Stefan í búrinu meö house-tóniist á Nellys. ■ KANÍNUKVÖLD Á RAUÐA UÓN- INU Það verður svokallaö „bunny- night" á Rauða Ijóninu í kvöld. Aliir drykkir verða á lágu verði og svpka gellur að þjóna til borös. Einar Örn Konráösson verður að spila og held- ur uppi Hugh Hefner-stemningu. Klassík ■ EVELYN GLENNIE í kvöld kl. 19.30 í Háskólabíói mun Sinfóníu- hljómsveit íslands frumflytja verk Hjálmars H. Ragnarssonar. Einleik- ari er engin önnur en Evelyn Glennie. Verkiö er eitt af þeim fjöl- mörgu nýju íslensku tónverkum sem sérstaklega hafa verið pöntuð í til- efni menningarborgarársins. Liöur í Stjörnuhátíð Menningarborgarinnar. ■ ÓLAFUR OG JÓNAS I kvöld kl. 20 munu Olafur Kjartan Sigurðar- son og Jónas Ingimundarson flytja fjölbreytta efnisskrá í Salnum í Kópavogi fyrir starfsmenn Kópa- vogsbæjar. Leikhús ■ HVAR ER STEKKJARSTAUR? Ferðaleikritið Hvar er Stekkjarstaur? eftir Pétur Eggerz verður sýnt í dag kl. 9.30 í Sólheimabókasafni og kl. 18.20 í Seljaskóla. ■ JÓNAS TÝNIR JÓLUNUM Feröa leikritið Jónas týnlr jólunum eftir Pétur Eggerz verður sýnt í Mögu- lelkhúslnu viö Hlemm kl. 10.30 í dag. Uppselt. ■ OFVIÐRH) Ofviðriö verður sýnt t Smiöjunni, nýju leikhúsi Nemenda- leikhússins, við Sölvhólsgötu 13 I kvöld kl. 20. Miöaverö 500 krónur. Fundir ■ MALLEG MERKING Katrin Jóns- dóttir, doktorsnemi viö Paul Valéry- háskólann í Frakklandi, flytur fyrir- lestur í boði íslenska málfræöifé- lagsins í dag kl. 16 í stofu 205 í Odda. Fyrirlesturinn nefnist Málleg merking og er byggður á doktors- verkefni Katrinar, se,m hún vinnur að um þessar mundir. í fyrirlestrinum verða tekin fyrir tengsl hlutveruleika, vitsmunasviös og mállegrar merking- ar. Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is DV Snorri B. Ingason, nýkjörinn formaður Hestamannafélagsins Fáks: Lít á Fák sem hestamanna- félag en ekki bisnessfélag Fyrir skömmu fóru fram for- mannskosningar í Hestamannafé- laginu Fáki. Fákur er stærsta hestamannafélag landsins með um þúsund félagsmenn. Snorri B. Ingason trésmíðameistari sigraði í kosningunum með miklum yfir- burðum. Lýðræðislegar kosningar „Fjöldi fólks fór þess á leit við mig að ég byði mig fram sem for- maður og ég ákvað að slá til. Ég hef verið þó nokkuð í félagsstörf- um áður en ég fór út i formanns- kjörið, í gamla daga starfaði ég fyr- ir Trésmiðafélagið og svo var ég kór.“ Aðspurður segist Snorri ekki vera mikil söngmaður og vera hættur í kómum. „En ég hef verið í ýmsum nefndum á vegum Fáks. Það er formannskjör einu sinni á ári þannig að ég verð formaður í ár til að byrja með. Mér finnst hafa verið gert meira úr formannsslagnum en ástæða er til. Það fóru einfaldlega fram lýð- ræðislegar kosningar og ég vann. Ég var reyndar hissa þegar Harald- ur mótframbjóðandi minn gekk út af fundinum að loknum kosningum og fannst það ekki í anda lýðræðis. Haraldur fékk 79 atkvæði en ég 120 þannig að félagsmenn hafa greini- lega viljað skipta um formann. Hobbí en ekki bisness „Ég lit á Fák sem hestamanna- og útreiðafélag en ekki bisnessfé- lag. Mér finnst að hinn almenni fé- lagsmaður eigi að fá fleiri tækifæri til að taka þátt í stjóm félagsins og ég vil leita aftur í grasrótina. Frá- farandi stjórn vann erfitt og gott starf i sambandi við hestamanna- DV-MYNDIR INGO Ég er staöráöinn í leggja áherslu á ferðamálin og beita mér í reiövegamálum Mikil áhugi er á hestaferðum hjá hinum almenna félagsmanni og ég vil auka vægi þeirra og svo verða mótin að sjálfsögðu fastur liður í starfseminni. ■ Meira gert úr formannsslagnum en ástæöa er til Ég var hissa þegar Harladur gekk út af fundinum að toknum kostningum og mér fannst það ekki í anda iýðræðis. Bíógagnrýni mótinn og við uppbyggingu á svæðinu. Markaðshugmyndirnar voru bara orðnar allt of ríkjandi. Hinn almenni félagsmaður á að fá tækifæri til að stunda hesta- mennsku en ekki að vera t enda- lausum framkvæmdum. Hesta- mennska er hobbí og á að vera fyr- ir alla en ekki bara þá efnameiri. Tilhneigingin hefur verið sú að efnameira fólk hefur farið meira út í þetta, þetta er dýrt sport og mik- ið mál fyrir venjulegt fólk að vera í þessu.“ Kastaði skít í Skugga frá Bjarnanesi Snorri er fæddur 1947 og því fimmtíu og þriggja ára gamall, hann er ættaður úr Borgafirði og Meöal- landi í Skaftefellssýslu. „Foreldrar mínir bjuggu Reykja- vik en var ég mikið í sveit hjá afa mínum og ömmu í Borfgarfirði. Afi ræktaði sláttuvélahesta og það tók hann tvö ár að þjálfa hvern hest. Fyrsta minning mín af hestum er frá því að ég var að kasta skít í Skugga frá Bjarnanesi, klárinn var hræðilega illur í samskiptum og hann ætlaði hreinlega í mig þegar ég var bam. Ég var mikið á hest- baki sem unglingur í sveitinn en ég byrjaði svo á þessu fyr- ir alvöru stuttu eftir 1970.“ Háskólabíó - The Best Man: ★ ★ Vinir eru vinum verstir Hilmar Karlsson s krifar gagnrýni The Best Man leiðir hugann ósjálfrátt aö hinni ágætu kvikmynd Lawrence Kasdans, The Big Chill. Grunnurinn er sá sami, gamall vinahópur frá háskólaárunum hitt- ist og fornar syndir rifjast upp. í The Big Chill hittist kunningjahóp- urinn við jarðarfór eins þeirra. í The Best Man er brúðkaup tilefnið. í samanburðinum vegur The Best Man ekki þungt enda persónur margar hverjar léttvægar miðað við persónur Kasdans sem voru mjög eftirminnilegar og höfðu úr góðu handriti að moða. I báðum myndun- um er sannleikurinn viðkvæmur. Munurinn liggur einnig í því að í The Big Chill voru allir hvítir en í The Best Man eru allir svartir. Er tilbreyting að sjá kvikmynd um ungt, svart fólk í Bandaríkjunum sem ekki gerist í fátækrahverfum meðal snauðra og nýríkra og önnur hver persónar rappar hvort sem er í orði eða tónum. í upphafi kynnumst við Harper (Taye Diggs) sem er að senda frá sér sína fyrstu skáldsögu sem þegar hef- ur verið valin bók mánaðarins í þætti Oprah Winfrey. Hann er á leið í brúðkaup besta vinar síns, ruðn- ingshetjumar Lance, sem er að gift- ast skólasystur þeirra, Miu (Monica Calhoun). Daginn fyrir brúðkaupið hittist vinahópurinn, sem mörg vandamál hrjá, og ljóst er að spenna er á milli Harpers og sjónvarps- stjómandans Jordans (Nia Long). Þau úr hópnum sem lesið hafa bók Harpers sjá að hann er að skrifa um há- skólaár þeirra og sýnist sitt hverjum. Það er þó ekki fyrr en Lance segir fé- lögum sínum, sem hafa verið að stríða honum á hversu lauslát- ur hann er, að hann sé að gift- ast Miu, ekki bara vegna þess að hann elski hana, heldur einnig vegna þess að hann er viss um að hann sé sá eini sem hún hefur ver- ið með. Fer nú heldur betur um Harper því í nýju bókinni hans má lesa á milli línanna að hann og Mia hafi átt eina ástríðufulla nótt saman þegar Lance stóð í framhjáhaldi. Nú er það bara spumingin hvort Lance nær að lesa bókina og uppgötva sannleikann áður en brúðkaupsa- dagurinn rennur upp. Leikstjóri myndarinnar, Malcolm D. Lee, er frændi Spikes Lees sem er einn framleiðenda myndarinnar. Mynd Malcolms skortir raunsæi og djörfung mynda Lees en er þó að sumu leyti vel heppnuð. Það er gott sam- ræmi milli atriða, einstaka persónur em áhugaverðar og ágætur húmor inn á milli. Þá er smekklega farið aftur í tímann til háskólaáranna. Það sem helst má finna að er hversu fyrirsjáan- leg hún er. Sagan virkar vel í upphafi en þegar líða tekur á og hvert atriði af öðru verður venjulegt hverfur spenn- an. Við vitum að það stefnir í uppgjör og ekkert kemur á óvart þegar sú stund rennur upp. Aðeins er um enn eina útfærslu á kunnuglegum atriðum að ræða. Hilmar Karlsson Leikstjóri og handritshöfundur: Malcolm D. Lee. Kvikmyndataka: Frank Prinzi. Tónlist: Stanley Clarke. Aðalhlutverk: Taye Diggs, Nia Long, Morris Chestnut, Harols Perineau, Terence Howard og Sanaa Lathan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.