Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2000, Side 11
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000
11
I>V
Útlönd
Tugir þúsunda mótmæla leiðtogafundinum í Nice:
Krefjast þess að félags-
málin fái forgang í ESB
Mótmælendur í sjónum
Félagar í hreyfingunni Attac, sem ergegn hnattvæöingunni margumtöluöu, brugöu sér í sjóinn viö Nice í Frakklandi
þar sem þeir eru saman komnir til aö mótmæla leiðtogafundi Evrópusambandsins sem fer þar fram næstu daga.
Franska lögreglan beitti táragasi
í gær til að dreifa óróaseggjum sem
köstuðu að henni flöskum eftir ann-
ars friðsamlega mótmælagöngu í
Miðjarðarhafsborginni Nice. Tugir
þúsunda manna létu úrhellisrign-
ingu ekkert á sig fá og fóru um göt-
ur borgarinnar til að mótmæla leið-
togafundi Evrópusambandsins sem
hefst þar í dag.
Sjónarvottar sögðu að milli 200 og
300 óróaseggir, margir þeirra ítalir,
hefðu lent í útistöðum við lögreglu
nærri brautarstöðinni eftir að fjölda
ítalskra mótmælenda var snúið til
baka við landamærin.
Mótmælendurnir, sem voru um
sextíu þúsund þegar mest var,
kröföust þess að leiðtogar ESB settu
félagsmál efst á forgangslistann.
Franskir verkalýðsleiðtogar fóru
fyrir mótmælendunum.
„Eftir heilt ár þar sem allt hefur
snúist um efnahagsmálin, án tillits
til félagslegra afleiðinga, er kominn
tími til að ESB taki ákvarðanir þar
sem félagsmálin eru í fyrirrúmi,"
sagði verkalýðsleiðtoginn Bemard
Thibault.
Romano Prodi, forseti fram-
kvæmdastjómar ESB, segir í grein í
breska blaðinu Guardian í dag að
mikilvægasta málið sem leiðtogarn-
ir verða að glíma við á þriggja daga
fundi sinum sé að fjölga málum þar
sem aukinn meirihluti atkvæða á
fundum ræður úrslitum. Það þýðir
að aðildarríkin verða að gefa eftir
neitunarvald sitt. Prodi segir þetta
einu leiðina til að gera ákvarðana-
tökuna skilvirkari en hún er nú.
Frakkar og Þjóðverjar eru þegar
komnir í hár saman vegna þeirrar
kröfu Þjóðverja að fá meira vægi
innan ESB, í samræmi við stærð
landsins. Frakkar taka hins vegar
ekki í mál að Þjóðverjar ráði meiru
en hin stóru rikin.
Mikið veltm- á að leiðtogarnir
komi sér saman um nauðsynlegar
úrbætur á starfi ESB svo hægt verði
að hefja inntöku nýrra ríkja í sam-
bandið. Á annan tug ríkja, aðallega
úr Austur-Evrópu, bíður nú inn-
göngu við við hin gylltu hlið í
Brussel.
Spilling í Alþjóða-
bankanum
Þrír bandarískir starfsmenn Al-
þjóðabankans hafa verið reknir eft-
ir að þeir viðurkenndu að hafa þeg-
ið mútur frá ýmsum fyrirtækjum,
meðal annars sænskum, gegn ráð-
gjafaverkefnum.
Sænska hjálparstofnunin Sida
hefur lagt jafnvirði 600 milljóna
króna í sænskan ráðgjafasjóð Al-
þjóðabankans og það var einkum
með þetta fé sem var svindlað.
Kynningartllboð
á stimpilpressum
10-25%
afsláttur
í nokkra daga
Opið laugardag,
kl. 10-14
Þaö liggur í loftinu
AVSHAOI
jff 5 55 £_
=. ss =r==~_
Akralind 1 - 200 Kópavogur - lceland
Simi.: 564-3000 - Fax.: 564-0030
Viðskiptavelvild
og Gæðasala
Það sem viðskiptavinurinn vill
þegar hann verslar fyrir jólin!
‘li' *' - '' - '
Skráning á þessi vinsælu þjónustu- og sölunámskeið stendur yfir.
Námskeið haldin um allt land.
kringlunni 4-12
104 Reykjavík
sími 588 1000
fax 588 1060