Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2000, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2000, Side 31
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 35 I DV Tilvera i í-r,- Í > ‘j u <» * • < ■* *' Geimfarar á Mars. Það er ekki skemmtileg reynsla sem jaröarbúar verða fyrir á Mars. Strandaglópar á Rauðu plánetunni Leiðangursstjórinn á Mars. Val Kilmer leikur aðalhlutverkiö í Rauðu plánetunni, leiðangursstjórann Gallagher. bokarmnar vegna Skoðið Bókatíðindiii s Félag íslenskra bókaútgefenda I Stórmyndin Red Planet, sem fhun- sýnd verður á morgrrn í Sam-bíóunum í Reykjavík, Nýja bíói á Akureyri og Nýja bíói í Keflavík er önnur myndin á þessu ári sem segir frá leiðangri til Mars. Sú fyrri var Mission to Mars sem Brian De Palma leikstýrði. í Red Planet er sagt frá örlagaríki geimferð til Mars. Árið er 2050, jörðin er ekki orðin heppilegur dvalarstaöur fyrir mannkynið og menn líta til Mars sem framtíðarbústaðar. Leiöangur er send- ur til Mars til að kanna hvað fór úr- skeiðis en áður hafði farið leiðangur sem byggði súrefnisverksmiðju á Mars þar sem tilraunir voru gerðar með að gera plánetuna byggilegri fyrir mann- kynið. Þessi verksmiðja þar sem með- al annars vélmenni störfúðu er í lama- sessi og á leiðangurinn að komast að því hvað fór úrskeiðis. Ekki tekst bet- ur til hjá þessum leiðangri en svo að geimskipið brotlendir. Áhöfnin sér að það mun vera erfitt verk að koma skip- inu i loftið. Þetta verða þó ekki erfið- ustu vandamálin sem þarf að taka á þegar fram líða stundir. Það er fylgst með þeim og það ekki af vinveittum aðilum. í helstu hlutverkum eru Val Kilmer, Carrie Anne-Moss, Tom Sizemore, Terence Stamp, Simon Baker og Benjamin Bratt. Leikstjóri er Anthony Hoffman og er þetta fyrsta kvikmyndin sem hann leikstýrir. Hoffman er vanur mun minni verkefh- um, hafði aðallega fengist við auglýsingar og orðið vel ágengt á því sviði. Þess má geta að á undirbúningsstigi Red Planet var hún mikið í fréttum hér heima þar sem samið hafði verið um að hluti myndarinnar yrði tekinn hér á landi. Var undirbúningur langt á veg kominn þegar hætt var við að gera myndina hér, það þótti of mikil áhætta veðurfarslega séð. Urðu það mörgum vonbrigði, sérstaklega öllum þeim stúlkum sem höfðu vonast tO að berja Val Kilmer augum. -HK Flugstjórinn. Carrie-Anne Morse leikur ftugstjórann Bowman. Þegar foringjamir gera sér það ljóst að þessi nýi liðsmaður er orðinn einum of ákaf- ur er talið æskilegt að stöðva hann. Þekktir breskir leik- arar eru í aðalhlut- verkum. Ray Winstone leikur Ray og Jonny Lee Miller leikur Jonny og Jude Law leikur Jude. Aðrir leik- arar eru Sadie Frost, Rhys Ifans, Sean Pertwee og Kathy Burke. Leikstjórar, handritshöfundar og framleiðendur eru Dominic Anciano og Ray Burdis og leika þeir einnig í myndinni. Þeir eiga eina mynd að baki, Final Cut, þar sem Jude Law lék einnig eitt aðalhlut- verkið. -HK Matthew. Rhys Ifans, sem sló í gegn í Notting Hill, leikur skúrkinn Matthew. I Opið virka daga kl. 12-18 og um helgar kl. 11-17 Opið til kl. 22 frá 16. desember til jóla I Trévara, postulín og ótal margt fleira Ævinty ralandid 00- 3SSU °e Gefnar ’gS'na ó staðnum. dll fjöldi nýrra val af vöru. ingin er einstök líkast. ;a um helgar, ta pláss reykelsi og gjafavara MARKAÐSTORG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.