Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2001, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001
5
DV
Fréttir
B R Æ Ð U R N
HEIMILISTÆKI
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
Dómkirkjuprestur ætlar að sitja á Alþingi fram á vor:
Bagaleg óvissa
- segir varaþingmadur hans
CE 220,0
• 1500w
• 350 sogwött
• Stiglaus styrkstillir
• Fimmfalt filterkerfi
• Breytilegur soghaus
• Fjórir fylgihlutir
Stöð 1 leitar nýrra leiða til að dreifa erótík:
skiptahindranir
Séra Hjálmar
Jónsson
Ætlar aö nota
sumarleyfi þing-
manna til
aö kveöja
kjördæmi sitt.
Kurr og óá-
nægja er í
ákveðnum hópi
sjálfstæðismanna
i Norðurlands-
kjördæmi vestra
vegna þeirrar
ákvörðunar séra
Hjálmars Jóns-
sonar dómkirkju-
prests að sitja
áfram á þingi
fram á vor þó svo
hann sé kominn i
nýtt starf. Sigríð-
ur Ingvarsdóttir,
varaþingmaður
hans, er orðin langeyg eftir þing-
sæti sínu sem hún bjóst við að setj-
ast i strax og séra Hjálmar var skip-
aður dómkirkjuprestur. Sérstaklega
með tilliti til þess að séra Hjálmar
lýsti því yfir að hann myndi hætta
afskiptum af stjórnmálum fengi
hann Dómkirkjubrauðið:
„Þessi óvissa er bagaleg," sagði
Sigríður Ingvarsdóttir varaþing-
maður sem bíður í starfi sínu á
markaðsdeild Olis eftir því að fá aö
setjast á Alþingi en vildi ekki að
öðru leyti tjá sig um þetta við-
kvæma mál.
í Norðurlandskjördæmi vestra er
það hald ýmissa að með því að sitja
á þingi fram á vor sé dómkirkju-
presturinn að tryggja sér laun í fjög-
urra mánaða sumarleyfi þing-
manna. Þetta aftekur séra Hjálmar
Jónsson með öllu:
„Ég mun að sjálfsögðu nota sum-
Auður
Garöarsdóttir
Almenn ánægja
meö séra
Hjálmar.
Sigríöur
Ingvarsdóttir
Finnst
biöin
of löng.
arleyfi mitt til að ferðast um kjör-
dæmið og kveðja stuðningsmenn
mína. Ég var búinn að tilkynna Sig-
ríði Ingvarsdóttur að ég myndi sitja
á þingi fram á vor til að ljúka ýms-
um málum sem enn eru ekki í höfn.
Það er enginn kurr í kjördæmi
mínu vegna þessa þó alltaf sé einn
og einn sem vilji hasar. En almennt
séð er gott samkomulag um þessa
skipan,“ sagði séra Hjálmar.
Auður Garðarsdóttir, formaður
sóknamefndar Dómkirkjunnar, tek-
ur undir með séra Hjálmari Jóns-
syni, þegar hún segir: „Það er mikil
ánægja með séra Hjálmar hér í
sókninni. Hann hefur fullt leyfi frá
okkur til að sinna þingstörfum fram
á vor.“
Eftir stendur óánægja Sigríðar
Ingvarsdóttur varaþingmanns og
stuöningsmanna hennar sem geta
lítið aðhafst enda er kjörbréf séra
Hjálmars á Alþingi gilt fram til árs-
ins 2003. -EIR
Ryksaga
Sagan segir af Hreini Agnarssyni,
fyrrverandi Stoke aðdáanda, sem
keypti sér alvöru ryksugu hjá
Ormsson. (eða tæki eins og hann
kallar hana) Hann hefur ekki lengur
áhuga á enska boltanum.
CE-POWER
• Ný, kraftmikil ryksuga
í sportlegri tösku
• Sogkraftur 1.600 W
• Lengjanlegt sogrör
• Fimmfalt filterkerfi
• Tveir fylgihlutir
___rftt___
RáDIOfMUST
Geislagötu 14 • Sími 462 1300
Þvinganir og við-
Vorið boðar komu sína
Veöriö hefur leikiö viö höfuöborgarbúa i vetur. Snjólétt hefur veriö og milt.
Þessa marsdaga boöar voriö síðan komu sína og þá er gaman aö ganga
meö Reykjavikurtjörn. Enn er þó betra aö vera í úlpu eöa góöum galla.
CE 275,0
•1500w
• 350 sogwött
• Stiglaus styrkstillir
• Lengjanlegt sogrör
• Fimmfalt filterkerfi
• Breytilegur soghaus
• Fjórir fylgihlutir
Umboðsmenn
umlandallt.
- segir framkvæmdastjórinn og biður menn að vanmeta sig ekki
„Stjórnmálamenn verða skít-
hræddir við klám þegar kemur að
kosningum. En við gefumst ekki
upp og stöndum nú í samningavið-
ræðum við aðra aðila um að dreifa
efni okkar," segir Hólmgeir Bald-
ursson, forsvarsmaður sjónvarps-
stöðvarinnar Stöð 1 sem stefnir að
því að hefja útsendingar á erlendum
spennumyndum og framhaldsþátt-
um á Faxaflóasvæðinu í vor. Út-
sendingarnar verða ókeypis og eiga
að nást á venjulegar sjónvarpsgreið-
ur.
Stöð 1 stóð í samningaviðræðum
við Línu.Net um dreifingu á eró-
tísku sjónvarpsefni en fyrirtækið er
helgi: „Borgaryfirvöld hafa ekki á
stefnuskrá sinni að dreifa klámi...
Lína.Net mun því ekki leyfa þetta."
Undir orð Alfreðs tekur Helgi
Hjörvar, forseti borgarstjórnar, og
segir að aldrei hafi verið ætlunin að
dreifa þessu erótíska sjónvarpsefni
fyrir Hólmgeir Baldursson og fyrir-
tæki hans.
Hólmgeir stofnaði sem kunnugt
er sjónvarpsstöðina Skjá einn og
rak hana um skeið áður en til eig-
endaskipta kom. Skjár einn sendir
nú út sams konar erótískt efni og
Stöð 1 hyggst gera á Breiðbandi
Landssímans og hafa þær útsend-
ingar fengið góðar viðtökur.
Hólmgeir Baldursson heldur
ótrauður áfram en segir að fjöl-
margir sem hagmuna eigi að gæta í
sjónvarpsrekstri reyni að setja stein
1 götu sína: „Það er ekkert launung-
armál að ég hef orðið fyrir þvingun-
um og viðskiptahindrunum vegna
ráðagerða minna um endurtekinn
sjónvarpsrekstur. Þeir sem van-
mátu mig í upphafi munu ekki gera
það aftur.“ -EIR
í meirihlutaeigu Reykjavíkurborg-
ar. Alfreð Þorsteinsson, stjórnarfor-
maður Línu.Nets, sagði í DV fyrir
Margir að ná kvótanum
Mjög fin loðnuveiði hefur verið
undanfarna daga. Nokkur skipanna
í eru að verða búin með kvóta sinn
og í síðustu ferðunum, enda sjálf-
gert að hætt verður á miðnætti á
fimmtudagskvöld og flotanum þá
siglt til lands í verkfallið, en ekkert
bendir til samninga fyrir þann tíma.
í gær höfðu veiðst 555 þúsund
tonn frá áramótum og alls á vertíð-
inni 681 þúsund tonn. Þá var ekki
eftir að veiða nema um 130-140 þús-
und tonn af heildarkvótanum.
Bjarni Bjarnason, skipstjóri á
Súlunni EA, sagði í gær að
mokveiði væri úr „vesturgöngunni"
svokölluðu sem kom að Vesturlandi
og fór suður með landinu. „Þessi
ganga er núna vestan við Eyjar á
austurleið, en ég held að hún sé eitt-
hvað farin að hrygna og drepast,
þetta er allt á síðustu metrunum,“
sagði Bjarni.
Um veiðar úr „austurgöngunni"
eða göngunni sem er á hinni hefð-
bundnu gönguleið er það að frétta
að menn hafa látið hana mæta af-
gangi undanfarna daga. Sú loðna er
enn erfiðari við að eiga og á lengra
eftir í hrygningu. Þegar menn eru á
síöustu klukkustundunum fyrir
verkfall einbeita þeir sér að göng-
unni við Eyjar og reynt er að koma
sem mestu á land fyrir verkfall.
Eyjar eru hæsti löndunarstaður
með 67.404 tonn, Eskifjörður 66.547
tonn, Neskaupstaður 53.961 tonn,
Grindavík 41.878 tonn, Seyðisfjörð-
ur 41.107 tonn og Akranes 40.501
tonn. -gk
Frá Vestmannaeyjum
Þar hefur mestri loönu veriö landaö á vertíðinni.
Loðnuveiðar í hámarki:
Hólmgeir
Baldursson
Stjórnmáiamenn
hræddir viö klám
fyrir kosningar.
Aldrei ætlunin
aö dreifa
erótíkinni.