Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2001, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001
Útlönd
Yoshiro Mori
Forsætisráðherra Japans nýtur að-
eins fytgis 10 prósenta kjósenda.
Mori neitar að
hann ætli að
segja af sér
Yoshiro Mori, forsætisráðherra
Japans, staðfesti í morgun að hann
ætlaði að flýta kjöri nýs leiðtoga
ílokks síns, Frjálslynda lýðræðis-
flokksins. Forsætisráðherrann, sem
er afar óvinsæll, sagði hins vegar
hvorki hvenær kjörið yrði né hvort
hann ætlaði sjálfur að bjóða sig
fram. ígær neitaði Mori að hann
íhugaði að segja af sér þrátt fyrir að
hann ætlaði að flýta kjöri flokksleið-
toga eins og hann tilkynnti á fundi
með flokki sínum á laugardaginn.
„Hvorki ég né leiðtogarnir fimm
litu á þetta sem yfirlýsingu um að
ég ráðgerði að segja af mér,“ sagði
Mori á fundi fjárlaganefndarinnar í
efri deild þingsins í gær.
Sharon hittir
sendimenn ESB
Sendifulltrúar Evrópusambands-
ins, sem ganga á fund Ariels Shar-
ons, forsætisráðherra ísraels, í dag
gera sér vonir um að geta sannfært
hann um að taka upp friðarviðræð-
ur við Palestínumenn og aflétta
ferðabanni sem er að sliga palest-
ínskt efnahagslíf.
Yasser Arafat, forseti Palestínu-
manna, hitti sendifulltrúana tvo í
gær. Þeir eru Chris Patten, utanrík-
ismálastjóri ESB, og Anna Lindh,
utanríkisráðherra Svíþjóðar. Arafat
sagði þátttaka Evrópusambandsins
í friðarferlinu væri nauðsynleg.
ísraelar eru undir miklum þrýst-
ingi að aflétta ferðabanninu og er
búist við að Patten og Lindh hvetji
Sharon til aflétta því þegar þau
hitta hann í dag.
Dótturdóttirin óvelkomin
Yitzhak Rabin, fyrrverandi forsætis-
ráðherra ísraels.
Munchen:
Dótturdóttur
Rabins vísaö frá
veitingahúsi
Noa Ben Artzi-Pelossof, dóttur-
dóttir Yitzhaks Rabins, fyrrverandi
forsætisráðherra ísraels, var vísað
frá veitingastað þar sem hún ætlaði
að taka þátt í góðgerðarkvöldverði.
Eigandinn taldi að um fund hægri
öfgamanna væri að ræða og vildi
ekki hleypa henni inn. Hann kvaðst
ekki vilja stjórnmálastarfsemi i
húsakynnum sinum og ekki hafa
neitt saman að sælda við gyðinga.
Noa kveðst hafa orðið fyrir áfalli.
Aðstandendum samkomunnar tókst
að útvega annan stað fyrir hana.
DV
Blair hittir ferðafrömuði og bændaforingja:
Vaxandi reiði yfir
gin- og klaufaveiki
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, hittir ferðamálafrömuði
og bændaleiðtoga í dag til að ræða
leiðir í baráttunni gegn gin- og
klaufaveikifaraldrinum sem hefur
nú geisað í á fjórðu viku. Vaxandi
reiði gætir nú meðal landsmanna í
garð stjórnvalda fyrir viðbrögð
þeirra við sjúkdóminum.
Blair virðist mikið í mun að
reyna að koma í veg fyrir að farald-
urinn, sem breiðist enn hratt út um
Bretland, verði honum til trafala í
baráttunni fyrir þingkosningarnar
sem búist er við að verði haldnar í
maíbyrjun.
Nú er svo komið að öll umferð
manna er bönnuð á stórum svæðum
í Bretlandi. Ýmsir bændur, hóteleig-
endur og aðrir sem hafa orðið fyrir
búsiQum af völdum faraldursins
hafa mótmælt fullyrðingum stjórn-
valda um að þau hafi fulla stjórn á
ástandinu.
„Ég veit að þetta er mjög
Tony Blair
Breski forsætisráöherrann ætlar aö
reyna að róa þá sem hafa áhyggjur
af vaxandi útbreiðsiu gin- og kiaufa-
veikifaraldursins í Bretlandi.
taugatrekkjandi þar sem við vitum
einfaldlega ekki hvernig gin- og
klaufaveikifaraldurinn á eftir að
þróast,“ sagði Blair í ræðu sem
hann hélt í gær. Greinilegt var að
hann reyndi með orðum sínum að
gera landsbyggðarmönnum ljóst að
hann vissi af áhyggjum þeirra.
Breska ríkisútvarpið BBC greindi
frá því að stjórnvöld hefðu ákveðið
að kalla til skyttur úr hemum til að
aðstoða við förgun smitaðra dýra.
Þegar er búið að slátra á annað
hundrað þúsund dýrum.
Ótti vaknaði á nýjan leik i Frakk-
landi í gær við að gin- og klaufa-
veikin hefði borist þangað frá Bret-
landi. Embættismenn sögðu að
dýralækna grunaði að sjúkdómur-
inn kynni að hafa komið upp í 113
dýra hjörð kúa á mjólkurbúi í norð-
vestanverðu Frakklandi.
Einkenni sjúkdómsins fundust
hjá sex dýrum og var þeim þegar
fargað. Hinum átti að farga síðar.
Húsarústir í Búrúndí
Hermaður frá Búrúndí stendur við rústir húss í Kinama, í norðurhluta höfuðborgarinnar Bujumbura. Undanfarnar tvær
vikur hafa geisað harðir bardagar milli uppreisnarmanna hútúmanna, sem réöust til atlögu gegn höfuðborginni, og
hers Búrúndí. í hernum eru tútsar í meirihluta. Þetta eru höröustu bardagar í Bujumbura í fjölda ára.
Klúður á heræfingasvæði í Kúveit:
Fimm bandariskir dátar
féllu fyrir eigin sprengju
Fimm bandarískir hermenn og
einn nýsjálenskur liðsforingi létu
lífið í gær þegar bandarisk F/A-18
herflugvél varpaði sprengju af mis-
gáningi á búðir eftirlitsmanna á
heræfingasvæði í eyðimörkinni í
Kúveit. Tíu manns til viðbótar
særðust í óhappinu.
Að sögn bandarískra hermálayfir-
valda var flugvélin, sem kom frá
flugvélamóðurskipinu Harry Trum-
an í Persaflóa, við reglubundnar æf-
ingar þegar slysið varð um klukkan
átta í gærkvöld að staðartíma. Slík-
ar æfingar eru haldnar ársfjórð-
ungslega. Flugvélin sneri heilu og
höldnu til flugvélamóðurskipsins.
Æfingasvæðið þar sem slysið
varð er rúmlega sjötiu kilómetra
norðvestur af Kúveitborg.
George W. Bush
Bandaríkjaforseti harmaöi mjög lát
hermannanna sem urðu fyrir
sprengju eigin manna í Kúveit í gær.
Fjöldi eftirlitsmanna frá öðrum
löndum en Bandaríkjunum var í
búðunum og slösuðust einhverjir
þeirra.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti harmaði slysið mjög. Hann
frétti af þvi þegar hann var við-
staddur athöfn í Flórída og bað við-
stadda að minnast fórnarlambanna
með þögn.
„Við misstum nokkra hermenn í
slysi sem varð við æfingar í Kúveit
í dag,“ sagði Bush við upphaf ræðu
sem hann flutti í Panama City í
Flórída.
Talsmaður forsetans, Ari
Fleischer, sagði fréttamönnum að
Bush hefði fengið nýjustu fréttir af
slysinu á leiðinni heim til Was-
hington frá Flórída.
Ryk dustað af járnfrúnni
Frambjóðendur
breska íhalds-
flokksins efast um
að leiðtoginn,
William Hague, afli
þeim atkvæða. Þess
vegna stóðu 45
frambjóðendur á
dögunum í biðröð
hjá Margaret
Thatcher, fyrrverandi forsætisráð-
herra. Þeir telja hana líklegri til að
afla þeim fylgis og þess vegna var
það mikilvægt að láta taka mynd af
sér með henni til að nota síðan í
kosningabaráttunni. Járnfrúin mun
einnig halda ræður í kjördæmum
þeirra frambjóðenda sem standa
henni næst.
Of strangir dómar
Hæstiréttur í Danmörku mildar
refsingu í mörgum dóma sem áfrýj-
að er frá Eystra landsrétti. Nær
þriðji hver dómur frá Eystra lands-
rétti er of strangur.
Kjarnavopn ekki komin
Þekktur óháður rússneskur hern-
aðarsérfræðingur, Pavel Felgen-
hauer, telur ólíklegt að Rússar séu
búnir að koma kjarnavopnum fyrir
í Kaliningrad. Hann telur þó víst að
verið sé að undirbúa staðsetningu
þeirra þar.
BiII Clinton, fyrrverandi Banda-
ríkjaforseti, hóf í gær Evrópuferð
sína í Hollandi. Hann hitti meðal
annarra Beatrix Hollandsdrottn-
ingu og flutti erindi á ráðstefnu þar
sem gestir borguðu þúsundir doll-
ara til að heyra skoðanir hans.
Bandalag með grænum
Sósíalistinn
Bertrand Delanoe
myndaði þegar í
gær kosningabanda-
lag með græningj-
um til að tryggja
vinstri mönnum
lokasigur í annarri
umferð borgar-
stjómarkosninganna í París næst-
komandi sunnudag. í Lyon kann
ágreiningur meðal hægri manna að
koma vinstri mönnum til góða á
sunnudaginn.
Fundu bara 20 milljónir
Danska lögreglan hefur nú rofið
þögnina um peningana sem fundust
steyptir i gólf í bátaskýli. Um var að
ræða jafnvirði 20 milljóna íslenskra
króna en ekki 100 milljóna eins og
dönsk blöð höfðu greint frá.
Úr stofufangelsi
Augusto Pinochet,
fyrrverandi einræð-
isherra Spánar, var
í gær látinn laus úr
stofufangelsi gegn
um 300 þúsunda
króna tryggingu.
Pinochet var úr-
skurðaður í stofu-
fangelsi í janúar síð-
astliðnum á meðan beðið væri eftir
réttarhöldum.
Mótmæli í Jakarta
Yfir þúsund námsmenn í Jakarta
kröfðust í morgun afsagnar Wahids
Indónesíuforseta. Samtímis söfnuð-
ust stuðningsmenn forsetans við
höll hans. Herinn kvaðst vera í
viðbragðsstöðu tækist lögreglu ekki
að koma í veg fyrir öngþveiti.