Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2001, Qupperneq 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001
Fréttir
x>v
Brýnast að R-listinn fari frá völdum:
Tilbúin í slaginn
um oddvita-
stöðuna
ef Björn Bjarnason gefur kost á sér
DV-MYND
E.ÓL.
Nafn: Inga Jóna Þóröardóttir
Staöa: Borgarfulltrúi og oddviti sjálfstæöismanna
Efni: Flugvallarkosning og borgarpólitíkin
- Borgarstjóri blæs á það að
kosningin um framtíð Reykjavík-
urflugvallar sé ótimabær og
óraunhæf. Hver er þín afstaða til
þess?
„Atkvæðagreiðslan í sjálfu sér hef-
ur því miður ekkert gildi. Það er
búið að taka ákvörðun um framtíð
vallarins til 2016. Ef það hefði verið
raunverulegur vilji borgarstjóra og
R-listans að láta fólkið ráða því hvað
yrði með framtíð Vatnsmýrarinnar
átti að efna til svona atkvæða-
greiðslu áður en bindandi ákvörðun
var tekin fyrir tæpum tveimur
árum. Hún var tekin og fram hjá því
komast menn ekki.
Kosningin er heldur ekki bindandi
fyrir borgarstjórnir í framtíðinni.
Þær taka skipulagsákvarðanir miðað
við þá stöðu sem þá er uppi. At-
kvæðagreiðslan nú er þannig sett
upp að hún getur ekki skilað skýr-
um niðurstöðum um raunverulegan
vilja fólks.“
- Er samt ekki ábyrgðarleysi að
kjósa ekki um framtíð vallarins?
„Nei, það er ekki ábyrgðarlaust.
Það á að láta grandskoða alla mögu-
leika í stöðunni áður en menn eru
spurðir. Ef menn efna til lýðræðis-
legra kosninga felst í því að fólk er
að taka ákvörðun um eitthvað alveg
skýrt skilgreint og afmarkað. Borg-
arbúar eiga rétt á að vita hvaða þýð-
ingu atkvæðagreiðslan hefur. Þessi
kosning á ekkert skylt við borgara-
lýðræði, eins og talað er um. Með
henni er þvert á móti verið að hafa
lýðræðið í flimtingum."
- Hvaða vilt þú gera varðandi
framtíð flugvallarins?
„Ég er þeirrar skoðunar að í
Vatnsmýrinni sé framtíðar bygging-
arland. Við munum í lengri framtíð
þurfa að nota þetta land til þróunar
fyrir Reykjavíkurborg. Ákvörðurn
um frEimtíð Vatnsmýrarinnar er
ekki hægt að taka nema í samhengi
við hvað verður um innanlandsflug-
ið. Við erum hins vegar með þessa
bindingu næstu 15 árin og eigum að
nota þann tíma til að skipuleggja
svæðið. Síðan eigum við að skoða
hver þróunin verður í byggða- og
samgöngumálum og í búsetuþróun í
landinu. Ég er sannfærð um það að
á næstu tveimur áratugum eigum
við eftir að horfa á þvílíkar breyting-
ar í samgöngumálum að umræður
um innanlandsflug verða á allt öðr-
um forsendum. Við eigum eftir að
sjá miklar samgöngubætur við Kefla-
vík og jafnvel hálendisveg norður í
land. I því ljósi sem þá verður uppi
eigum við að leggja mat á stöðuna. í
dag vitum við ekki hvemig þetta
verður."
- Hvað um aðra kosti?
„Við eigum að fara vel með skatt-
fé borgaranna. Þess vegna finnst mér
umræðan um flugvöll í Hvassa-
hrauni vera fáránleg. Fyrir utan rök-
studda gagnrýni um að hann stand-
ist ekki af flugtæknilegum ástæðum,
þá finnst mér við ekki geta farið
þannig með fjármuni skattborgar-
anna að leggja marga milljarða þar í
flugvöll. Ég er líka þeirrar skoðunar
að við eigum ekki að eyðileggja
ströndina okkar við Skerjafjörö með
hugsanlegri flugbrautarlagningu. Þar
með yrðum við búin að eyðileggja
ströndina og valda umhverfisspjöll-
um sem við getum ekki tekið til
baka. Við eigum að notast við tvær
flugbrautir í Vatnsmýrinni meðan
ekki er betri kostur í stöðunni."
- Nú er ekki eining innan flokk-
anna um flugvallarmálið. Veldur
kosningin ekki róti og klofningi í
flokkunum?
„Nei, það get ég ekki séð. Þegar til
kastanna hefur komið, þá hafa menn
sameinast um ákveðna hluti. R-list-
inn sneri við blaði eftir nokkurra
ára setu á valdastóli. Þá komst hann
að þeirri niðurstöðu að flugvöllurinn
ætti að vera áfram i Vatnsmýrinni,
gagnstætt því sem hann hafði haldið
fram í kosningabaráttunni. Óánægju-
raddir innan R-listans vegna endur-
byggingar vallarins urðu þess síðan
valdandi að tekin var ákvörðun um
þessa atkvæðagreiðslu.
Borgarstjóri varð undir
Þá ákvað borgarstjóri að fela sér-
fræðihópi að skoða málið í heild
sinni. Koma fram með mögulega
kosti sem væru inni í myndinni. Því
starfi var nánast lokið þegar hópur-
inn var leystur undan störfum og
málið því ekki klárað.
Ég fullyrði því að borgarstjóri hafi
orðið undir í málinu. Borgarstjóri
hafi alltaf viljað velja á milli nokk-
urra möguleika um hugsanlega stað-
setningu. Þeir náðu hins vegar yfir-
höndinni í R-listanum Helgi Hjörvar
og Hrannar B. Arnarsson og þeir
stýra nú ferðinni. Þeir ráða líka með
hvaða hætti spurt er í kosningunum.
Þeir setja þar af leiðandi málið í allt
annað ljós en en verið hefði ef at-
kvæðagreiðsla hefði verið um mögu-
lega staðsetningu."
- Ætlar þú ekki að kjósa?
„Nei, og mér finnst öll málsmeð-
ferð vera með þeim hætti að þessi at-
kvæðagreiðsla er orðin fáránleg. Ég
tek ekki þátt í þeim leik.“
Yfirheyrsla
Hörður Kristjánsson
blaðamaður
- Nýtur þú stuðnings þinna fé-
laga sem oddviti borgarstjórnar-
flokks Sjálfstæðisflokksins?
“Það leikur engin vafi á því að ég
hef mjög traustan stuðning í borgar-
stjórnarflokki sjálfstæðismanna. Ég
er mjög ánægð með það.“
- Er ekki óeðlilegt að þú og eig-
inmaður þinn Geir H. Haarde
séuð bæði 1 toppstöðum flokksins
annars vegar í borgarpólitík og
hins vegar í landsmálapólitík. Er
það ekki einmitt þess vegna sem
fólk vill að þú víkir sem oddviti í
borginni?
„Ég er ekki sammála því. Það hef-
ur ekkert hindrað okkur í störfum.
Þetta er spurning um hvaða ábyrgð
flokksmenn okkar vilja fela okkur
sínu í hvoru lagi. Við vorum bæði
virk i pólitik áður en við hófum
Skiptar skoðanir eru um
fyrirhugaðar kosningar
um framtíð Reykjavíkur-
flugvallar. Inga Jóna
Þórðardóttir segir að með
þeim sé verið að hafa lýð-
rœðið íflimtingum
sambúð og Geir varð fjármálaráð-
herra og ég tók við hlutverki oddvita
borgarstjórnarflokksins. Það hefur
sýnt sig að sá ráðherra sem er yfir
öllum sveitarstjórnum í landinu, Páll
Pétursson, er sömuleiðis giftur ein-
um af forystumönnum R-listans. Það
hefur ekkert komið að sök. Ég held
að þetta eigi ekki að trufla neitt eða
leiða til hagsmunaárekstra."
Persónulegur metnaður
verður að víkja
- Hvemig líst þér á að fá Björn
Bjarnason 1 borgarpólitikina?
„Björn hefur sagt að það hafi ver-
ið leitað til hans um að taka þátt í
þessu. Það er því bara fagnaðarefni
ef menn vilja leggja okkur lið. Það
sem er brýnast í stöðunni er að R-
listinn fari frá völdum. Brýnast fyrir
Sjálfstæðisflokkinn er að hann stilli
upp eins sigurstranglegum lista og
nokkur kostur er til að við náum að
vinna hér aftur í borgarstjórnar-
kosningum næsta vor. Allt annað er
aukaatriði. Það liggur alveg fyrir að
persónulegur metnaöur manna verð-
ur að víkja fyrir því meginmark-
miði.“
- Er hann samt ekki að veikja
þína stöðu?
„Nei, ég get ekki séð það. Okkar
flokkur hefur sínar leikreglur með
hvaða hætti hann velur nýtt lið. Við
störfum í lýðræðislegum stjómmála-
flokki og frambjóðendur taka ekki
ákvörðun um það hverjir verða og
hverjir verða ekki í framboði. Valdið
er hjá flokksmönnum okkar um hver
verða valin i þetta hlutverk og
hvenær og með hvaða hætti það
verður gert.“
Tilbúin í slaginn
- Ætlar þú að gefa kost á þér
áfram í oddvitastöðu?
„Já, ég hef engar aðrar fyrirætlan-
ir uppi en að halda minu striki.“
- Gildir það líka þó Björn gefl
kost á sér?
„Já, það breytir engu um mína af-
stöðu."
- Er staða R-listans ekki býsna
góð?
„Þessi stjórnarseta R-listans hefur
skaðað Reykjavík ómælt. Ekki bara
varðandi ijárhagsstöðuna, heldur í
ýmsum öðrum málum. Þar eru
skipulagsmálin t.d. mjög fyrirferðar-
mikil, að ekki sé talað um bágt
ástand í leikskólamálum. Öll þessi
umræða um Reykjavíkurflugvöll hef-
ur dregið athyglina frá vandamálum
sem borgastjóri ásamt borgarfulltrú-
um R-lista á við að glíma. Það er
ekki hægt að tala um sterka stöðu R-
listans. Fylkingamar hafa verið
álíka stórar allt kjörtímabilið."
íngibjörg á leið í landsmálin
- Hvernig metur þú framtíð
R-listans?
„Það hlýtur að vera umhugsunar-
efni bæði fyrir Framsóknarflokkinn
og Vinstri-græna að Samfylkingin er
í gegnum R-listann að búa tO nýja
leiðtoga fyrir sig. Það leikur ekki
nokkur vafi á því að Ingibjörg Sól-
rún er að undirbúa það að fara í
landsmálapólitíkina sem nýr leiðtogi
Samfylkingarinnar. “
- Getur þú hugsað þér samstarf
við Vinstri-græna í borgarstjórn?
„Ef málefnaleg samstaða getur
náðst er ekkert óhugsandi í þeim
efnum. Við göngum þó að sjálfsögðu
óbundin til kosninga að ári og stefn-
um að traustum sigri Sjálfstæðis-
flokksins."
ÞVjjjÍJHBBRKt Umsjón:
Gyifi Kristjánsson
netfang: sandkom@ff.is
Fyiking í fýlu
Valgerður
Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra
gerði það upp á
eigin spýtur að fá
til liðs við banka-
ráð Búnaðarbank-
ans lögmanninn
Árna Pál Árna-
son, en hann er
yfirlýstur samfylkingarmaður. Ráð-
I herra mun síðan reyndar hafa boð-
ið Össuri Skarphéðinssyni, for-
ingja Samfylkingar, að tilnefna
Árna Pál formlega, en Össur mun
; að sögn hafa tekið duglega i nefið
j áður en hann hafnaði slíku kosta-
j boði alfarið. Segir Össur að Sam-
fylking hans eigi enga hlutdeild í
hinu nýja bankaráði og virðist allt
annað en kátur með þá niðurstöðu.
Færir út kvíarnar
Veiðileyfasalinn
Árni Baldursson
er enn að færa út
kvíarnar og nú
hefur hann gert
Ísamning sem
tryggir honum
Ytri-Rangá næstu
árin. Ef að líkum
lætur. geta veiði-
menn nú dundað sér við að reyna
að geta sér til um hvað veiðileyfin
í Ytri-Rangá muni hækka mikið í
kjölfarið, enda Ámi ekki kunnur
fyrir að standa á bremsunni í þeim
efnum. Markhópurinn mun reynd-
Iar vera fyrst og fremst erlendir
auðkýfingar. Sandkornsritari telur
sig hafa pottþéttar heimildir fyrir
því að einhverjir slíkir muni heim-
sækja Blöndu í sumar, á besta tíma
í þeirri á munu veiðileyfin hækka
úr um 30 þúsund í um 90 þúsund,
en Árni náði Blöndunni undir sig
sl. haust.
Fáir íslendingar
Björninn í
Reykjavík
lagði mikið
á sig til að
tryggja
Islands-
meistaratitil
„ í íshokkí
| sem sumir fjölmiðlar kalla reyndar
I ísknattleik þótt enginn komi knött-
!! urinn við sögu. Eftir forkeppnina i
vetur skipti Bjöminn í Reykjavík
nánast um lið, erlendir ís-
hokkímenn streymdu til landsins og
úr varð nýtt lið. Andstæðingarnir i
úrslitunum frá Skautafélagi Akur-
eyrar voru einnig með nokkra er-
lenda leikmenn en ekkert í líkingu
við Bjöminn. Samanlagt er hægt að
Ifullyrða að aldrei hafi jafn fáir ís-
lendingar keppt um íslandsmeist-
aratitil í flokkaiþrótt en þeir fáu
sem fengu að vera með vermdu
varamannabekkina að mestu.
Endaspretturinn
Margir
hafa velt
fyrir sér
hvað
þeir séu
eigin-
lega að
hugsa
1 sem eiga
að semja í kjaradeilu sjómanna og
útvegsmanna. í 13 mánuði hafa
engir samningar verið til fyrir sjó-
menn, á þeim tíma hefur verið
haldinn á fjórða tug samninga-
funda en það gerist ekki neitt.
Ekki hefur, að sögn talsmanna
samningsaðila, tekist að semja um
einn einasta hlut. Þeir segja öll
mál hafa verið rædd vítt og breitt
en það hafi ekki skilað nokkram
sköpuðum hlut. Þrátt fyrir að
verkfall eigi að skella á á fimmtu-
dagskvöld er ekki hægt að segja að
það hafi hreyft neitt við samninga-
mönnum sjómanna og útgerðar
sem eiga að semja um lausn í þess-
ari undarlegu kjaradeilu, þeir sjást
á myndum úr Karphúsinu helst
vera að dunda sér við að leggja
kapal eða horfa á knattspyrnu i
sjónvarpinu þegar þeir eiga að
vera að semja.