Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2001, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001
9
Neytendur
Persónuvörn frá Glóa
Þetta litla handhæga tæki breyt-
ist í vælandi og blikkandi árásar-
vöm með einu handtaki. Hægt er að
festa það við fotin sín, stinga því í
vasann eða halda á því í hendinni
og getur það bjargað fólki frá árás
því flestir árásarmenn leggja á
flótta við hávaðann. Auðvelt er aö
slökkva á tækinu ef maður hefur
kynnt sér það en það er hins vegar
erfiðara fyrir þá sem ekki þekkja
það. Tækinu fylgja ýmiss konar fest-
ingar þannig að nota má það sem
þjófavöm á glugga, dyr og í bílum.
Heildverslunin Glói flytur inn og
selur tækið og kostar það 2.800 kr.
Nýtt kaffi frá Merrild
í mars var kynnt nýtt kaffi frá
Merrild: Café Noir Bistro. Café Noir
Bistro samanstendur af
sérvöldum Arabic
kaffibaunum frá besti
kaffihéruðum
heimsinns. Kaffisér-
fræðingar Merrild
hafa brennt kaffi-
baunirnar af um-
hyggju og nærfærni
og náð þannig fram
hinu Ijúffenga
bragði sem ein-
kennir Café Noir Bi-
stro. Kaffið er grófmalað og milli-
brennt og er ætlað fyrir
pressukönnur en einnig má nota
það í venjulegar kaffikönnur.
Dönsk könnun leiddi í ljós að þeg-
ar neytendur velja sér kaffi hugsa
50% þeirra ekki aðeins um verðið
heldur einnig um gæðin. Café Noir
Bistro er því kærkomin viðbót á ís-
lenska kafTimarkaðinn.
Krem gegn appelsínuhúð
Heildverslunin
Gasa hefur hafið inn-
flutning á nýju
kremi frá Stendhal
og er því ætlað að
vinna gegn appel-
sínuhúð. Kremið
heitir Body Svelt og
hefur það áhrif á
frumur í efsta lagi
húðarinnar og hafa
þær frumur síðan
áhrif á fitufrumurn-
ar (Adipocytes). Kremið inniheldur
einnig efni sem auka vægi efnis sem
kallað er Lipolysis og hefur þau áhrif
að fitufrumumar tæmast. Einnig á
kremið að styrkja bandvefmn og
slappa húð og auka alla úrgangslos-
un. Mælt er með því að kremið sé
notað l-2svar á dag og gott er að nota
kornakrem á líkamann áður.
Mismunandi stærðarkerfi í gangi:
Erfitt að finna föt í
réttum stærðum
I fréttabréfi frá Staðla-
ráði kemur fram að þeir
sem eiga hagsmuna að
gæta í fataiðnaði fyrirhuga
að setja samræmda staðla í
fatastærðum. Vinnuhópur-
inn sem hefur verkefnið
með höndum er sannfærð-
ur um að staðallinn muni
henta vel, bæði kaupend-
um og seljendum. Stuðst
verður við víðtækar mæl-
ingar á konum, körlum og
bömum, stærðir munu
vísa til ákveðinna mála lík-
amans miðað við þann
fatnað sem um er að ræða,
tekið verður tillit til mis-
munandi líkamsstærðar
Evrópuþjóða og vandamála
á borð við lengd'á skyrtu-
ermum, svo dæmi sé tekið.
Sumar þjóðir hafa ekki lát-
ið taka af sér mál og mál
annarra eru orðin úrelt.
Við erum nefnilega enn að
stækka.
Það getur verið erfitt að
finna á sig fót í réttum
stærðum, ekki síst í útlönd-
um þar sem stærðir fatnað-
ar eru táknaðar samkvæmt
mismunandi kerfum eftir
því hvar maður er staddur.
Þegar best lætur veldur
- unnið að gerð samræmds staðals í Evrópu
Fatnaður í mismunandi stærðum
Viö þurfum ekki föt í „hentistæröum“ heldur stæröar-
kerfi sem hentar okkur - staöal sem passar.
þetta pirringi en getur líka
leitt til þess að fótum sé skil-
að - þegar þaö er gerlegt.
Sem dæmi um hversu mik-
inn rugling notkun á mis-
munandi kerfum skapar má
nefna að 50% af því sem skil-
að er aftur í vörulistakaup-
um er fatnaður sem passar
ekki. Þessir breytilegu staðl-
ar gera það lika að verkum
að færri en ella þekkja sína
fatastærð, t.d. sýnir þýsk
könnun að þar í landi þekk-
ir um helmingur karlmanna
ekki sín eigin mál; þeir láta
eiginkonurnar um málin.
Smjaöurstærðir
Sem dæmi um hversu mis-
munandi kerfi eru notuð í
merkingu fatnaðar má taka
konu sem hefur yfirvídd 88
cm, mittismál 72 cm og
mjaðmamál sem er 96 cm.
Þessi kona myndi nota stærð
38 í Þýskalandi, Hollandi og
stundum í Frakklandi. í Nor-
egi, Svíþjóð og Finnlandi not-
ar hún stærð C38 en 40 í
Belgíu og stundum í Frakk-
landi. í Portúgal og á Spáni
þarf hún að kaupa fót í stærð-
inni 44/46 og í Bretlandi
stærð 12. Og þetta eru ein-
göngu stærðarkerfi í Evrópu en önn-
ur kerfi eru við lýði í öðrum heims-
hlutum. Til að auka enn á rugling-
inn hafa sumar verslanir gert út á
svokallaðar „hentistærðir" eða
„smjaðurstærðir". Það er fatnaður
sem merktur er þannig að konu sem
notar fatnað númer 46 býðst að
kaupa það í „hentistærð", merkt
númer 40. Þetta hefur þau áhrif að
konunni finnst hún vera grönn og el-
egant, sem er auðvitað ekki ónýtt í
sjálfu sér.
Skór númer 6 eða 43
Þessi ruglingur nær einnig til
skófatnaðar. Venjulega leitar maður
að skóm númer 39 eða 43 svo dæmi
séu tekin, en sums staða þó að skóm
númer 4, 4 1/2 eða 5. Þegar maður
er hins vegar að leita sér að inni-
skóm þá eru þeir kannski númer 6
eða 10. Brjóstahaldarar eru seldir í
stærðum 80B, 36A, 100C og svo
framvegis en bolir í stærðunum S,
M, L, XL og L.
Ef samræmdi staðallinn nær út-
breiöslu munu framleiðendur inn-
leiða hið nýja stærðarkerfi og kaup-
endur geta treyst því að raunveru-
leg mál þeirra sé að finna á merki-
miðum fata. Viðskipti með föt gætu
því orðið einfaldari, ódýrari og
ánægjulegri. Og fótin mátuleg.
Heimild: Fréttabréf Staölaráós íslands
Ýmsir frádráttarliðir á skattskýrslu:
Námskeiðsgjöld eru frádráttarbær
I skattalögum eru ýmsar heimild-
ir til frádráttar, þar með talin nám-
skeiðsgjöld, málskostnaður vegna
dæmdra launa eða tapaðar fjár-
magnstekjur.
Styrkir til endurmenntunar
Endurmenntunarstyrkir eru
skattskyldar tekjur. Heimilt er að
færa til frádráttar námskeiðsgjöld
og kaup á námsgögnum vegna þeirr-
ar endurmenntunar sem styrkurinn
var veittur til.
Dæmd laun
Þurfi launamaður að höfða mál
vegna ógreiddra launa sem hann
gerir kröfu um og fái hann dæmd
laun er heimfft að draga útlagðan
málskostnað frá þannig fengnum
launum.
Söluhagnaður og sölutap
Sé eign seld með tapi er heimilt
að færa sölutapið sem frádrátt
á móti söluhagnaði af sams
konar eign á sama ári.
Vaxtatekjur og vaxta-
gjöld
Vaxtagjöld er heimilt að
færa til lækkunar á vaxtatekj-
um sem maður hefur haft af
sömu kröfunni. Ekki er nóg að
mn sams konar bréf eða kröfu
sé að ræða heldur á þetta að-
eins við um sömu eign. Gefi
krafa t.d. af sér vaxtatekjur á
árinu en er síðan seld með af-
follum má færa afföllin sem
frádrátt á móti fengnum vaxta-
tekjum.
Mótreikningur vegna
tapaðra fjármagnstekna
Heimilt er að draga tapaða vexti
frá fjármagnstekjum hafi skattur
þegar verið greiddur af vöxtunum.
Frádrátt má færa í framtali þess árs
þegar sýnt er fram á aö krafan sem
vextirnir voru reiknaðir af fæst
ekki greidd og má þá krafan ekki
vera eldri en fimm ára. Frádráttinn
má einungis færa á móti
fjármagnstekjum. Á sama
hátt má draga frá aörar tap-
aðar fjármagnstekjur sem
skattur hefur verið greidd-
ur af.
Frádráttur vegna ein-
grelðslu örorkubóta
Hafi einstaklingur fengið
greiddar bætur fyrir varan-
lega örorku á árunum
1993-1996 og þær verið
ákveðnar í einu lagi til
greiðslu er honum heimilt
að færa frádrátt á móti fjár-
magnstekjum sinum, fjár-
hæð sem svarar til lækkun-
ar útborgaðra bóta vegna
eingreiösluhagræöis. Frádrátturinn
getur numið 5% af fjárhæð bótanna
á hverju ári, þó ekki lengur en í
fimm ár frá þvi bæturnar voru
greiddar.
milljónir
fvrir ö kall?
Ath!!!
V I K I N G A
____ LiTTi
*Áætlaðurfyrstivinninqur. Tíl ItllkHs (TÖ VÍffllCl!
Fyrir kl. 17 á miðvikudag.