Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2001, Page 24
36
ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001
v Tilvera
x>v
í f iö
I l( VI N N IJ
Burtfararpróf í
Salnum
Það verða skemmtilegir tón-
leikar í Salnum, Kópavogi, í
kvöld í tilefni þess að hæfileika-
fólk tekur burtfararpróf frá Tón-
listarskólanum í Reykjavík.
Freyr Guðmimdsson trompet-
leikari og Kristinn öm Kristins-
son píanóleikari leika verk eftir
Britten, Handel, Jolivet, Tomasi,
Ibert og Blacher. Tónleikarnir
.. hefjast klukkan 20.
Leikhús
■ UNGIR MENN A UPPLEIÐ Stúd-
entaleikhúsiö sýnir í annaö sinn
verkiö Ungir menn á uppleið í Stúd-
entakjallaranum klukkan 20 í kvöld.
Hægt er að nálgast miöa meö því
aö hringja í talhólf 8810155.
■ WAKE ME UP BEFORE YOU GO
GO Leikfélag Verslunarskóla Is-
lands sýnir i kvöld klukkan 20 leikrit-
ið Wake me up before you go go.
Örfá sæti laus.
Opnanir
■ BUÐARTAKA LISTNEMA -
MYNDLISTARSYNING I IKEA 1 dag
klukkan 16 opna 11 nemar viö
Listaháskóla íslands sýningu í versl-
un IKEA viö Holtagarða. Framsæknir
myndlistamenn sýna hér einlæga
list viö kunnar fyrirmyndir lands-
manna sem í senn eru heimurtilbú-
inna heimilisaðstæðna. Sýningin er
unnin í samvinnu við starfsfólk
IKEA. Þau sem sýna eru Asami Kab-
uragi, Daníel Karl Björnsson, Geir-
þrúöur Finnbogadóttir Hjörvar, Julia
Steinmann, Hrund Jóhannesdóttir,
Huginn Þór Arason, Rósa Halldórs-
dóttir, Tinna Guðmundsdóttir, Þórar-
inn Hugleikur Dagsson, Þórunn
Inga Gísladóttlr og Þuríöur Elfa
Jónsdóttir.
Myndlist
■ GALLERÍ FOLD Kiartan Guðións-
son sýnir málverk til 11. mars í Gall-
erí Fold viö Rauðarárstíg.Opiö á
verlunartíma.
■ GERÐARSAFN í KÓPAVOGI
Verk úr einkasafni Sverris Sigurös-
sonar. Sýningin stendur til 31. mars
og er opin kl. 12-18 þriöjudaga til
sunnudaga.
■ GERÐUBERG „Stóll um stól frá
stól til saetls", sýning á íslenskum
stólum stendur til 25. mars. Oþiö kl.
10-20 mánudaga til fimmtudaga,
föstudaga kl. 11-19 og kl. 13-16
laugardaga og sunnudaga.
■ ÁSMUNPARSAFN VIÐ SIGTÚN
, Fjöll rímar viö tröll, Páll Guömunds-
son í bland viö Ásmund Sveinsson.
Opiö kl. 13-16 alla daga.
■ USTASA.FN REYKJAVÍKUR
HAFNARHUSI Sófamálverkið er til
sýnis til 25. mars. Útisýning Ro-
berts Dells stendur til 25. mars en
franska frásagnarmálverkið stendur
til 21. mars. Opið kl. 11-18.
■ USTASAFN REYKJAVÍKUR.
KJARVALSSTOÐUM Gullni pensill-
inn, samsýning íslenskra fígúratífra
málara stendur til 24. mars. Opiö
daglega 10-17 en til kl. 19
miðvikudaga.
... ■ NÝUSTASAFNH) Samsvnine
Steingríms Eyfjörös, Rögnu Her-
mannsdóttur, Finns Arnars Arnar-
sonar og Huldu Stefánsdóttur
stendur til 25. mars. Opið
þriðjudaga til sunnudaga kl. 12-17.
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
Fornleifarannsóknir í Aðalstræti:
Fjórir skálar fundnir
DV-MYNDIR GVA
Framkvæmdir ganga vel
Orri Vésteinsson fornleifafræðingur segir aö það sé engu líkara en á landnámsöld hafi verið lítið þorp þar sem Aðal-
strætið er núna.
Undanfarna mánuöi hefur verið
unnið að fornleifarannsóknum á
lóðunum við Aðalstræti 14-18 í
Reykjavík. Orri Vésteinsson, forn-
leifafræðingur hjá Fornleifastofu ís-
lands, segir að þama sé um að ræða
heildaruppgröft á svæðinu þar sem
í júní verði hafist handa við að reisa
hótel á lóðunum.
Byggingarleifar frá elstu
tímum
„Við byrjuðum að grafa 15. júní
síðastliðinn og höfum haldið okkur
að mestu á nyrðri hluta svæðisins
og farið í gegnum fomleifar frá átj-
ándu og nítjándu öld. Þarna eru
m.a. gmnnar af húsum frá tímum
Innréttinga og djúpt fyrir neðan þá
eru byggingarleifar frá elstu tímum
íslandsbyggðar.
Það er nokkuð mikið af munum í
yngri lögunum en viö vitum ekki
hversu mikið er að finna í eldri lög-
unum þar sem við erum nýkomnir
niður í þau og ekki byrjaðir að
grafa enn þá.“
Orri segir að grafið verði þar til i
lok maí og hann reiknar fastlega
með að rannsóknunum verði lokið
fyrir þann tíma.
Lítiö þorp
„Við vitum ansi mikið um svæð-
ið því það var graflð þarna á árun-
um 1971-1975 og gerðum okkur því
grein fyrir hvers eðlis leifanar voru
áður en við hófumst handa. Bygg-
ingin frá landnámsöld, sem við
erum að rannsaka núna, er fjórði
skálinn sem finnst á svæðinu. Það
er í sjálfu sér óvenjulegt að það
skuli vera svona margar byggingar
á svæðinu. Menn hafa yfirleitt
reiknað með að til landsins hafi
komið stakar flölskyldur og byggt
sér eitt hús hver með nokkru milli-
bili en þetta er meira eins og lítið
þorp.“ -Kip
Gull ur joröu
Ýmsir merkilegir munir hafa fundist við uppgröftinn, m.a. þessi peningur
frá vaidatíma Kristjáns IX. Danakonungs.
Fornleifarannsóknir í Aöalstræti
Rannsóknum á svæðinu þarf að vera lokið í byrjun júní þannig að best er
að drífa verkið áfram.
Frumkvöðlasetur
Norðurlands stofnað
DV, DALVÍK:
Undirritað var samkomulag um
stofnun Frumkvöðlaseturs Norður-
lands síðastliðinn föstudag. Tilgang-
ur þess er að efla nýsköpun á Norð-
urlandi, styðja frumkvöðla á svæð-
inu, aðstoöa þá við öflun áhættufjár-
magns og veita þeim ráðgjöf við að
stofna og reka fyrirtæki sín. Skrif-
stofur Frumkvöðlaseturs Norður-
lands verða á Akureyri, Dalvik og
Húsavik og taka þær á móti frum-
kvöðlum á svæðinu, leggja mat á þá
og viðskiptahugmyndir þeirra og
veita þeim ráðgjöf og stuðning.
Starfsaðstaða verður fyrir fjölda
nýrra sprotafyrirtækja og starfs-
mann frumkvöðlasetursins á öllum
þessum stöðum.
Ráðgjafar hins nýja frumkvöðla-
seturs koma frá stofnunum og fyrir-
tækjum. Komið verður á fót teymi
reyndra atvinnurekenda sem fúsir
DV-MYND HALIDÓR INGI ÁSGEIRSSON
Stofnfundurinn
Friðrik Friðriksson, sparisjóðsstjóri
Sparisjóðs Svarfdæla, er hér í
ræðustól þegar Frumkvöðlasetur
Norðurlands var stofnað.
eru að taka þátt í stjómun fyrir-
tækja frumkvöðlanna. Hlutverk
þeirra verður að miðla reynslu,
þekkingu og hjálpa til við að koma
fyrirtækjum á legg. Þá munu sér-
fræðingar Iðntæknistofnunar, Út-
flutningsráðs íslands, Viðskipta-
þjónustu utanríkisráðuneytis, Ný-
sköpunarsjóðs atvinnulífsins, Há-
skólans á Akureyri, Byggðastofnun-
ar og annarra þjónustustofnana at-
vinnulífsins heimsækja frum-
kvöðlasetrið reglulega.
Dagleg starfsemi Frumkvöðlaset-
urs Norðurlands verður í nánu sam-
starfi við starfsmenn Impru, þjón-
ustumiðstöðvar frumkvöðla og fyr-
irtækja, á Iðntæknistofnun. Starfs-
maður setursins nýtur aðstoðar
starfsmanna Impru, starfsmanna
Háskólans á Akureyri, starfsmanna
Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar
og starfsmanna Atvinnuþróunarfé-
lags Þingeyinga.
Frumkvöðlafélagið sf. er ábyrgt
fyrir rekstri Frumkvöðlaseturs
Norðurlands. Fyrirtækinu er heim-
ilt að eignast og selja hluta í félög-
um sem fá aðstöðu í frumkvöðla-
setrinu. Stjórn félagsins er skipuð
einum fulltrúa frá hverjum eiganda
en þeir eru: Atvinnuþróunarfélag
Eyjafiarðar, Atvinnuþróunarfélag
Þingeyinga, Háskólinn á Akureyri,
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið,
Iðntæknistofnun Islands, Tækifæri
hf., Urðir hf. og Nýsköpunarsjóður
atvinnulífsins.
Stærsti eignaraðilinn er hið ný-
stofnaða félag Urðir hf. sem er í
eigu Sparisjóðs Svarfdæla og KEA.
Aðrir stórir eigendur eru Tækifæri
hf., iðnaðar- og viöskiptaráðuneytið
og Nýsköpunarsjóður atvinnulífs-
ins.
-hiá