Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2001, Qupperneq 4
20
MÁNUDAGUR 19. MARS 2001
Sport
Valur-Haukar 11-19
0-1, 1-4, 4-4, 4-6, 7-7, (7-8), 7-12, 8-12,
9-13, 9-19,11-19.
Valur:
Mörk/viti (skoí/viti): Arna Grímsdótt-
ir 5 (7), Kolbrún Franklín 3/1 (8/2), Elfa
Hreggviðsdóttir 1 (2), Anna Guðmunds-
dóttir 1 (3), Marín Madsen 1 (4), Berg-
lind Hansdóttir (1), Árný ísberg (4),
Eygló Jónsdóttir (4), Eivor Blöndal
(4/1).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 2 (Arna
2).
Vitanýting: Skorað úr 1 af 3.
Varin skot/viti (skot á sig): Berglind
Hansdóttir 11/2 (30/3, 37%, 1 víti yfir, 1
fram hjá).
Brottvisanir: 10 mínútur.
Haukar:
Mörk/viti (skot/viti): Auður Her-
mannsdóttir 6 (12/1), Hanna Stefáns-
dóttir 5 (5), Inga Tryggvadóttir 3 (3),
Sonja Jónsdóttir 2 (4), Heiða Erlings-
dóttir 2/1 (4/2), Brynja Steinsen 1 (1),
Sandra Anulyte (1), Björk Hauksdóttir
(1/1), Tinna Halldórsdóttir (2), Harpa
Melsted (6/1).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 4 (Hanna
3, Sonja 1).
Vitanýting: Skorað úr 1 af 5.
Varin skot/viti (skot á sig): Jenný
Ásmundsdóttir 13/2 (24/3, 54%).
Brottvisanir: 10 mínútur (Ragnar
Hermannsson rautt fyrir mótmæli).
Dómarar (1-10): Valgeir Ómarsson
og Bjarni Viggósson (6).
GϚi leiks (1-10): 5.
Áhorfendur: 150.
Maöur leiksins:
Auöur Hermannsdóttir, Haukum.
ÍBV-Grótta/KR 27-19
1-0, 3-1, 7-1, 11-2, (13-5), 13-6, 17 9,
21-15, 23-18, 27-19.
ÍBV:
Mörk/víti (skot/víti): Anita Andreas-
sen 11 (14), Gunnleyg Berg 6 (7), Ingi-
björg Ýr Jóhannsdóttir 5 (8), Tamara
Mandichz 3/2 (4/3), Eyrún Sigurjóns-
dóttir 1 (2), Bjamý Þorvarðardóttir, 1
(2), Amela Hegic (8).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 12
(Anita 10, Gunnleyg 2).
Vitanýting: Skorað úr 2 af 3.
Varin skot/viti (skot á sig): Vigdís
Sigurðardóttir 11 (26/2, 42%), Árún
Guðgeirsdóttir 3 (7/1, 43%) (eitt víti í
slá).
Brottvisanir: 10 mínútur.
Grótta/KR:
Mörk/víti (skot/víti): Ágústa Edda
Björnsdóttir 6 (12), Alla Gorgorian 6
(11), Jóna Björg Pálmaddóttir 3/2 (9/3),
Edda Kristinsdóttir 2 (9), Kristín Þórð-
ardóttir 1 (2), Ragna Karen Sigurðar-
dóttir 1 (3).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 2
(Ágústa, Ragna)
Vitanýting: Skorað úr 2 af 3.
Varin skot/viti (skot á sig): Ása Ás-
grímsdóttir 4 (15/2,27%), Ása Ingimars-
dóttir 5 (21/1, 24%).
Brottvísanir: 6 mínútur.
Dómarar (1-10): Ingvar Reynisson
og Einar Hjaltason (5).
Gϗi leiks (1-10): 7.
Áhorfendur: 213.
Maður leiksins:
Anita Andreassen, ÍBV.
Fram-FH 24-21
0-1, 3-2, 3-4, 4-6, 6-8, 8-9, 10-10, (11-12),
12-12, 13-16, 17-19, 22-19, 24-20, 24-21.
Franu
Mörk/viti (skot/víti): Marina Zoueva
8/2 (12/3), Svanhildur Þengiisdóttir 4
(6) , Hafdís Guðjónsdóttir 4 (6), Olga
Prokhorova 3 (3), Guðrún Þóra Hálfd-
ánsdóttir 3 (4), Katrín Tómasdóttir 1/1
(1/1), Díana Guðjónsdóttir 1 (4), Kristin
Brynja Gústafsdóttir (2), Irina Sveins-
son.(2), Björk Tómasdóttir (5).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 6 (Svan-
hildur 3, Hafdís, Zoueva, Prokhorova).
Vitanýting: Skorað úr 3 af 4.
Varin skot/víti (skot á sig): Hugrún
Þorsteinsdóttir 15 (36/6, 42%).
Brottvisanir: 4 mínútur.
FH:
Mörk/víti (skot/viti): Hafdís Hinriks-
dóttir 9/6 (11/6), Judit Rán Estergal 3
(7) , Björk Ægisdóttir 3 (11), Hildur Er-
lingsdóttir 2 (2), Dagný Skúladóttir 2
(7), Harpa Vífilsdóttir 1 (1), Hrafnhildur
Skúladóttir 1 (3), Ragnhildur Guð-
mundsdóttir (3).
Mörk úr hraóaupphlaupum:
4 (Hafdís, Dagný, Judit, Harpa).
Vitanýting: Skorað úr 6 af 6.
Varin skot/viti (skot á sig): Jolanta
Siapikiene 16 (38/2, 42%), Kristín Guð-
jónsdóttir 1/1 (3/2, 33%).
Brottvisanir: 8 mínútur.
Dómarar (1-10): Guðmundur
Stefánsson og Ámi Sveinsson (5).
Gœði leiks (1-10): 7.
Áhorfendur: 90.
Maður leiksins:
Hafdís Guðjónsdóttir, Fram.
I>V
Hamskipti Framstúlkna
Fyrri hálfleikur
- nægði Eyjastúlkum
ÍBV tók á móti Gróttu/KR í fyrstu viður-
eign liðanna í átta liða úrslitum íslands-
mótsins í Eyjum á fóstudag. Liðin mættust
einmitt í síðustu umferð deildarkeppninnar
á dögunum hvar Eyjastúlkur unnu nokkuð
örugglega með sjö mörkum. Þessi leikur
var mun auðveldari fyrir Eyjastúlkur enda
sigruðu þær nú með átta mörkum, 27-19.
ÍBV byrjaði leikinn af miklum krafti og
þær skoruðu fyrstu þrjú mörk leiksins áð-
ur en Ágústa Edda Björnsdóttir náði að
minnka muninn. Þetta var í eina skiptið
sem Grótta/KR komst nálægt ÍBV því Eyja-
stúlkur skoruðu átta mörk gegn aðeins
einu marki þeirra og staðan orðin 11-2.
Sóknarleikur gestanna var gjörsamlega í
molum og svo virtist sem leikmenn liðsins
hafl treyst of mikið á Öllu Gorgorian, sem
var að spila sinn fyrsta leik eftir löng
meiðsli. Alla náði sér hins vegar ekki á
strik í fyrri hálfleik og þegar rúmlega tutt-
ugu mínútur voru liðnar af leiknum höfðu
þær aðeins skorað tvö mörk. Reyndar náði
liðið sér ágætlega á strik eftir það og stað-
an í hálfleik var 13-5 og úrslit leiksins nán-
ast ráðin.
Seinni hálfleikur var mun jafnari en sá
fyrri og Grótta/KR saxaði jafnt og þétt á
muninn. Næst komust þær ÍBV þegar tæp-
lega tiu minútur voru eftir þegar Alla skor-
aði átjánda mark gestanna og minnkaði
muninn niður í fimm mörk. Eyjahraðlest-
inn tók af stað aftur á lokakaflanum og
tryggði sér góðan sigur.
Leikmenn ÍBV spiluðu flestir mjög vel á
fóstudagskvöldið. Varnarleikur liðsins
fyrstu tuttugu mínútumar hlýtur að hafa
nálgast fullkomnun enda áttu gestirnir eng-
in svör gegn henni. Eyjastúlkur keyrðu stíft
á hraðaupphlaupum og Anita Andreassen
fór hreinlega á kostum þar. Einnig má
nefna Gunnleygu Berg sem fiskaði þrjú
vítaköst og skoraði sex mörk en leikurinn
vannst fyrst og fremst á varnarleiknum í
fyrri hálfleik. Grótta/KR byrjaði leikinn af-
leitlega en síðustu fjörutíu mínúturnar
sýndi liðiö styrk sinn og hélt jöfnu út leik-
inn og mikið munaði um að Alla Gorgorian
fór að láta taka til sin í seinni hálfleik.
„Við lékum mjög vel í fyrri hálfleik og
það gekk nánast allt upp. Við spiluðum
mjög góða vöm og þegar hún gengur vel þá
fáum við tækifæri til að sækja hratt sem
við nýttum okkur vel. Ég hafði mjög gaman
af leiknum enda fékk ég góðar sendingar
fram völlinn og maður á að skora úr hraða-
upphlaupum. Nú þurfum við að einbeita
okkur að næsta leik, hann byrjar á 0-0
þannig að við þurfum virkilega að leggja
okkur fram ef við ætlum að vinna hann,“
sagði Anita Andreassen eftir leikinn.
Ágústa Edda Bjömsdóttir var ekki jafn
kát í leikslok. „Ég veit ekki hvað gekk á hjá
okkur í byrjun. Við héldum að við værum
klárar í slaginn en svo lentum við í ein-
hverri taugaspennu þannig að það gekk
hreinlega ekkert upp, við gripum varla
boltann. Þegar mesti skrekkurinn var far-
inn úr okkur þá héldum við jöfnu við þær
en ÍBV er einfaldlega allt of sterkt lið til að
tapa niður níu marka forystu. Nú þurfum
við bara að taka sóknarleikinn í gegn fyrir
næsta leik. Við treystum kannski of mikið
á ÖIlu en hún var að spila langt undir getu
í leiknum. Engu að síður vorum við hinar
einfaldlega of ragar við að skjóta."
-jgi
Auður Hermannsdóttir og Harpa Melsted, Haukum, taka hér rækilega á Önnu Guömundsdóttur, Val, í leik
liðanna á Hlíðarenda fyrr í vetur. DV-mynd E.ÓI
Úrslitakeppni Nissandeildar kvenna:
Greið leið
- Haukar sigruðu Val í öðrum leik liðanna, 11-19
Haukar tryggðu sér sæti i undanúrslitum um is-
landsmeistaratitil kvenna í handknattleik á laugardag
með öruggum sigri, 11-19, á Val í öðrum leik liðanna
í 8-liða úrslitum íslandsmótsins í Valsheimilinu.
Leikurinn þróaðist ekki ósvipað og leikur liðanna í
deildinni á sama stað fyrr í vetur en þá stóðu Vals-
stúlkur í Haukunum fram í seinni hálfleik þegar
Haukar tóku svo loks til sinna ráða. Það voru annars
Haukar sem byrjuðu betur í leiknum og komust fljót-
lega í 1-4 á meðan sóknarleikur Vals var fremur stirð-
ur og kom annað mark þeirra ekki fyrr en eftir 11
mínútur. Valur náði með góðum leikkafla að jafna
metin í 4-4 og það sem eftir var af fyrri hálfleik var
leikurinn í járnum en Haukar höfðu eins marks for-
skot, 7-8, í hálfleik. Varnarleikur beggja liða var góð-
ur, sérstaklega hjá Valskonum sem börðust af miklum
krafti og uppskáru eftir því, Haukar náðu aðeins að
skora flmm mörk þegar Valsliðið hafði náð að stilla
upp i vörn.
Haukakonur komu tvíefldar til seinni hálfleiks og
svöruðu baráttuglöðum Valskonum í sömu mynt og
dugði það til þess að hrista þær af sér. Haukar komu
sér í þægilega stöðu- með því að skora fyrstu fjögur
mörk seinni hálfleiks og varð munurinn aldrei minni
en fjögur mörk eftir það. Mesta breytingin á Haukalið-
inu frá því í fyrri hálfleik var þó að sóknarleikurinn
var nú mun yfirvegaðri og tóku þær sér nú lengri tíma
í að byggja upp sóknir. Hins vegar voru allar sóknir
Vals brotnar á bak aftur af sterkri Haukavörninni og
Jenný Ásmundsdóttur í markinu sem hleypti aðeins
tveimur mörkum inn fyrstu 28 mínútur seinni hálf-
leiks, það fyrra á meðan þær léku tveimur leikmönn-
um færri. Það var svo loks eftir að Haukar voru komn-
ar í 9-19 og tvær mínútur eftir að Valsstúlkur náðu
loks að klóra í bakkann og skora tvö síðustu mörkin.
Valsliðið sýndi ekki sínar bestu hliðar í þessum
leik, að vísu var vöm og markvarsla góð eins og hún
hefur verið lengst af i vetur, en sóknarleikurinn brást
þegar mest þurfti á að halda. Berglind Hansdóttir
varði vel í markinu og Arna Grímsdóttir nýtti færin
sín vel.
Haukaliðið þurfti einn og hálfan leik í þessu einvigi
til þess að komast í gang og svo þegar það loks gerðist
var ekkert sem Valsliðið gat gert til þess að stöðva
Haukana. Auður Hermannsdóttir og Jenný Ásmunds-
dóttir léku best Haukanna í þessum leik og í fyrri hálf-
leik voru það Inga F. Tryggvadóttir og Hanna Stefáns-
dóttir sem héldu þeim við efnið.
-HRM
- þegar þær unnu FH, 24-21, á heimavelli í Safamýrinni
Það var boðið upp á mikinn
spennuleik í Safamýrinni á föstu-
dagskvöldið þegar Fram sigraði FH,
24-21,1 fyrsta leik liðanna í úrslita-
keppni 1. deildar kvenna.
Leikurinn fór fjörlega af stað og
greinilegt var á fyrstu mínútunum
að taugaspenna leikmanna var mik-
il, bæði lið voru full kappsöm og
fjöruðu sóknir liðanna oft út á upp-
hafsmínútunum. FH-stúlkur voru
að því er virtist mun einbeittari og
náðu frumkvæðinu í leiknum og
höfðu eins marks forustu í hálfleik,
11-12, þökk sé frábærri markvörslu
Jolöntu en hún varði 13 skot i fyrri
hálfleik.
Það leit allt út fyrir að FH-stúlk-
ur ætluðu að fara með
sigur af hólmi, þegar síð-
ari hálfleikur var hálfn-
aður leiddu þær 13-16 og
allt virtist ganga þeim í
haginn. Fram-stúlkur
voru hins vegar aldrei
langt undan og í stöð-
unni 17-19 fór leikreynsl-
an að segja til sín og sigu
þær fram úr FH-ingum
sem virtust missa allan
móð, en á 10 mínútna
leikkafla skoraði FH
ekki mark og Framarar
gengu á lagið og unnu mikilvægan
sigur í baráttunni um áframhald-
andi þátttöku í úrslitakeppninni.
Mikil barátta
í liði FH átti Hafdís mjög
góðan leik, en hún skoraði
níu mörk, þar af 6 úr víta-
köstum, en ásamt henni
átti Jolanta ágætan leik í
markinu. Hins vegar var
eins og vantaði alla sigur-
vilja í FH-liðið og líkt og
leikmenn liðsins áttuðu sig
ekki á mikilvægi leiksins.
í liði Fram átti Hafdís
mjög góðan leik ásamt
Marinu sem skoraði 8
mörk, og í marki Fram átti
Hugrún frábæran leik á lokakafl-
anum.
„Þetta var mikil barátta og það
vissum við vel, þær eru ungar og
spila mjög hratt og skemmtilegan
bolta, og þrátt fyrir að við höfum
unnið þær í báðum leikjunum í
deildinni þá er þetta allt önnur
keppni. Vömin var ekki góð í fyrri
hálfleik og nýtingin í hraðaupp-
hlaupunum var léleg, við erum að
klúðra boltanum hvað eftir annað,
og þegar vömin er léleg eigum við
færri möguleika á hraðaupphlaup-
um. Svo small vörnin saman og
baráttan kom upp, og því má segja
að þetta hafl fyrst og fremst unnist
á vöminni og þá kom markvarsl-
an,“ sagði Hafdís Guðjónsdóttir,
fyrirliði Framara.
-ÞAÞ
Hafdís Guðjóns-
dóttir fór fyrir
Framstúlkum á
föstudag.