Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2001, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2001, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 19. MARS 2001 31 DV Sport Breytingar - fulltrúar öflugustu samtaka hestamanna undir sama þaki i Laugardalnum Á fáum árum hefur svið hesta- mennsku á íslandi tekið miklum breytingum. Landssamband hesta- mannafélaga og Hestaíþróttasam- band íslands hafa sameinast og rætt er um sameiningu annarra félaga sem tengjast hestamönnum. Það hef- ur ekki enn orðið að veruleika en í Iþróttamiðstöðinni i Laugardal hafa öflugustu samtök hestamanna komið sér fyrir i sameiginlegri skrifstofu. Þar starfa Sigrún Ögmundardóttir fyrir Landssamband hestamannafé- laga, Sólveig Ásgeirsdóttir fyrir Landssamband hestamannafélaga, Félag tamningamanna (FT) og Félag hrossabænda (FH) og einnig er Hulda Gústafsdóttir með aðstöðu þar, en hún vinnur fyrir Átak í hestamennsku. Jón Albert Sigur- bjömsson formaður Landssambands hestamannafélaga kemur reglulega við á skrifstofunni. Þó starfssvið hverrar stúlku sé skilgreint ganga þær í öll störf er svo ber við. Þetta fyrirkomulag er þægi- legt fyrir þá sem þurfa að fá fyrir- greiðslu hjá hestamannasamtökun- um því hestamannasamtökin eru öll á einum stað. Ný heimasíöa Sigrún er skrifstofustjóri Lands- sambands hestamannafélaga. „Ég sé um daglegan rekstur á skrifstof- unni,“ segir Sigrún. „Það er mjög margt sem gerist hér. Ég sé um sam- skipti við hestamenn, en það er fjöl- margt sem þeim liggur á. hjarta. Einnig sé ég um að aðstoða nefndir á vegum Landssambands hestamanna- félaga, undirbúa stjórnarfundi, búa til skýrslur um ýmsa hluti, taka við óskum um dómara á mót, svara fyr- irspurnum og greiða úr þeim. Um þessar mundir er einnig verið að ganga frá nýrri heimasíðu Lands- sambands hestamannafélaga og við munum uppfæra hana eftir þörfum. Ég er í góðu sambandi við margar nefndir sem eru að vinna fyrir Landssamband hestamannafélaga ög má nefna landsliðsnefnd, æskulýðs- nefnd og reiðveganefnd auk nefhdar sem er að endurskoða lög og reglur Landssambands hestamannafélaga um mótahald, en þessar nefndir eru á fullu þessa dágana. Reiðveganefnd- in er til dæmis að ganga frá úthlut- un fyrir árið 2001. Nú er mikið spurt um heimsmeistaramótið í Austur- ríki. Áhugi er greinilega mikill, meiri en fyrr og ég býst við að marg- ir fari út,“ segir Sigrún. Hækka útflutningskattar? Sólveig sérhæfir sig í Félagi tamn- ingamanna og Félagi hrossabænda en einnig grípur hún inn í störf Landssambands hestamannafélaga. „Mikill tími fer í samskipti við fólk, svara netbréfum og hringingum frá fólki í útlöndum en einnig innan- lands. í Félagi tamningamanna eru um 350 manns og það þarf að halda utan- um félagaskrá, taka á móti umsókn- um um frumtamningapróf, hjálpa til við innheimtu, auglýsingar ofl. Ver- ið er að vinna við nýja heimasíðu fé- lagsins og stórt mál er samnorrænt próf fyrir hestamenn. Einnig þarf að undirbúa fundi. Félag hrossabænda er málsvari ís- lenska hestsins. Þar er ekki unnið fyrir einn aðila heldur er hesturinn kynntur fyrir heildina. Um það bil 800 manns eru í félaginu. Til þessa hefur félagið getað starfað vegna styrkja úr Útflutnings- og markaðs- sjóði en nú eru þeir sjóðir tómir og er rætt um að hækka útflutnings- skatt á hvert hross úr 6.800 krónum í 10.000 krónur svo hægt sé að reka félagið. Mitt helsta starf er að rabba við fólk úti í heimi og svara fyrirspum- um. Hulda G. Geirsdóttir hefur unn- ið gott starf fyrir Félag hrossa- bænda, sérstaklega í Bandarikjunum og Bretlandi. I Bretlandi er verið að kynna íslenska hestinn kerflsbund- ið. Clive Phillips fékk um 1.000 bæk- linga hjá mér nýlega og hann er á fundarherferð um Bretland," segir Sólveig. Verkefnin liggja fyrir Hulda er verkefnisstjóri Átaks í hestamennsku. „Ég er með aðstöðu á skrifstofu LH, en skrifstofa mín er þar sem ég er með GSM símann minn og fartölvuna," segir Hulda. „Átaksverkefnið er samstarfsverk- efni Landssambands hestamannafé- laga, Félags tamningamanna, Félags hrossabænda og Bændasamtaka ís- land annars vegar og landsbúnaðar- ráðherra fyrir hönd rikisstjómar ís- lands hins vegar og lýkur í lok árs- ins 2004. Fyrsta verkið var að móta stefnu átaksins og búa til lista yfir það sem á að gera í framtíðinni. Því verkefni er lokið og nú er komið að því að vinna verkefnalistann niður. Dagsetning er á lokum hvers verk- efnis og nú er ég í því að djöfla þessu áfram. Þetta eru ótal verkefni. Um þessar mundir er ég að vinna viö að móta gæðastefnur fyrir rækt- un og tamningu og þjálfun. Einnig er ég að vinna markaðsstefnu fyrir Bandaríkin og koma á laggimar menntahópi sem á að útbúa náms- efni fyrir stigun í reiðmennsku. Námsefnið á að vera tilbúið til til- raunakennslu í haust. Svo er verið að koma á samvinnu við starfs- greinaráð og menntamála- og land- búnaðarráðuneytin. Einnig á að koma á skipulagshópi og mótahópi til að móta starfssemi í framtíðinni. Þetta er það helsta sem er að gerast nú, en þegar einu verkefni er lokið tekur annað við,“ segir Hulda. -Eiríkur Jónsson Bland i poka Jón Albert Sigurbjörasson, formaöur Landssambands hestamannafélaga, var óánægður með fundarsókn á fundar- herferð hans, Huldu Gústafsdóttur, Ágústar Sigurðarsonar, Kristins Guðnasonar og Ólafs H. Einarsson- ar um þau mál sem hæst ber í hesta- geiránum um þessar mundir. Sérstak- lega var fundarsókn léleg á höfuðborg- arsvæðinu. Nú hefur verið ákveðiö, vegna fjölda áskoranna, að halda einn fund enn í félagsheimili Fáks, miðviku- daginn 21. mars kl. 20.30. / Skautahöllinni á Akureyri var haldin stórsýning á stóðhestum og keppni í stjörnutölti síðastliðið laugar- dagskvöld. Valin voru bestu hrossin á svæðinu Norðtjörður-Holtavörðuheiði á mótið. Hans F. Kjerúlf og Laufifrá Kollaleiru sigruðu í stjömutöltinu. Yf- irferðartölt var bannað en feguröartölt kom í staðinn. Húsið var troðfullt og frábær stemning. Sigfús Ó. Helgason sagðist ekki oft vera orðlaus, en hann hafi ekkert getað sagt þegar Björn Jónsson á Vatnsleysu var að leika sér með Glampafrá Vatnsleysu á ísnum. Geysismenn héldu sitt annað vetrar- mót síðastliðinn laugardag. í barna- flokki sigraði Hekla K. Kristinsdóttir á Töru frá Lœkjarbotnum, í unglinga- flokki sigraði Þórir Már Pálsson á Rósant frá Steinnesi, í áhugamanna- flokki sigraði Kristófer Pálsson á Gyðjufrá Ey og í atvinnumannaflokki sigraði ísleifur Jónasson á Syrpufrá Kálfholti. Laugardaginn 24. mars kl. 14.00 verð- ur stórsýning í Reiðhöllinni Amar- gerði á Blönduósi. Fram koma fjöldi landsþekktra stóðhesta, kynbótahryssa og gæðinga. Boðið verður upp á ein- staklingsatriði og hópsýningar auk þess sem gríni og glensi verður bland- að saman við. Forsala aðgöngumiða verður í Byggingavörudeild Kaupfélags Húnvetninga hjá þeim Lárusi, Hávarði og Steina. Hægt er að tryggja sér miða þar með einu símtali í síma 4559030 ef kortið er haft við hendina. Miðaverð í stæði er 1.000 kr. Fólk er hvatt til að tryggja sér miða í tima en í fyrra varð uppselt og varð fólk frá að hverfa. Fáksmenn héldu töltkeppni í reiðhöll- inni í Viðidal á laugardagskvöld og voru áhorfendur fjölmargir og kepp- endur á sjöunda tuginn. Keppt var i þremur flokkum en einnig voru sýndir tíu stóðhestar. í flokki 19 ára og yngri sigraði Sylvia Sigurbjörnsdóttir (Fáki) á Garpi frá Krossi. í flokki keppnisvanra knapa sigraði Leó G. Arnarson (Fáki) á Stóra-Rauó frá Hrútsholti. í flokki minna keppnis- vanra sigraði Marianna Gunnars- dóttir (Fáki) á Kópifrá Kilhrauni. -EJ 4 >y. I Tuttugu og tveir knapar og um 130 manns mættu í Reiðhöllina að Ingólfs- hvoli síðastliðinn miðvikudag. Tilefnið var annað mótið í mótaröðinni í Meist- aradeild 847. Keppt var í tölti og urðu úrslit töluvert á annan veg en í fyrstu keppninni og breyttu um leið stöðunni í keppni um samanlagðan titil. Adolf Snœbjörnsson sigraði á Eldingu frá Hóli og fékk 10 stig, Sigurður Sigurð- arson var annar á Fifufrá Brún með 8 stig, Sigurbjörn Bárðarson var þriðji á Byl frá Skáney með 6 stig, Tómas Ragnarsson var fjórði á Fönix frá Tjarnarlandi með 4 stig, Sigurð- ur Kolbeinsson var fimmti á Glampa frá Fjalli með 3 stig, Hinrik Braga- son var sjötti á Roöa frá Akureyri með 2 stig og Hallgrimur Birkisson sjöundi á Guðnafrá Heióarbrún með 1 stig. Eftir tvær umferðir er Sigur- björn Bárðarson efstur með 14 stig, Hinrik Bragason er með 12 stig, Ad- olf Snœbjörnsson og Sigurður Sig- uróarson eru með 11 stig, Tómas Ragnarsson 8 stig, Sigurður Sœ- mundsson 6 stig, Sigurður Kolbeins- son 3 stig, Vignir Jónasson 2 stig og Hallgrimur Birkisson 1 stig. Næst verður keppt i fimmgangi miðvikudag- inn 28 mars. Gustarar i Kópavogi héldu vetrar- leika um helgina. Veður og þátttaka voru góð en völlurinn síðri. Guóný Birna Guðmundsdóttir sigraði í pollaflokki á Litla-Rauð frá Svigna- skarði, í bamaflokki sigraði Bjarn- leifur Smári Bjarnleifsson á Tommu frá Feti og Reynir Ari Þórsson sigr- aði í unglingaflokki á Krossfara frá Syóra-Skörðugili. Berglind Rósa Guómundsdóttir sigraði í ungmenna- flokki á Sjöstjörnu frá Svignaskarði og Hulda G. Geirsdóttir sigraði í kvennaflokki á Dimmu frá Skaga- strönd. Svanur Halldórsson sigraði í heldri manna flokki á Gúnda frá Kópavogi og loks sigraði Steingrimur Sigurðsson í karlaflokki á Sörla frá Kálfhóli. Feðgin sigruðu í sitt hvorum flokkn- um á vetrarleikum SleipniS á Selfossi. Brynjar J. Stefánsson sigraði í at- vinnumannaflokki á Röst frá Voð- múlastöðum og dóttir hans, Sigrún, sigraði i unglingaflokki á Loga frá Voðmúlastöðum. Guðjón Sigurósson sigraöi í bamaflokki á Skjanna frá Hallgeirseyjarhjáleigu og Svein- björn Guðjónsson í áhugamanna- flokki á Hannibal frá Kaðalstöðum. Páll B. Hróðmarsson sigraði S 150 metra skeiði á Frosta frá Fossum á 15,7 sek. Mikil stemning er fyrir ístöltmóti Töltheima 31.mars. Erling Ó. Sig- urðsson, einvaldur mótsins, mun kynna hesta og knapa næstu daga. „Nýtt fyrirkomulag veröur á keppn- inni,“ segir Erling. „Tuttugu og fjórir knapar hefja keppni og eru þrír inná í einu. Knapi sem er í 1. sæti keppir við knapa í 8. sæti i bráðabana og knapi í 2. sæti keppir við knapa í 7. sæti og svo koll af kolli. Fjórir til fimm knapar komast I úrslit en einnig fer fram keppni þeirra sem töpuðu. Einn þeirra fær annað t'ækifæri því áhorfendur munu velja einn knapa úr þeim hópi í úrslit. Mikið er keppt um þessar mund- ir og margir hestar koma til greina. Að sögn Erlings er Elding frá Hóli at- hyglisverð svo og Ljóri sem Matthias Barðason sýnir. Reynt verður að fá Björn Jónsson á Vatnsleysu með Glampa frá Vatnsleysu og Anton Ni- elsson með Blœju frá Hólum. Atli Guómundsson er með tvo eða þrjá hesta og Hafliði Halldórsson er með úrval. Hann sagði: „Hvaða lit viltu?“; og Ásgeir Svan Herbertsson er með rosa hryssur og geldinga. Sigurvegari Barkarmótsins i Kópavogi um næstu helgi verður sjállkjörinn. Síðustu viku fyrir mót hefst miðasaia. „Það er búið að þrýsta á okkur að hefla forsölu en við viljum láta jafnt yfir alla ganga,“ segir Erling. Á Vetramóti Andvara sigraði í polia- flokki Steinunn E. Jónsdóttir á Röðli frá Miðhjáleigu, í bamaflokki Anna G. Oddsdóttir á Braga frá Sperðli, i unglingaflokki Hrönn Gauksdóttir á Sikli frá Stóra-Hofi, í ungmenna- flokki Ingunn Ingólfsdóttir á Kjarna frá Kálfholti, í kvennaflokki Katrin Stefánsdóttir á Adamfrá Ketilsstöð- um, í karlaflokki Siguroddur Péturs- son á Sögufrá Sigluvik og i öldunga- flokki Magnús Magnússon á Funa frá Sigluvik. Harðarmenn héldu Ásláksleika um helgina. í barnaflokki sigraði Hreiðar Hauksson á Fróóa frá Hnjúki, í ung- lingaflokki sigraði Halldóra S. Guð- laugsdóttir á Grána frá Gröf I ung- mennaflokki Eva Benediktsdóttir á ísak frá Ytri-Bœgisá og í áhuga- mannaflokki sigraði Magnea R. Ax: elsdóttir á Rúbin frá Tröllagili. í opnum flokki sigraði Berglind Árna- dóttir á Nökkva frá Búðarhóli. í 150 metra skeiöi sigraði Friðdóra Frið- riksdóttir á Samúel á 14,94 sek. -EJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.