Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2001, Qupperneq 6
22
MÁNUDAGUR 19. MARS 2001
Sport
KA-FH 25-21
2-0, 3-2, 6-3, 7-6, 9-6, 11-8, (13-10), 16-10,
19-13, 21-15, 22-18, 24-20, 25-21.
KA
Mörk/viti (Skot/viti): Andreas
Stelmokas 8 (11), Guðjón Valur Sigurðs-
son 7/1 (10/1),, Heimir Örn Árnason 5
(7/1), Sævar Árnason 2 (2), Giedrius
Cserniavskas 1 (2), Baldvin Þorsteinsson
1 (1), Jóhann Gunnar Jóhannsson 1 (3),
Hreinn Hauksson (1), Jónatan Þór Magn-
ússon (1), Halldór Sigfússon (3).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 6 (Andreas
4, Heimir, Guðjón).
Vitanýting: Skorað úr 1 af 2.
Varin skot/viti (Skot á sig): Hörður
Flóki Ólafsson 10 (30/5, 33,3%), Hans
Hreinsson (1/1, 0%).
Brottvisanir: 8 mínútur
FH
Mörk/víti (Skot/viti): Jason Kristinn
Ólafsson 9/6 (13/6), Héðinn Gilsson 6 (11),
Valur Örn Arnarson 2 (4), Sverrir Örn
Þórðarson 1 (1), Victor Berg Guðmunds-
son 1 (2), Guðmundur Pedersen 1 (4), Sig-
urgeir Ami Ægisson 1 (2), Lárus Long (1),
Hálfdán Þórðarson (1).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 2 (Jason,
Sverrir).
Vítanýting: Skorað úr 6 af 6.
Varin skot/viti (Skot á sig): Bergsveinn
Bergsveinsson 5 (24/1,20,8%), Jónas Stef-
ánsson 5 (10,50%, eitt víti í stöng).
Brottvisanir: 8 mínútur.
Dómarar (1-10): lngvar Guðjónsson
og Jónas Elíasson, (5).
Gceói leiks (1-10): 7.
Áhorfendur: 250.
Maöur leiksins:
Andreas Stelmokas, KA.
Valur-HK 20-19
0-1, 3-3, 3-6, 5-6, (6-8), 7-8, 10-10,
13-12, 17-15, 19-17, 19-19, 20-19.
Valur
Mörk/viti (Skot/víti): Freyr Brynjars-
son 6 (10), Valdimar Grímsson 5/3 (9/4),
Snorri Guðjónsson 3 (9), Júlíus Jónasson
2 (2), Markús Mikaelsson 2 (7), Sigfús
Sigurðsson 1 (1), Geir Sveinsson 1 (1),
Bjarki Sigurösson (1), Daniel Ragnars-
son (3), Valgarð Thoroddsen (4).
Mörk úr hraóaupphiaupum: 6 (Freyr 4,
Valdimar 2).
Vitanýting: Skorað úr 3 af 4.
Varin skot/víti (Skot á sig): Roland
Eradze 13 (30/3, 43%), Egidijus Pet-
kevicius 0 (2/2, 0%).
Brottvísanir: 6 mínútur
HK
Mörk/viti (Skot/viti): Jaliesky Garcia
11/5 (17/5), Osvaldo Povea 3 (4), Sverrir
Björnsson 3 (7), Alexander Arnarson 1
(1), Stefán Guðmundsson 1 (2), Jón B.
Ellingsen (1), Samúel Árnason (1), Karl
Grönvold (1), Guðjón Hauksson (2), Ósk-
ar E. Óskarsson (4).
Mörk úr hraðaupplilaupum: Ekkert.
Vitanýting: Skorað úr 5 af 5.
Varin skot/víti (Skot á sig): Hlynur
Jóhannesson 18 (38/3, 47%, eitt víti
ógilt).
Brottvisanir: 8 mínútur.
Dómarar (1-10): Anton Gylfi Pálsson
og Hlynur Leifsson (7).
Gceói leiks (1-10): 4.
Áhorfendur: 120.
Maöur leiksins:
Jaliesky Garcia, HK.
Breiðablik-Fram 21-30
1-0, 1-3, 3-3, 3-7, 5-9, 9-9, (10-13), 11-13,
13-16, 15-20, 18-23, 20-26, 21-30.
Breiöablik
Mörk/viti (Skot/víti): Slavisa Raka-
novic 10/2 (22/2), Björn Hólmþórsson
5/1(10/3), Zoltan Belányi 3 (8/2), Andrei
Lazarev 2 (3), Gunnar B. Jónsson 1 (3),
fsak Jónsson Guðmann (1), Kristinn L.
Hallgrímsson (1), Orri Hilmarsson (2).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 1
(Belányi).
Vitanýting: Skorað úr 3 af 7.
Varin skot/víti (Skot á sig): Rósmund-
ur Magnússon 16 (45/2, 36%), Ólafur
Ingimundarson 0 (1/1,0%, eitt víti í slá).
Brottvísanir: 6 mínútur
Fram
Mörk/viti (Skot/viti): Björgvin Þór
Björgvinsson 6 (9), Guðjón Finnur
Drengsson 6/2 (6/2), Gunnar Berg Vikt-
orsson 4/1 (10/2), Njörður Árnason 4 (6),
Maxim Fedioukine 3 (3), Róbert Gunn-
arsson 3 (5), Vilheim Gauti Bergsveins-
son 2 (7), Hjálmar Vilhjálmsson 2 (5).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 10 (Njörð-
ur 3, Hjálmar 2, Björgvin 2, Guðjón 2, Ró-
bert 1).
Vítanýting: Skorað úr 3 af 4.
Varin skot/viti (Skot á sig): Sebastian
Alexandersson 8/2 (22/6, 36%, eitt víti í
slá og eitt framhjá), Magnús Erlendsson
6 (13/1, 46%).
Brottvisanir: 2 mínútur.
Dómarar (1-10): Guðmundur Er-
lendsson og Tómas Sigurdórsson (3).
Gœði leiks (1-10): 3.
Áhorfendur: 20.
Maöur leikins:
Rósmundur Magnússon, Breiöabliki
- KA-menn meö 11. sigurinn í síðustu 12 leikjum
KA er farið að blanda sér í topp-
baráttuna eftir sigur á móti FH,
25-21, á Akureyri á fóstudagskvöld-
ið en norðanmenn unnu þar sinn
ellefta sigur í síðustu tólf leikjum.
Andreas Stelmokas, Guöjón Valur
og Heimir Árnason skoruðu samtals
20 af 25 mörkum KA.
FH náði sér aldrei á strik í leikn-
um en aðeins einu sinni í leiknum
var jafnt á liðunum og var það i
stöðunni 0-0. KA var alltaf með yf-
irhendina og leiddi allan leikinn.
KA var yfir með þremur mörkum
í hálfleik og voru þeir staðráðnir að
vinna leikinn. Þeir komust í sex
marka forystu strax I upphafi
seinni hálfleiks og hélst hún alveg
undir lokin en þá fóru FH-ingar að
pressa KA-menn mun framar á vell-
inum.
Héðinn Gilsson virtist vera
þreyttur og virtist enga orku hafa í
leikinn en Jason Ólafsson var öflug-
ur á vítalínunni og var með 100%
árangur þar. Bergsveinn fann sig
aldrei í marki FH og um miðjan
seinni hálfleik var skipt út mark-
mönnum og náði Jónas að verja
sama fjölda og Bergsveinn í leikn-
um. Héðinn var besti maður FH á
vellinum þótt þreyttur væri en
Jason stóð sig einnig mjög vel.
Einnig virtist Jónas Stefánsson
finna sig ágætlega í markinu þegar
hann kom inn á.
Jafnteflin dýr
Hjá KA var Hörður Flóki öflugur
í markinu og náði að verja á mikil-
vægum augnablikum. Andreas
Stelmokas var besti maður KA en
hann gerði átta mörk í leiknum og
þar af fjögur í hraðaupphlaupum.
Næsti leikur KA mun skipta miklu
um það hvort að KA ætli að blanda
sér í toppbaráttuna en það er úti-
leikur á móti Haukum.
Nýju reglurnar í handboltanum
um að engin jafntefli séu leyfð eru
búnar að kosta KA-menn þrjú stig í
vetur og væru þeir komnir með 31
stig ef þær væru ekki og þá efstir.
En svona er nú handboltinn.
-JJ
Dapurt á Hlíðarenda
- HK nánast úr leik eftir naumt tap gegn Val, 20-19
DV
Drepleidinlegt
Hann var ekki upp á marga
fiska handknattleikurinn sem
Breiðablik og Fram sýndu í Smár-
anurn á laugardag þegar gestirnir
sigruöu 21-30 í leik liðanna í
Nissandeild karla og fær slíkur
leikur menn tii að hugsa hvort
handboltanum sé hreinlega við-
bjargandi.
Framan af leik stóðu heima-
menn ótrúiega í toppliði Framara
en það var þó ekkert frekar þeirra
eigin frammistöðu að þakka en
slökum leik Framara. Gestirnir
virtust á tíðum ætla að rífa sig frá
þeim grænu en alltaf tókst þeim að
falla niður á sama plan aftur og
höfðu því Blikar í fullu tré við þá
og aðeins munaði einu marki á lið-
unum í hálfleik.
Síðari hálfleikur var sist betri
en sá fyrri en þó örlaði á örlitlum
handbolta hjá Safamýrarpiltum
sem reyndist nóg til að sigra slakt
lið heimamanna og jókst munur-
inn hægt og þétt þar til skrautleg-
ir dómarar ieiksins flautuðu hann
af, þeim sem á horfðu eflaust til
mikils léttis.
Blikar öðlast að sjálfsögðu ein-
hverja reynslu með hverjum leik
sem líður en fátt virðist benda til
þess að þeir vinni sér inn stig á
mótinu. Handbolti liðsins er ein-
hæfur og greinilegt að slakt gengi
er farið að hafa áhrif á áhuga leik-
manna. Rós-
mundur Magn-
ússon, mark-
vörður og fyrir-
liði, var eins og
fyrri daginn
einn af fáum
ljósum punkt-
um í leik liðs-
ins.
Það er von-
andi að Fram-
arar komi ein-
beitingu sinni í
lag fyrir framhaldiö ef þeir ætla
sér að ógna Haukum í baráttunni
um meistaratitilinn. Björgvin Þór
Björgvinsson og Guðjón Finnur
Drengsson sýndu hvaö bestan leik
gestanna og Sebastian Alexand-
erssson fyrirliði átti einnig nokk-
uð góðan fyrri hálfleik en honum
gramdist klárlega áhugaleysi fé-
laga sinna og hvatningaróp hans
virtust lítil áhrif hafa. -ÓK
Rósmundur
Magnússon
deildin
Staöan í deildinni
Fram 20 15 5 543-450 30
Haukar 20 14 6 575-495 28
KA 20 14 6 519-476 28
Afturelding 20 12 8 542-503 24
Grótta/KR 20 12 8 480-491 24
ÍR 20 11 9 458-449 22
Valur 20 10 10 474-441 20
FH 20 10 10 477-450 20
ÍBV 20 9 11 523-538 18
Stjarnan 20 8 12 505-516 16
HK 20 5 15 472-536 10
Breiðablik 20 0 20 404-627 0
Valur sigraði HK, 20-19, í slökum
leik á fostudagskvöld, sem kemur Val
í góða stöðu fyrir úrslitakeppnina en
HK að sama skapi í mjög erfiða en
þeir eiga nú aðeins kost á að ná
Stjörnunni að stigum í fallbaráttu
deildarinnar.
Miðað við þann handknattleik sem
liðin sýndu framan af leik var ekki
nokkur leiö að sjá að eitthvað væri í
húfi. Sóknarleikur beggja liða var af-
ar fálmkenndur og þau skot sem röt-
uðu á markið voru oftast auðveldlega
varin af góðum markvörðum liðanna,
þeim Roland Eradze og Hlyni Jóhann-
esyni.
Eftir 16 mínútna leik var staðan 3-3
og mátti vart milli sjá hvort liðið væri
lélegra en markverðir liðanna höfðu
þá varið til samans 16 skot. HK-ingar
hafa hins vegar innan sinna raða
Kúbumanninn Jaliesky Garcia sem
fór á kostum í fyrri hálfleik og skor-
aði sjö mörk eða helming þeirra
marka sem liðin tvö skoruðu. Stór-
leikur Garcia dugði HK-ingum lengi
vel og höfðu þeir frumkvæðið allan
fyrri hálfleikinn og mest þriggja
marka forskot 3-6. Valsmenn voru í
tómu basli aUan hálfleikinn og sem
dæmi um það þá nýttu Valsmenn að-
eins 6 af 23 skotum sínum í fyrri hálf-
leik.
Leikurinn batnaði til muna í seinni
hálfleik og munaði mest um að leik-
menn tóku nú að berjast í samræmi
við það sem var í húfi í þessum leik.
Valsmenn náöu aö halda Garcia niðri
eftir að hafa breytt varnarleik sínum
og fengu þeir í kjölfarið hraðaupp-
hlaup sem skiluðu auðveldum mörk-
um í stað þess að þurfa að stiUa upp í
sókn.
HK-ingar voru þó ekkert á því að
gefa neitt eftir og voru aUtaf á undan
að skora en smám saman náðu Vals-
menn undirtökunum og komust fyrst
yfir í 13-12 þegar um 17 mínútur voru
eftir af leiknum en aldrei varð munur-
inn meiri en tvö mörk. Sigur Vals-
manna hékk á bláþræði i lokin því
HK-ingar fengu tækifæri tU þess að
komast yfir þegar rúm mínúta var eft-
ir af leiknum eftir að Valsmenn höfðu
haft tveggja marka forystu, 19-17 þeg-
ar fimm mínútur voru eftir.
HK-ingar fengu hins vegar dæmda
á sig leiktöf þegar um mínúta var eft-
ir og Valdimar Grímsson skoraði sig-
urmark Valsmanna úr vítakasti þegar
aðeins 20 sekúndur voru eftir. Tíminn
sem eftir var dugði HK-ingum ekki til
þess að skora mark. Valsliðið er ekki
líklegt til stórræðana þessa dagana og
sérstaklega var sóknarleikurinn slak-
ur í þessum leik. Roland Eradze var
besti maður liðsins og Freyr Brynjars-
son lék vel.
Fátt getur nú bjargað HK frá faUi
miðað við óbreytt keppnisfyrirkomu-
lag en sigur í þessum leik hefði getið
orðið mikilvægur. Jaliesky Garcia og
Hlynur Jóhannesson voru bestu menn
liðsins.
Næstu leikir
21. umferð
Miðvikudagur 21. mars
ÍR-FH ....................kl. 20
HK-Stjarnan..................kl. 20
Fram-Valur...................kl. 20
Haukar-KA ................kl. 20
Grótta/KR-ÍBV................kl. 20
Afturelding-Breiððblik....kl. 20
22. umferð
Miðvikudagur 28. mars
Stjaman-Fram.................kl. 20
FH-HK........................kl. 20
KA-ÍR ....................kl. 20
Breiðablik-Grótta/KR......kl. 20
Valur-Afturelding ........kl. 20
ÍBV-Haukar...................kl. 20
Þrjú lið eiga möguleika á deildar-
meistaratitlinum, Fram, Haukar og
KA. lR, Valur, FH og ÍBV berjast hins
vegar um áttunda og síðasta sætiö
inn í úrslitakeppnina og Stjarnan á
enn tæknilega möguleika á því.
-HRM