Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2001, Side 7
MÁNUDAGUR 19. MARS 2001
23
Sport
Haukarnir í lægð
- hafa tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum í deildinni
Haukarnir töpuðu sínum íjórða
leik í síðustu fimm viöureignum og
nú var það Grótta/KR sem lagði ís-
landsmeistarana, 28-31, í leik sem
var spilaður á Ásvöllum. Eitthvað
virðast Haukarnir vera að missa
flugið eftir að hafa haft þónokkra yf-
irburði á íslandsmótinu framan af
vetri. Gestirnir voru ákveðnari í
flestum sínum aðgerðum og áttu
sigurinn fyllilega skilið.
Sjö mörk í röö hjá Haukum
Grótta/KR byrjaði leikinn vel og
náði frukvæöinu. Þeir komust í 1-4
og voru alltaf skrefi á undan heima-
mönnum. En í stöðunni 8-10 kom
bakslag í leik gestanna og Haukarn-
ir gengu á lagið og skoruðu sjö
mörk í röð og komust 13-10 yfir. Þá
héldu flestir að Haukarnir væru
búnir að finna taktinn og eftirleik-
urinn væri auðveldur. Sú var ekki
raunin og Grótta/KR jafnaði fyrir
hálfleik, 14-14, og þannig var staðan
eftir fyrri hálfleikinn.
Halldór Ingólfsson fór á kostum í
liði Hauka í fyrri hálfleik og skoraði
hvorki fleiri né færri en 8 mörk.
Grótta/KR missti tvo leikmenn ú t-
af í tvær mínútur á síðustu 15 sek-
úndunum í fyrri hálfleik og þurfti
því að byrja seinni hálfleikinn
tveimur færri. Alltaf getur vont
versnað því strax i upphafi seinni
hálfleiks var þriðji leikmaður liðs-
ins rekinn út af í tvær mínútur og
því gestirnir þremur færri um tíma.
Haukarnir náðu ekki að nýta sér
þennan liðsmun nægjanlega en
komust enga siður þremur mörkum
yfir, 17-14, en leikmenn Gróttu/KR
voru ekki á því að gefast upp held-
ur bættu í hjá sér. Þeir jöfnuðu,
17-17, og voru fljótlega komnir fjór-
um mörkum yfir, 19-23. Á þessum
kafla fór Hilmar Þórlindsson ham-
förum og skoraði hvert markið á eft-
ir öðru og réð vörn Haukanna ekk-
ert við piltinn.
Einar og Hlynur ekki meö
Hálfgerð uppgjöf kom i leik
heimamanna og komust gestirnir i
20-27. Þá fóru Haukarnir að taka á
því en því miður fyrir þá þá var það
of seint. Leikmenn Gróttu/KR gerði
þó þau mistök aö ætla að reyna
hanga á forskotinu og náðu Hauk-
arnir að minnka muninn í tvö mörk
en lengra komust þeir ekki.
Grótta/KR lék án síns besta varn-
armanns, Einars Baldvins Árnason-
ar, og Markvörðurinn Hlynur
Morthens voru hvorugir með og
munar um minna. Það gerir sigur
Gróttu/KR enn sterkari. Hilmar
var frábær í leiknum og sýndi
hversu megnugur hann getur verið.
Petersens var einnig góður og
Magnús Magnússon var í ruslavinn-
unni.
Hjhá Haukum var Halldór lang-
bestur og átti mjög góðan fyrri hálf-
leik en minna fór fyrir honum í
þeim seinni. Alexandr Shankuts
skilaði einnig sínu en aðrir náðu
sér ekki á strik. Vörnin var ekki
næganlega góð og markvarðslan var
í algjöru lágmarki. -BG
Haukar-Grótta/KR 28-31
0-1, 1-4, 2-6, 5-7, 6-10, 13-10, 13-13,
(14-14), 15-14, 17-14, 17-18, 18-20, 19-23,
20-23, 20-25, 20-27, 25-29, 27-29, 28-31
Haukar
Mörk/viti (Skot/viti): Halldór Ingólfs-
son 11/5 (12/5), Aliaksandr Shankuts 6
(8), Rúnar Sigtryggsson 3 (7), 2 (4), Ósk-
ar Ámannsson 2 (3), Jón Karl Björnsson
1 (3), Einar Örn Jónsson 1 (3), Einar
Gunnarsson 1 (2), Vignir Svavarsson 1
(2).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 8 (Ali-
aksandr 3, Þorvarður 2, Halldór, Einar
Öm)
Vitanýting: Skorað úr 8 af 9.
Varin skot/viti (Skot á sig): Bjarni
Frostason 7/0 (31/6, 22%,
Magnús Sigmundsson 5/12, 42%)
Brottvisanir: mínútur
Grótta/KR
Mörk/viti (Skot/víti): Hilmar Þórlinds-
son 14/6 (22/7), Aiexandr Petersens 7
(11), Davíð Ólafsson 3 (6), Kristján Þor-
steinsson 3 (6), Magnús Magnússon 2 (4),
Gísli Kristjánsson 1 (3), Atli Samúelsson
1 (3), Alfreð Finnsson (1).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 6 (Davíð 3,
Petersens 2, Kristján)
Vitanýting: Skorað úr 6 af 7.
Varin skot/viti (Skot á sig): Hreiöar
Guðmundsson 11/0 (39/5, 28%)
Brottvisanir: 10 mínútur.
Dómarar (1-10): Hafsteinn
Ingibergsson og Gisli Jóhannsson (7).
Gœdi leiks (1-10): 8.
Áhorfendur: 350.
Maður leiksins:
Hilmar Pórlindsson, Gróttu/KR
Stjarnan-ÍR 25-23
2-1, 3-3, 4-3, 6-4, 10-6, (13-8), 15-9,
17-11, 19-12, 22-15, 23-18, 25-23
Stiarnan
Mörk/viti (Skot/viti): Magnús Sigurðs-
son 9/2 (10/2), David Kekelija 6 (7), Edu-
ard Moskalenko 3 (5). Bjarni Gunnars-
son 3/1 (7/1), Sæþór Ólafsson 3 (3), Við-
ar Erlingsson 1 (2), Sigurður Viðarsson 1
(2).
Mörk úr hraðaupphlaupunu 5 (Kekelija
3, Viðar, Magnús, Moskalenko).
Vítanýting: Skorað úr 3 af 3.
Varin skot/víti (Skot á sig): Birkir
tvar Guömundsson 13 (36/1, 36%),
Gunnar Eriingsson 0 (2/1, 0%).
Brottvisanir: 16 mínútur
ÍR
Mörk/viti (Skot/víti): Sturla Ásgeirs-
son 8/2 (9/2), Einar Hólmgeirsson 7 (15),
Finnur Jóhannsson 2 (3), Brynjar Stein-
arsson 2 (5), erlendur Stefánsson 1 (1),
Kári Guðmundsson 1 (2), Andri Úlfars-
son 1 (2), Kristinn Björgúlfsson 1 (2),
Bjarni Fritzson (2), Róbert Rafnsson (4).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 3 (Einar
3).
Vítanýting: Skorað úr 2 af 2.
Varin skot/viti (Skot á sig): Hall-
grímur Jónasson 10 (21/2), Hrafn Mar-
geirsson 3 (17/1).
Brottvisanir: 10 mínútur.
Dómarar (1-10): Guðjón L.
Sigurðsson og Ólafur Haraldsson (7).
Gœði leiks (1-10): 6.
Áhorfendur: 150.
Maður leiksins:
Magnús Sigurðsson, Stjörnunni
ÍBV-Afturelding 28-25
1-0,4-1, 6-5,10-10, (12-14), 13-14,16-15,
19-17, 23-19, 27-22, 28-25.,
IBV
Mörk/víti (Skot/viti): Mindaugas
Andriuska, 12/4 (20/5), Svavar Vignis-
son, 8 (9), Sigurður Ari Stefánsson, 5 (9),
Guðfinnur Kristmannsson, 2 (12/1), Er-
lingur Richardsson 1 (1), Kári Kristjáns-
son, (2), Davíð Þór Óskarsson, (1).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 4 (Svavar
3, Mindaugas).
Vitanýting: Skorað úr 4 af 6.
Varin skot/víti (Skot á sig): Gísli
Guðmundsson 20/5 (45/5 44%).
Brottvisanir: 10 minútur
Afturelding
Mörk/viti (Skot/viti): Gilkauskas Gint-
as, 7 (13), Savukynas Gintaras, 5 (8/1),
Bjarki Sigurðsson 4 (6/2), Atli R, Stein-
þórsson, 3 (4/1), Hilmar Stefánsson, 2 (2),
Haukur Sigurvinsson, 2 (5), Páll Þórólfs-
son, 1 (5/1), Hjörtur Arnarsson, 1 (1), Ní-
els Reynisson, (1).
Mörk úr hraðaupphlaupum:
6 (Hilmar 2, Páll, Hjörtur, Haukur,
Bjarki)
Vitanýting: Skorað úr 0 af 5.
Varin skot/viti (Skot á sig): Reynir
Þ. Reynisson 18/2 (46/5 39%), Ólafur
H. Gíslason 9 (1/1, 0%).
Brottvisanir: 10 mínútur ( Gintas
rautt, 3x2 mín.).
Dómarar (1-10): Bjami Viggósson og
Valgeir Egill Ómarsson (5).
Gϗi leiks (1-10): 7.
Áhorfendur: 93.
Maður leiksins:
Gísli Guömundsson, ÍBV.
Atli Pór Samúelsson, Gróttu/KR, ógnar hér marki Hauka en er stöövaður af öðrum gömlum Pórsara, Rúnari Sigtryggssyni.
DV-mynd PÖK
Lif og fjor
Það var heldur betur fjör þegar Eyja-
menn tóku á móti Aftureldingu í nitjándu
umferð Nissandeildar karla í gærkvöldi.
Gengi Eyjamanna hefur verið afleitt eftir
áramót en inn á milli hefur liðið náð ágæt-
is leik og þá jafnan sigrað leiki sína. Það
var einmitt uppi á pallborðinu í gærkvöldi
því ÍBV kom gestum sínum í opna skjöldu
og sigruðu sanngjarnt 28-25.
Það var engu líkara en leikmenn Aftur-
eldingar hafi ætlað að eiga náðuga kvöld-
stund í blíðunni í Eyjum. Þetta kæruleysi
nýttu Eyjamenn sér hins vegar ágætlega á
og þeir komust strax þremur mörkum yfir,
4-1. Mindaugas Andriuska var í miklum
ham i upphafi leiks og um hálfleikinn miðj-
an hafði hann skorað helming marka ÍBV.
Gestirnir úr Mosfellsbænum brugðu á það
ráð að taka hann úr umferð og það her-
bragð heppnaðist og Afturelding leiddi í
hálfleik, 12-14.
Heimamenn í ÍBV byrjuðu seinni hálf-
leikinn af miklum krafti og eftir aðeins
íjórar mínútur var staðan orðin 16-15. Gísli
Guðmundsson í marki ÍBV fór að verja
hvert dauðafærið á fætur öðru enda náðu
Eyjamenn undirtökunum á meðan leik-
menn Aftureldingar röfluðu í dómurunum.
Mestur varð munurinn fimm mörk, 28-23
en gestirnir skoruðu tvö síðustu mörkin
sem komu þó ekki í veg fyrir góðan sigur
ÍBV sem heldur enn í vonina að komast í
átta liða úrslit.
Eyjamenn spiluðu mjög skynsamlega í
leiknum. Fremstir í flokki fór Andriuska
þrátt fyrir að vera tekinn úr umferð nánast
allan leikinn. Svavar Vignisson var einnig
duglegur að vanda, fiskaði fimm vítaskot
og fjóra brottrekstra en Gísli varði öll fimm
vítaskot gestanna sem vóg þungt á lokakafl-
anum. Lið Aftureldingar náði sér engan
veginn á strik í leiknum. Liðið varð reynd-
ar fyrir áfalli þegar Bjarki Sigurðsson varð
að yfirgefa völlinn vegna meiðsla og eftir
það átti liðið ekki möguleika. Sóknarleik-
ur liðsins var borinn uppi af félögunum
Gintas og Gintaras, Reynir átti einnig fin-
an leik í markinu.
„Mér fannst andlega hliðin verða okkur
að falli hérna í kvöld. Það var engin barátta
í leikmönnum og einstaklingsframtakið var
allt of áberandi í okkar leik. Ég hef ekki
trú á því að við höfum vanmetið ÍBV enda
hefur okkur alltaf gengið illa með þá, sér-
staklega hér í Eyjum,“ sagði Bjarki Sig-
urðsson, þjálfari Aftureldingar i leikslok.
Svavar Vignisson, línumaðurinn barátt-
uglaði var nokkuð sáttur eftir leikinn.
„Þetta var hörkuleikur og mikill baráttu-
sigur. Hann heldur okkur einnig í voninni
um að komast í 8-úrslit. Ef við spilum hins
vegar eins og við gerðum í kvöld þá kvíði
ég engu. Það má segja að allir hafi spilað
vel í kvöld, Guffi spilaði vörnina frábær-
lega og það tekur óneitanlega frá honum í
sókninni en þar koma aðrir inn til að inn-
sigla sigurinn. Gísli stóð sig náttúrulega
frábærlega í markinu þannig að það má
segja að það hafi nánast allt gengið upp hjá
okkur“ -jgi
Brotlentu
- Stjarnan vann ÍR, 25-23
ÍR-ingar sem hafa verið á
mikili siglingu undanfarið,
brotlentu í Garðabæ í gær-
kvöldi og töpuðu 25-23.
Heimamenn sem geta enn
komist í úrslitakeppnina
fræðilega séð léku ÍR-inga
oft grátt og var sigur þeirra
mjög sannfær-
andi.
Stjörnumenn
léku leikinn
mjög vel og var
sóknarleikur
þeirra mjög vel
útfærður ásamt
því að spila
sterkan varnar-
leik undir for-
ustu Arnars Pét-
urssonar. Lengst
af lék Eduard
Moskalenko í stöðu leik-
stjóranda Stjörnunnar og
fórst það vel úr hendi einnig
spilaði Magnús Sigurðsson
mjög vel eins og allir í liði
heimamanna.
Sóknarleikur Garðbæ-
inga gekk allan leikinn
mjög vel upp þangað til að
13 mínútur voru eftir af
leiknum en þá virtust þeir
slaka of mikið á þegar þeir
voru búnir að ná átta
Magnús Sigurðsson
marka forustu og gestirnir
gengu á lagið og náðu að
minnka muninn í tvö mörk
en lengra komust þeir ekki.
Sturla Ásgeirsson átti mjög
góðan leik í síðari hálfleik
og hefði mátt koma fyrr inn
á og sýndi hann skemmtileg
tilþrif í horninu
og lék hann land-
liðsmarkvörðinn
Birki Ivar afar
grátt. Einar
Hólmgeirsson
hefði mátt nýta
skot sin betur.
ÍR-ingar voru
ekki sjálfum sér
líkir frá síðustu
leikjum þar sem
þeir hafa spilað
sterkan varnar-
leik og agaðan sóknarleik.
Það má spyrja sig að því
hvers vegna Jón Kristjáns-
son þjálfari ÍR-inga notfærði
sér ekki leikhléin sem má
taka og reyna að stoppa að-
eins i götin í varnarleiknum
og benda sínum leikmönn-
um að skjóta úr betri færum
því oft voru færin sem þeir
voru að reyna að skora úr
afar erfið og fljótfærni á
köflum full mikil. -BB