Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2001, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2001, Blaðsíða 1
Tveggja marka sigur KA á Aftureldingu fýrir norðan o 15 Þurfti afburðalið - til aö vinna tvisvar í þessu óvinnandi vígi „Þetta er mikil upphefð fyrir Njarðvik að vinna hér einu tvo leikina í þessu óvinnandi vígi og það þarf aíburðalið til að gera það. Verðugt lið eru auðvitað íslandsmeistaramir. Það er búið að ganga mjög vel síðan að við bmtum ísinn í gamla daga. Við vorum alltaf í öðru og þriðja sæti í einhver fimm sex ár en síðan kom fyrsti titillinn og við höfum bara haldið þessu áfram. Við erum komnir með 11 íslandsmeistaratitla og einhverja sex í bikar á þessum tíma. Þetta er auðvitað óhemjugóður árangur og sá besti hjá liði hér að því er ég best veit frá upphafi," sagði Gunnar Þorvarðarson sem var meðlimur í fyrsta íslandsmeistaraliði Njarvðíkur fyrir 20 árum og á son (Loga) í íslandsmeistaraliði Njarðvíkur sem tryggði sér titilinn á Króknum í gær. -ÓÓJ Ibrahimovic í sænska hópinn Zlatan Ibrahimovic, hinn 19 ára ungi Svíi, hefur verið valinn í landsliöshóp Svía sem mæt- ir Sviss i vináttulandsleik í næst'u viku. Mikið hefur verið rætt um þennan unga pilt í Svíþjóð og talið að hann sé mesta efni i fótbolt- anum sem komið hefur fram í Svíþjóð til þessa. Fyrir skömmu skrifaði hann undir 5 ára samn- ing við Ajax Amsterdam eftir baráttu margra stærstu félaga í Evrópu um kappann. Á móti kemur að framherjinn þekkti, Kennet Andersson, gaf ekki kost á sér en hann lýsti þvi yfir að hann hefði ekki lengur áhuga á að leika fyrir sænska landsliðið. -esá Rivaldo fer ekki Llorenc Serra Ferrer, þjálfari Barcelona, hef- ur endanlega kvatt niður orðróm þess efnis að hinn brasilíski Rivaldo sé á förum frá Nou Camp. England hefur verið títt rætt sem nýr vettvangur kappans en bæði forseti félagsins og hann sjálfur hafa sagt að ekkert sé til í þessu. Orðrómur spratt upp í kjölfar þess að um- boðsmaður Pep Guardiola gaf í skyn að tilboð kæmi frá ensku félagi í Rivaldo en hann sagði i gær að Barcelona myndi ekki selja helstu stjörn- ur sínar á næstunni. -esá Tvær skoskar í ÍBV Kvennaliði ÍBV hefur borist liðsstyrkur fyrir komandi átök í sumar í knattspymunni en í æf- inga- og keppnisferð liðsins til Englands í sið- ustu viku var gengið frá samningum við tvær skoskar landsliðskonur. Leikmennirnir sem um er rætt eru báðar mjög reyndir landsliðsmenn með yfir 50 lands- leiki hvor en með þessu er ljóst að Samantha Britton og Kelly Shimmin munu ekki spila með liðinu næsta sumar. Skotarnir sem um er rætt eru þær Pauline Hamill, 29 ára örvfættur fram- herji, sem hefur verið með markahæstu leik- mönnum Skotlands undanfarin ár. Hin heitir Nicky Grant og spilar á miðjunni. -jgi Teitur Örlygsson Islandsmeistari í níunda sinn á ferlinum: Erfitt að hætta „Ég er með svo góða leikmenn að það skiptir engu máli þó ég hafi ekki verið að hitta vel. Brenton og Logi voru frábærir og stóru mennirnir báðir skiluðu sínu vel þó svo að Frið- rik hafi lent í villuvandræðum. Við erum með sterka menn í öllum stöð- um og þeir skila sínu. Ég held að þetta sé smá-styrkleikamunur á liðun- um. Við töpuðum frekar þessum leik á laugardag heldur en þeir unnu hann. Það lá við að búið væri að flagga í bænum og fógnuöurinn haf- inn. Við þjálfararnir reyndum að draga niður í þessu en þetta var í und- irmeðvitundinni á öllum. Það var allt dofið, stemningin í húsinu var dofin og við áttum ekki skilið að vinna þann leik. Þriðji leikhluti hefur verið svona upp og ofan hjá okkur, annað- hvort klúðrum við 15 stiga mun eða byggjum hann upp. Núna náðum við að byggja hann og héldum út. Ég veit ekki með tiunda meistara- titilinn, ég ætla að hugsa mig um. Ég er að fara að gifta mig í maí og það er nóg að gerast, og því er alveg bull- andi hamingja hjá mér þessa dag- anna. Það er voðalega erfitt að hætta. Sigurinn hjá okkur þjálfurunum er hvað liðið var andlega sterkt í úrslita- keppninni og slikt kemur bara með reynslunni, þú lærir það ekki á þjálf- aranámskeiði," sagði Teitur Örlygs- son. Toppum á réttum tíma „Við erum með gríðarlega sterkt liö sem þarf ekki nema sæmilega þjálfun til að vinna. Sem betur fer vorum við að toppa á réttum tíma og vorum að ná sem mestu út úr liðinu núna. Við vissum þaö fyrir tímabilið að það tæki smátíma að slípa þetta saman, við erum með þrjá nýja aðalskorara þannig að liðið er gjörbreytt frá því í fyrra. Það var svolítið skrýtin aðstaða sem við vorum i þegar við tókum við deildarbikarnum í Grindavík í mars því við vorum í lægð þá en eftir það var allt upp á við og við erum að toppa núna á réttum tíma í úrslitakeppninni," sagði Friðrik Ragnarsson sem skilaði íslandsmeist- aratitli á fyrsta ári sínu sem þjálfari meistaraflokks en hann þjálfar liðið ásamt Teiti Örlygssyni. -ÓÓJ Teitur Örlygsson, annar spilandi þjálfara Njarövíkur, kyssir hér á myndinni að ofan íslandsbikarinn eftir 71-96 sigur Njarövíkur á Sauðárkróki í gær en þetta var í níunda sinn sem Teitur veröur íslandsmeistari og er hann nú aðeins einum meistaratitli frá meti Agnars Friðrikssonar sem vann tíu titla með ÍR á sjöunda og áttunda áratugnum. DV-mynd Brink Njarðyíkingar urðu íslands* meistarar í 11. sinn í körfunni — 18 og 39 —

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.