Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2001, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2001, Síða 15
Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla íslands, MORFÍS hefur alið af sér marga athafnamenn á mismunandi sviðum þjóðfélagsins á tæplega tuttugu ára göngu sinní. Eftir nokkrar umferðir standa tvö bestu liðin eftir og mætast í munnlegri hólmgöngu á sviði Háskólabíós. Eftir úrslitarimmuna stendur annað liðið uppi sem sigurvegari, en aðeins einn maður hlýtur heiðursnafnbótina ræðumaður íslands. Ekki hrifinn af kynlífi gamals fólks „Ég tala mikið, en ég reyni að tala í hófi og fmna því stað og stund. Þegar maður er forvitinn, þá talar maður mikið,“ segir nýorðinn burðarkláfur titilsins ræðumaður íslands fyrir árið 2001. Hann heitir Hjálmar Stefán Brynjólfsson og var fulltrúi ræðuliðs Menntaskólans á Akureyri, sem sigraði Verzlunar- skólann í úrslitaviðureign í Há- skólabíói í síðustu viku. Hjálmar undirbýr sig nú undir lokaglímuna við kennara og skóla- bækur. „Ég var eiginlega ekkert í skólanum í fimm vikur. Ég skrifaði íþróttaritgerð í páskafríinu af því að ég mætti ekki i íþróttir." Ertu þá ekki nörd? „Nei. MA er ekki mikill íþrótta- skóli. Frá mínum bæjardyrum séð og margra annarra þá eru það íþróttaguttarnir sem eru nördar." Sjálfur hefur Hjálmar meiri áhuga á harmoníkudrætti og banjó- plokki, en knattleikni. Hann sér einmitt um þá þætti spilamennsk- unnar í hljómsveitinni Helgi og hljóöfæraleikararnir sem hefur að- setur í Kristnesi, 601 Akureyri. Hefð að klúðra fluginu Á úrslitakeppninni spilaði kapp- inn á gítar í pontunni og fór með litið kvæði. „Ég hafði gert það í fyrstu keppninni og eftir það voru allir aö hvetja mig til að taka lagið í þeirri næstu. Ég neitaði, en hét því að gera það í úrslitum ef við kæmumst svo langt. Stelpurnar í liðinu hétu því á móti að sitja fyrir naktar. Þær eiga eftir að efna þaö loforð. Við fengum reyndar ferð til Portúgals í verðlaun fyrir sigurinn og þegar menn eru á Portúgal eru þeir ekki á heimaslóðum og ekki blindaðir af siðferðisvitund land- ans. Kannski efna þær loforðiö þar,“ segir hann vongóður. Hann viðurkennir þó að einn samherja sinna, Katrín, haíi ef til vill efnt fyrri hluta, eða jafnvei efri hluta loforðsins þegar hún beraði á sér bikínihulinn barminn í Háskóla- biói. Aö óefndum loforðum undan- skildum segist Hjálmar hafa kunn- að prýðisvel við sig í stúlknahópn- um. Hvernig gengur undirbúningur- inn fyrir sig? „Undirbúningstími fyrir hverja keppni er ein vika. Við semjum um umræðuefni í upphafi, ræðum hvaða rökum við viljum beita og skrifum svo ræðurnar og þyljum þær fram á síðustu stundu. Við eig- um bara eina, mjög skemmtilega hefð. I hvert einasta skipti sem við þurfum að keppa annars staðar á landinu hefur okkur tekist aö klúðra fluginu og vera þannig á síðustu stundu. En stressið fyrir ferðirnar losar oft um hitt stress- ið,“ segir hann. haf Fjölnir í hestana Innan skamms er : tíðinda að vænta úr I heimi fjölmiðlanna þegar nýtt andlit fær í að njóta sín á skján- um. Þarna er um að ræða hinn vel | kunna Fjölni Þor- geirsson sem hing- Hjálmar Stefán Brynjólfsson er nýkjörinn ræðumaður íslands og hann hefur aldrei verið hrifinn af hippum. Ertu þá alveg laus viö stress þeg- ar í keppni er komið? „Nei. Það getur ýmislegt komið uppá. í keppninni á móti MR ætl- uðum við að kveikja i bók á sviö- inu, en liðsstjórinn gleymdi kveikjaranum. Hún lét mig ekki vita hvað væri i gangi og stökk bara af stað i miðri keppni til að sækja hann út i sal. Ég þorði ekki að segja það þá en eftir á sagði ég þeim frá þvi að ég hefði verið með kveikjara i vasanum allan tím- ann.“ Sannfæringarmáttur dauðans í úrslitakeppninni var lið MA meðmæit því að trúarbrögðin væru slæm. Sjálfur segist Hjálmar vera efamaður i trúmálum, en bera mikla virðingu fyrir trúnni. Gœtiröu talað með hverju sem er? „Auðvitað gæti ég ekki talað með sifjaspelli eða morðum, en með ílestu öðru en siöferðisglæpum. Ég er ekki að segja að ég gæti ælt ein- hverju upp úr mér á staðnum. Rök- in eru aðalatriðið. Að lita umræð- una af því sem þú vilt segja.“ Hvort heldurðu með Jesú eða Faríseunum? „Ég myndi sennilega fylgja Jesú, en það er erfitt að taka afstöðu til eldri tíma bókmennta. Ég er hrif- inn af kristna siðferðinu en Faríse- amir eru náttúrlega málaðir sem spiliimenn trúarinnar í Nýja testa- mentinu. Sókrates eða sófistarnir? „Sókrates er náttúrulega minn maður og annar maður sem byggði mikið á honum, Sören Kirkegaard, er miklu meira minn maður. Sófistarnir voru náttúrlega brillj- ant ræðumenn og ágætir til síns brúks.“ Kolbrún Halldórs eóa klámkóng- arnir? „Ég hef alltaf staðið í þeirra meiningu að Kolbrún Halldórs hafi verið hippi og ég hef alltaf verið á móti því að það hafi verið eitthvað flott viö þá. Þeir voru bara í ein- hverju „frjálsraástakomma- kjaftæði" og eiturlyfjarugli. Nú halda allir að ég sé framsóknar- maður af því að ég svara öllu sem milliaðili og það er ég ekki. Mér finnst ekkert að því að nektardans- staðirnir fái að vera. Ég held að það séu aðallega gamlir karlar sem stunda þá og ná honum ekki upp nema yfir einhverjum rússneskum strippurum. Kannski lausnin sé að koma á fót kynlífsþjónustu aidr- aðra. Ég er samt ekki hrifinn af kynlifl gamals fólks. Einhvern tim- ann heyrði ég að graðasta fólkið væri á elliheimili og ég á erfitt með að kyngja þeirri fullyrðingu. Hver er besti rœóumaóur allra tíma? „Ég held að það hljóti að hafa veriö sófisti að nafni Hegesías. Hann bjó yfir svo miklum sannfær- ingarmætti að hann gat fengið fólk til að drepa sig.“ Gamlir jaxlar Nokkur kærumál Sigmar Guðmunds- son, fréttamaður [ Stöðvar tvö, varð tví- I vegis ræðumaður ís- lands með liði FG | árin 1988 og ‘90. „Mesti munurinn á keppninni nú og þá er sá að við tókum i okkur miklu hátíð- | legar en menn gera I dag. Keppnirnar okkar voru á köflum yfirnátt- úrlega leiðinlegar og formfastar. Nú ganga þeir lengra í grininu og það er allt í lagi ef menn einbeita sér að rökunum." Með Sigmari í liði síðasta ár skólagöngunnar var yngri bróðir hans, Almar, eitt helsta fjármálaséni íslands- banka FBA, sem einnig varð ræðumaður ís- lands. „Við Almar vorum eiginlega ósigrandi teymi," segir Sigmar. Litiil rígur var á milli bræðranna en öllu meiri skóla á milli. „Menn eru tapsárir á þessum aldri og það urðu stund- um leiðindadeilur eftir keppnir og nokkur kærumál." Engar stúlkur voru með Sigmari í liði hvernig sem á því stendur. „Það voru af einhverjum ástæðum færri stelpur sem gáfu sig í þetta. Þetta var eiginlega hálfgert karla- sport," segir hann en kveðst sjálfur hafa lært mikið á því aö láta ræðumennskuna hafa for- gang. „Þetta var sennilega það gáfulegasta sem ég gerði í framhaldsskóla. Maður lærir að koma efni frá sér á skipulegan hátt og að það sé fleiri en ein hlið á hverju máli. Það hefur nýst mérvel sem fréttamanni." Kynntist konunni á ræðunámskeiði | Helgi Hjörvar, borg- arfulltrúi Samfylking- I arinnar, varð ræðu- maður Islands árið [ 1985 með MH. „Ég held að þetta hafi veriö fín reynsla fyrir ] póiitík, eða hvað | annað. Hinir tveir í ræðumennirnir í lið- ! inu urðu leikarar, Benedikt Erlingsson og Ásdís Þóroddsdóttir." Tengslin sem Helgi Hjörvar myndaði viö and- stæðinga og samherja hafa haldist misvel að 1 hans sögn. „Ég man alltaf eftir því aö ég fékk nokkra ágæta ræðumenn úr Reykjaneskjör- dæmi til að skipa liö í Alþýðubandalaginu og vinna fyrir Ólaf Ragnar, meðal annarra Eirík Hjálmarsson, Sigriði nokkra úr MK og llluga Gunnarsson sem nú er aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar. Stuttu eftir að ég vann keppnina var ég beöinn um að kenna á ræðunámskeiði í MK og þar var í nokkurra nemenda hópi Þór- hildur sem varð konan mín. Flosi Eiríksson, sem ég skráði upp úr því í Alþýðubandalagið og hefur verið einn helsti félagi minn ! pólitík, og Hjörleifur Finnsson voru einnig á námskeið- inu en við lásum saman heimspeki í háskóla. Þannig aö ég hugsa alltaf til ræðumennskunn- ar með hlýjum hug." Sorglegt eða aðdáunarvert Hafsteinn Þór Hauksson laganemi varð ræðumaöur ís- lands 1996 og ‘98 með Verzlunarskóla íslands. „Þaö mætti eigin- lega segja að ég I hefði prófað allar út- gáfur af MORFÍS-úr- I slitum. Ég fór öll fjögur árin alla leið í Háskólabíó. í fyrsta skipt- iö tapaði ég og var ábyggilega lægstur að stig- um. í annað skiptið tapaði ég en varð ræðu- maður íslands ásamt Arnari Þóri úr liði FB, ( þriðja skiptið vann ég en var ekki kosinn besti ræðumaðurinn og í fjóröa skiptið vann ég bæöi keppnina og titilinn. Síðustu tvö árin var ég í óbreyttu liði og það myndaðist góð heild sem gerði sigrana og vinningsferðirnar eftir- minnilegastar." Hafsteinn er enn viðriðinn ræðumennskuna og hefur þjálfað lið VÍ og dæmt keppni reglulega. „Ég hef aðeins misst af einni ræðukeppni hjá Versló síðan '94. Síð- an mega aörir ákveöa hvort það sé sorgleg eða aðdáunarverð staðreynd. Ég held að mað- ur geti lært mikiö á þessu. Þó að ég væri staddur á eyöieyju held ég að ræðumennskan gæti hjálpað mér. Þetta er ákveðinn hugsunar- háttur sem maður temur sér og það er nógur sigur að sigrast á sjálfum sér með því að láta vaða og geta talað í margmenni." að til hefur verið fastagestur á skjám landsmanna en þá alltaf sem gestur. Nú hefur Fjölni víst verið falið það verkefni að sjá um hestaþátt á SkjáEinúm og á sá að taka eitthvað öðruvísi á hesta- mennskunni, eins og reyndar von er á þeirri stöð. Samkvæmt heim- ildum Fókuss hóf Fjölnir afskipti af hestamennsku fyrir nokkrum vikum með spúsu sinni, Marín Möndu, og eru þau skötuhjú víst kolfallin fyrir sportinu. Óstaðfest- ar fréttir herma meira að segja að Manda sé þegar farin að keppa á mótum en það hefur ekki enn fengist staðfest. Eftir því sem næst verður komist verður Fjöln- ir eini umsjónarmaður þáttarins sem á að fara í loftið eftir tvær vikur og verður gaman að sjá hvernig fyrrum tengdasyni Bret- lands ferst það úr hendi. Einar í leikhúsið Á næstunni verður frumsýnt í Hafnarfjarðarleik- húsinu leikritið I Platanov eftir < Tsjekhov í upp- færslu Nemenda- leikhússins og er | þetta útskriftarverk- efni leikhússins. Út-1 skriftarárgangur I Leiklistarskólans er stjörnum prýddur þetta árið og ætti fólk sérstaklega að taka eftir þeim Elmu Lisu Gunnarsdóttur og Björgvin Franz Gíslasyni. Verkið er annars stórskemmti- legt en það lýsir einu stóru eft- irpartíi, nokkurn veginn að ís- lenskum sið, því sagan segir að þar séu allir hreinlega með öll- < um. Rúsínan í pylsuendanum er svo að hið „útvarpsvæna“ lag Einars Bárðarsonar, Farin, í flutningi Selfyssinganna í Skíta- móral, fær að hljóma í verkinu. Þetta getur ekki orðið annað en áhugavert. 20. apríl 2001 f Ó k U S 15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.