Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2001, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2001, Síða 3
g f n i samfélagiö i f ó k u s Pjetur Ó. Finz er radíóamatör frá Helvíti og skrif- ar um sam- félagsmál í fókus. Blönduóslöggan vill ei tott Ég er góður ökumaöur. Ég er vtöförull og hef ekið hringveginn þveran og endilangan, aðal- lega endilangan. Ég á enga fjölskyldu þannig að ég get leyft mér að aka hratt og leyfa mér að gefa ekki stefnuljós nema á vegamótum. Stundum ek ég svo kílómetrum skiptir með hazardljósin á. Ég ek ætíð allsgáður. Uno ‘88 er góður þíll. Hann hefur reynst mér afskaplega vel á lóngum ferðum mínum um landið. 1000 rúmsentímetra Fire-vélin er eins og kjarnorkuknúin á sléttum vegum rikisins. Þegar við Uno erum í ham getur ekkert stöðv- að okkur, ekki neitt, nema Blönduóslögreglan. Helvitis Blönduóslögreglan er skæð og hefur hneppt margan ökumanninn í gæsluvarðhald. Ég ek hratt í Húnavatnssýslum. Þær eru leið- inlegar og ætla aldrei að enda. Tvisvar hafa ferðir þó endað í fangageymslum á Blönduósi. Móðir mín heitin sagði alltaf að ég ætti fram- tíðina fyrir mér því að útlit mitt höfðaði jafnt til karla og kvenna. Eftir þessu hef ég lifað og fundið hamingjuna, bæði í örmum karla og kvenna í mismunandi svitalykt og blóðhita. Lögreglan á Blönduósi er skipuð körlum, gagn- kynhneigðum körlum sem hafa engan vilja til að prófa eitthvað nýtt. í stað nýrrar upplifunar á kynlífssviðinu eltast þessir menn við verald- leg auðæfi. Skiptir þá engu hversu maður pré- dikar um „kynngimagnaða" lífsreynslu. Blönduóslöggan vill ei tott, ei tott. heimasíöan www.hi.is/- hannesgi/ Við horfum á hann í sjónvarpinu, hlustum á hann í útvarpinu og lesum greinar eftir hann í blööum. Þá er bara eftir aö fullkomna mynd- ina og lífiö því Hannes Hólmsteinn er líka á Netinu. Og af því Hannes Hólmsteinn er ekki hinn týpíski þurri og leiöinlegi fræöimaöur þá er ekki bara stjórnmálaumræöa á síöunni hans heldur líka ítarleg umfjöllun um mynda- albúmiö hans þar sem viö getum til dæmis fengið aö sjá Stínu frænku og Kjartan Gunn- ars. Á síðunni er líka aö finna safn skrýtlna um vinstri menn sem Hannes hefur tekiö saman. Áfram, Hannes Hólmsteinn! Hljómsveitin Bellatrix hafði verið að gera ágæta hluti í Bretlandi á síðasta ári og var orðin þekkt stærð. Fólk flykktíst á tónleika sveítarinnar og lét vel af en platan seldist ékki að sama skapi og í kjölfarið var samningurinn við plötufyrirtækið Fierce Panda ekki endurnýjaður. Bassaleikarinn Kidda rokk segir þó að allir séu sáttir. Það sér enginn eftir neinu E 1 Kristín Þórhalla Þórisdóttir, Kidda rokk, var bassaleikari Bellatrix þar til sveit- in fór í frí á síðasta ári, eftir að plötusamningur hennar við Fierce Panda var ekki endurnýjaður. Kidda er sátt manneskja í dag og útilokar ekki endurkomu Bellatrix eða einhverra meðlima hennar á næstu misserum. „Mér finnst mjög ólíklegt að við tök- um ekki einhvern tíma upp þráðinn aftur en á næstunni er ekki útlit fyrir það að við komum til með að starfa í þeirri mynd sem við höfum gert,“ seg- ir Kristín Þórhalla Þórisdóttir, bassa- leikari Beliatrix, eða Kidda rokk eins og flestir kannast við hana. Bellatrix hætti störfum í október á síðasta ári, eftir að samningur hennar við plötu- fyrirtækið Fierce Panda var ekki end- umýjaður. Fíluðu ekki rokkið „Það var kominn smástirðleiki í sambandið í október á síðasta ári, þeg- ar við vorum búin að vera að túra því plötumar seldust ekki nógu vel. Við vorum búin að semja nýtt efni sem við vorum mjög ánægð með og höfðum hugsað okkur _á nýja plötu. Þar tókum við smástefnubreytingu og fómm að- eins út í meira rokk en þeir flluðu það ekki og vildu popptónlistina áfram,“ segir Kidda og bætir við að samstarfið hafi bara einfaldlega ekki gengið. Þau hafi fengið góðar viðtökur við plötunni og smáskífunum og sérstaklega við tónleikahaldinu en það hafi greinilega ekki verið nóg. „í heild sinni fengum við bara ágætar viðtökur en aftur á móti seldust plöturnar ekki eins vel og við og plötufyrirtækið vorum búin að reikna út,“ segir hún og nefnir að smá- skífan Jediwannabe hafi til dæmis komist í 64. sæti breska listans sem þau hafi verið mjög ánægð með. Skrýtið en skemmtilegt líf Kidda segir að þrátt fyrir þetta hafi andinn innan Bellatrix alltaf verið ynd- islegur. Yfir allt þetta tímabil hafi aldrei verið nein leiðindi þar á bæ og séu alls ekki í dag. Hún segir að eftir að þau sögðu skilið við Fierce Panda hafi þau hugsað málið og séð að þau hefðu allt eins getað haldið áfram að starfa sem tónlistarmenn í Bretlandi. „Við vorum komin með það gott orð- spor að við hefðum auðveldlega getað fengið nýjan plötusamning og svo feng- um við líka tilboð frá Ameríku. En okkur fannst bara vera tími til kominn að snúa okkur að öðrum verkefnum," segir hún og bætir við að þetta hafi verið mjög erfitt á köflum. „Þetta var mikil keyrsla og maður þarf auðvitað að leggja einkalif sitt svolítið á hilluna þegar maður tekur svona verkefni að sér. Maður býr bókstaflega í rútu og það er svolítið skrýtið líf en skemmti- legt samt.“ Allir að spekúlera í verkefnum Eftir að ákveðið hafði verið að hljómsveitin tæki sér frí kom Kidda heim til Islands. „Já, við Anna Magga gítarleikari komum heim á svipuðum tima og búum báðar á Njálsgötunni," segir hún brosandi. „Kaili er í Danmörku þar sem hann komst loksins til kærustunn- ar, Elíza er í söngnámi hjá Sigríði EOu Magnúsdóttur í London og Sigrún vinnur á leikskóla hér á landi." Hún segist mjög sátt við þetta tímabil. „Þetta var auðvitað ævintýri og við settum ekki markið á að verða heims- fræg. Við vorum ánægð að hafa getað unnið fyrir okkur og það sér enginn eftir neinu. Eliza kom einmitt til lands- ins um daginn og við vorum að ræða hvað við værum ánægð með þetta tímabil." Hvað um framtíðina, fáum við að sjá fólkið aftur á sviði? „Það eru aOir að spekúlera í ein- hverjum verkefnum - það er bara spurning hvenær fólk gerir eitthvað og á hvaða grundveOi. Mér fannst afskap- lega gott að geta komið hingað heim og slappað af en hver veit nema maður verði kominn aftur út eftir nokkra mánuði." Strákarnir í hljómsveitinni Bris voru að senda frá sér smádisk en eru samt ekki á þeim buxunum að ganga Mammoni á hönd. Reyndar er minnst vitað um buxnaval þeirra en ef einn hættir missa hinir handlegg og þeír fara samningaleiðina að öllum ákvarðanatökum. Við töntrum hver annan Guömundur Stefán Þorvaldsson, Snorri Petersen, Þorsteinn Err Hermannsson og Jón Geir Jóhannsson Rokktónlist með sterkum laglín- um og dinamískum pælingum er útkoman þegar markaðsfræðinem- inn frá Bifröst, mannfræðineminn, verkfræðineminn og þrívíði tölvu- grúskarinn, sem skipa hljómsveit- ina Bris, setjast niður við laga- smíðar. í tilefni af nýútkominni fjögurra laga plötu, samnefnda sveitinni, lék Brisið á als oddi á Gauki á Stöng fyrir skemmstu. „Það er enginn annar staður fyrir þessa tegund tónlistar,“ svarar Guðmundur gítaristi, spurður um tónleikaferil Brisins. Ekkert Júróvisjón Sveitin hefur hingað til spilaö á fernum tónleikum. „Við erum ekk- ert að fara að spila fyrir dansi á sveitaböllum. Við spiliun ekki lög eftir aðra, nema á okkar eigin for- sendum," segir hann. En aUt er í heiminum falt og þótt gítaristinn hamri nokkra varnagla slumpar hann á upphæðina sem forráða- menn Miðgarðs eða Inghóls þyrftu að reiða fram fyrir Brismúsík handa ölvuöum unglingum lands- byggðarinnar. „Við mundum kannski spUa fyrir 200.000 kaU.“ Þrátt fyrir að um strákaband sé að ræða á augljóslega ekki að mark- aðsvæða tónlistina og Júróvisjón- þátttaka er heldur ekki á döfinni. „Við tókum samviskusamlega ákvörðun um að láta það alveg eiga sig,“ segir Guðmundur og er óhagganlegur. Gay hljómsveit Þvi miður viðurkennir Guð- mundur að nafnið á sveitinni sé ekki stórkostlega pólitísk yfirlýsing um líffæragjöf eða neitt því um líkt. „Við fundum bara eitthvað sem all- ir gátu verið sáttir við. Eftir langa og mikla leit var það Bris,“ segir hann. Strákarnir kynntust í MS og hafa leikið saman rnn nokkurra ára skeið. „Við rífumst eins og hundur og köttur en erum samt mjög diplómatískir. Við greiðum at- kvæði um allt og allar hugmyndir fá að njóta sín.“ Guðmundur segir hljómsveitarstarfið að mestu byggj- ast á vináttu. „Ég hugsa að við störfum ekki áfram ef einhver okk- ar hættir. Það væri eins og að missa handlegg.“ Svo náið samstarf hlýtur að vekja spurningar um hvað drengirnir fáist við þegar þeir eru ekki að semja músík. „í sann- leika sagt er það ekkert sérstakt en ekki skrifa það. Við gerum eitthvað súrrealískt og skemmtilegt." Allt í einu man hann svarið: „Við töntr- um hver annan. Við erum gay hljómsveitin Bris.“ Píkusögur: Hellisbú- inn spáir í píkurn- ar 10 þúsund króna sumarfrí Elma Lísa: Sjö makar í fjögur ár Hið þögla leyndarmál Hún var ógeð www.visir-is/fokus fokusðfokus•is tl í f i ö I i Pillli M'llli ■illlll The Mexican Ekki aðalmálið að oræða Mgina A mma Fifi oa Guð Hf ókus fylgir DV á föstudögum Forsíöumyndina tók Hilmar Þór af Elmu Lísu Gunnarsdóttur. 27. apríl 2001 f Ó k U S 3

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.