Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2001, Blaðsíða 9
40
35
30
25
20
15
10
5
Fjöldi
6 Sjálfsvíg á íslandi 1951-1996
7
Ef
K
37
31
5
Konur 13 1
13 14 K 2 m
■ 9
Kariar ít;- j .:KK m,. |
‘51 ‘56 ‘61 ‘66 ‘71
8
14
4
19
15 I
3 26 10 ■KK'
23 K 4
m I
m Wm. IJ
‘78 ‘79 ‘80 ‘81
33
" 7 12 ■ 1
ft
25 25
h W I
K m i
Heimild: Hagstofa Islandsg
5 - 4 5
‘51 ‘56 ‘61 ‘66 ‘71 ‘75 ‘76 ‘77 ‘78 ‘79 ‘80 ‘81 ‘82 ‘83 ‘84 ‘85 ‘86 ‘87 ‘88 ‘89 ‘90 ‘91 ‘92 ‘93 ‘94 ‘95 ‘96
Rauði krossinn rekur neyðarathvarf fyrir ungt fólk þar sem boðið er upp á trúnaðarsíma þar sem'fólk get- ^
ur deilt vandamálum sínum með sérfróðu fólki og fengið aðstoð þess. Edda Hrafnhildur Björnsdóttír, for-
stöðumaður athvarfsins, segir nokkuð um það að ungt fólk sem hringir í trúnaðarsímann sé í sjálfs-
morðshugleiðingum og hafi slíkum símtölum fjöigað mikið undanfarin ár.
Uppgjöf en ekki hetjuskapur
„Þetta eru þau símtöl sem taka mest
á og taka lengstan tíma. Við getum ver-
ið í allt að tvo tíma að tala við fólk sem
telur sig vera búið að gefast upp á líf-
inu en það væri kannski ekki að
hringia í okkur nema af því að það vill
þiggja hjálp. Þetta getur auðvitað verið
mjög gefandi starf en er líka erfitt
vegna þess að þetta er trúnaðarsími og
við leggjum áherslu á að koma til móts
við fólk þar sem það er statt í tilver-
unni. Við erum því ekki með númera-
birti þannig að við getum ekki rakið
hvar fólkið er.
Við verðum bara að sitja uppi með
óvissuna. í flestum tilvikum tekst okk-
ur sem betur fer að fá viðkomandi til
að skipta um skoðun. Stundum fáum
við leyfi hringjanda til að koma til
hans eða senda hjálp. Oft hringir fólk
svo í okkur daginn eftir til að þakka
fyrir sig og segja okkur af líðan sinni
og það er auðvitað ákaflega vel þegið,“
segir Edda Hrafnhildur Björnsdóttir í
Rauðakrosshúsinu þegar hún er beðin
að lýsa því hvernig þau takist á við
símtöl frá ungu fólki í sjálfsvígshug-
leiðingum.
Vorið erfitt fyrir þunglynda
Að sögn Eddu fengu þau fjölmörg
símtöl á síðasta ári sem á einn eða
annan hátt tengdust sjáifsvígum. Alls
hringdu 80 manns sem voru að hug-
leiða að taka líf sitt, 58 hringdu því
þeir höfðu áhyggjur af öðrum sem ætl-
uðu að taka líf sitt og'24 hringdu vegna
þess að þeir höfðu misst einhvern sem
tók líf sitt. Þó að þetta sé frekar litið
hlutfall af heildarfjölda símtala sem
Trúnaðarsiminn tekur á móti eru
þetta nokkuð háar tölur og lausleg at-
hugun Eddu bendir til að enn fleiri
símtöl, tengd sjálfsmorðum, hafi kom-
ið inn það sem af er þessu ári.
„Ég held að það hafi verið óvenju
mikið það sem af er þessu ári og sér-
staklega í janúar og febrúar. Þá var
greinilegt að hörmungarnar á síðasta
ári, jarðskjálftarnir á Suðurlandi og
slysin öll, þar sem ungt fólk lét lífið,
kalla fram þessa hugsun hjá fólki sem
er eitthvað veikt fyrir.“
Er almennt meira um þetta á ákveön-
um tímum árs, eins og í versta skamm-
deginu?
„Ég hef nú ekki tekið það saman en
þetta kemur kannski fram þegar
myrkrið hellist yfir i janúar. Reyndar
er vorið líka erfitt fyrir þunglynt fólk,
þegar allir eiga að vera voða hamingju-
samir og glaðir en sá sem er þunglynd-
ur nær ekki þessari gleði, þá finnur
hann sig enn frekar öðruvísi og einan.“
Dópið eykur líkurnar
Edda Hrafnhildur hefur starfað í
Rauðakrosshúsinu í tæp fjögur ár og
segist hún sjá mikinn mun á á neyslu
ungs fólks. Hún segir að krakkarnir í
dag séu í mun meiri hættu gagnvart
því að ánetjast efnum þar sem bæði er
auðveldara aðgengi og hættulegri efni
á markaðnum heldur en fyrir nokkrum
árum. Það sé staðreynd að margir byrji
að misnota áfengi og önnur vímuefni
vegna undirliggjandi vandamála sem
þau treysti sér ekki að takast á við eða
fá ekki nægan stuðning til.
Er hœgt aö fullyröa um bein tengsl á
milli neyslu og sjálfsmoröa?
„Mér finnst það eiginlega segja sig
sjálft að þegar fólk sem er í sjálfsvígs-
hugleiðingum deyfir dómgreindina
með áfengi eða öðrum fikniefnum er
það mun líklegra til að skaða sjálft
sig,“ segir Edda.
Hver eru verstu tilvikin sem þiö lend-
ió í?
„Verstu tilvikin eru auðvitað þegar
fólk er alveg staðráðið í því að gera
þetta og hringir bara til að segja ein-
hverjum frá þvi og kveður og maður
veit síðan ekki meir hvað gerist. Þá er
kannski oft um að ræða fólk sem er í
neyslu; það er erfiðara að nálgast það
fólk.“
Er mikið um aö fólk hringi í annar-
legu ástandi?
„Nei, við neitum yfirleitt að tala við
fólk á meðan það er í vímu en bjóðum
því jafnframt að hringja síðar.“
Fleiri sjálfsvígstilraunir hjá
stúlkum
Þegar skoðaðar eru tölur um sjálfs-
víg og sjálfsvígstilraunir kemur í Ijós
aö sjálfsvígstilraunir eru mun fleiri
hjá stúlkum á íslandi en drengir
fremja aftur á móti fleiri sjálfsvíg.
Helduróu að það sé einhver ástœöa fyr-
ir þessu?
„Ég hef nú heyrt tilgátur eins og
þær að strákar séu vanari hættulegri
tólum og tækjum og þeir noti einfald-
lega aðferðir sem virka, því miður.
Sumir vilja meina að stúlkurnar vanti
kjarkinn til að klára þetta en ég held
að það gangi enginn svo langt að
skaða sig nema töluverð alvara sé að
baki og auðvitað ber alltaf að lita slík-
ar tilraunir alvarlegum augum,“ segir
Edda og bendir á að stúlkur séu meira
í því að rista sig og taka inn lyf. Þær
tilraunir virðist síður takast en Edda
segir þó að þessar tilraunir séu alveg
sama hróp á hjálp.
„Menn eru farnir aö tala heiöarlegar um þaö aö viðkomandi sé ekki hetja fyrir
þaö sem hann gerir. Þetta er uppgjöf og merki um vanlíðan en ekki hetjuskapur.“
Að horfast í augu við
vandamálið
„Það eru ekki allar sjálfsvígstilraun-
ir á íslandi skráðar. En það sem er
verra er að þegar fólk gerir augljósa til-
raun til sjálfsvígs fær það oft ekki
næga hjálp í framhaldinu."
Hefur ekki veriö hálfgeröur feluleikur
í kringum þessi mál?
„Jú, en sem betur fer hefur land-
læknir látið vinna mjög vel úr því á
síðustu mánuðum að koma yfir þetta
betri skráningu og vinna að betri
lausnum. Það er búið að vinna skýrslu
með tillögum, t.d. um sólarhringssíma
til að sinna fólki í sjálfsvígshugleiðing-
um,“ segir Edda og bætir við að fólk
verði einfaldlega að hætta að skamm-
ast sín, horfast í augu við vandamálið
og þiggja hjálp. Fólk sé of mikið að
hugsa um að hylma yfir þessi mál til að
vernda mannorð sitt eða fjölskyldunn-
ar.
„Það hafa líka átt sér stað múgæs-
ingar á Islandi í kringum sjálfsmorð:
Einn fremur sjálfsmorð og þá kemur
einhver alda í sama samfélagi. Menn
eru farnir að tala heiðarlegar um þessa
hluti. Þetta er uppgjöf og merki um
vanlíðan en ekki hetjuskapur."
Vissir
þú að...
* Sjálfsvíg eru önnur algengasta dánarorsök
ungra karlmanna á aldrinum 15-24 ára hér
á landi.
* Aukning hefur oröið á sjálfsvígum meðal
kvenna á aidrinum 55-64 á síðari árum.
* Á árunum 1950-1994 voru skráð sjálfsvíg
fjórðungi fleiri en dauðsföll af völdum um-
ferðarslysa.
* Á árunum 1950-1994 voru skráð sjálfsvíg
hér á landi að meðaltali um 23 á ári.
* Ef niðurstöður norskra rannsókna um
skráningu sjálfsvígstilrauna eru heimfærðar
á ísland má ætla að miðað við mannfjölda
séu sjálfsvígstilraunir hér á landi um 450 en
tíðni sjálfsvíga er svipuð í löndunum tveimur.
* Talið er að 30-50% þeirra sem gera sjálfs-
vígstilraun eigi við áfengisvandamál aö
stríða.
* j könnun sem gerð var árið 1992 á meðal
14-16 ára unglinga á öllu landinu kom í Ijós
að 6,1% þeirra sagðist einhvern tímann hafa
gert sjálfsvígstilraun.
* 3,6% svarenda í sömu könnun sögðust
hafa gert sjálfsvígstilraun á síðustu tólf mán-
uðum áður en könnunin var gerð.
* í rannsókn frá 1992 kemur fram að um
23% pilta og 38% stúlkna á aldrinum 15-16
ára sögðust einhvern tíma hafa hugleitt
sjálfsvíg.
* í annarri íslenskri rannsókn, sem náði
einnig til annarra aldurshópa, kom fram að
einungis tæplega 7% -fólks á aldrinum
55-57 ára sagðist hafa hugleitt sjálfsvíg ein-
hvern tímann á ævinni.
Algengustu
dánarorsakir
Samkvæmt upplýsingum úr Skýrslu nefndar um
könnun á tíðni og orsökum sjálfsvíga á íslandi
sem kom út áríð 1996 og unnin er upp úr tölum
frá Hagstofu jslands eru það hengingar, drukkn-
anir og skotáverkar sem eru helstu dánarorsakir
þeirra sem fremja sjálfsmorð á íslandi. Skoðuð
voru tvö ttmabil, 1976-1980 og 1990-1994 og
kom fram nokkur munur á þessum tímabilum.
Á fyrra tímaþilinu létust flestir eftir skotáverka,
eða 32%, en 24% létust af völdum drukknunar.
19% þeirra sem frömdu sjálfsmorð á árunum ‘76-
'80 hengdu sig, 8% létust af völdum eitrunar og
önnur 8% af völdum gass, en 4% eftir stungusár
og 2% eftir fall svo það helsta sé nefnt.
Á síðara tímabilinu, 1990-1994, létust aftur á
móti flestir, eða 30%, eftir hengingu en 23% af
völdum gass. 16% sjálfsmorða voru framin með
skotvopni á tímabilinu en 15% með því að inn-
byrða eitur. Öllu færri drekktu sér en á fyrra tíma-
bilinu, 10% á móti 24% á því fyrra.
Á síðara tímabilinu hafa einnig verið teknar sam-
an tölur sem sýna mun á sjálfsmorðum eftir kynj-
um og eru það athyglisverðar niðurstöður. Þar
kemur í Ijós að 40% af sjálfsmorðum kvenna eru
af völdum eitrana á móti einungis 8% karla.
Drukknanir eru einnig mun algengari meðal
kvenna en karla, eða 26% á móti 6%. Þá á ein-
ungis eftir að nefna tvær sjálfsmorðsaðferðir sem
íslenskar konur beittu á þessu timabili, 17%
sjálfsmorða þeirra voru gerð með notkun gass á
móti 24% sjálfsmorða karla, og 17% voru fram-
kvæmd með hengingu á móti 33% sjálfsmorða
karla.
20% sjálfsmorða íslenskra karla á tímabilinu voru
aftur á móti framkvæmd með skotvopni, 4% áttu
sér .stað með falli, 2% eftir stungusár og 3% eru
undir flokknum annað.
Augljóst er af þessu að kynin beita mismunandi
aðferöum þegar ákvörðun um að taka líf sitt er
tekin og er fjallað um ástæður þess annars stað-
ar á síðunni.
Dánarorsök viö sjálfsvíg á íslandi
-1990-1994 eftir kynjum
■6
Heimild: Skýrsla nefndar um
könnun á tíðni og orsökum
sjálfsvíga á Islandi, 1996,
bls. 34.
Henging Drukknun Skotáverki Stungusár Fall Annað
45
40
35
30
25
20
15
10
5
%
30 16
1 Dánarorsök við sjálfsvíg
23 10 32 á íslandi
-1976-1980 og 1990-1994
15 H 24 Heimild: Skýrsla nefndar um
19 § O könnun á tíöni og orsökum sjálfsvíga á íslandi, 1996,
bls. 33.
8 8 H £ 1 3 2
o BSSÍIth .; ■i' _J K.. 4 12 fe2 mJ>
Eitranir Gas
Dmkknun Skotáverki Stungusár Fall flnnað
Síðkomin
eftirköst
27. aprtl 2001 f ó k U S
9