Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2001, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2001, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2001 DV 25 Helgarblað Eftir þaö starfaði ég um tíma sem bílasölumaður hjá Ford-umboðinu KR Kristjánssyni. Ég held að ein- hver besti skóli sem pólitíkusar geta gengið í sé að verða sölumenn. í öðru tilfellinu ertu að selja vöru, í hinu ertu að selja hugmyndir og þú ferð nokkurn veginn nákvæmlega eins að þessu.“ Engin sjáifsánægja Sigurgeir segist hafa orðið póli- tískur strax í æsku. En af hverju kaus hann að fylgja Sjálfstæðis- flokknum? „Vegna þess að ég hef alltaf haft trú á því að einstaklingurinn hyggi best að sínum málum sjálfur," segir hann. „Vitanlega þarf samfélagið að koma inn í þar sem þess er þörf en samfélagið á ekki að grípa fram fyr- ir hendurnar á einstaklingnum. Hann verður að fá að sýna hvað í honum býr.“ „Veturinn sem ég var fermdur lét ég smíða fyr- ir mig trillu, önglaði saman fyrir henni með því að stokka upp línu og fara í sendiferðir og nýtti einnig peninga sem ég fékk í fermingargjöf. Þetta var árið 1947 og báturinn kostaði þá 9500 krónur. Á þessum tíma hvarflaði sannarlega ekki að mér að ég œtti eftir að verða bœjarstjóri. “ Pólitískur ferill Sigurgeirs hefur verið samfelld sigurganga og hann hefur aldrei tapað kosningum. „Ég hygg að ég hafi á mínum pólitíska ferli ekki sagt meira en ég gat stað- ið við og fólk kunni að meta það. Hér á Nesinu höfum við yfirleitt haft prófkjör og þótt ég hafi lent í fyrsta sæti hef ég nokkrum sinnum farið í fjórða sætið og sagt við íbú- ana: „Það er ykkar að ráða því hvort ég fer eða verð.“ Þetta hefur tekist og síðustu kosningar voru stórkostlegar. Það er óskaplega gaman að hætta með 65,3 prósenta fylgi." - Liggur skýringin á velgengni þinni þá i persónuvinsældum? „Þú mátt ekki gera of mikið úr þeim. Ég er fulltrúi ákveðinnar stefnu, sjálfstæðisstefnunnar, sem ég hef alltaf aðhyllst. Sem betur fer er hægt að fmna sjálfstæðismenn og krata í hverjum einasta einstak- lingi. Ef þú kannt að nálgast þessar irinri persónur manna þá er eftir- leikurinn ekki svo erfiður." Horfir glaöur um öxl Þegar Sigurgeir horfir yfir ríki sitt er hann þá ekki harla ánægður með árangurinn? „Maður má ekki fyllast sjáifs- ánægju en þegar ég lít um öxl get ég ekki verið annað en ánægður, ein- faldlega vegna þess að mér og mínu samverkafólki hefur tekist að skapa eftirsóknarvert samfélag hér á Nes- inu. íbúðaverö er hér töluvert hærra en annars staðar en fólk get- ur jafnframt verið öruggt um að íbúðir þeirra haldist í verði. Hér eru góðir skólar sem sótt er í. For- gangsröðunin hefur mikið til snúist um börnin enda erum við fædd á þessa jörð til að fæða af okkur börn og koma þeim sæmilega til manns. Árangurinn er greinilegur en um leið og ég gleðst yfir honum þá verð ég líka að horfa í eigin barm ef eitt- hvað mistekst. En sem betur fer eru plúsamir miklu fleiri en minusarn- ir.“ Eitthvað sem hefur verið erfitt á þessum árum? „Erfiðleikarnir eru kannski helst þeir að þurfa að láta enda ná saman án þess að taka of mikla skatta af íbúunum. Við höfum reynt að vera trúir þeirri stefnu okkar að krónan George Clooney: Polir ekki Jennifer Lopez Leikarinn geðþekki, George Clooney, hefur útlit fyrir aö vera hvers manns hugljúfi eða að minnsta kosti hverrar konu. Hann lék á móti Jennifer Lopez í hinni vinsælu hasarmynd, Out of Sight, sem fékk frábæra dóma fyrir nokkrum misserum. Það virtist fara vel á með þeim í myndinni en sann- leikurinn er annar. Clooney mun hafa trúað drykkju- félögum sínum fyrir því að hann hafi ekki þolað Lopez meðan á tök- um stóð og það hafi verið óþægilegt að leika á móti henni í nánum ást- aratriðum þar sem þau þurftu til dæmis að kyssast. Þar fyrir utan hafl Lopez verið montin og leiðin- leg, uppstökk og önug. Við sama tækifæri sagði Clooney að hann hafi oröið ástfanginn af Michelle Pfeiffer þegar þau léku saman í One Fine Day og hann dáist takmarkalaust að Juliu Roberts. Margir karlmenn elska Jennifer Lopez á laun en það er greinilegt að ekki er allt sem sýnist í fari þeirrar fögru konu. George Clooney Hann lék á móti Jennifer Lopez í Out of Sight. Sigurgeir hefur setið við völd í nærri 40 ár „Ég hygg að ég hafi á mínum pólitíska ferli ekki sagt meira en éggat staöiö viö og fólk kunni aö meta það. „Maður má ekki fyllast sjálfsánœgju en þegar ég lít um öxl get ég ekki ver- ið annað en ánægður, einfaldlega vegna þess að mér og mínu samverka- fólki hefur tekist að skapa eftirsóknarvert samfélag hér á Nesinu. íbúðaverð er hér töluvert hœrra en annars staðar en fólk getur jafnframt verið öruggt um að íbúð- ir þeirra haldist í verði. “ Þingmennska heillaði ekki Fjölmörg dæmi eru um stjóm- málamenn sem hefja feril sinn í bæjarmálum og hella sér síðan út í landsmálapólitíkina en slíkt hefur aldrei verið Sigurgeiri alvarleg freisting. Hann var varaþingmaður Sjálfstæðisflokks á árunum 1978-1979 og sat nokkrar vikur á þingi en þingmennskan heillaði ekki. „Hún hefði ekki átt við mig,“ segir hann. „Ég held að það sé frekar leiði- gjarnt að sitja á þingi sem óbreyttur lögin á höfuðborgarsvæðinu eiga afar gott samstarf og þar er yfirleitt ekki talað um pólitík nema á léttu nótunum. Það væri ofmælt að segja að þar væri litið á ríkið sem and- stæðing en þetta eru tveir pólar og þar er töluverður núningur. Ég held að sveitarstjórnarmenn, hvar í flokki sem þeir standa, líti svo á að þeir séu í sama báti og þá skiptir engu máli hvaða rikisstjóm er við völd.“ Að rækta tengsl við samfélagið Sigurgeir segist ekki eiga margar frístundir. „Þegar maður er bæjarstjóri í til- tölulega litlu samfélagi er ætlast til þess að maður taki þátt í lífinu í kringum sig. Það verður maður að gera í ríkum mæli ef maður ætlar að halda tengslum við samfélagið. Ég er reyndar að verða meiri nátt- úruunnandi með árunum og þakka það því að ég fékk síðari sumarbú- staðardelluna seint á niunda ára- tugnum. Við hjónum áttum gamlan bústað uppi í Kjós en byggðum nýj- an bústað um 1987 og þar eyðum við flestum frístundum okkar.“ Þegar Sigurgeir er spurður um lífshugmyndir sínar og trú segir hann: „Öfugt við marga aðra held ég að ég hafi verið miklu trúaðri þegar ég var yngri. Ég er alinn upp í næsta húsi við kirkjuna á Sauðár- króki. Pabbi minn heitinn söng í kirkjukómum þannig að þeir voru ófáir sunnudagarnir sem ég elti hann upp í kirkju. Kannski hef ég mestmegnis tekið út mína kirkju- göngu á unglingsárum. Ég er ekki viss um að fólk sé jafn einlægt í trú- málum og það var hér áður fyrr. Efnishyggjan virðist heilla fólk meir en trúin. Sjálfur hef ég mína trú en hún er ekki eins einlæg og hún var.“ Sigurgeir situr nú sitt síðasta kjörtímabil sem bæjarstjóri. En hvað tekur svo við? „Ég finn mér eitthvað við að vera þegar þar að kemur. Ég þykist hafa nokkra reynslu í sveitarstjórnar- málum og sest kannski í einhverjar nefndir. Annars er ég búinn að vera úti á vinnumarkaði frá sextán ára aldri og kannski er nóg komið. Nú er líka tími til að dekra við barna- börnin. Barnabömin standa manni að mörgu leyti nær en manns eigin börn gerðu meðan maður stóð í lífs- baráttunni fyrir alvöru. Maður saknar þess eftir á að hafa ekki sinnt börnum sínum meira en mað- ur gerði. Nú er kominn tími til að kvitta fyrir þaö með því að sinna barnabörnunum." Sigurgeir ætlar nú að sinna fjölskyldunni Maður saknar þess eftir é aö hafa ekki sinnt börnum sínum meir en maöur geröi. Nú er kominn tími til aö kvitta fyrir þaö meö þvi aö sinna barnabörnunum. “ sé betur komin í hendi skattborgar- ans en okkar og það sé hans að ráð- stafa henni. Við höfum líka lagt áherslu á að sáralítill eða enginn biðlisti sé eftir dagvist barna. Dag- gjöld hjá okkur eru reyndar í hærri kantinum en við kjósum að haga því þannig fremur en að hafa langa biðlista og slaka þjónustu. En slag- urinn snýst alltaf um að láta enda ná saman án þess að ganga of nærri greiðsluþoli borgaranna þingmaður. Þeir sem vinna við stjómsýslu sveitarfélaga geta fengið hugmynd að morgni og framkvæmt hana að kvöldi. En á Alþingi er hug- myndin kannski að velkjast i kerf- inu í eitt eða tvö ár áður en menn geta komið henni í framkvæmd, ef þeir gera það þá einhvern tíma.“ Sjálfstæðisflokkurinn er við völd á Seltjarnarnesi og R-listinn við völd í Reykjavík en Sigurgeir segir engan ríg þarna á milli. „Sveitarfé- ) /1 U / Íitýtt bliið ttllt ríf'id Tálgað í tré Jómna Bjartmar/ Vorið og fugfarnir Griiuiverk og pallar Efnar Logí grasalæknir Vín og matur smella sainan Kolonihave í Kaupmannahöfn Fæst Á NÆSTA BLAÐSÖLUSTAÐ / Askriftarsími 586 8005 Útgefandi: Rit & Rækt ehf, Háholti 14,270 Mosfellsbæ, www.rit.is, rit(©rit.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.