Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2001, Blaðsíða 10
Platan Kid A með Radiohead var ein af mest umtöluðu plötum síðasta árs. Þó að
platan hafi hlotið mikið lof gagnrýnenda og aukið hróður hljómsveitarinnar þá lagðist
hún misvel í aðdáendur hennar. Á mánudaginn kemur út ný Radiohead-plata,
Amnesiac, og nú bíða menn spenntir eftir því hvaða stefnu Thom Yorke og félagar
hafa tekið í þetta skiptið. Trausti Júlíusson hlustaði á gripinn:
Eins og afkvæmi Ok
Computer og Kid A
Þegar Ok Computer kom út árið
1997 breyttist hljómsveitin Radi-
ohead úr því að vera ein af athygl-
isverðustu rokkhljómsveitum
heims í að vera sú mikilvægasta.
Vegur hennar hafði vaxið jafnt og
þétt frá fyrstu plötunni, Pablo Hon-
ey, sem kom út árið 1992. Eftir-
væntingin eftir nýrri plötu var orð-
in mjög mikil og þegar Kid A kom
út í fyrra fór hún rakleiðis í fyrsta
sæti vinsældalista úti um allan
heim. Platan kom mikið á óvart. í
staðinn fyrir eðal-gítarpoppverkin,
sem höfðu skapað velgengni henn-
ar, var komin tilraunakennd tón-
list sem átti að sumu leyti meira
sameiginlegt með því sem er að
gerjast í raftónlistarheiminum en
því sem hefðbundnar rokksveitir
eru að fást við. Kid A fékk mjög
góða dóma hjá gagnrýnendum og
jók hróður hljómsveitarinnar jafnt
í rokk-, djass- og raftónlistargeirun-
um. Margir tónlistarmenn dáðust
að hugrekki þeirra félaga og því
hvað þeir voru óhræddir við að
fara sínar eigin leiðir og taka fjár-
hagslega og „vinsældalega"
áhættu. Á tímum þegar allt snýst
um árangur og leitina að formúlu
sem virkar þá þarf tónlistarheim-
urinn á plötu eins og Kid A að
halda. Sumir af gömlu aðdáendun-
um urðu samt fyrir vonbrigðum.
En riijum aðeins upp sögu sveitar-
innar.
Oxford on a Friday
Það er kannski óþarfl að eyða
mörgum orðum í sögu Radioheads
því hana þekkja flestir. Hljómsveit-
ina skipa þeir Thom Yorke, Ed
O’Brien, John Greenwood, Phil
Selway og Colin Greenwood. Hún
var stofnuð í Oxford árið 1987 og
starfaði fyrst undir nafninu On a
Friday. Þeir Thom, Colin og Ed
fóru allir í háskólanám hér og þar
í Englandi en fimmmenningamir
héldu samt áfram að hittast reglu-
lega í Oxford til þess að spila með
bandinu. Eftir að þeir höfðu út-
skrifast úr háskólanámi árið 1991
tóku þeir upp þráðinn af fullum
krafti, gerðu samning við EMI og
tóku sér nafnið Radiohead - en það
var tekið úr texta með hljómsveit-
inni Talking Heads. Fyrsta platan
þeirra, Pablo Honey, kom út ári
síðar. Hún innihélt m.a. lagið
Creep sem sló í gegn bæði í Evrópu
og Bandaríkjunum. Textinn fjallar
um náunga sem hvergi passar inn
og varð einhvers konar einkennis-
söngur ungmenna í leit að sjálfum
sér.
Varðandi tónlistina var Pablo
Honey efnileg en með næstu plötu,
The Bends, sem kom út árið 1995,
var Radiohead-stíllinn orðinn til og
með meistaraverkinu OK Comput-
er höfðu þeir náð að fullkomna
hann. Og þá fóru þeir út i allt aðra
sálma...
Ekki að reyna að vera
erfiðir
Þegar maður hugsar út í það þá
hefði það kannski ekki átt að koma
neinum á óvart að Radiohead tæki
svona stökk eins og Kid A óneitan-
lega er. Þeir félagar höfðu jú alltaf
verið svolítið sér á báti. Kid A hef-
ur verið líkt við það þegar David
Bowie gaf út Low árið 1977. í stað-
inn fyrir gæðapoppsmellina sem
hann hafði dælt út fram að því kom
hann með framúrstefnulega raftón-
list og gaf með því algerlega skít í
söluáætlanir og vinsældavonir. Eft-
ir stendur að Low og Heroes, sem
fylgdu i kjölfarið, eru á meðal
þeirra platna sem hafa haft mest
áhrif á þær kynslóðir tónlistar-
manna sem komu fram næstu árin
á eftir útkomu þeirra. Thom Yorke
er reyndar alveg steinhissa á öllum
látunum út af Kid A. Hann skilur
ekki af hverju fólki finnst þetta
svona erflð tónlist.
„Ég sé okkur ekki sem framúr-
stefnuhljómsveit," segir hann. „Við
erum ekkert að reyna að vera klár-
ir eða erfiðir. Við eru bara að
reyna að tjá okkur.“
Fleiri popplög á Am-
nesiac
En víkjum að nýju plötunni. Am-
nesiac er tekin upp og kláruð á
sama tíma og Kid A. Hún gekk á
sínum tima undir nafninu „Kid B“
og sagan segir að hún sé einhvers
konar poppað systkini Kid A. Þetta
er rétt en samt ekki nema að hluta
til. Það eru fleiri lög á Amnesiac
sem eru byggð upp eins og venjuleg
popplög heldur en á Kid A og gítar-
inn er meira notaður, en það eru
lika mjög skrýtnir hlutir á henni
inn á milli. Það hefur verið sagt að
Amnesiac sé svona eins og mitt á
milli OK Computer og Kid A og sú
lýsing á alveg rétt á sér. Thom
Yorke hefur lýst því yfir að ástæð-
an fyrir því að gítarinn er svona
litið notaður á bæði Kid A og Am-
nesiac sé sú að á þeim tíma sem
plöturnar voru teknar upp voru
þeir mest að hlusta á djassista eins
og Charles Mingus og tilrauna-
kennda raftónlist. „Gitartónlistin
gerði ekkert fyrir okkur á þessum
tíma,“ segir Thom, „þó að maður sé
eiginlega farinn að sakna hennar
núna“. Maður gæti haldið að þar
sem efnið er allt tekið upp á sama
tíma þá séu bestu lögin öll á fyrri
plötunni, Kid A sem sagt, en því fer
fjarri. Plöturnar eru vissulega
skyldar en samt furðu ólíkar og
Amnesiac er alls ékki siðri en Kid
A.
Virkur í pólitíkinni
Eftir að vinnunni við Kid A og
Amnesiac lauk fór Thom í stúdíó
með Björk til þess að taka upp
dúettinn „Seen It All“ fyrir „Selma-
songs“-plötuna. Hann söng líka á
nýjustu plötu PJ Harvey. Þeir
Radiohead-félagar fóru í tónleika-
ferð, Thom eignaðist soninn Noah
og svo hefur hann líka heilmikið
verið að tjá sig um þjóðmál og al-
þjóðapólitík. Hann tók þátt í barátt-
unni fyrir því að skuldir þriðja
heimsins væru afskrifaðar með
Bono, Bowie, Bob Geldof og fleiri.
Hann er mikill Tony Blair-and-
stæðingur en segist fagna því að
George W. Bush hafi unnið kosn-
ingamar í Bandaríkjunum. Ekki af
þvi að hann styðji hans pólitík
heldur þvert á móti vegna þess að
hans völd geti ekki annað en gert
fólk róttækara. „Fólk sem hefur
aldrei haft áhuga á pólitík á eftir að
vakna og gera sér grein fyrir því að
það þarf að gera eitthvað í mál-
inu,“ segir hann. Hann hefur líka
tekið þátt i starfsemi samtaka eins
og Amnesty International og Free
Tibet. Vefsíða þeirra, radi-
ohead.com, er lika full af tenglum í
vefsíður pólitískra samtaka.
Verður næsta plata gítar-
plata?
Fram undan hjá Radiohead er
tónleikaferðalag um Bandaríkin
með hljómsveitinni Beta Band.
Þegar er byrjað að æfa og gengur
vel. Nýja efnið sem verið er að æfa
er, að sögn þeirra félaga, „allt há-
vært og allt gítartónlist". Þeir eru
líka að æfa Cinnamon Girl eftir
Neil Young sem þeir taka í há-
værri rokkkeyrslu. Þó er of
snemmt að spá því að næsta plata
verði rokkplata. En það kemur
samt örugglega að því aftur. Thom
vill ekkert gefa út á það sérstaklega
en segir glottandi að „þegar allir
verða farnir að spila þýskt teknó
þá tökum við aftur fram gítarana".
Þess má að lokum geta að Am-
nesiac kemur út í tveimur mis-
munandi útgáfum. Annars vegar er
það platan i hefðbundnu plast-
umslagi. Hins vegar er það sérstök
viðhafnarútgáfa sem eingöngu
verður á boðstólum fyrstu vikum-
ar. Það er útgáfa sem Thom Yorke
er mjög stoltur af. Tónlistin er sú
sama en í stað plastumslagsins
kemur platan í rauðri, innbund-
inni bók - nokkurs konar gáfu-
manna-umbúðum. Ætti að gera
lukku hjá bókmenntaþjóðinni í
norðri...
Hip-hop-tónlistin er vinsæl út um allan heim þessa dagana og fjölbreytnin hefur aldrei verið meiri. Hljóm-
sveitin Ugly Duckling frá Long Beach er meðal þeirra sem leika partí-hip-hop undir sterkum áhrifum frá
tónlist níunda áratugarins. Traustí Júlíusson kynnti sér sveitina í tilefni af nýju plötunni hennar, Journey to
Anywhere.
Ijóti andarunginn fær
Ugly Duckling. Hip-hop í
garðveisluna
Platan Joumey to Anywhere, með
bandaríska hip-hop-trlóinu Ugly
Duckling, er nýkomin út. Platan, sem
er gefin út af breska fyrirtækinu XL
Rexcordings (heimili Prodigy og Ba-
sement Jaxx), er ein af skemmtilegri
hip-hop-plötum ársins.
Utanveltu á árum gangst-
er-rappsins
Þegar Ugly Duckling var stofnuð á
Long Beach árið 1993 þá var g-fónkið
og gangster-rappið allsráðandi. Hljóm-
sveitin er skipuð þeim Andy Cat og
Dizzy Dustin sem rappa og plötu-
snúðnum Young Einstein. Þeir höfðu
verið miklir hip-hop-aðdáendur en
þegar gangster-rappið kom fram og
Snoop Doggy Dogg var orðinn aðal-
fyrirmyndin hjá kalifornískum hip-
hoppurum þá urðu þeir utanveltu.
„Við pössuðum alls ekki inn í þetta og
tókum okkur þess vegna nafnið Ugly
Duckling," segir Dizzy.
Þegar maður hlustar á Joumey to
Anywhere þá getur maður vel skilið
af hverju. Tónlistin á henni er ekta
partí-tónlist, fjörug og léttleikandi.
Þeir félagar eiga mun meira sameigin-
legt með old-school-sveitum, eins og
Sugarhill Gang, heldur en þeim Dre
og Snoop.
Andlega skyldir Jurassic 5
Ugly Duckling gaf sjálf út sína
fyrstu plötu, ep-plötuna Fresh Mode,
árið 1997. Platan vakti nokkra athygli
og kom sveitinni á kortið. Þegar
breska plötuútgáfan Wall of Sound
stofnaði hip-hop-undirmerkið Bad
Magic þá var Fresh Mode ein af fyrstu
plötunum sem hún gaf út. Sú útgáfa
leiddi svo til þess að XL gerði samn-
ing við þá félagana og nú er sem sagt
fyrsta platan þeirra í fullri lengd kom-
in út.
Tónlist Ugly Duckling minnir svo-
lítið á aðra Kaliforniusveit sem hefur
verið að gera það gott að undanfómu,
nefnilega Jurassic 5. Báðar þessar
sveitir eiga það sameiginlegt að spila
tónlist sem leggur megináherslu á það
að skemmta sjálfum sér og hlustand-
anum. „Við erum að reyna að gera
hip-hop-listformið skemmtilegt aftur,“
segir Andy. „í dag er hip-hoppið ekki
lengur spurning um tónlistina heldur
eru allir að reyna að sjokkera. Það er
reynt að sjokkera fólk til þess að
kaupa plötur. Við viljum breyta því.“
uppreisn æru
10
f Ó k U S 1. júní 2001