Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2001, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2001, Blaðsíða 12
Eru grænmetisætur ruglaðar, erfíðar og sérvítrar manneskjur sem ætti helst að senda í sveit eða á sjó? Eða hafa þær eitthvað til síns máls? Hugsa: Ég er það sem ég borða og sleppa þess vegna pulsum, bjúgum, bæonskinku og beikoni. Helvítis plebbinn hann Adoif Hitler var víst grænmetisæta og kona fyrr- verandi bítilsíns, Linda heitín McCartney, líka. Margrét Hugrún kom að máli við nokkrar ólíkar græn- metisætur í Reykjavík: Mannslíkaminn er ekki gerður fyrir kjötát Sólveig Asgeir Jóel Jakobsson Rafeindavirki. Grænmetisæta í 5 ár. „Ég hætti að borða rautt kjöt jólin 96. Fyrst var það af forvitni, mig langaði að prófa eitthvað nýtt, svo komst ég að því að þetta væri miklu praktiskara, andlega og líkamlega. Mikið kjötát hefur slæm áhrif á hug- ann. Besta dæmið um það er jólahátíðin þar sem við hámum i okkur kjöt og svo líður öllum illa og finna fyrjr__þyngd og slapp- leika. Fyrir~tveim árum át ég óvart kjöt sem var inni í brauði sem ég keypti í bakaríi. Ég varð alveg fárveikur. Fékk rosalegan höfuðverk og þurfti bara að fara heim. Svaf svo í 14 klst. sam- fleytt. Gat bara ekki staðið upp,“ segir Ásgeir og glöggt má sjá á svipbrigðunum að honum er ekki skemmt við þessa minn- ingu. „Mannslíkaminn er ekki gerð- ur fyrir kjötát. Þarmarnir í okk- ur eru miklu lengri en í þeim skepnum sem lifa á kjöti. Þetta gerir það að verkum að kjötið situr í maganum á okkur í fleiri fleiri daga. Síðan eru alls konar efni í kjöti sem setjast að í líkam- anum og gera manni margan grikk. Aðalatriðið fyrir mér er samt það að ég vil einfaldlega tvífarar Árni Björnsson þjóöháttafræðingur. ekki borða önnur dýr. Það er fullkomlega ástæðulaust í dag. Einu sinni var það kannski nauðsynlegt af því fólk hafði ekki val en núna getum við val- ið. Úr grænmetinu kemur miklu meiri orka en úr kjöti, margfalt meiri í rauninni. Það fer svo mikil orka í að melta kjötið á meðan grænmetisfæðið gefur meirp orku, svo að heilulagn- ingamaður sem er grænmetisæta getur í rauninni lyft miklu fleiri hellum en sá sem er kjötæta, því kjötætan er svo þreytt á meðan hún „liggur á meltunni". Á hvernig fæði ert þú alinn? „Bara þessu venjulega. Kjöti og fiski, því miður. Ég myndi ekki ala mín börn á þvi í dag. Fjöl- skyldan sem býr á efri hæðinni hjá mér á fimm börn og þau eru öll grænmetisætur, nánast frá fæðingu. Það er mikill munur á krökkum sem alast upp á kjöti og þeim sem alast upp á jurta- fæði. Kjötæturnar eru miklu agressivari, sneggri í vont skap og eirðarlausari á meðan græn- metisæturnar eru miklu rólegri og einbeittari. Þetta hefur ótrú- lega mikil áhrif,“ fullyrðir Ágeir að lokum. Richard „Jaws“ Kiel leikari. Eiríksdóttir Rekur veitingastaðinn Græn- an kost. Grænmetisæta í 21 ár. „Aðalástæðan fyrir því að ég borða ekki kjöt er eiginlega sú að ég er með próteinofnæmi. Ég ólst upp hjá blómabörnum sem voru alltaf að gera tilraunir með græn- metisfæði. Við átum litið kjöt og snemma kom í ljós að ég var með ofnæmi fyrir fiski. Ég reyndi virkilega að komast upp á lagið með að borða kjöt þegar ég varð unglingur. Reyndi að borða nautavöðva en nei - einhvern veginn var þetta bara ekki ég. Til- raunirnar hættu endanlega þegar ég komst að því að ég væri með frjókornaofnæmi. Ég bjó í Kaup- mannahöfn á þessum tíma og þar fann ég virkilega fyrir ofnæminu þar sem þar er svo gróðursælt. Læknarnir vildu setja mig á sprautur en þar sem ég var með barn á brjósti þá kom það ekki til greina. Svo vildi það bara þannig til að ég átti leið hjá litlum heilsu- kjallara og datt í hug hvort þau ættu eitthvert te sem gæti verið gott við þessu. Amma mín hafði alltaf hefft í mánn einhverju grasaseyði þegar eitthvað amaði að og ég mundi eftir þvi þegar ég sá þessa búð. Þegar ég kem niður í kjallarann sé ég auglýsingu frá karli sem hélt því fram að með réttu mataræði væri hægt að lækna alla kvilla. Ég varð forvit- in, hringdi, fór og hitti karlinn sem tók mig af öllu fæði sem kemur úr dýraríkinu og þannig hef ég lifað í tuttugu og eitt ár. Heldurðu að kjöt sé óhollt? „Það er misjafnt, ekki er allt kjöt eins. Til dæmis er kjötið af hænsnum sem fá að ganga laus alveg ágætt á meðan fuglar sem eru hafðir í búri frá fæðingu eru hafðir á pensillíni til að koma í veg fyrir sýkingar. Þetta fer nátt- úrlega beint í okkur. Lambakjötið hérna heima ætti að vera alveg ágætt, við erum nokkuð heppin með það en margir vilja meina að nautakjötið sé allt of þungt fyrir okkur. Fugl er eiginlega skásta kjötmetið fyrir þá sem þola það og vilja. í rauninni er mikilvæg- ast að velja gott hráefni í allan mat. Með kjötið er svo erfitt að vita á hverju dýrið hefur verið alið og þegar við borðum það þá borðum við allt sem hefur farið í það. Sumt fólk er andlega háö kjöti og þá sérstaklega karlmenn. Margir verða meira að segja hissa þegar þeir finna að það er hægt að verða saddur af mat sem er einungis úr grænmeti. Halda að maður prumpi bara og verði svo strax svangur," segir Sólveig og hristir höfuðið, hissa. „Annars er þetta svo mikið að breytast. Nú eru það um 75% karlar sem koma á Grænan kost í hádegismat. Ég var að fylgjast með þessu um dag- inn og varð steinhissa. Fólk er smátt og smátt að átta sig á þessu. Að það er hægt að sporna við öldrun með réttu mataræði o.s.frv. Ég er alltaf að hitta fólk sem er að gera miklar breytingar. Meira að segja þekki ég mann sem er kominn yfir sjötugt og hann var að breyta um mataræði. Það segir manni að það er aldrei of seint!“ Það er lítið fjallað um þjóðhætti í James Bond myndunum en þær eru þó merkileg stúdia því í þeim birtist ímynd fegurðar og illmennsku á þeim tímum sem myndirnar voru gerðar. Samanburður á þeim gæti því leitt i ljós mikinn sannleika um líf engilsaxneskra njósnara. Árni Björnsson getur með réttu verið kallaður íslenski njósnarinn því hann hefur í gegnum tíðina grafið upp ótrúlegustu hluti um hátt- emi íslendinga. Hann er því í sjálfu sér James Bond á andlega sviðinu. í útliti svipar honum þó frekar til Jaws sem leikinn var af Richard Kiel í þremur Bond-myndum á áttunda áratugnum. Richard Kiel þessi hefur svo þróast frá Árna en margir muna eflaust eftir honum skeggjuðum úr myndinni Happy Gilmore með Adam Sandler. Ljósmyndari. Grænmetisæta í 21 ár. „Ég hætti þessu árið 1980 og það var eiginlega af því að ég hitti mann sem var jurtaæta. Mér fannst þetta svo merkilegt og intressant. Hafði bara heyrt um svona fólk áður en ekki hitt neinn sem var svona. Ég fór að hugsa um þetta frekar áreynslu- laust. Byrjaði að prófa að borða á matstofu náttúrulækningafélagsins og elda jurtamat. Svo*eftir eitt jól'a- boðið þá hætti ég alveg að borða kjöt. Hugsaði: Jæja, nú er þetta bara búið.“ Hvað var það sem heillaði þig við það að vera jurtaæta? „Eina ástæðan var sú að mér fannst þetta bara rétt. Vissi ekkert af hverju. Þetta var bara svona sannfæring sem hefur síðan styrkst statt og stöðugt. Sumir ákveða að verða jurtaætur út af hollustunni og aðrir af því þeir vilja ekki borða dýr. Ég reykti á þessum tíma og gerði hitt og þetta sem er ekkert hollt, þannig að hjá mér þá snerist þetta ekkert um holl ustu. Mér fannst bara fáránlegt að vera að borða ná- ungann. Þú mátt svindla á honum og s t r í ð a honum, en að éta hann er bara algjört rugl og það eru endalaus rök sem er hægt að færa fyrir því. Til dæmis get- urðu sleppt heilli kyn- | slóð með l því að b o r ð a bara jurt- ir. Fræ fer ofan í .':i§§ jörðina, I svo kem- ur dýr sem b o r ð a r fræið, svo borðum við dýrið. Af hverju ekki bara að sleppa dýr- inu og borða það sem kemur beint af fræ- inu. Það er mikið land- rými sem fer í að rækta dýr til fæðu og það getur aldrei nokkurn tímann orðið nóg fyrir alla nema á óeðlilegan hátt. Ef maður hugsar sér landsvæði sem eitt naut þarf til að nærast þá má nota sama landsvæði til að næra 1000 manns á jurtafæði!" segir Spessi og pantar sér kaffi. En hvað með þetta að dýr séu ná- unginn, það hugsa varla allir þannig? „Fólk sem á hest borðar ekki hestinn sinn. Þegar maður ætlar að drepa dýr þá verður það skelfinguJ.ostið. Það ættu að vera nægilega sterk skilaboð um að maður á ekkert að vera að þessu. Við eigum að heita vitsmuna- verur. Framleiðslan á dýrum sem mat er líka ógeðsleg. Dýrin eru m.a. höfð á róandi lyfjum til að koma í veg fyrir stress sem gerir vöðvana seiga. Ég var í Svíþjóð um daginn og þar var fólk að mótmæla afleiðingunum af þessari framleiðslu. Creutzfeldt- Jakobs-sýkinni, sem kemur til af þvi beljur sem eru grasætur eru fóðraðar á kjötmjöli eða muldum heilum úr kynsystrum sínum, og gin- og klaufa- veiki. Þetta fólk dreifði jurtafæðiupp- skriftum til vegfarenda. Mjög flott framtak." Hefur þig langað í kjöt eftir að þú hættir? „Nei, aldrei. Maður hættir að sjá þetta sem mat, þetta verður bara eitthvað ógeðslegt. Kjötborðin í búðunum, fólki á að finnast þetta girnilegt og það á að langa til að koma 1 búðina og eins í blöðunum, svona auglýsingar þar sem er bara stór mynd af kjöti. Mér finnst þetta bara skrýtið, skil þetta ekki. Fólk að tala um fal- legt kjöt og svona - ha?!“ - p. 12 f Ó k U S 1. júní 2001

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.