Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2001, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2001, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2001 DV Fréttir Stjórnarformaöur Strætó bs. meö nýstárlegar hugmyndir: Járnbrautarbylting á höfuðborgarsvæðinu Gjald á náttúruperlur Umhverflsráð- herra, Siv Friðleifs- dóttir, segir að í framtíðinni hljóti ferðamenn að þurfa að greiða fyrir að- gang að helstu nátt- úruperlum landsins. 70 milljónir af al- mannafé fara tii uppbyggingar ferða- mannastaða á þessu ári. - vel hugsanleg innan fárra ára, að mati Skúla Bjarnasonar Járnbrautarlest á höfuðborgar- svæðinu er vel hugsanlegur mögu- leiki, að mati Skúla Bjarnasonar, stjómarformanns hins nýja samein- aða almenningssamgöngufyrirtækis Strætó bs. Hann telur slíkt vel mögulegt fyrr en marga grunar. í tillögum að aðalskipulagi Reykjavíkur til 2024 er varpað fram ýmsum hugmyndum í samgöngu- málum. Þar hafa vakið nokkra at- hygli áform um jarðgöng undir Skólavörðuholt, undir Öskjuhlíðina og reyndar einnig undir Kópavogs- hálsinn. Þykja það nokkur tímamót, þar sem hingað til hefur ekki verið rætt um jarðgöng nema í gegnum fjöll og undir firði til að tengja byggðarlög á lanásbyggðinni. Enn byltingarkenndari eru þó vangavelt- ur um járnbrautir á höfuðborgar- svæðinu sem enn hafa ekki komist á teikniborð skipulagshöfunda. Gríðarlega hröð þróun á þessu sviði er þó talin geta umturnað öllum hugmyndum um almenningssam- göngukerfið á næstu árum. Skúli Bjarnason viðraði í vetur Járnbraut á gúmmíhjólum Slíkar brautir eru nú aö ryöja sér til rúms í Evrópu og gætu hugsanlega oröiö aö veruleika hér á landi líka. Skúli Bjarnason Stjórnarformaöur Strætó bs. telur raunhæft aö hér komi járnbrautarlest innan fárra ára. hugmyndir um neðanjarðarsam- göngur og járnbraut í skýrslu sem var undanfari samruna Strætó bs. í samtali við DV leggur Skúli þó áherslu á að hug- myndir í þessa veru séu hans persónulegu vangaveltur og hafi ekki enn komið upp á borð Strætó. Skúli bendir á að gríðarlegum fjármunum eigi að verja til upp- byggingar stofn- brauta á höfuð- borgarsvæðinu á næstu árum. Á sama tíma eru menn að berjast við æ þyngri um- ferð og sífellda DV-MYNDIR E.ÓL fækkun farþega með strætisvögn- um. Útþensla byggöarinnar gerir það síðan að verkum að kostnaður- inn við strætisvagnakerfið eykst hröðum skrefum. Skúli telur þó að með sameiginlegu samgöngufyrir- tæki, Strætó, sé nú í fyrsta skiptið hægt að fara að huga að alvöru upp- byggingu á öllu svæðinu. Þegar sé búið að tengja kerfið innbyrðis og samræma gjaldskrá. Á næstu tveim árum er m.a. á döfinni að taka upp rafræna kortaþjónustu í strætis- vögnunum sem leysa mun af hólmi gömlu peningabaukana. Skúli segir það sína skoðun að innan fárra ára verði mögulegt að koma upp lestarkerfi sem tengi byggðakjarnana á höfuðborgar- svæðinu. Litlir hverfisstrætisvagn- ar sjái síðan um að flytja farþega að þessari meginæð. Ekki sé þó endi- lega þörf á að hafa það allt neðan- jarðar. DV-MYNDVINNSLA ÞOK Jarðgöng viö Landspítala Þarna mun umferö hverfa niöur í jöröina undir Skólavöröuholtiö og koma upp viö Seölabanka, sjá forsíöu. „Mér finnst hins vegar rétt á þessu stigi að það verði skoðað sam- tímis umræðunni um bifreiðagöng undir Skólavörðuholtið og Öskju- hlíðina hvort ekki er hægt að þjóna lestarsamgöngum í leiðinni." Skúli er ekki að tala um hefð- bundnar þungar járnbrautarlestar eins og þekktar eru víða um heim. Borgin Lille í Frakklandi var fyrst borga heimsins til að taka upp nýja tegund af smágerðum lestum sem ganga á gúmmíhjólum á sér- stökum teinum. Þær eru algjörlega sjálfvirkar og þurfa ekki einu sinni ökumann. Byrjað var á þessu verk- efni í Lille í nóvember 1971. Fyrsta lestin rann síðan af stað 1983 og sló strax rækilega í gegn hjá íbúum borgarinnar. Síðan hefur þróunin verið ör og hugmyndin tekin upp í æ fleiri borgum. Lestamar þykja hagkvæmar og afkastamiklar en þær ganga fyrir rafmagni. Skúli nefnir dæmi af 320 þúsund manna borginni Montpellier í Frakklandi. Þar fjölgaði farþegum almennings- samgöngukerfisins á einu ári eftir tilkomu slíks lestakerfis úr 25 millj- ónum í 40 milljónir farþega. -HKr. Formannadeila: Sjómannadagur fyrir Samherja „Þessu verður svarað," segir Konráð Alfreðsson, formaður Sjómannafélags Eyja- fjaröar vegna um- mæla Jónasar Garð- arssonar, formanns Sjómannafélags Reykjavíkur, í les- endabréfi i Morgun- blaðinu i dag. Þar ber Jónas sam- herja sinn í stjóm Sjómannasambands íslands þein sökum að hann gangi er- inda Framsóknarflokksins og Samherja hf. Þannig hlifi Konráð Samherja við sektargreiðslum vegna samningsbrota. „Þetta er helvitis kjaftæði og bull. Hvem andskotann veit Jónas um þetta?" spyr Konráð og bend- ir á að félag sitt sé einmitt nú með kæru á Samheija i meðferö. Jónas ýjar í bréfi sínu að því að Konráð vilji þóknast Sam- Jónas herja með þvi að Garðarsson. leggja til að sjó- mannadagurinn verði færður til hausts- ins. Konráö segist ekki ganga erinda neinna nema sinna félagsmanna. Ástæða þess að hann vilji færa sjó- mannadaginn eigi sér þó rök að öll verð lækki þegar flotinn stöðvi í júní til að halda upp á sjómannadaginn. „Sú hugmynd er ekki komin frá Sam- herja,“ segir Konráð. -rt Konráð Alfreösson. Skýrsla miðborgarhóps lögð fyrir borgarráð - efling löggæslu nauðsynleg: Ffkniefnasala og vændi á skemmtistöðum - ódýr lausn, segir lögreglan og kvittar ekki upp á skýrsluna Ofbeldismálum, sem berast embætti lögreglustjórans í Reykjavík, hefur fjölgað úr 681 árið 1997 í 831 árið 2000. Tæplega þriðjungur afbrotanna á sér stað á veitingahús- um borgarinnar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu vinnuhóps borgarstjóra um málefni miðborgarinnar sem var kynnt i borgarráði í fyrradag. f áfangaskýrslu lögreglu kemur fram að afbrot eru fleiri á veitingahúsum sem hafa framlengt vínveitingaleyfi en á öðrum stöðum sem ekki hafa slíkt leyfi. f skýrslunni kemur fram að lög- regla hafi verið fjölmennust i mið- borginni á árunum 1995 til 1997 eða um 22 menn. Siðan þá hafi eftirlits- myndavélum verið komið fyrir og lögreglumönnum fækkað í 13. Lög- reglumenn geti því aðeins sinnt bráðatilfellum og þeir verði gjama fyrir aðkasti fari þeir inn á skemmti- staði en margt bendi til að sala fikni- efna fari fram á ákveðnum skemmti- stöðum og vændi sé stundað. ítrekuð er nauðsyn þess að lög- gæsla verði efld til muna í miðborg- Miðborgarhópur vill sýnilega lögreglu í skýrslunni kemur fram aö lögreglu- mönnum hefur fækkaö í miöborginni á undanförnum árum. inni og lögregla gerð sýnilegri en ver- ið hefur. Þá er lagt til að auknar kröf- ur verði gerðar til dyravarða og þeir sæki sérstök námskeið. Það vekur athygli að lögreglan, sem átti fulltrúa í vinnuhópnum, kvittar ekki upp á skýrsluna. „Okkur finnst skorta að einni grundvallarspurningu sé svarað. Hún er hvers vegna þarf lögreglan að hafa allan þennan viðbúnað til að fylgjast með drykkju miðborgargesta um helgar og á frídögum. Þessi stað- reynd á sér ekki hliðstæðu á Norður- löndunum," segir Karl Steinar. Hann segir borg- aryfirvöld ekki hafa fylgt leiðbeiningum lögreglu um hertan afgreiðslutíma veit- ingahúsa. Lögreglan hafi lagt til að veit- ingahúsum yrði lok- að klukkan 5 og ekki bæri að lengja af- SnjólaugG. greiðslutíma á Stefánsdóttir. fimmtudögum. „Ef það er vilji borgaryfirvalda að borgin verði skemmtanaborg þá þurfum við að skoða heildarmyndina upp á nýtt. í skýrslunni er gefið í skyn að ástandið í miðborginni sé lögregl- unni að kenna og lausnin felist i fjöl- mennara lögregluliði. Þetta þykir okkur ódýr lausn og meðal annars af þessum ástæðum vorum við ekki reiðubúnir að kvitta upp á skýrsl- una,“ segir Karl Steinar. Snjólaug G. Stefánsdóttir, verkefn- isstjóri á þróunarsviði ráðhússins, segir miður að lögreglan skuli ekki kvitta upp á skýrsluna enda telur hún samstarf við lögreglu hafa verið gott. „Það eru fleiri gagnrýndir í skýrslunni en þeir. Vinnuhópurinn leggur fram tillögur um úrbætur og vinna þegar hafin við nokkrar þeirra," segir Snjólaug G. Stefáns- dóttir. -aþ Karl Steinar Valsson. Geðhjálp mótmælir Geðhjálp hefur mótmælt lokunum geðdeilda í sumar og lýst áhyggjum yfir fjölgun heimilislausra sem margir eru geðfatlaðir. Það er skömm sem yf- irvöldum og hagsmunafélögum geðfatl- aðra ber að takast á við, segir Geðhjálp. Arnarfell bauð lægst Fyrirtækið Amarfell bauð lægst í undirbúningsframkvæmdir vegna Búð- arhálsvirkjunar en tilboð voru opnuð í gær. Amarfellstilboðið er upp á 216 milljónir, 153 milljónum króna lægra en kostnaðaráætlun. Áhyggjur af hvalveiðum Ferðaskrifstofu- menn sem selja ferðir til íslands frá Bret- landi em áhyggjufull- ir vegna yfirlýsinga um möguleikann á að hefja á ný hvalveiðar. Clive Stacey, forstjóri Arctic Experience, segir að ummæli Þorsteins Pálssonar, sendiherra íslands í Bretlandi, í þá vem hefðu verið skaðleg. Rrst Union fylgist með First Union-bankasamstæöan fylgist grannt með framvindu mála og áform- um um einkavæðingu Landsbanka ís- lands hf. First Union er næststærsti hluthafinn í Landsbankanum á eftir ríkinu, með 4,25% hlut. Átján ökumenn teknir Lögregla á Hólmavík stöðvaði átján ökumenn á Holtavörðuheiði í gær vegna of hraðs aksturs. Sá sem mældist á mestum hraða ók á 163 kílómetrum á klukkustund. Lögregla segir þetta óvanalega mikinn hraðakstur á einum degi og hvetur ökumenn til að slaka að- eins á þegar ekið er um þjóðvegi landsins. Mikill þjóðhátíðaráhugi Miðasala með rútum og Heijólfi á þjóðhátíð i Eyjum hófst á BSÍ i gær og mynduðust langar biðraðir. Hugmynd- in var að byrja sölu snemma í ár til að dreifa álagi en upp úr klukkan þrjú var álagið slíkt að tölvukerfi gaf sig. - Sjón- varpið greindi frá. Innbrot á kvennadeild Brotist var inn i kennslustofu á kvennadeild Landspítalans í nótt. Að sögn lögreglu var tilkynnt um atvikið klukkan eitt og við nánari eftirgrennsl- an kom í ljós að skjávarpa var saknað. Haldið tii haga í frétt blaösins í vikunni um atvinnu- mál og efnahagsá- stand kom fram að at- vinnuleysi á höfuð- borgarsvæðinu hefði aukist um 20%. Giss- ur Pétursson, for- stöðumaður Vinnu- málastofnunar, segir þetta ekki rétt en þessi tala sé komin fram vegna mistaka við framsetningu á efni frá stofnuninni sem aftur megi rekja til þess að tvenns konar viðmið séu notuð við útreikn- inga á atvinnuleysi. Hið rétta í málinu er að atvinnuleysið hefur ekki aukist milli mánaða á höfuðborgarsvæðinu, að sögn Gissurar, sem leggur mikla áherslu á að kveða niður þennan til- búna atvinnuleysisdraug sem vakinn var upp vegna mistaka. -HKr./-BG/-aþ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.