Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2001, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2001
DV
Fréttir
Flugleiðir:
Einhverjar
afbókanir
Eitthvað hefur
borið á afhókunum
hjá Flugleiðum í
kjölfar innrásar-
innar í Afganistan í
gær.
Guðjón Am-
grimsson, upplýs-
ingafulltrúi félags-
ins, sagði við DV að
ekki væri hægt að
tala um miklar af-
bókanir. Fólk afbókaði flug einkum af
tveimur ástæðum. Annars vegar væri
það hreinlega að hætta við að eigin
frumkvæði, hins vegar að verið væri
að fella niður ráðstefnur og fleiri við-
burði úti í heimi sem fólk hefði ætlað
sér aða sækja.
„Bókanatölumar gefa til kynna að
það hefur eitthvað gerst,“ sagði Guð-
jón, „en þetta er ekkert hrun.“
Hann kvaðst ekki geta nefnt tölur um
afbókanimar, en þær væm meira áber-
andi í flugi milli Bandaríkjanna og Evr-
ópu heldur en til og frá íslandi. -JSS
Ey j af j arðarsveit:
llla bitnar kindur
„Þetta eru þungar búsifiar,“ segir
Finnur Aðalbjörnsson, bóndi í Háa-
gerði í Eyjafjarðarsveit. Níu kindur
af sextán, sem hann hefur látiö
slátra það sem af er hausti, reynd-
ust illa bitnar. Hann óttast að sama
gildi um annað fé sem hann á eftir
að senda til slátrunar, en það telur
á sjötta tug. Þá lenti nágranni Finns
i því í vor að koma að gæsfuglum
sínum hausbitnum.
Óvíst er hver dýrbíturinn er, en
margir heimamenn segja ákveðinn
hund liggja undir grun.
„Hundurinn minn mætti ef til vill
vera betur taminn," segir Benjamín
Baldursson, bóndi á Ytri-Tjörnum,
sem á hinn grunaða hund. „Sá er
border collie og er fjörmikill, en
bítur ekki fé það best ég veit.“ -sbs
__________:______:________
Smáralind á morgun:
Hætta á um-
ferðarhnútum
Rannveig Guðmundsdóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, lýsti á Al-
þingi yfir áhyggjum af því ástandi sem
kynni að skapast i umferðarmálum í
Kópavogi eftir að Smáralind verður
opnuð á morgun. Rannveig benti á að
50.000-200.000 gestir væru á leið í þetta
63.000 fermetra húsnæði á einni viku
og lengi hefði verið ljóst að mannvirk-
ið myndi gjör-
breyta umferðar- 1
málum í Kópavogi.
Rannveig taldi
hættu á umferðar- !
hnútum og sagði
að þótt gripið hefði
verið til ráðstaf-
ana vegna Smára-
lindar þyrfti að |
gera betur ef duga
skyldi.
Sturla Böðvars- |
son samgönguráðherra svaraði að
unnið væri ötullega að lausn þeirra
vandamála sem kynnu að koma upp
vegna breyttrar umferðar. Hann væri
bjartsýnn á útkomuna en sagði um-
ferðarmannvirki feiknalega kostnaðar-
söm og því skipti miklu að velja rétt. -
BÞ
Rannveig
Guðmundsdóttir.
Guðjón
Arngrímsson.
Fyrirhuguð hækkun innritunargjalda við HÍ:
Ekkert annað
en skólagjöld
- segja þingflokksformenn stjórnarandstöðunnar
Þingflokkur Samfylkingarinnar
hefur óskað eftir utandagskrárum-
ræðum um þá fyrirhuguðu hækkun
innritunargjalda við Háskóla ís-
lands sem gert er ráð fyrir í Qár-
lagafrumvarpinu. Stjórnarandstöðu-
flokkarnir eru sammála um að þessi
hækkun þýði í raun og veru að ver-
ið sé að taka upp skólagjöld við Há-
skólann.
Óafgreitt innan Framsóknar-
flokksins
Að sögn Sigríðar Önnu Þórðar-
dóttur, þingflokksformanns Sjálf-
stæðisflokksins, er ekki hægt að
segja neitt um málið á þessari
stundu annað en að það sé til um-
ræðu í þinginu. Hjálmar Árnason,
varaþingflokksformaður Framsókn-
arflokksins, segir að málið hafi
tvisvar verið rætt í þingflokknum
en hann hafi enn ekki afgreitt mál-
ið frá sér. „Það segir í raun allt sem
segja þarf,“ segir Hjálmar.
Guðjón A. Kristjánsson, þing-
flokksformaður Frjálslynda flokks-
ins, segir að flokkurinn sé alfarið á
móti því að innritunargjöld við Há-
skólann séu hækkuð. „í raun og
veru er verið að lauma inn í dul-
búnum skólagjöldum með því að
hækka innritunargjöld langt um-
fram það sem eðlilegt getur talist,"
segir Guðjón.
Vafasöm afmælisgjöf
Ögmundur Jónasson, þingflokks-
formaður Vinstri hreyfingarinnar -
græns framboðs, segir að ef þessi
hækkun verði samþykkt verði það
Guðjón A.
Kristjánsson.
tvímælalaust
gegn atkvæðum
þingflokks
vinstri-grænna.
Hann segir að
greinilega sé um
skólagjöld að
ræða því nota
eigi hluta af pen-
ingunum til að
fjármagna starf-
semi skólans og
það sé ólöglegt. Einnig telji hann að
það sé röng stefna að taka upp
skólagjöld á íslandi í almennum
skólum og þar með talið Háskólan-
um. Þessi afmælisgjöf ríkisstjórnar-
innar til Háskóla íslands á 90 ára af-
Háskóli íslands.
Hjálmar Sigríður Anna
Árnason. Þórðardóttir.
mæli hans sé vafasöm og gangi
þvert á óskir yfirstjórnar skólans og
háskólastúdenta sem þúsundum
saman hafi skrifað undir áskorun
til ríkstjórnarinnar. „Við lítum svo
á að þetta sé rangt hvernig sem á
málið er litið og hvetjum ríkis-
stjórnina til að falla frá þessum
áformum sínurn," segir Ögmundur.
Þingflokkur Samfylkingarinnar
telur mikilvægt að allir landsmenn
njóti jafnréttis til náms og segir
Bryndís Hlöðversdóttir, þingflokks-
foi-maður flokksins, að hann telji að
erfitt sé að nálgast það markmið ef
tekin verða upp skólagjöld. í raun
og veru sé ekki um eiginleg skóla-
gjöld að ræða heldur hækkun á inn-
ritunargjöldum. „Við gjöldum mjög
varhug við því að fara þessa leið og
teljum að þetta sé það mikil hækk-
un að þessu megi jafni að minnsta
við skólagjöld," segir Bryndís og
bætir við að Samfylkingin vari við
þeirri þróun. Frekar eigi að auka
fjárframlög til menntamála þannig
að tryggt sé að allir geti stundað
nám óháð efnahag. Bryndís vonar
að utandagskrárumræða um málið
geti farið fram í þessari eða næstu
viku. -MA
Bryndís
Hlöóversdóttir.
A
Ogmundur
Jónasson.
Mislæg gatnamót á Reykjanesbraut opnuö formlega.
Helgi Hallgrímsson vegamálastjóri afhenti samgönguráðherra, borgarstjóra Reykjavikur og bæjarstjóra Kópevogs
mannvirkið í gær við hátíðlega athöfn.
Ný brú á Reykjanesbraut:
Auðveldar umferð 50 þúsund bíla
- reiknað með tvöföldun umferðar innan 30 ára
Síðdegis í gær voru mislæg gatna-
mót Breiðholtsbrautar, Nýbýlavegar
og Reykjanesbrautar opnuð formlega.
Helgi Hallgrímsson vegamálastjóri
flutti ávarp og afhenti samgönguráð-
herra, borgarstjóra Reykjavíkur og
bæjarstjóra Kópavogs mannvirkið til
notkunar. Að því loknu var klippt á
vígsluborða, girðingar fjarlægðar og
ekið um nýju gatnamótin. Áætlað er
að um 50 þúsund bifreiðar fari um
þessi gatnamót á hverjum sólarhring.
Gert er ráð fyrir að bílaQöldinn auk-
ist i 100 þúsund á sólarhring fyrir
árið 2030.
Með tilkomu nýju gatnamótanna
verður umferð um Reykjanesbraut
hindrunarlaus. Hins vegar mætast
Breiðholtsbraut og Nýbýlavegur á
brú yfir Reykjanesbraut og er umferð
þar stýrt með ljósum. Fjórar að- og
fráreinar tengja brúna við Reykjanes-
braut. Þá er einnig önnur brú yfir
Álfabakka.
Brúin yfir Reykjanesbrautina er
steinsteypt, 35 metra löng yfir tvö höf,
með steyptum millistöpli og enda-
stöplum. Breidd brúarinnar er allt frá
35 metrum upp í 65 metra þar sem
hún er breiðust. Álfabakkabrúin er
hins vegar 40 metrar á breidd og 14 til
20 metrar á lengd.
Mannvirkið kostar um 1.200 millj-
ónir króna og í það fóru 4.750
rúmmetrar af steypu. Þá voru notuð
63 tonn af spennistáli við mannvirkja-
gerðina og 620 tonn af steypustyrktar-
járni. Grafnir voru út 130 þúsund
rúmmetrar af jarðvegi vegna verks-
ins en í fyllingar fóru 190 þúsund
rúmmetrar af efni. Lagðir voru 4.200
metrar af regnvatnsræsum og lagðir
90 þúsund fermetrar af malbiki á brýr
og aðliggjandi vegi. -HKr.
Snöip orðaskipti
Þingflokkur Sam-
fylkingarinnar hefur
lagt fram frumvarp
um breytingar á lög-
um um stjóm fisk-
veiða. Kom til
snarpra orðaskipta
um fiskveiðistjórn-
unina og stöðu sjáv-
arbyggða á Alþingi í gær. Snerist um-
ræðan að mestu um nýlegar niðurstöð-
ur endurskoðunamefndar og umdeOda
kvótasetningu á smábáta.
Rannsókn ólokið
Rannsókn er ekki lokið en verið er að
skoða ýmsa þætti í kringum atburðinn,
segir Svanur Elísson hjá tæknideild lög-
reglunnar í Reykjavík um sprenginguna
sem varð i Áburðarverksmiðjunni í
Gufunesi 1. október sl. Efnaframleiðslu
hefur verið hætt í verksmiðjunni. -
Fréttablaðið greindi frá.
Fjórir varamenn
í gær tóku fjórir varamenn sæti á
þingi, þar af þrír sem ekki hafa setið
þar áður. Nýju þingmennimir eru Ár-
mann Höskuldsson, Örlygur Hneflll
Jónsson og Ólöf Guðný Valdimarsdótt-
ir. Þá settist Björgvin Sigurðsson, 2.
varaþingmaður Samfylkingarinnar í
Suðurlandskjördæmi, i sæti Lúðvíks
Bergvinssonar.
Nærbuxnaþjófar
Mikil ásókn virðist vera í kvennær-
buxur hjá þjófum i Reykjavík. Á
sunnudag var komið að manni sem
var að róta í fatnaði úr þvottavél.
Fundust á manninum tvennar
kvennærbuxur. Um síðustu helgi var
innbrotsþjófur gómaður með femar
kvennærbuxur. Einnig var farið inn í
tvö ibúðarhús við Bárugötu og þaðan
stolið kvenmannsnærfatnaði.
Geðheilbrigöismál í forgang
Davíð Oddsson for-
sætisráðherra segir
að samstaða sé um
það innan ríkisstjórn-
arinnar að setja að-
gerðir í geðheilbrigð-
ismáliim í ákveðinn
forgang á sviði heil-
brigðismála. Þess
í meðfóram þingsins á
greindi frá.
Ekið á hross
Ökumaður bifreiðar sem var á
leið um Skeiðaveg í Árnessýslu
seint í gærkvöldi ók skyndilega inn
í hrossahóp á veginum og tókst ekki
að forðast árekstur.
Bifreiðin hafnaði á einu hross-
anna og brotnaði það svo illa að af-
lífa varð það á staðnum. Bifreiðin
skemmdist mikið en ökumaður,
sem var einn á ferð, slapp án
meiðsla.
Ekiö á hross
Ökumaður bifreiðar sem var á
leið um Skeiðaveg í Árnessýslu
seint í gærkvöldi ók skyndilega inn
í hrossahóp á veginum og tókst ekki
að forðast árekstur. Bifreiðin hafn-
aði á einu hrossanna og brotnaði
það svo illa að aflifa varð það á
staðnum. Bifreiðin skemmdist mik-
ið en ökumaður, sem var einn á
ferð, slapp án meiðsla.
Framííö Vatnsmýrar
Þróunar- og Qöl-
skyldusvið Reykja-
víkurborgar og Borg-
arfræðasetur standa
fyrir fúndi um fram-
tíð Vatnsmýrar á
morgun, miðviku-
dag. Þar munu Ingi-
björg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri, Páll Skúlason há-
skólarektor, Árni Þór Sigurðsson, for-
maður skipulagsneftidar Reykjavíkur,
og Stefán Ólafsson, forstöðumaður
Borgarfræðaseturs, flytja erindi. -gk
muni sjást merki
næstunni. - Mbl.