Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2001, Blaðsíða 9
9
ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2001_______________________________________________________________________________________________
I>V Útlönd
Stórar sprengjuvélar
B1, B2 og B-52 sprengjuvélar geröu
haröar sprengjuárásir á mikilvæg m
skotmörk talibana. m
Mazar-i-Sharif
B2 Spirit torséð
sprengjuflugvél
Bagram
Herat
Jalalabad
'0
Islamabad
Kandahar
Gerö: Stýriflaug sem
skotiö er úr flugvél.
Lengd: 6,32 m.
Pyngd: 1.458 kg.
Sprengiefni: 450 kg.
Drægni: 2.500 km. .
ARASIR BANDARIKJAMANNA OG BRETA A AFGANISTAN
Bandaríkjamenn og Bretar hófu loftárásir á skotmörk vitt og breitt um Afganistan á sunnudagskvöld.
Hersveitir afgönsku stjórnarandstööunnar réöust skömmu síðar gegn vígstöövum talibanastjórnarinnar í norðan- og sunnanveröu Afganistan.
SKOTMORKI FYRSTU LOFTARASUNUM
Tomahawk
REUTER-MYND
Félaginn borinn burt
Palestínsk ungmenni bera burt lík fé-
laga síns sem var skotinn í átökum
við palestínsku lögregluna á Gaza.
Tveir stuðnings-
menn bin Ladens
drepnir á Gaza
Heimastjórn Palestínumanna til-
kynnti að rannsókn yrði hafin á því
þegar tveir Palestínumenn voru
skotnir til bana í gær í átökum við
palestínska lögregluþjóna i mót-
mælaaðgerðum til stuðnings Osama
bin Ladens.
Mennirnir tveir voru skotnir til
bana og tugir særðust á Gaza þegar
þúsundir manna söfnuðust saman
þar og á Vesturbakkanum í kjölfar
loftárása Bandaríkjamanna á
Afganistan.
Átökin i gær þykja til marks um
ágreining milli heimastjórnarinnar
annars vegar og harðlínumúslíma
hins vegar um herferð Bandaríkja-
manna gegn hryðjuverkamönnum.
Ráðamenn í
Pakistan og Ind-
landi tala saman
Pervez Musharraf hershöfðingi,
forseti Pakistans, hringdi óvænt í
Atal Behari Vajpayee, forsætisráð-
herra Indlands, í gær og hvatti til
þess að löndin tvö, sem lengi hafa
eldað grátt silfur, sneru bökum sam-
an í baráttunni við hryðjuverka-
menn.
Pakistanar og Indverjar, sem
hvorir tveggja ráða yfir kjarnavopn-
um, hafa skipað sér í lið með Banda-
ríkjamönnum í baráttunni við
hryðjuverk. Spenna hefur þó farið
vaxandi milli landanna að undan-
fómu vegna langvarandi deilna um
yfirráð í Kasmír.
REUTER-MYND
Ridley komin til Pakistans
Breska blaðakonan Yvonne Ridley
sagði talibana hafa verið kurteisa.
Bresk blaðakona
glöð að vera laus
úr haldi talibana
Breska blaðakonan Yvonne
Ridley, sem talibanar i Afganistan
höfðu í haldi í tíu daga, sagði við
komuna til Pakistans í gær að sér
liði vel og að hún væri glöð að vera
komin frá Afganistan.
Embættismenn talibana fylgdu
Ridley frá Kabúl til landamæranna
að Pakistan. Ridley var handtekin í
lok september fyrir að fara ólöglega
inn í Afganistan.
„Ég hef það flnt. Þeir komu fram
við mig af virðingu og kurteisi,"
sagði hin 43 ára gamla Ridley þegar
hún var spurð um vistina hjá tali-
bönum.
Sky sjónvarpsstöðin hafði í morg-
un eftir Ridley að hún hefði farið í
hungurverkfall.
i vmru inii iv i lwvjwixu i i i
„Læknar án landamæra" segja að neyðaraðstoð Bandaríkjamanna sé hernaðaráróður:
„Skjóta með annarri hend-
inni en hjálpa með hinni"
Frönsku hjálparsamtökin „Læknar
án landamæra" sendu frá sér yfiriýs-
ingu i gær þar sem segir að „svoköll-
uð neyðaraðstoð" samhliða loftárás-
um Bandaríkjamanna og Breta á
Afganistan sé ekkert annað en „hern-
aðaráróður" til að réttlæta árásirnar.
Bandaríkjamenn vörpuðu í gær alls
37.500 matarpökkum í fallhlífum úr
tveimur flutningavélum til hjálpar
sveltandi Afgönum, auk þess sem ætl-
unin var að varpa einnig niður lyfjum
og sjúkragögnum. t yfirlýsingu sam-
takanna segir að aðgerðin sé á engan
hátt í anda neyðarhjálpar heldur ekk-
ert annað en hernaðaráróður Banda-
ríkjamanna til að hljóta samþykki al-
þjóðasamfélagsins fyrir loftárásunum.
„Að varpa pökkum með mat og lyfj-
um með þessum hætti er ekki til mik-
ils árangurs og hreinlega hættulegt.
Hvaða vit er í þvi að skjóta með ann-
ari hendinni en rétta fólkinu hjálp
með hinni?“ segir í yfirlýsingunni.
Matarpakkarnir sem varpað var nið-
ur til fólksins í gær, sem er einn dag-
skammtur, innihalda að minnsta kosti
2200 kalóríur og eiga Bandaríkjamenn
um tvær milljónir þeirra á lager. Pakk-
arnir eru hannaðir þannig að þeir eiga
að svífi til jarðar frekar en falla beint,
þannig að slysahætta af þeim ætti að
vera lítil. Þeir eru í laginu eins og bók
og matseðillinn er samsettur að hætti
múslima, þannig að ekkert ætti að fara
til spillis af trúarlegum ástæðum, en
innihaldið er: Baunasalat, hrísgrjón og
baunir, kex, hnetusmjör, rúsinur, flat-
brauð, jarðarberjamauk og eplastöng
ásamt hnífapörum.
Að sögn Donalds H. Rumsfelds,
varnarmálaráðherra Bandaríkjanna,
er þetta aðeins byrjunin á 320 millj-
óna dollara hjálp sem Bush Banda-
ríkjaforseti fékk samþykkt í þinginu
til handa afgönsku þjóðinni. „Forset-
inn. hefur fyrirskipað að matarpökk-
Hungursneyöin í Afganistan er hörmuleg
Talið er að um 7,5 milljónir manna séu hjálpar þurfí í Afganistan og að talan muni enn hækka þegar vetur gengur i
garð. Hér á myndinni sjáum við ung afgönsk börn sem eru aðframkomin af hungri við landamæri Pakistan.
unum verði varpað niður til fólks á
þeim svæðum þar sem þörfln er mest
og það höfum við verið að gera,“ sagði
Rumsfeld.
Hann sagði ennfremur að innifalið
i framlagi Bandaríkjastjórnar væru
þær 25 milljónir dollara sem ætlaðar
væru tO aðstoðar því flóttafólki sem
þegar er komið í flóttamannabúðir
eða á leiðinni að landmærum ná-
grannalandanna. „Andvirði 295
milljón dollarar sem þá eru eftir
verða nýttir í pakkadreifinguna, auk
þess sem hluti fjármagnsins rennur
til hjálparstarfs Sameinuðu þjóðanna
og Rauða krossins," sagði Rumsfeld
og bætti við að þar fyrir utan hefðu
bandarísk stjórnvöld áður lagt 170
milljónir doúara til hjálparstarfs í
Afganistan fyrr á árinu og væri það
hæsta upphæð sem einstök þjóð hefði
fengið til aðstoðar.
Miðað við aukinn flóttamanna-
straum í kjölfar sprengiárásanna tvo
síðustu daga er ljóst að þörfm fyrir
neyðarhjálp hefur aukist til muna og
er giskað á að um 7,5 milljónir Afgana
séu nú hjálpar þurfi sem er um
fjórðungur þjóðarinnar. Mikill
straumur liggur til allra landmæra og
til dæmis var ætlað að um 2,4
milljónir manna hæfust þegar við í
flóttamannabúðum í íran.
Kabúl
Skotið á landvarna-
ráðuneytið í 2 árásum.
Kandahar
Ráðist á stjórnstöð
talibana á flugvellinum.
Zaranj
Bardagar brutust út við
andstæöinga talibana.
Breskur
kjarnorkukafbátur
George W. Bush Bandaríkjaforseti
sagði á sunnudag að meira en 40
löndhefðu veitt yfirflugs- eða
lendingarheimildir til að leggja
baráttunni gegn talibönum lið.
Fyrsta lota árásanna í aðgeröunum „Varanlegt frelsi"
Sprengjuvélar 15
Arásarvélar
Stýriflaugar
Kafbátar
Herskip
25
50
B-2 torséðar sprengjuvélar
flugu án viðkomu frá BNA.
B-1 og B-52 sprengjuvélar
frá Diego Garcia.
Frá flugmóðurskipum BNA.
Bandarísk og bresk skip og breskir
kafbátar skutu stýriflaugum.
REUTERS #
Gerö: Stýriflaug til
árásaálandi.
Lengd: 6,00 m.
Pyngd: 1.900 kg.
Sprengiefni: 453 kg.
Drægni: 1.600 km.
Skýringar
Loftárásir
Barist á jörðu