Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2001, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2001, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2001 DV Fréttir Þórarinn V. Þórarinsson áfram í forstjórastóli Landssíma: Varla glæpsamlegt að eiga kunningja - fáránleg umræða, segir forstjórinn og víkur úr stjórnum félaga Þórarinn V. Þórarinsson sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfar frétta af mögulegum hagsmunaárekstr- um og vanhæfni hans sem for- stjóra Landssímans. Kom þetta upp er ljóst var að Opin kerfi, sem hann tengist, sýndu áhuga á að vera í hópi mögulegra kjölfestu- fjárfesta við sölu Landssímans. Þórarinn segist aldrei hafa komiö að umræðum eða ákvörðunum er snertu tengsl hans og fjárfesta í samskiptum Landssímans eða annarra fjarskiptafyrirtækja. Það hafi hann ekki gert síðan hann kom að stjómun í Landssima ís- lands hf. Þá segir í yfirlýsingu Þórarins: „í tilboðsferlinu sem fram undan er er afar mikilvægt að enginn efist um að fyllstu hlutlægni verði gætt á öllum sviðum og ekkert í umgjörð mála geti gefið er- lendum bjóðendum tilefni til að efast um það. Ég hef því ákveðið að segja mig frá stjórnarstörfum í Þróunar- félaginu og Framsýn. Með þessari ákvörðun vil ég undirstrika að enginn vafi leiki á að í störfum mínum sem forstjóri Landssímans hef ég engra annarra hags- muna að gæta en hagsmuna Lands- símans og eigenda hans.“ í DV í gær var sagt frá því að mikill persónulegur kunningsskap- ur væri með Þórarni Viðari og Frosta Bergssyni, stjórnarformanni Opinna kerfa. Þá er Þórarinn for- maður Lífeyrissjóðsins Framsýnar, sem er einn sá stærsti í landinu, og eigandi í Opnum kerfum. Hann hefur einnig verið varaformaður Þróunarfé- lagsins sem á um fjórðung í Opnum kerfum. Hafa þessi tengsl Þórar- ins þótt mjög vandræðaleg og mikið verið rædd innan stjórnar Landssímans. Þar var rætt um að Þórarinn léti af stjórnarsetu í félög- um sem tengjast Opnum kerfum eða segði tímabundið af sér forstjórastöðu í Landssímanum. Hann hefur nú valið fyrri kostinn. Kunnugir telja að staða hans sé eigi að síður veik í komandi söluferli fyrirtækisins vegna tengsla forstjór- ans við Opin kerfi. Þórarinn V. Þórarinsson sagðist í samtali við DV síðdegis í gær ekki vilja dæma um hvort sin staða væri veik eða ekki. „Það liggur ekkert fyrir um það nú hvort Opin kerfi verða meðal bjóðenda þegar óskuldbindandi til- boð verða opnuð þann 22. október. í öðru lagi á ég engra hagsmuna að gæta annarra en að reka Símann vel og gera hann að betra fyrirtæki í dag en í gær. Það er sú áhersla sem ég legg á málið.“ - Óttast þú ekkert að menn hafi efasemdir vegna kunningsskapar þins við Frosta Bergsson? „Ég ætla það ekki að nokkrum manni detti það í hug að í okkar litla íslenska samfélagi sé það orðið glæpsamlegt að eiga kunningja. Sú umræöa er beinlínis fáránleg," seg- ir Þórarinn V. Þórarinsson. -HKr. Þórarinn V. Þórarinsson. pamli forsetabíllinn: Óvíst um verklok Enn er unnið að þvi að gera upp gamla forsetabílinn sem notaður var í forsetatíð Sveins Björnssonar. Bil- greinasambandið hafði frumkvæði að verkefninu ásamt Fombílaklúbbnum og í upphafi var stefnt að því að viðgerðun- um yrði lokið þann 17. júní árið 2000. Sævar Pétursson bifvélavirki sem er að gera bílinn upp segir að verkefni hafl teki lengri tíma en talið var, þar sem erfitt hafi verið að fa varahluti í bílinn og þurft hafi að smíða yfirbygginguna meira og minna frá grunni. Bíllinn er af tegundinni Packard og var framleiddur árið 1942. „Menn gerðu sér enga grein fyrir því í upphafi hversu erfitt væri að útvega varahlutina,“ segir Sævar sem er einmitt á leið til Bandaríkjanna í vik- unni, meðal annars til að reyna að fá varahluti í bílinn. Ástæðan fyrir því hversu erfitt er að útvega varahluti má rekja til þess að ekki voru framleiddir margir slíkir bíl- ar á sínum tíma og að verksmiðjumar vom lagðar niður fljótlega eftir stríð. Sævar segir enn ekki ljóst hvenær verk- inu verði að fullu lokið og það fari alveg eftir því hvað fjármagnið leyfi. „Tíminn verður bara að leiða það í ljós hvenær verkinu verður lokið," segir Sævar sem ætlar sér að halda áfram að vinna við bílinn. -MA. DV-MYND ÞÓK Gamli forsetabílllnn Lengri tíma hefur tekiö aö gera bílinn upp en áætlaö haföi veriö. Veðriö í kvöld • *.W"' Væta í dag Snýst í suðvestan 10-15 m/s meö skúrum vestan til en suöaustan 13-18 og rigníng annars staðar. Lægir og léttir til austanlands T kvöld og nótt. Hiti 7 til 13 stig. Sólargangur og sjávarföll REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 18.29 Sólarupprás á morgun 08.03 Síödeglsflóó 23.03 Árdegisflóó á morgun 11.47 18.11 07.51 15.01 03.36 Skýrlngar á veðurtáknum ,“r” 3£ ~^VINDSTYRKUR HQOSKÍR ■*fc> 353 O LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKYJAD SKÝJAÐ AISKÝJAD w W? o 4 Ö RIGNING SKÚRIR SIYDDA SNJÓKOMA Q = ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐÚR SKAF- RENNINGUR ÞOKA Slæmt ferðaveður á hálendinu Ekki er vitað annað en vegir landsins séu færir en ferðaveöur er víöa slæmt. Til dæmis er búist viö stormi á miðhálendinu í dag eöa meira en 20 metrum á sekúndu. Léttskýjað fyrir norðan og austan Suövestan 5-10 og skúrir sunnan og vestan til en hægari og léttskýjaö fyrir noröan og austan. Hiti 2 til 7 stig. Föstud Vindur: 5-10 m/*\ Hiti 2° til 10° Laugard i2il Vindur: "1-'\ 3—8 in/s Hiti 0° til 5° Sunnud m Vindur: ( 5-10 m/*\ Hiti 0° t«l 4° Sunnan og suövestan 5-10 m/s og skúrir sunnan- og vestanlands en léttskýjaö noröaustan og austan til. Hiti 2 til 7 stig. Breytileg átt, 3-8 m/s og víöa skúrir eöa slydduél. Hiti 0 til 5 stlg. Lítur út fyrir vaxandi noröanátt meö slyddu eöa rigningu noröanlands. Annars úrkomulítíö. Hiti 0 til 4 stig. Fulltrúar Evrópuþings: Kynntu sér vistvæna orku Fulltrúar Evrópuþingsins, fram- kvæmdastjórnar Evrópusambands- ins og nokkurra erlendra stórfyrir- tækja voru í heimsókn hérlendis í síðustu viku til að kynna sér notk- un íslendinga og rannsóknir á um- hverfisvænni orku. Hópurinn verð- ur hér á landi fram á sunnudag og er sérstök áhersla lögð á að kynna þeim rannsóknir á vetni. Tilefni þessa er að á umliðnum árum hefur ísland lagt sérstaka áherslu á framleiðslu umhverfis- vænnar orku. Má nú rekja 68% af orkunotkun hér á landi til endur- nýjanlegrar orku, sem er hæsta hlutfall innan Evrópu. Þessi sér- staða hefur vakið athygli innan Evr- ópu sem og á alþjóðavettvangi og hefur áhugi vaknað á þessu máli hjá þingmönnum Evrópuþingsins, ekki síst „hreinni“ framleiðslu á vetni með jarðhita eða vatnsorku í stað kolvetnissambanda eða kjarnorku, sem og verkefni er snúa að nýtingu á vetni sem aflgjafa á almennings- farartæki. Af þessu tilefni kom fram tillaga frá Evrópuþinginu, Orku- stofnun Evrópu sem og frá erlend- um stórfyrirtækjum um aö halda sérstakan fund á íslandi er fjallaði um orkugjafa framtíðar, með áherslu á sérstöðu íslands. Það var iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið sem sá um skipulagningu fundar- ins. -BG Villinganesvirkjun: 31 athugasemd til Skipulags- stofnunar DV, SKAGAFIROI: ~ Þrjátíu og ein athugasemd barst Skipulagsstofnun ríkisins vegna umhverfismatsskýrslu um Villinga- nesvirkjun en frestur til að skila inn athugasemdum rann út um miðja síðustu viku. Að sögn Sigurðar Ásbjörnssonar hjá Skipulagsstofnun mun væntan- lega liggja fyrir í lok þessa mánaðar hvort hún fellst á virkjun Jökulsár vestari við Viliinganes, með eða án skilyrða. Sigurður sagði að eftir væri að fara yfir athugasemdirnar sem sendar hefðu verið fram- kvæmdaaðilanum, Rarik, fyrir hönd Héraðsvatna, sem heföi viku til aö skila rökstuðningi vegna athuga- semdanna. Samkvæmt þeim reglum sem gilda varðandi gang mála hefur Skipulagsstofnun fjórar vikur frá því að skilafrestur athugasemda rennur út til að meta þær og taka af- stöðu til málsins í heild. -ÞÁ 1K AKUREYRI skýjaö 11 BERGSSTAÐIR rigning 10 BOLUNGARVÍK skúr 12 EGILSSTAÐIR léttskýjaö 3 KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö 9 KEFLAVÍK rigning 9 RAUFARHÖFN léttskýjaö 6 REYKJAVÍK rigning 10 STÓRHÖFÐI rlgning 9 BERGEN skúr 12 HELSINKI rigning 13 KAUPMANNAHÖFN léttskýjað 11 ÓSLÓ alskýjaö 12 STOKKHÓLMUR þokumðöa 11 ÞÓRSHÖFN alskýjaö 9 ÞRÁNDHEIMUR lágþokublettir 6 ALGARVE heiöskírt 12 AMSTERDAM skúr 13 BARCELONA skýjaö 16 BERLÍN skýjaö 11 CHICAGO skýjaö 14 DUBLIN skýjaö 10 HAUFAX léttskýjaö 4 FRANKFURT skýjaö 11 HAMBORG léttskýjaö 11 JAN MAYEN þokumóöa 5 LONDON skýjaö 11 LUXEMBORG skýjaö 8 MALLORCA skýjaö 7 MONTREAL heiöskírt 3 NARSSARSSUAQ rigning 4 NEWYORK heiöskírt 9 ORLANDO skýjaö 23 PARÍS hálfskýjaö 11 VÍN þokumóöa 15 WASHINGT0N heiöskírt -1 WINNIPEG léttskýjað 5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.