Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2001, Side 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2001
Skoðun 3>V
Styrktirðu Skjá 1?
Hvers konar heim viljum við?
„Hseg eru
heimatökin“
Ekki einsdæmi
Hryðjuverk eru engin einsdæmi á okkar tímum og framin bæði af
einstökum hópum og ríkjum.
Hlynur Einarsson nemi:
Nei, það geröi ég ekki.
Róbert Skúlason nemi:
Já, þetta er besta sjónvarpsstööin.
Eiríkur Sigurösson nemi:
Já, frábærir þættir á stöðinni.
Jónatan Jónasson nemi:
Nei, er fátækur námsmaður.
Sólveig Þorvaldsdóttir nemi:
Nei, á ekki pening, en gæti samt
ekki verið án stöðvarinnar.
Kristján Breiöfjörö nemi:
Nei, er svo fátækur, en hefði
annars gert það.
Helgi Jönsson,
ellilífeyrísþegi og fyrrverandi
starfsmaður RARIK:
Nú þegar nokkur tími er liðinn
síðan voldugustu musteri auðhyggju
og hervalds voru brotin, með hörmu-
legum afdrifum saklausra manna,
tími liðinn frá því að öll heimsbyggð-
in, bæði vinir og andstæðingar
Bandaríkjanna, sameinuðust í
hryggð yfir örlögum þeirra sem lét-
ust, og fordæmingu á hryðjuverkum,
er ástæða til að skyggnast um. Það
er eðlilegt að reiði hafi blandast
sorginni, jafnvel hefndarhugur. En
voru viðbrögð fjölmiðla og valda-
manna skynsamleg? Sjá þeir mögu-
leikann sem samhugur allra þjóða
felur í sér til að móta betri samskipti
rikja en við búum við? Sú samstaða
gæti verið tækifæri til umburðar-
lyndari samskipta um alla heims-
byggðina ef við viljum. Eða erum við
bara ánægð með sjálf okkur?
' Sú samstaða hryggðarinnar sem
skapaðist um allan heiminn kom
innan frá. Hún var einstaklings-
bundin og fól í sér fordæmingu á aö-
ferðum eins og hryðjuverkum. Sam-
staða refsigleðinnar sem fjölmiðlar
og stjómmálaforingjar hafa alið á er
annars eðlis. Hún er meira í ætt við
hefndarskylduna þar sem valda-
miklir menn söfnuðu liði, mútuðu
og hótuðu þeim sem ekki tóku þátt
i hefndinni. Hryðjuverk eru engin
einsdæmi á okkar tímum og framin
bæði af einstökum hópum og ríkj-
um. Leyniþjónustur stórveldanna
eru skýrt dæmi um það. Ráðamenn
mættu því líta i eiginn barm áður
en þeir hugsa til hefnda. Greinilega
er mikil spenna í heiminum, bæði
efnahagsleg og hugmyndafræðileg.
Á meðan stór hluti heimsins býr við
ofgnótt en annar við allsleysi er
ekki sátt um skiptingu jarðargæð-
anna. Það sem gerðist gæti gerst aft-
ur ef lífskjörin í heiminum verða
Sigurjön Jónsson
skrífar:
Nú er Milosevic kominn bak við
lás og slá og verður vonandi dæmd-
ur af verkum sínum. En því miður
það eru víðar framin voðaverk en á
Balkanskaganum. Meðferð ísraels-
manna á palestínsku þjóðinni eru
svo hroðaleg að með ólíkindum er.
Maður trúði því virkilega að slik
grimmdarverk hefðu horfið af yfir-
borði jarðarinnar með nasistaböðl-
unum. En það er nú eitthvað annað,
nú birtast þeir aftur ljóslifandi,
flaggandi stjörnu Davíðs og fram-
ganga þeirra eins og S.S. sveitanna
og Gestapo þar sem þær höguðu sér
verst í hernumdum löndum síðari
heimsstyrjaldarinnar. Neðar í
ómennskunni verður ekki komist.
ísraelski herinn drepur börn og
„Á meðan stór hluti heims-
ins býr við ofgnótt en annar
við allsleysi er ekki sátt um
skiptingu jarðargœðanna.
Það sem gerðist gæti gerst
aftur ef lífskjörin í heimin-
um verða ekki jöfnuð. “
ekki jöfnuð. Ekkert lögregluríki get-
ur hindrað það.
Fólkið í heiminum vill ekki heim
hryðjuverka, hvorki af hendi van-
máttugra ríkja eða þegna þeirra né
voldugra hervelda. Það kom athygl-
isverð frétt i Sjónvarpinu þar sem
sagt var frá skoðanakönnun meöal
Skólum er lokað, herinn
misþyrmir föngum og
svona mœtti áfram telja.
unglinga sem kasta grjóti, hann set-
ur sölubann á afurðir Palestínu-
manna svo þær grotni, hann setur
útgöngubann á heilu borgirnar hálfu
og heílu sólarhringana, hann sendir
jarðýtur til að eyða heimilum
manna, hann gerir út sérstakar
morðsveitir til að taka leiðtoga
Palestínumanna af lífi, hann lokar
fyrir vatn og tekur rafmagn af í tíma
og ótíma, hann stundar gripdeildir á
heimilum þeirra og fyrirtækjum.
Skólum er lokað, herinn misþyrmir
fongum og svona mætti áfram telja.
Allt hugsanlegt er gert til að
kvelja fólkið og gera líf þess sem
Bandaríkjamanna eftir hryðjuverk-
iö 11. september þar sem í ljós kom
að fólk sem um sárast átti að binda
lagði minni áherslu á hefnd en þeir
sem fjær voru verknaðinum. Ein
kona komst svo að orði að við vild-
um ekki svona heim.
Einu sinni var annar turn,
Babelsturninn, sem menn höfðu
reist af ofmetnaði yfir valdi sínu og
snilli og átti að ná til himins. Guði
mislíkaði ofdramb þeirra og ruglaði
tungumál þeirra og tvístraði þeim
um jörðina. Skyldi einhverjum trú-
uðum manni hafa dottið Guð í hug
þegar mynd af Babelsturninum birt-
ist á forsíðu sunnudagsblaðs Morg-
unblaðsins 16. september?
óbærilegast. Og hvað hefur nú þetta
fólk unnið til saka. Jú, það neitar að
láta flærna sig burt af því landi sem
það hefur byggt mann fram af
manni öldum saman til að rýma fyr-
ir Gyðingunum. Nú er svo komið að
Gyðingar hafa lagt undir sig nær
allt landið, liklega yfir 80% af þeim
litlu skikum sem Palestínumenn
byggja. Enn eru þeir í reynd ekkert
annað en fangar.
Er ekki kominn tími á að senda
Ariel Sharon, leiðtoga Hryllingsrík-
isins og hyski hans til Haag? Eða
ætlar samfélag þjóðanna að horfa
áfram aðgerðarlaust á. Þá gerist vit-
anlega ekkert annað en að palest-
ínsku þjóðinni verður útrýmt og
þar með hefur eitt af alverstu níð-
ingsverkunum í sögu mannkynsins
verið unnið.
Næst fer Sharon til Haag
Ef stjóm Banda-
ríkjanna telur að
eiturlyfjafjármunir
séu notaðir til að
fjármagna hryðju-
verk þá ætti hún
að líta vel á velt-
una í kauphöllinni
í New York. Fyrir
mörgum árum
sagði mér erlendur
maður að almælt
væri að kauphöllin í New York
hefði sent erindreka til Kólumbíu til
þess að gæta hagsmuna sinna þar.
Væringar voru milli þeirra sem eit-
urlyfjagróðanum réðu og kauphöll-
in vildi tryggja það með því að
senda þennan erindreka. Þeir sem
málum réðu þar voru ekki öruggir
með að kauphöllin þyldi að missa
svona mikla veltu frá sér. í hraðan-
um -i kauphallarviðskiptunum er
sennilega hægt að fela viðskiptin
þannig að ekki sé auðvelt að sjá
hver stendur að þeim. Ef þetta var
svona fyrir nokkrum árum með
hvaða hætti er þetta þá í dag? Getur
verið að á Manhattan sé verið að
ávaxta eiturlyfjagróðann sem er síð-
an notaöur til hryðjuverka. Ættu
ekki að vera hæg heimatökin fyrir
bandarísku leyniþjónustuna að
kanna hverjir eru þarna í viðskipt-
um? Kanna mætti í leiðinni hvort
verið geti að kauphöllin sé með
stærstu peningaþvottastöðvum
heims. Það væri kaldranalegt í ljósi
hörmunganna þarna rétt hjá kaup-
höllinni.
Falleg ord
Tryggva
Inga hringdi:
Ég vil láta í ljósi mikla ánægju
með orð Tryggva Bjarnasonar í les-
endabréfi í DV á fóstudaginn þar
sem hann bendir á að trúna á ekki
að nota sem morðtól. Grein Tryggva
voru orð í tíma töluð og málflutn-
ingur hans allur hinn skynsamleg-
asti.
Landsleikurinn við Dani
- algjör sorgarsaga á (Idræts-)Park-
en enn eina ferðina.
Fleiri úr
úrvalsdeild
GG hringdi:
Vík milli vina
Garri varð vitni að miklum pólitískum tíðind-
um fyrir helgina sem þó voru hvergi kynnt sem
þær pólitísku fréttir sem þær voru. Tíðindin
tengdust niðurstöðu alþjóðlegrar ráðstefnu sem
hér var haldin um ábyrgar fiskveiðar. Yfirlýsing
ráðstefnunnar, „Reykjavíkuryfirlýsing um ábyrg-
ar fiskveiðar í vistkerfi sjávar“, mun eiga að
vera sérstakt innlegg á leiðtogafundi Sameinuðu
þjóðanna sem haldin verður á næsta ári. Það var
þó ekki endilega yfirlýsingin sjálf sem Garra
þótti svona fréttnæm, heldur þeir pólitísku
flokkadrættir sem út frá henni spunnust. Svo
virðist nefnilega sem að með þessari yfirlýsingu
hafi myndast vík milli vina þar sem eru Kristján
Lofsson í Hval hf. í Hafnarfirði annars vegar og
Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra úr Hafnar-
firði hins vegar.
Skollaeyrum skellt
Kristján í Hvalnum, sem verið hefur holdgerv-
ing hvalveiðisinna um árabil, og Árni Mathiesen
hafa alla tíð talað sem einn maður þegar kemur
að hvalveiðum. Það hefur varla mátt á milli sjá
hvor segir hvað og hvor hugsar hvað, svo sam-
mála hafa þeir verið. Og tengsl þeirra eru auð-
vitað margvísleg önnur lika, bæði flokksleg og í
gegnum Hafnarfjörðinn. I þessu bandalagi hafa
raunar verið fleiri menn, sem þó
falla nú í skuggann því samband
þeirra Árna og Kristjáns er það
sem mesta athygli hefur fengið
síðustu misserin. En nú hafa
forsendur semsé breyst og Árni
og Kristján tala ekki lengur
einni röddu. Þvert á móti skellir
Árni nú skollaeyrum við þeirri
gagnrýni sem Kristján hefur sett
fram á Reykjavíkuryfirlýsing-
una og heldur ráðherrann því
blákalt fram að ekki skipti máli
að setja hvali sérstaklega inn í þetta plagg.
Börn sem ekkert skilja
Því er nú uppi sú nýja staða að hvalveiðisinn-
ar eru komnir upp á kant við íslensk stjórnvöld
í hvalveiðimálum. Skilningur hvalveiðisinnanna
er sá að stjórnvöld séu byrjuð að fórna stefnunni
í hvalveiðunum í hrossakaupum viö Ameríkana
og aðra útlendinga til aö ná öðrum og óskyldum
markmiðum fram. Og Hvala-Kristján og félagar
eru dyggilega studdir af hinum hvalveiðiþjóöun-
um í þessu, á meðan þeirra eigin stjómvöld láta
sem ekkert sé. Árni segir meira að segja að þetta
sé óþarfa viðkvæmni og misskilningur í Krist-
jáni, því i yfirlýsingunni sé talað um „vistkerfi
sjávar" og auðvitað séu hvalir hluti af því vist-
kerfi. í hugum hvalveiðisinna hljóma þessi orð
ráðherrans eflaust eins og að verið sé að bæta
gráu ofan á svart - það sé ekki nóg með að verið
sé að bakka í hvalamálinu heldur eru hvalveiðis-
innar afgreiddir eins og þeir séu smákrakkar
sem ekkert skilji í alþjóðlegri hagmunapólitík.
Því mælir Garri með því að á næstunni fylgist
menn vandlega með hvalveiðimálum og stefnu
stjórnvalda eftir þessar óvæntu deilur Árna og
Kristjáns. Hér gæti verið upphafið að merkilegri
og afdrifarikri pólitískri
þróun. Garri
Við islendingar styðjum vel við
landslið okkar, nema þegar á bjátar,
og það gerist oft. Viö verðum að
gera okkur grein fyrir því að við
höfum ekki í fullu tré við góðar
knattspyrnuþjóðir eins og Dani.
Einstöku sinnum „grísum" við á
góð úrslit, eins og á móti Tékkum á
dögunum. En fæstir eru strákarnir
okkar miklir afreksmenn. Þeir
koma næstum allir frá undirmálsfé-
lögum, og sumir þeirra hafa setið
þar á varamannabekkjum meira en
góðu hófi gegnir. Ég legg til að
næsti landsliðsþjálfari, því trúlega
mun Atli hætta núna, velji fleiri
leikmenn úr úrvalsdeildinni okkar,
þeir eru alls ekki síðri en annars
klassamenn úr fremur slökum er-
lendum knattspyrnuliðum.
DV Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangiö:
gra@dv.is
Eöa sent bréf til: Lesendasí&a DV,
Þverholti 11, 105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.