Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2001, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2001
I>V
Fréttir
Pjóöleikhúsiö í erfiðum rekstri - minni tekjur en hærri styrkur:
92 milljónir í mínus
- ríkissjóöur til bjargar. Framlag til bygginganefndar hækkad um helming
Ársreikningur
Þjóðleikhússins
fyrir árið 2000
leiðir í ljós að
rekstrartap þess
er liðlega 92 millj-
ónir króna. Sé tek-
ið tillit til fram-
lags byggingar-
nefndar Þjóðleik-
hússins er tapið 52
milljónir króna.
Athygli vekur að framlag ríkis-
sjóðs til byggingarnefndarinnar
hækkar um 100 prósent frá árinu
1999 og verður 40 milljónir í stað
20 milljóna króna.
Árið 1999 var Þjóðleikhúsið
gert upp með rúmlega 79 milljóna
króna tapi en sú tala losaði 59
milljónir króna að teknu tilliti til
Árni
Johnsen.
rúmar 680 milljónir króna árið
2000. Þar af aflaði leikhúsið
sjálft 127 milljóna
með sölu aðgöngu-
miða og þjón-
ustu en fram-
lag ríkis-
var
rúmlega
hálfur
milljarð-
ur.
Tekjur
framlags ríkis-
sjóös til bygg-
ingarnefnd-
ar.
Alls
kostaði
rekstur
Þjóð-
leik-
húss-
ins
Slæmur rekstur
Tekjur Þjóðleikhússins snarminnkuöu en ríkissjóður kom til bjargar.
leikhússins dróg-
ust saman um 30
milljónir króna
frá árinu 1999 en
framlag ríkisins
jókst um 120 millj-
ónir króna.
Málefni Þjóö-
leikhússins hafa
verið mjög í
brennidepli þetta
árið eftir að i ljós
kom að Árni Johnsen, formaður
byggingarnefndar, hafði svikiö út
vörur í nafni nefndarinnar. Ljóst
er af ársreikningi aö rekstur leik-
hússins er í lamasessi. Stefán
Baldursson er þjóðleikhússtjóri
en Guðrún Guðmundsdóttir er
fjármálastjóri.
-rt
Stefán
Baldursson.
Þingmenn um innritunargjöld við HÍ:
Samstaða gegn
skólagjöldum
- „röng framsetning í fjárlögum“
Hjálmar Árnason, varaformaður
þingflokks Framsóknarflokksins, tel-
ur að það hafi verið mistök að innrit-
unargjöld við Háskóla íslands hafi
ekki fylgt verðlagsþróun undanfarin
ár. Þetta kom fram í máli þingmanns-
ins á opnum fundi sem Röskva boð-
aði í gær með forystumönnum stjórn-
málaflokkanna í Háskólanum þar
sem rætt var um skólagjöld.
Þingmennirnir Bryndís Hlöðvers-
dóttir, Sigríður Anna Þórðardóttir og
Steingrímur J. Sigfússon fluttu
einnig erindi á fundinum ásamt for-
manni Stúdentaráðs, Þorvarði Tjörva
Ólafssyni. í máli Hjálmars kom
einnig fram að Framsóknarflokkur-
inn væri á móti skólagjöldum. Þá tel-
ur hann að það hljóti að vera mistök
hvernig tillagan um hækkunina sé
sett fram í fjárlagafrumvarpinu því
gjöldin eigi ekki fara til starfsemi
skólans. Hann vill fá nákvæma skil-
greiningu á innritunargjöldunum frá
háskólasamfélaginu.
Þingmenn stjórnandstöðunnar
gagnrýndu fyrirhugaða hækkun og
töldu mikilvægt að tryggja jafnrétti
til náms. Bryndís vakti einnig máls á
þeirri staðreynd að allir háskólar hér
á landi fengju fjárveitingar frá ríkinu
en einkaskólar væru einnig með
skólagjöld. Það leiði til þess að sam-
keppnistaða skólanna sé ekki jöfn.
Steingrímur segir að verði ekkert
gert í því muni það leiða til þess að
opinberu skólarnir verði með annars
stigs menntun i framtíðinni.
Ummæli Davíðs Oddssonar um
stjórnskipan Háskólans á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins bar einnig á
góma á fundinum. Formaður Stúd-
entaráðs sagði að þar hefði forsætis-
ráðherra verið að gagnrýna stjórn-
skipan menntamálaráðherra og um-
mæli hans hefðu ekki verið nein til-
viljun því þau komu aðeins viku eft-
ir mótmæli stúdenta. -MA
Spjallað saman
Meöal frummæienda á fundinum voru þingmennirnir Sigríöur Anna
Þóröardóttir, Bryndís Hiööversdóttir og Hjálmar Árnason og formaöur stúd-
entaráös, Þorvarður Tjörvi Ólafsson sem er lengst til vinstri á myndinni.
Héraðsdómur telur að 10 starfsmenn Lykilhótela hafi verið sviknir um laun:
Starfsmenn vanvirtir
- að mati Verkalýðsfélags Húsavíkur - fyrirtækið áfrýjar hluta málsins
Stanslausar launadeilur
Ekki sér fyrir endan á málaferlum á hendur Lykihótelum vegna deilna
starfsmanna viö yfirmenn sína um launagreiöslur.
„Ljóst má vera að forsvarsmenn
Lykilhótela bera litla virðingu fyr-
ir starfsmönnum sínum og þeim
grundvallarréttindum sem starfs-
menn hafa í kjarasamningum og
lögum. Þeir reyna miskunnarlaust
að hafa af starfsmönnum sínum
laun og önnur kjör. Áberandi er
hve margir yngri starfsmenn og
erlendir eru í þeim hópi,“ segir
Ágúst Óskarsson hjá Verkalýðsfé-
lagi Húsavíkur.
Lykilhótel hafa í Héraðsdómi
Reykjavíkur verið dæmd til að
leiðrétta launakjör 10 fyrrum
starfsmanna sem störfuðu á hótel-
inu við Mývatn. Verkalýösfélag
Húsavíkur höfðaði alls 10 aðskilin
mál og fengust bætur í öllum til-
fellum. Málin komu upp á sumr-
unum 1999 og 2000 á Lykilhóteli
Mývatni. Ágúst segir að sátt hafi
verið gerð í 3 málum en dómur
fallið í 7. í sáttamálunum hafi fyr-
irtækið fallist á að greiða allt
nema matar- og kaffitíma, sem
ekki hafi verið haldið til streitu af
hálfu félagsins. Hin málin hafi í
öllum tilvikum farið þannig aö
starfsmenn hafi unnið sigur og
málskostnaður að auki fallið á
Lykilhótel.
Heildarávinningur starfsmanna
nam um 1,8 milljónum króna, auk
dráttarvaxta, að sögn Ágústs vegna
málarekstursins en lögmaður Jóns
Ragnarssonar, eiganda Lykilhótela,
segir heildarfjárhæðina ekki svo háa.
Ágúst segir að lægstu kröfumar hafi
verið 13.000 krónur en þær hæstu um
400.000, auk dráttarvaxta. „Þetta eru
yfirleitt mál sem koma upp á einu
stuttu sumri. Algengar leiðréttingar
starfsmanna, sem flestir eru innan
við tvítugt, eru í kringum 70.000
krónur fyrir hvern mánuð. Það er há
tala með tilliti til þess hve starfs-
mennirnir eru ungir að árum og
höfðu þegar fengið greidd öh þau
laun sem Lykilhótel hafði reiknað
út,“ segir Ágúst.
Hann segist sáttur við útkomuna
enda sé hún nákvæmlega eins og fé-
lagið hafi búist við en hins vegar fá
Lykilhótel ekki háa einkunn frá hon-
um sem vinnustaður. „Auðvelt er að
fullyrða að nánast allir starfsmenn
Lykilhótela um allt land hafi fengið
vangreidd laun ef vinnukjörin eru
þau sömu og hjá starfsmönnum á
Lykilhóteli Mývatni sumarið 1999 og
2000. Við hvetjum alla starfsmenn
sem hafa unnið hjá þessu fyrirtæki
til að láta stéttarfélög fara yfir launa-
seðla sína og kanna hvort laun hafa
verið vangreidd," segir Ágúst. Hann
segir einnig sérstakt við þetta fyrir-
tæki að það svari hvorki bréfum,
símtölum né nokkrum öðrum um-
kvörtunum fyrr en í dómsal.
DV náði ekki tali af Jóni Ragnars-
syni en Þórður Sveinsson, lögmaður
Jóns, fellst ekki á að Lykilhótel hafi
tapað málunum í einu og öllu: „Þetta
voru dómkröfur upp á 2,2 milljónir
en Lykilhótel voru dæmd til að
greiða þrettán hundruð þúsund í höf-
uðstól," segir Þórður. Hann staðfestir
þó að málskostnaður hafi fallið á
Lykilhótel i öllum málunum en
reiknar með að fyrirtækið muni
áfrýja tveimur málum. Áður höfðu
lögmenn Jóns Ragnarssonar farið
fram á frávísanir en dómstólar höfn-
uðu því.
Lykilhótel hafa alloft áður verið
dæmd til að leiðrétta laun fyrrum
starfsmanna. Alls rekur Jón Ragn-
arsson þrjú heils árs hótel og tvö
sumarhótel. Þetta eru Lykilhótel
Cabin í Reykjavík, Hótel Örk í
Hveragerði, Hótel Norðurland á Ak-
ureyri, Hótel Valhöll á Þingvöllum
og Lykilhótel Mývatn. -BÞ
Stúlka fyrir bíl
Sjö ára stúlka varð fyr-
ir bíl á Digranesvegi
'síðdegis í gær. Að
sögn lögreglu í
Kópavogi er talið að
stúlkan hafi hlaupið
fyrir bilinn. Stúlkan var
flutt á slysadeild Landspít-
alans í Fossvogi en að sögn lögreglu
mun hún ekki lífshættulega slösuð.
Lyfjaþjófar enn á ferö
Kona situr í haldi lögreglunnar í
Reykjavík eftir innbrot í apótek í
nótt. Innbrotið átti sér stað í lyfja-
búð í austurborginni og að sögn lög-
reglu er talið að konan hafi ekki
verið ein á ferð. Þjófarnir brutu sér
leið í gegnum glugga og síðan brutu
þeir niður tvær hurðir inni í apó-
tekinu. Konan náðist skömmu síðar
og verður hún yfirheyrð í dag.
Kannað verður hvort hún tengist
fjórum innbrotum í lyQabúðir i höf-
uðborginni í fyrrinótt.
Samningar viö Bandaríkin
Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra
lagði fram minnis-
blað í ríkisstjóm í
gærmorgun um að
leitað væri eftir
samningum við
Bandaríkjamenn
um samstarf vegna
almannatrygginga. Hann telur
réttaröryggi þeirra Islendinga sem
búa í Bandaríkjunum verða meira
með samningum um almannatrygg-
ingar heldur en með því nótuskipta-
kerfi sem hefur verið í gangi. -
Fréttablaðið greindi frá.
Teknir með fíknlefni
Einn maður er i haldi Kópavogs-
lögreglu eftir að á honum fundust
fíkniefni. Lögreglan handtók mann-
inn ásamt tveimur félögum hans í
Smiðjuhverfinu um þrjúleytið í
nótt. Félögum mannsins var sleppt
en sá sem er í haldi verður yfir-
heyrður í dag.
Færri útlendingar
Karl Sigurðsson hjá Vinnumála-
stofnun segir að atvinnulausum
virðist hafa fjölgað nokkuð mikið
frá þvi sem var bæði miðað við sept-
ember í fyrra og einnig miðað við
meðaltal septembermánaðar í heild.
- Fréttablaðið greindi frá.
Lyf selt börnum
Nokkuð hefur borið á því að lyfið
ritalín hafi verið boðið til sölu sem
vímuefni á lóðum grunnskóla. -
Stöð 2 greindi frá.
Deilur um sölu
Deilur standa milli bæjarstjómar
ísafjarðar og iðnaðar- og fjármála-
ráðuneytis um hvort kominn sé á
bindandi samningur um kaup ríkis-
ins á hlut bæjarins í Orkubúi Vest-
fjarða.
Ráðuneytin telja að kominn sé á
bindandi samningur en því hafnar
bæjarstjóri ísafjarðar. - RÚV
greindi frá.
Hitamet í Reykjavík
Óvenju hlýtt hefur veriö á land-
inu síöustu daga. í fyrrakvöld
mældist hiti í Reykjavík 15,3 gráð-
ur. Veðurstofan hefur ekki áður
skráð svo mikinn hita svo seint á
árinu. Fyrra met var 1. október árið
1958 er hiti í Reykjavík fór í 15,7
gráður. Daginn áður fór hitinn í 16,8
stig. - MBL. greindi frá. -HKr/-aþ