Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2001, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2001, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2001 DV 7 Fréttir Sjálfstæðismenn og baráttan um Reykjavíkurborg: Beðið eftir Birni - Eyþór Arnalds og Júlíus Vífill vilja verða leiðtogar Sú ákvörðun Eyþórs Amalds að ein- henda sér í borgarmálin að nýju, eftir að hafa gert hlé á staríi sinu vegna for- stjórastarfsins hjá Íslandssíma, hefur valdið miklum undirskjálftum í borg- arstjómarflokki Sjálfstæðisflokksins. Eyþór stefnir ótrauður í slaginn um forystusæti hjá sjálfstæðismönnum í Reykjavík. Þar mun hann etja kappi við Ingu Jónu Þórðardóttur, núver- andi leiðtoga, sem lýst hefur yfir að hún hyggist leiða listann, og Júlíus Vífil Ingvarsson borgarfulltrúa sem fullvíst er talið að horfi til forystusæt- isins. Þá er ekki ólíklegt talið að hinn gamli félagi Eyþórs, Guðlaugur Þór Þórðarson, hafi hug á forystusætinu. Sjáifur hefur hann þó aðeins sagt að hann starfi af heilindum með Ingu Jónu í borgarstjómarflokknum. Eyþór og stuðningsmenn hans telja sig eiga vísan stuðning innan forystu- sveitar Sjálfstæðisflokksins. Helstu stuðningsmenn hans telja fullvíst að Bjöm Bjamason menntamálaráðherra muni ekki gefa kost á sér til að leiða baráttuna um borgina. Þar kann þeim að skjöplast því sjálfúr hefúr Bjöm ekkert gefið út um það af eða á hvort hann taki slaginn. Það mun vera mat Eyþórs og félaga að hann eigi raun- hæfa möguleika á því að ná leiðtoga- sætinu í prófkjöri ef Bjöm kemur ekki til sögunnar. Styrkur Eyþórs liggur í því að hann er þekktur meðal ungs fólks. Hann var á sínum tíma lands- fræg poppstjama, þegar hann lék með hljómsveitinni TodmobOe, og fólk man vel eftir honum sem slíkum. Seinna lét hann klippa sig og geröist bisnessmað- ur - fyrst sem hluti af hópnum sem var i kringum fyrirtækið Oz, þar sem hann átti hlut. Seinna stóð hann ásamt fleiri fyrir stofnun Íslandssíma og varð for- stjóri þar. Þá sagði hann jafnframt af sér trúnaðarstörfum innan borgar- stjómarflokksins. Jafnframt gaf hann út að seinna myndi hann snúa til baka í borgarmálin. Það mun hafa verið Islendinga, sem ráölagöi honum aö draga sig í hlé og áP*** ’.í j sanna sig í at- vinnulífinu. VHjunartími í Sandkomi DV jp j þann 6. júlí 1999 ■dK2 ; ,J| var sagt frá þessu: Björn „í samtölum við Bjarnason. menn innan flokksins hefur þó Eyþór ekki útilokað að hann komi aftur inn í borgarmálin eftir 5-10 ár, þegar hann hefur haslað sér völl á sviði atvinnulífsins og sýnt hvað í honum býr. Sá sem er talinn hafa gefið honum þetta ráð til að koma síðar, sjá og sigra stól borgarstjórans í Reykjavík, er Gunnar Steinn Páls- Reynir Traustason ritstjórnarfulltrúi Eyþór Inga Jóna Arnalds. Þórðardóttir. landssíma og útboðsmálið, þar sem Verðbréfaþing áminnti hann og aðra stjómendur Islandssíma, sé honum þungt í skauti. Eftir því sem næst verð- ur komist hafði enginn eigenda ís- landssíma stuggað við honum. En þó má leiða að því getum að hann hafi, eins og einn viðmælenda DV orðaði það, „þekkt sinn vitjunartimá1. Eyþór er einn eigenda Íslandssíma og hann kann að hafa hugsað sem svo að það væri hagsmunum fyrirtækisins fyrir bestu að hann viki af stóli fyrir öðrum stjómanda. Sjálfur situr hann í stjóm og þiggur laun fyrir aö móta stefnu fyr- irtækisins. Þannig hafi hann gullið tækifæri til að nýta sér það „tóma- rúm“ sem skapist við það að Bjöm hverfi út af sviðinu. ingamefnd raði á listann. Þeir sem gerst þekkja innan flokksins telja að það verði ekki fyrr en í janúar eða febrúar sem listinn liggur fyrir. Þá verða aðeins örfáir mánuðir til kosn- inga og skammur tími til að berja á R- listanum. Möguleikar Eyþórs til að ná forystu- sætinu ráðast af því hvem formaður flokksins styður til verksins. Fari svo að Eyþór njóti velvildar Davíðs mun það færa honum meðbyr í baráttunni um leiðtogasætið. Sá sigur yrði þó skammgóður því í framhaldinu þarf hann að taka hinn raunverulega slag um borgina. Þar er sjálfum R-listanum að mæta þar sem stríðsvön Ingibjörg Sólrún stýrir liði sínu. Sigur hennar í síðustu kosningum kostaði pólitískt líf Áma Sigfússonar sem sagði af sér sem borgarfulltrúi eftir síðustu kosningar. Þá hafði hann í tvígang tapað barátt- unni um borgina. Fari svo að Eyþór Amalds fái tO þess stuðning að leiða flokkinn í borgarstjómarkosningum þá er ljóst að hann fær aðeins eitt tæki- færi. Sama er raunar að segja um Júl- ius Vifil og Ingu Jónu. í byssunni verð- ur aðeins eitt skot. Washington bíöur Taki Bjöm Bjamason menntamála- ráðherra ákvörðun um að fara í slag- inn um leiðtogasætið verður að teljast líklegt að hann vinni. Meðal sjálfstæð- ismanna era raddir uppi um að Bjöm ætli sér ekki að fara í borgarstjómar- baráttuna. Menn þykjast sjá visbend- ingar um að hann vilji verða sendi- herra í Washington. Þar er vísað til þess að nú hefur því verið frestað öðra sinni að Jón Baldvin Hannibalsson færi sig um set eftir að hafa setið í þrjú ár í höfúðborg Bandaríkjanna. Hann hefði átt að hætta um áramót en mun sitja áfram. Þetta er túlkað sem svo að verið sé að halda stöðunni fyrir Bjöm Bjamason sem þannig hafi gefið frá sér borgina. Þetta þykir öðram mjög ólíkleg kenning og fullyrða að Bjöm sé alls ekki á leiðinni í sendiherrastól. En á meðan Bjöm tekur ekki af skarið nagar óvissan og metnaðarfúllir borg- arfulltrúar bíða eftir að línur skýrist. Poppstjaman Eyþór Amalds þarf að stökkva yfir nokkrar hindranir áður en hann kemst í mark. Á hlaupabraut- inni era líka Inga Jóna, núverandi leiðtogi, og óperasöngvarinn Júlíus Vífill sem samkvæmt heimildum DV mun taka slaginn um fyrsta sætið, hvort sem Bjöm Bjamason er inni eða úti. En kapphlaupið hefst ekki strax því það er beðið eftir Bimi. son, en GSP-almannatengsl eru einmitt komin með áróðursmál ís- landssíma hf. á sína könnu...“, segir í umræddu Sandkomi. Þess er vert að geta að það er lærisveinn Gunnars Steins, Pétur Pétursson, deildarstjóri hjá Íslandssíma, sem er helsti ráðgjafi Eyþórs í dag. Nú era ekki liðin þau ár sem um var talað en samt hefur hann horfið á ný tO borgarmálanna. Innan raða flokksfélaga Eyþórs gætir þeirrar tor- tryggni að hann sé einungis að flýja sjóðheitan forstjórastól Íslandssíma. Áform hans hafi ekki gengið eftir varð- andi ís- Pínleg óvissa Óvissan um borgina er orðin heldur pínleg fyrir sjálfstæðismenn. Nauðsyn- legt er talið fyrir sjálfstraust flokks- manna að endurheimta sitt gamla höfðuðvígi úr klóm Reykjavíkurlist- ans. Allir sem DV hafa rætt við era sammála þvi að Inga Jóna hafi ekki raunhæfa möguleika á að leggja Ingi- björgu Sólrúnu. Sumir taka svo djúpt í árinni að segja að kraftaverk þyrfti til að Inga Jóna hefði sigur. Nagandi óvissa er um það hvemig framboðsmálum sjálfstæðismanna verður háttað. Ekkert liggur fyrir um það hvort um prófkjör verður að ræða eða að uppstill- Hásætið Slagurinn um borgina fer fram í vor. Þá hefur Reykjavíkurlistinn stjórnaö þar í átta ár. Margir vilja allt til þess vinna aö ná til baka höfuövígi Sjálfstæöisflokksins. Fagna nýjum liðsmönnum „Ég fagna auðvitað nýjum liðs- mönnum,“ segir Júlíus Vífill Ingv- arsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavik, um skyndi- lega endurkomu Eyþórs Amalds, fráfarandi for- stjóra íslands- síma, í borgar- málin. Eyþór mun á morgun gera hluthafafundi í Íslandssíma grein fyrir því að hann hætti sem forstjóri. Jafnframt mun verða stungið upp á því að hann taki sæti í stjóm fyrirtækisins. Eyþór stefnir ótrauður að því að verða leiðtogi sjálfstæðismanna í borgar- stjómarkosningunum. Júlíus Vífill hefur sjálfur veriö orðaður við leiðtogasætið. Hann vill ekkert gefa út á það hvort hann hafi tekið um það ákvörðun að leggja í slag- inn. „Ég á von á því að allir sjálfstæð- ismenn vilji leggja sig fram um að vinna borgina í næstu kosningum. Sjálfur er ég mjög snortinn yfir þeim góðu viðbrögöum sem ég hef fengið á störf mín í borgarstjóm. En þaö liggur ekki fyrir ákvörðun á þessari stundu um það með hvaða hætti ég ætla að bjóða mig fram þegar þar að kemur. Ég hlusta eftir röddum flokksmanna og mun greina frá þeirri ákvörðun síðar,“ segir Júlíus Vífill. -rt Guðlaugur Þór Þórðarson: Vill fara í forystusveit „Ég hef áhuga á að vera í forystu- sveit fyrir Sjálfstæöisflokkinn í borgarmálum en það hefur engin ákvörðun verið tekin um það hvern- ig að málum verði staðið," segir Guðlaugur Þór Þórðarson borgarfulltrúi um það hvert hann stefni á lista Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavik í næstu borgar- stjórnarkosning- um. Guðlaugur Þór er einn þeirra sem nefndur hefur verið til sögunnar í baráttu um leiðtogasætið við Ingu Jónu Þórðardóttur. Hann vill ekkert um það segja hvert hann stefni. „Ég starfa af heilindum i borgar- stjómarflokknum undir forystu Ingu Jónu,“ segir Guðlaugur Þór. -rt Guðlaugur Þór Þóröarson. Júlíus Vífill Ingvarsson. Samherjaskip: Verksmiðju- skipið gert út á ísfiskveiðar DV, DALVÍK: Um þessar mundir eru fjögur af skip- um Samheija á isfiskveiðum sem er meira en oft áður. Þetta era Björgúifúr EA, Kambaröst SU, Hjalteyrin EA og Margrét EA. Athygli vekur að sjá Mar- gréti í þessum hópi þar sem hún er út- búin sem frystiskip. Með aukinni áherslu Samherja á landvinnslu er nauðsynlegt að treysta hráefnisöflunina og því var ákveðið að gera togarann út á ísfiskveiðar um sinn. Á fréttavef Samherja kemur fram að skipin fiögur afli hráefnis fyrir frysti- hús Samherja í Dalvíkurbyggð og á Stöðvarfirði. Einnig hefur verið tekið upp samstarf við Fiskiðjusamlag Húsa- vikur þar sem Samherji sér um að veiða upp í fiskveiðiheimildir Fiskiðjusam- lagsins og er aílanum landað á Húsavík. Auk þess má nefna að Samherjaskipin hafa verið að veiða fyrir Síldarvinnsl- una í Neskaupstað, eftir að togarinn Bjartur skemmdist í eldi. Af þessu má sjá að vel þarf að halda á spöðunum til að allir i landi hafi nóg að starfa. -hiá Harðar umræður um byggðamál á Alþingi: Hroki og móðganir - framsókn hafnar tillögum vinstri grænna um sértækar aðgerðir fyrir Austurland Tekist var á um byggða- og atvinnu- mál á landsbyggðinni á Alþingi í gær og féllu orðin „hroki" „óheilindi" og „móðganir" i hita leiksins. Framsóknar- menn og vinstri grænir deildu harka- lega vegna tillagna vinstri grænna um að verja fjármagni í aðra atvinnusköp- un á Austurlandi en stóriðju. Fram- sóknarmönnum fannst lítið til þessara hugmynda koma. Vinstri grænir bentu hins vegar á að andstaða þeirra gegn virkjunarfram- kvæmdum væri vegna þeirra náttúra- spjalla og neikvæðu umhverfisáhrifa sem fylgdu álversraskinu. Að því við- bættu væri mjög deilt um þjóðfélagslegt gagn að álveri fyrir austan. Helmingur þjóðarinnar væri sammála VG um að Kárahnjúkavirkjun væri varla hag- kvæm og Steingrímur J. Sigfússon spurði hvort framsóknarmenn héldu virkilega að hinn „hrikalegi byggða- vandi“ myndi leysast með einu álveri. Hann benti á að fólki hefði fjölgað i dreifbýli á Bretlandseyjum með því að ríkið veitti heimamönnum fjármagn til Steingrímur J. Valgerður Sigfússon. Sverrisdóttir. eigin verka. Framsóknamenn ættu að skammast sín fyrir að hafa stýrt byggða- málum með ömurlegum árangri undan- farið. 1300 manns væru famir af lands- byggðinni í ár og 6000-8000 manns hefðu flúið frá landsbyggðinni í stjómunar- tíma framsóknarmanna. Viðskiptaráðherra, Valgerður Sverr- isdóttir, sagði að VG væra óábyrgir í fjármálum og ítrekaði þá skoðun sina við annað tækifæri síðar. Fjárfestar væru tilbúnir í að fjárfesta í Kára- hnjúkavirkjun. Kostnaður ríkisins núna yrði endurgreiddur síðar. Ámi Steinar Jóhannsson sagði forkastanlegt að byggðamálaráðherra stillti heiðarleg- Árnl Steinar Einar Már Jóhannsson. Sigurðarson. um tillögum vinstri grænna upp sem sýndarmennsku. Ráðherra legðist lágt að segja að VG væri á móti öllu þótt þeir væra ekki sammála stjómarliðinu. Stjómarandstaðan tókst einnig á um málið innbyrðis. Einar Már Sigurðar- son (SF) sagði að engin launung væri á því að skiptar skoðanir væra um málið innan Samfylkingarinnar. Þótt hann væri fylgjandi stóriðju myndi hann bíða niðurstöðu flokksins i kjölfar úrskurðar umhverfisráðherra. Ámi Steinar ásak- aði Samfylkinguna um að breyta mál- flutningi flokksins eftir skoðanakönn- unum hverju sinni. Einar Már hafnaði því harðlega. -BÞ Tónskóli Hörpunnar: Skorað á borgarstjóra Forráðamenn Tónskóla Hörp- unnar í Grafarvogi og fulltrúar for- eldra nemenda í skólanum afhentu í síðustu viku borgarstjóranum, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, undirskriftalista með áskorun til Reykjavíkurborgar. Þar er skorað á Reykjavíkurborg að veita öllum þeim börnum sem þess óska kost á tónlistarnámi í tónlistarskóla sem þau sjálf velja með tilliti til þjónustu og gæða. Námið skuli vera niðurgreitt á sambærilegan hátt. Einnig er borgin hvött til þess að veita Tónskóla Hörpunnar sam- bærilegt fjárframlag og aðrir tón- listarskólar fá. I svari borgarstjóra við spurningu foreldra um það hvort þeirra börn mættu eiga von á niðurgreiðslu námsgjalda eins og börn í öðrum tónlistarskólum kom fram að tónlistarskólamálin væru til endurskoðunar og uppi væri sú hugmynd að borgin yfirtæki tón- listarskólareksturinn í Reykjavík og stjómaði honum sjálf. -MA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.