Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2001, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2001, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2001 Skoðun I>V Hryðjuverkamenn dauðans Vandamálin /' Israel veröa ekki leyst fyrr en Palestínumenn hafa fengiö yfirráö yfir sínum eigin lendum, segir bréfritari. Ætlar þú suður að spóka þig í Smáralind? (Spurt á Akureyri) Eiríkur Trausti Stefánsson sjómaður: Ég fer kannski þegar ég kem í land um mánaðamótin. Þórhallur Stefánsson sjómaður: Ég bý fyrir sunnan og fer í Smáralind- ina þegar ég kem suöur. Ætta þó ekki aö gera mér sérstaka ferö. Katrín Guðmundsdóttir verslunarmaður: Ábyggilega. Það er stæröin, vöruúr- valið og hve allt er ódýrt, sem ég hef sannfrétt. Eva Hrönn Moreles verslunarmaður: Ég ætla ekki aö gera mér sérstaka ferö suöur vegna þess. Vöruvalið heillar og hve maöur hittir marga aöra Akureyringa í verslunarferð. Ásta Pálsdóttir húsmóðir: Einhvern tímann fyrir jól. Mest hlakka ég til þess aö fara í bíó í Lasy-boy-stólum. Bjarni Gestsson ellilífeyrisþegi: Ég búinn aö fara. Mér finnst Smára- lind fín þó maöur fái þar ekkert sem ekki fæst hér á Glerártorgi. Hvað er heim- urinn að hugsa? Hvað eru trúfast- ir múslímar aö íhuga? Eru ekki öll mannsbörn veraldar að hugsa um eitt og hið sama: það að vera hluti af mannkyninu og samlagast aðild að einstaklings- framtaki frelsis og frjálsræðis. Svo er ekki. Þetta á ekki við um niðurnídda Palestínumenn, frelsis- skerta írska baráttumenn (IRA) og sjálfstæðisbaráttu Baska á Spáni. Eftir hverju sækjast þessir menn? Þetta eru upp til hópa hryðjuverka- menn dauðans. Þeir eiga eitt sam- eiginlegt: Útrýmingu andstæðings- ins og sess í þjóðfélagi nútimans. Þeir munu ekki koma til með að verða eitt eða neitt. Hvaða stefnu hafa Palestínu- menn gagnvart ísrael? Þeir neita að Ísraelsríki hafi rétt til að vera til. Er þá ekki nógu skýrt hvað Palestínumenn hafa að markmiði? Og hvernig geta ísraelsmenn brugðist við þessum skilaboðum nema með varnarstöðu gagnvart hverjum sem er? Eru þeir ekki í þeirri stöðu að geta ekki annað en varið sig gagnvart árás Palestínu- manna? Hitt er svo annað að allir skyn- samir ísraelsmenn skynja að það verður aldrei friður á þeirra land- svæði fyrr en Palestínumönnum verður úthlutað sínu eigin ríki, landi sem þeir sjálfir hafi umráð yfir. Þetta er svarið! Hvað með Bandaríkin? Þrátt fyrir andstöðu og fjandskap Þau átta ár sem ég hef skrifað greinarkorn hér á lesendasíðunni hef ég ekki hirt um að svara krítík frá öðrum um mín skrif enda hafa þau verið mjög já- kvæð. En 3. októ- ber hringir aðili úr Vogum sem greinilega er heigull því nafn hans vantar. Innihald hunds sem þessi hettumaður fær birtan er ósannindi. Beitarhólf í Brunnastaðahverfi er fyrir þá sem í hverfinu búa, aðra ekki. Lausaganga búfiár á Vatns- leysuströnd er bönnuð. Ég var beð- inn um að fara og tilkynna þeim sem höfðu fé i leyfisleysi í hólfinu að taka fé sitt burt. Mér var ekið „Hitt er svo annað að allir skynsamir ísraelsmenn skynja að það verður aldrei friður á þeirra landsvæði fyrr en Palestínumönnum verður úthlutað sínu eigin ríki, landi sem þeir sjálfir hafa umráð yfir. “ austurlenskra landa, íslams-trú- aðra ættbálka, arabískra fursta og evrópskra afturhaldsmanna þá eru heimurinn og tilvera okkar svo einföld að það er ekkert sem mun Það er sorgleg staðreynd að mitt fólk hefur þurft að aka fé til beitar í nágrenni Krísuvíkur til að létta á beitarálagi í hólfinu sem því er œtlað. upp í rétt af manni á sendibíl. Þeg- ar ég kom á staðinn kom ég boðun- um til viðkomandi. Um það bil 10 til 15 mínútum seinna kom kona sem á jörð hér í hverfinu og beitirétt í hólfinu. Hún skipaði þessu fólki sem ekki á rétt til hólfsins að taka fé sitt og snauta burt. Þessu var illa tekið og kom til snarpra orðaskipta og átaka milli hennar og þeirra rétt- lausu og fylgdarmanna þeirra. Ég blandaði mér ekki í það ljóta mál en gefa okkur frelsi, einstaklingsfram- tak, sjálfræði, hugrekki, einbeit- ingu og umfram allt festu, nema sú hugsun að Bandaríkjunum takist, ásamt þjóðfélagi frelsissinnaðra landa, að yfirbuga og afmá þann glæp sem framinn var í þágu geð- veikra ofbeldismanna. Ég efast ekki um að Bandaríkin muni sigrast á þessu ofbeldi. Það er ekkert í þessum heimi okkar í dag sem lýsir þessu betur en orð sem eru rituð á gólf opinberrar stofnun- ar í Washington D.C. og við könn- umst flest við: ... and the truth shall set you free ...“ (og sannleik- urinn mun gera yður frjálsa). Meira þarf ekki að segja. gekk heim á leið. Svo einfalt er það mál. Hettumaður segir að ég hafi skrif- að grein um þetta mál á síðum Eir í DV. Það sanna er að Eiríkur Jónsson blaðamaður gerði svo, skrifaði um þetta i háðstón, enda lætin aðeins háðung og rugl. En að vera með féð í hólfinu án leyfis er alvarlegt mál. Það er sorgleg staðreynd að mitt fólk hefur þurft að aka fé til beitar í ná- grenni Krísuvíkur til að létta á beit- arálagi í hólfinu sem því er ætlað. Sú tilhögun hefur kostað stórfé. Rétt er að fá að nota beitarkvóta sinn og að þeir sem ekki eiga heima í hólfinu séu ekki þar. Þú, Vogamaður, ert greinilega heigull með hauspoka eins og talibani. Næst þegar þú færð inni í DV skaltu lyfta grímunni, hafðu sannleikann þá að leiðarljósi. Ég veit hver þú ert. Baldvin Berndsen skrifar: Hettumanni í Vogum svarað Skarphéöinn Einarsson skrifar: Hið nýja eftirlit Garra þóttu það merkileg tíðindi hér i blaðinu í gær að sjá að forsetar Alþingis með Halldór Blöndal í broddi fylkingar eru búnir að koma sér upp sínu eigin eftirlitskerfi sem fylgjast á með byggingaframkvæmdum við Alþingishúsið. Greinilegt er að þeir Halldór og félagar ætla ekki að lenda í annari hrinu eins og þeirri sem þeir upplifði sl. vor vegna skrifstofubyggingarinnar við Austurstræti. Þar fór allur kostnaður þvílíkt úr böndum að elstu menn muna vart annað eins, enda var skýrsla Ríkisendurskoðunar um málið svört. Þarna var þingið að taka á leigu húsnæði sem var hálfklárað og borgaði stórfé fyrir. Því til viðbótar þurfti þingið siðan að punga út stórfiár- hæðum til að innrétta húsið og heildarniðurstað- an varð sú að ódýrara hefði verið að byggja nýtt húsnæði en að innrétta þetta. Og til að kóróna allt rennur leigusamningurinn síðan út eftir um áratug. Framkvæmdasýslan Garri minnist þess að hafa heyrt menn tala um skólabókardæmi í bruðli og óráðsíu og að sjálfsögðu sat forsætisnefnd manna mest i þeirri skammarsúpu, ekki síst Halldór Blöndal sjálfur sem reyndi þó að skýla sér bak við það að sér- stök stofnun, Framkvæmdasýsla ríkisins, heföi átt að fylgjast með málum. En það var greinilegt á öllu að mönnum var ekki skemmt. Enda kem- ur á daginn að forsetamir ætla ekki að endur- taka þessa martröð og eru tilbúnir að leggja í talsverðan kostnað til að tryggja að eyðslan sé innan tilskilinna fiárhagsramma eins og hið nýja eftirlitskerfi ber með sér. Forustumenn tala í kross Miðað við skelfingarsvipinn sem jafnan var á forsetum þingsins þegar þessi mál bar á góma í vor kemur það í sjálfu sér ekki á óvart að þeir hafi gripið til ráðstafana af þessu tagi núna. En það sem Garra þykir þó athyglisverðast við mál- ið er að menn hafi ekkert breytt um stefnu gagn- vart Framkvæmdasýslunni eftir sumarið. í sum- ar komu einmitt fram ýmsar vangaveltur um stöðu og ábyrgð Framkvæmdasýslunnar í tengsl- um við mál Árna Johnsens þar sem m.a. var tal- að um að hún hefði átt að vera búin að grípa í taumana fyrir löngu. Allt það japl, jaml og fuður endaði hins vegar með því að sjálfur varafor- maður Sjálfstæðisflokksins og fiármálaráðherra lýðveldisins, Geir H. Haarde, gekk fram fyrir skjöldu og lýsti sérstöku trausti sínu á Fram- kvæmdasýslunni og hennar vinnubrögðum öll- um. Kom það nokkuð á óvart, sérstaklega í ljósi þess að Björn Bjarnason hafði ekki talað vin- gjarnlega til stofnunarinnar. Þannig eru þeir fé- lagar og vopnabræður úr Sjálfstæðisflokknum, Geir Haarde og Halldór Blöndal, alveg á önd- verðum meiði hvað varðar Framkvæmdasýsluna og telst það til nýmæla hjá ihaldinu að foringjar þeirra skuli tala svona algerlega í kross eins og hér hefur gerst. Garri bíður nú spenntur eftir að sjá hver afstaða Björns Bjarnasonar verður og hvort e.t.v. kunni að vera í uppsiglingu eitthvert víðtækara bandalag milli þeirra Björns og Halldórs. Gðí'l’Í Skemmtiatriði í Vetrargarðinum í Smáralind Hávaöinn flæmir fólk burtu. Rokkarar flæma fólk í burtu Sjana hringdi: Ég fór ásamt vinkonu minni um helgina í Smáralind og leist vel á. Eitt mætti þó vera betra en það er há- vaðinn og glymurinn í Vetrargarðin- um. Svokölluð tónlist sem ég varð vitni að um helgina var vægast sagt leiðinleg. Kannski hafa verið betri „númer" innan um en þessi gadda- vírsframleiðsla hafði greinilega þau áhrif að fólk leitaði sér vars á fjar- lægum stöðum í byggingunni. Við vinkonurnar drifum okkur niður í gamla miðbæ á kaffihús, vonlaust var að njóta veitinga við Vetrar- garðstorgið í Smáralind með þunga- rokk í eyrunum. Stjórnmálaafl öryrkja og ellilífeyrisþega Gunnar G. Bjartmarsson skrifar: Kaupmáttur lífeyrisgreiðslna hef- ur ekki verið jafn lágur í áratug, á sama tíma eru skattar lækkaðir hjá þeim sem betur mega sín og framlag til stríðsrekstrar aukið. Öryrkjar og ellilífeyisþegar virðast vera afgangs- hópar í þessu þjóðfélagi. „Fólk í fyr- irrúmi" var slagorð annars stjómar- flokksins. Hvaða fólk var þetta? Það virðist stefnc ríkisstjórnarinnar að þeir ríku verði rikari og þeir fátæku fátækari. Öryrkjar þurfa að standa saman að framboði og hætta að gefa gömlu flokkunum atkvæði sín. Ekki er óraunhæft að listi öryrkja og elli- lífeyrisþega gæti náð 10 til 18 þing- sætum. í dag eiga þessir hópar engan málsvara á þingi. Semjiö viö sjúkraliöa Sjúklingur hringdi: — Ég dvel á sjúkrahúsi um þessar mundir og lendi nú í því öðru sinni að sjúkraliðar fara í verkfall. Ástand- ið á spítalanum er svakalegt. Mér er spurn, hverjir bera ábyrgð á því að ekki er samið við þessa heilbrigðis- stétt eins og aðrar? Sjúkraliðar vinna sín störf af mikilli alúð og þiggja fyr- ir sultarlaun. Hvað dvelur þessa grimmu samninganefnd ríkisins? Það er krafa allra borgara þessa lands að samið verði við sjúkraliða hið snarasta. Týndar rjúpna- skyttur Svejtamaöur hringdi: Menn eru orðnir nokkuð pirraðir víða um landiö vegna framferðis drápóðra rjúpnaskyttna. Núna hófst blóðbaðið með því að skyttur þessar spóluðu á jeppum sinum og spilltu víða náttúrunni. Siðan var haldið til fialla með frethólkana og skotið inn í þykka þokuna í von um að hitta fyr- ir hvítfiðraða vininn. Mér finnst að langflestir þessir menn beri lítið skynbragð á veiðiskap, þetta er meira mannalæti, jeppakallinn með byssuna er flott ímynd! En þessir menn eru stórhættulegir, fara sér að voða með skotvopn í slæmu skyggni - skyttumar týnast líka og björgun- armenn eru á þönum að leita að köppunum. Ég hef sagt það og segi enn - rjúpnaskytturnar eru plága. Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eöa sent tölvupóst á netfangið: gra@dv.is Eða sent bréf til: Lesendasíöa DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar með bréfunum S sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.