Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2001, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2001, Síða 20
24 MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2001 x>v * Tilvera Finney leikur Churchill Breski stórleikarinn Albert Finney mun fara meö hlutverk Sir Winstons Churchills í nýrri mynd um þennan ástsæla forsætisráðherra Bretlands, sem leiddi þjóð sína til sigurs í gegn- um hörmungar seinni heimsstyrjald- arinnar. Það er BBC sjónvarpsstöðin sem er með myndina á prjónunum og mun hún bera nafnið A Lonely War og fjalla aðallega um stjómmálaferil Churchill á árunum fyrir heimsstyrj- öldina þegar hann varaði fyrir daufum eyrum viö uppgangi nasista sem þá óðu uppi í Þýskalandi. Það er Ridley Scott, leikstjóri Gladiators, sem leik- stýrir myndinni en bróðir hans, Tony, er framleiðandi hennar. Vanessa Red- grave mun leika Clemmie, eiginkonu Churchills. DV-MYNDIR ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON Tökur aö hefjast Þaö viöraöi ekki vel á kvikmyndafólkiö fyrsta tökudaginn. Þessir eru á bak viö myndavélina, taliö frá vinstri: Friörik Þór Friöriksson leikstjóri, Harold Polgard kvikmyndatökumaður og Hálfdán Theódórsson aöstoðarleikstjóri. Beðið eftir tökum Margrét Vilhjálmsdóttir og ingvar Sig- urösson fara meö stór hlutverk í Fálk- um ásamt bandaríska leikaranum Keith Carradine sem ekki var til staö- ar þegar blaðamann DV bar aö garöi. Friðrik Þór Friðriksson hefur tökur á Fálkum: í I r. i Filmað í Þönglaskála Downey saknar „sólarslóðans“ Robert Downey Jr, sem undanfarið hefur dvalið á meðferðarstofnun fyrir eiturlyíjafikla í Malibu, brá sér í óvenjulega bæjarferð á dögunum, þar sem hann sást þræða gæludýrabúðir bæjarins. Downey mun hafa verið að leita að hvolpi í afmælisgjöf handa átta ára gömlum syni sínum og fyrr- um sambýliskonu, rokksöngkonunn- ar Deboru Falconae, og endaði ferðin auðvitað á því að hann fann það sem hann leitaði að. Downey, sem hefur háð harða baráttu við Bakkus og með- reiðarsveina hans, segist sakna ár- anna með Deboru og kallar þau „sól- arslóðann" í lífi sínu. Hann hefur á undanfórnum árum lent tvisvar sinn- um bak við lás og slá vegna flkniefna- neyslu og er nú í skilorðsbundinni endurhæflngu. PV, SAUDÁRKRPKI: Þönglaskáli og Vogar utan Hofs- óss urðu að myndveri í síðustu viku þegar Friðrik Þór Friðriksson og hans lið frá íslensku kvikmynda- samsteypunni hófu vinnu á tökum á nýjustu mynd Friðriks Þórs, Fálk- um. Myndatökur stóðu frá miðviku- degi til laugardags en þá var haldið til Siglufjarðar. Ætlunin var að kvikmynda í Fljótunum og á Siglu- flrði en tökum lýkur seinna í haust í Hamborg í Þýskalandi. Einar Kárason samdi handritið ásamt Friðriki Þór er annast leik- stjórn og Harald Polgard, norskur kvikmyndatökumaður, hefur yfir- umsjón með myndatökunni, sá sami og filmaði Engla alheimsins. Eins og jafnan var Friðrik Þór ekki margorður þegar hann var spurður um myndina, ekki dæmigerð mynd af hans hálfu og ekki beinlínis spennumynd, en íslenski fálkinn væri þama í stóru hlutverki og einnig kæmi þama við sögu til- hneiging vafasamra manna til að flytja þennan fágæta fugl úr land- inu. Hundar eru einnig áberandi, a.m.k. í þessum senum frá Þöngla- skála, hersing var þar af hundum sem .fengnir vom af Suðurlandinu, Viniiin^hafar í VI öíifi 1 eíkli ti.s iiiri margir þeirra óskaplega stórir. Það þarf mikinn mannskap þegar gera á kvikmynd. Á svæðinu voru tuttugu og sjö fyrir utan leikara sem voru mismargir á svæðinu eftir því hvaða myndskeið voru í vinnslu. Aðalhlutverkin eru þrjú, í höndum bandaríska leikarans Keiths Carra- dines, Ingvars Sigurðssonar og ungrar og magnaðrar Islenskrar leikkonu, Margrétar Vilhjálmsdótt- ur. Trúlega verða þeir margir sem bíða spenntir eftir að sjá þessa nýj- ustu afurð Friðriks Þórs. Myndir hans hafa fallið mörgum í geð og er hann án efa sá íslenskra kvik- myndagerðarmanna sem hefur öðl- ast hvað mesta viðurkenningu með- al þjóða. -ÞÁ Sunnlenskir hundar Hundar sem koma viö sögu í myndinni voru fengnir af Suöurlandi. Alíslenskt heilsute: Maríustakkur hjálpar konum að varðveita meydóm sinn DV-MYND EVA HREINSDÓTTIR. Undrate úr Hverageröi Hjörtur Már Benediktsson garöyrkjustjóri meö undrate Heilsustofnunar. 5 gjafakort fyrir tvo á leiksýningu í Möguleikhúsinu. Axel H. Jóhannsson nr. 16135 Eiður D. Bjarkason nr. 15104 Dagbjört A. Magnúsdóttir nr. 15079 Guðrún 5. Hilmarsdóttir nr. 15043 Arnar L. Guðnason nr. 56765 Fótboltar og kassi af Svala Aníta Runólfsdóttir Finnur Jónsson Bára H. Heimisdóttir Jóhann ?. Harðarson Bergþóra Guðmundsöóttir nr. 11604 nr. 5476 nr. 12759 nr. 11334 nr. 14037 Krakkaklúbbur DV og Möguleikhúsið óska i til hamingju. Gjafakortin verða send til næstu daga en vinningshafarnir með övalann geta nálgast [ DV, Pverholti 11, fyrir " Pökkum pátttökut Tígri og Halldóra hann úr Flóru íslands. Sú er eftir- farandi: „Gulmaðra - góð við flogaveiki og ýmsum sinateygjum Hlaðkolla - ormdrepandi og hjartastyrkjandi Mjaðjurt - verkeyöandi, græð- andi og góð við niðurgangi Birki - heilnæmt á allan hátt Blóðberg - við kvefi, harðlífl, svefnleysi og hjartveiki Maríustakkur - stinnir brjóst, hefur samandragandi kraft og hjálpar konum að varðveita mey- dóm sinn.“ Þessu er síðan öllu blandað saman, þó ekki eftir neinni fastri uppskrift, og blöndun getur verið mismunandi frá ári til árs. Að- spurður sagði Hjörtur að ekki væri enn farið að selja heilsuteið á almennum markaði en stefnt væri að því að koma því í heilsu- búðir hérlend- is innan tíðar. -eh ÖCU EIK ÚSV samtali við DV að teið væri mjög vinsælt á meðal dvalargesta og annarra matargesta á stofnuninni. Hefði aukin tínsla komið í kjölfar fjölmargra fyrirspurna um hvar væri hægt að fá teið keypt. „Nú er svo komið að tínd eru 60 til 70 kOó af jurtum árlega sem er langt umfram það magn, sem dval- argestir neyta á meðan á dvöl stendur. Því geta nú allir fengið keypt þetta alíslenska heOsute í eldhúsi stofnunarinnar á meðan birgðir endast,“ sagði Hjörtur. „Við tínum jurtirnar í fjöllunum hér í kring og víðar og þurrkum þær síðan hér í tehúsinu þar sem þeim er síðan pakkað í 50 gramma poka með innihaldslýsingu." Hjörtur las upp fyrir frétta- ritara um áhrif hverrar jurtar á mannslikamann en lýsing- DV, HVERAGERDI: Dvalargestum HeOsustofnunar NLFÍ í Hveragerði hefur um nokk- urt skeið boðist að kaupa það heOsute sem sérstaklega er rækt- að fyrir stofnunina og drukkið í tetíma á daginn. Hjörtur Már Benediktsson, garðyrkju- stjóri hjá Heilsustofn- un, sem hef- ur haft veg og vanda af söfnun grasanna, sagði í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.