Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2001, Side 22
26
________________________________MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2001
Islendingaþættir__________________________________________________________________________________________________________x>y
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
.:2&HI
85 ára_____________________________
Páll Sigurðsson,
Hæöargaröi 35, Reykjavlk.
80 ára_______________________________
BArnfríöur Róbertsdóttir,
Hún tekur á móti ættingj-
um og vinum í Húsi eldri
Guðrún Jóna Bergsdóttir,
Bergstaðastræti 57, Reykjavík.
Lilja Þórarinsdóttir,
Hlunnavogi 10, Reykjavík.
Björgvin S. Sveinsson,
Bæjarholti 3, Hafnarfirði.
Pálmi Sigurösson,
Ægisstíg 3, Sauðárkróki.
75 ára_______________________________
Ásta Helgadóttir,
Hæðargarði 30, Reykjavík.
Stefanía Guðnadóttir,
Hraunbæ 103, Reykjavík.
Hólmfríður Vigfúsdóttir,
Bæjarholti 3, Hafnarfirði.
Ólafur Baldvinsson,
Höfðagötu 16, Grenivlk.
70 ára_______________________________
Ólafur Jón Hansson,
Hátúni 12, Reykjavík.
Guðjón Sigurkarlsson,
Rauðholti 7, Selfossi.
60 ára______________________________
Þorbjörn Karlsson,
Svalbarði 11, Hafnarfirði.
Hafrún Kristinsdóttir,
Blikabraut 7, Keflavík.
Elísabet Hallsdóttir,
Hallkelsstaðahlíð, Hnappadalssýslu.
50 ára______________________________
Margrét Ríkharösdóttir,
Háaleitisbraut 36, Reykjavík.
Hermann Unnsteinn Emilsson,
Jakaseli 5a, Reykjavík.
Berglind Freymóösdóttir,
Básbryggju 31, Reykjavík.
Vigdís Helgadóttir,
Fannarfelli 10, Reykjavík.
Bryndís Eysteinsdóttir,
Vesturtúni 3a, Bessastaðahreppi.
Ármann Sigurðsson,
Leirutanga 45, Mosfellsbæ.
Rósa Þorgilsdóttir,
Dalbraut 6, Dalvík.
Bjarni Sveinsson,
Brúnagerði 8, Húsavík.
40 ára______________________________
Magnús Bergsson,
Miklubraut 20, Reykjavík.
DagurJónasson,
Miðhúsum 4, Reykjavík.
Særún Lúövíksdóttir,
Bæjargili 76, Garðabæ.
Sigurður Björn Kárason,
Eskihlíð 2, Sauðárkróki.
Soffía Freydís Jóhannesdóttir,
Eyrarvegi 33, Akureyri.
Berglind Þorbergsdóttir,
Mýrargötu 5a, Neskaupstað.
Smáauglýsingar
DV
visrr.is
Fólk í fróttum
Markús Möller
hagfræðingur við Seðlabanka íslands
Markús Möller hagfræðingur
Markús hefur lengi veriö í hópi eindregnustu andstæöinga kvótakerfisins og
hefur styrkt þá andstööu mjög meö mælsku sinni og fræöilegum rökum.
Markús Möller, hagfræðingur við
Seðlabanka íslands, sagði sig úr
Sjálfstæðisflokknum á landsfundin-
um um síðustu helgi vegna and-
stöðu við stefnu flokksins í sjávar-
útvegsmálum.
Starfsferill
Markús fæddist 28.5. 1952 í
Reykjavík og ólst þar upp. Hann
lauk stúdentsprófi frá MR 1972,
B.Sc.-prófi í stærðfræði frá HÍ 1975
og Ph.D.-prófl í hagfræði frá Uni-
versity of Minnesota í Minneapolis
1992.
Markús hefur starfað hjá Seðla-
banka íslands frá 1983.
Markús æfði og keppti í hand-
bolta með KR á unglingsárunum,
var Questor Scholae í MR 1970-71,
Inspector Scholae 1971-72, formaður
Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúd-
enta 1973-74, situr í stjórn Neyt-
endasamtakanna frá 1998 og er
varaformaður þeirra frá 2000. Hann
er fulltrúi Seðlabankans í rikis-
reikninganefnd frá 1991 og hefur
skrifað fjölda greina í blöð og tima-
rit, einkum um landbúnaðar- og
sjávarútvegsmál.
Fjölskylda
Markús kvæntist 29.12. 1978 Júlíu
Guðrúnu Ingvarsdóttur, f. 7.8. 1952,
BA í dönsku og uppeldisfræði og
M.Ed. frá University of Minnesota.
Hún er dóttir Ingvars Júlíusar
Helgasonar, f. 22.7.1928, d. 18.9.1999,
forstjóra í Reykjavík, og k.h., Sigríð-
ar Guðmundsdóttur, f. 19.6. 1926,
deildarstjóra.
Böm Markúsar og Júlíu eru Bald-
ur Helgi, f. 14.9. 1980, læknanemi;
Sigríður Margrét, f. 10.12. 1981,
læknanemi; Ingvar Rúnar, f. 12.4.
1985.
Bróðir Markúsar er Jakob Möll-
er, f. 25.5. 1953, B.Ed. og aðstoð-
arframkvæmdastjóri í Reykjavík,
kvæntur Sigrúnu Snævarr, fóstru
og kennara.
Foreldrar Markúsar: Baldur J.
Möller, f. 19.8. 1914, d. 23.11. 1999,
ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðu-
neytinu, og k.h., Sigrún Markús-
dóttir Möller, f. 5.12.1921, húsmóðir.
Ætt
Baldur var sonur Jakobs Möllers,
ritstjóra, alþm. og ráðherra, sonar
Ole Möllers, kaupmanns á Hjalteyri
Christianssonar Möllers, verslunar-
stjóra og veitingamanns í Reykjavík
Olessonar Peters Möllers, kaup-
manns í Reykjavík og ættföður
Möllerættar. Móðir Ole var Sigríð-
ur, systir Jóns, langafa Matthíasar
Johannessens skálds. Systir Sigríð-
ar var Helga, langamma Hans G.
Andersens sendiherra. Sigriður var
dóttir Magnúsar Norðfjörðs, beykis
í Reykjavík, ættfóður Norðfjörðætt-
ar. Magnús var sonur Jóns, beykis í
Reykjarfirði Magnússonar, bróður
Guðbjargar, langömmu Sigríðar,
ömmu Friðriks Ólafssonar stór-
meistara. Móðir Jakobs var Ingi-
björg Gísladóttir, sýslunefndar-
manns á Neðri-Mýrum á Refasveit
Jónssonar, og Sigurlaugar Bene-
diktsdóttur. Móðir Sigurlaugar var
Málmfríður Þorleifsdóttir, b. í
Kambakoti, Markússonar, og Jó-
hönnu Jónsdóttur, systur Jónasar,
langafa Margrétar, móður Jónasar
Guðlaugssonar skálds.
Móðir Baldurs var Þóra Guðrún,
dóttir Þórðar Guðjohnsens, verslun-
arstjóra á Húsavík, bróður Mörthu
Maríu, móður Ingibjargar Thors
forsætisráðherrafrúar. Önnur systir
Þórðar var Christiane Apolline,
móðir Péturs Halldórssonar borgar-
stjóra. Þóra var dóttir Péturs, org-
anleikara og ættföður Guðjohn-
senættar. Móðir Þórðar er Guðrún
Lauritzdóttir Knudsen, ættfóður
Knudsenættar. Móðir Þóru var Þur-
íöur Indriðadóttir, b. í Presthvammi
í Aðaldal, Daviðssonar, og Sigur-
bjargar Einarsdóttur.
Sigrún er dóttir Markúsar, for-
stjóra og listaverkasafnara í Reykja-
vík, bróður Helgu, móður Stefáns
Jasonarsonar í Vorsabæ. Markús
var sonur ívars, b. í Vorsabæjarhjá-
leigu, Guðmundssonar, b. þar,
Gestssonar. Móðir Guðmundar var
Sigríður Sigurðardóttir, systir
Bjarna riddara Sívertsens. Móðir
Markúsar var Kristín, systir Þuríð-
ar, ömmu Guðmundar Guðmunds-
sonar, forstjóra í Víði. Kristín var
dóttir Magnúsar, b. í Traustholts-
hólma i Flóa, Guðmundssonar.
Móðir Sigrúnar var Kristín Andr-
ésdóttir, b. í Vestri-Hellum, bróður
Sigurðar, föður Þorsteins, dbrm. á
Vatnsleysu, formanns Búnaðarfé-
lags íslands, afa Þorfmns Guðnason-
ar kvikmyndagerðarmanns. Andrés
var sonur Erlends, b. í Vestri-Hell-
um, Erlendssonar. Móðir Kristínar
var Guðrún yngri, systir Guðlaug-
ar, langömmu Gests Steinþórssonar
skattstjóra og Ólafs Arnar alþm.,
foður Haralds ferðagarps. Guðrún
var dóttir Lofts, b. í Austurhlíð,
bróður Katrínar, ömmu Magnúsar,
prófasts og alþm. á Gilsbakka, föður
Péturs, ráðherra og varaformanns
Sjálfstæðisflokksins, afa Einars
Stefánssonar augnlæknis. Loftur
var sonur Eiríks, ættföður Reykja-
ættar Vigfússonar. Móðir Guðrúnar
yngri var Kristín Erlendsdóttir, b. í
Austur-Meðalholti Jónssonar og
Guðlaugar Þórarinsdóttur.
Sjötug
Sveinsína Frímannsdóttir
húsmóðir í Keflavík
Sveinsína Frímannsdóttir hús-
móðir, Suðurgötu 12, Keflavík, er
sjötug f dag.
Starfsferill
Sveinsína fæddist á Steinhóli í
Flókadal í Haganeshreppi en ólst
upp á Austari-Hóli i sömu sveit.
Hún stundaði nám að Sólgörðum í
Fljótum og vann á Hólsbúi Siglu-
fjarðar til 1952 en flutti þá til Kefla-
víkur og hefur búið þar síðan.
Sveinsína var þjónustustúlka að
Básvegi 3 í eitt ár en sneri sér siðan
að húsmóðurstörfum og barnaupp-
eldi. Hún hóf vinnu i frystihúsi
1972, vann síðan hjá Varnarliðinu
og í frystihúsi Ólafs Lárussonar
1976-30 og gegndi þá um skeið störf-
um trúnaðarmanns starfsfólksins.
Hún hefur sinnt ýmsum störfum frá
þeim tíma en undanfarið hefur hún
stundað ræstingar hjá Landsbanka
íslands á Keflavikurflugvelli.
Fjölskylda
Sveinsína giftist 29.4. 1956 Reyni
Ölverssyni, f. 14.6. 1934, en þau
skildu.
Börn Sveinsinu og Reynis: Róbert,
f. 25.11.1956, leigubílstjóri og á hann
fjögur böm og eitt barnabarn; Anna
Heiða, f. 26.3.1959, starfar í Fríhöfn-
inni, maki Oddur Steinar Birgisson
húsasmiður og eiga þau tvö böm;
Húlda Karolína, f. 21.12. 1960, gjald-
keri, maki Carlos Davis flugvélvirki
og eiga þau tvö böm en Hulda Kar-
olína á dóttur frá því áður; Reynir
Þór, f. 23.9. 1963, verkstjóri, maki
Sigurlaug Jóhannsdóttir skrifstofu-
maður og eiga þau saman tvö böm
og hann eina dóttur.
Sveinsína átti funmtán systkini
og eru tíu á lífi. Þau eru Jórunn,
Bjöm, Ásmundur, Gestur, Hafliði,
Guðmundur, Benedikt, Sófanias,
Pálína og Regína. Látin eru Jón,
Katrín, Stefania, Guðbrandur og
Þórhallur.
Foreldrar Sveinsínu: Frímann
Guðbrandsson og Jósefína Jóseps-
dóttir.
Ætt
Frímann var sonur Guðbrands, b.
á Steinhóli, bróður Björns, skip-
stjóra á Karlsstöðum. Guðbrandur
var sonur Jóns, b. á Vestara-Hóli,
Ólafssonar, b. á Hólum, Jónssonar.
Móðir Björns var Kristín Árnadótt-
ir, systir Jóns, afa Skúla Magnús-
sonar landfógeta. Móðir Guðbrands
var Soffia Björnsdóttir, b. á Róðu-
hól, Björnssonar. Móðir Björns var
Una Guðmundsdóttir, systir Einars,
föður Baldvins þjóðfrelsismanns.
Móðir Frímanns var Sveinsína
Sigurðardóttir, b. á Hálsi, Jónsson-
ar, og Helgu, systur Jóns Norð-
manns, pr. á Barði, langafa Einars
fræðimanns og Þuríðar Pálsdóttur
óperusöngkonu. Helga var dóttir
Jóns, b. á Krakavöllum, Guðmunds-
sonar, bróður Skáld-Rósu. Móðir
Helgu var Margrét, laundóttir Jóns,
pr. á Bægisá, Þorlákssonar.
Jósefína var dóttir Jóseps, b. á
Stóru-Reykjum í Flókadal, Bjöms-
sonar, b. í Hvanndölum, Gíslasonar.
Móðir Jóseps var Arnbjörg Þor-
valdsdóttir, b. á Frostastöðum, Ás-
grímssonar, b. á Minni-Ökrum,
Dagssonar. Móðir Þorvalds var
Guðný Gottskáksdóttir, systir Þor-
valds, afa Bertels Thorvaldsens
myndhöggvara.
Móðir Jósefínu var Svanfríður
Sigurðardóttir, b. á Stóra-Grindli,
Sigmundssonar og Margrétar Jóns-
dóttur, systur Helgu á Hálsi.
Guöbrandur Vigfússon frá Ólafsvík, áður
á Bústaöavegi 105, síðast á Hrafnistu I
Reykjavík, lést sunnud. 14.10.
Jón Haukur Guöjónsson, Hamrahlíð 35,
Reykjavfk, lést á Landspítalanum viö
Hringbraut sunnud. 14.10.
I
Margrét Jóhanna Guömundsdóttir
(Magga á Melstaö) Klapparstíg 16, Ytri-
Njarðvík, lést sunnud. 14.10.
i
Emma Reyndal, Höföagrund 23, Akra-
' nesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness
mánud. 15.10.
Bjöm Pálsson, fyrrv. lögregluvarðstjóri,
Sæviðarsundi 19, lést laugard. 13.10.
Merkir íslendingar
Frímann B. Arngrímsson
kennslu og verkfræðistörf hjá General Electric
Co í Bandarikjunum 1888-94, hélt til Kaup-
mannahafnar og þaðan til Reykjavíkur
1894. Þar talaði hann mjög fyrir rafvæð-
ingu Reykjavíkur og setti fram tilboð frá
General Electric í þeim efnum upp á
2500 gulldollara. Því var auðvitað hafn-
að af bæjarstjóm. Hann fór þá til Edin-
borgar en næsta ár kom hann með tvö
rafmagnstilboð frá breskum fyrirtækj-
um sem einnig var hafnað. Hann
dvaldi síðan í París til 1914 en flutti þá
til Akureyrar og átti þar heima til
dauðadags 6. nóvember 1936.
Frímann var sérvitur ákafamaður en
engu að síður merkur brautryðjandi og
vakti fyrstur manna tímabæra umræðu um
virkjanir og rafvæðingu hér á landi.
Frímann Bjarnason Arngrlmsson fæddist
að Sörlatungu i Hörgárdal 17. október
1855, sonur Bjama Arngrímssonar, bónda á
Vöglum í Þelamörk, og Helgu Guðrúnar
Jónsdóttur frá Krakavöllum.
Frímann ólst upp i Fljótum, var síðan
hjá föður sínum að Vöglum en fór vest-
ur um haf 1874, lauk þar kennarapróf-
um, tók háskólapróf í tölvísi og nátt-
úruvísindum við háskólann í Toronto
1884 og lauk prófi í náttúruvísindum
og stærðfræði við Manitoba-háskóla
1885 en hann mun vera fyrstur Islend-
inga til að taka háskólapróf í Kanada.
Frímann stofnaði og ritstýrði
Heimskringlu, hafði umsjón með íslensk-
um innflytjendum í Kanada og stundaði
landkönnun fyrir Kanadastjórn. Hann stundaði
Sigríöur Karlsdóttir, fyrrv. kaupmaður,
hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, verður
jarösungin frá Grafarvogskirkju mið-
vikud. 17.10. kl. 13.30.
Bjarni Helgason frá Þyrli. Hvalfirði, verö-
ur jarðsunginn frá Dómkirkjunni
fimmtud. 18.10. kl. 13.30.
Útför Andrésar H. Gíslasonar frá Hval-
eyri, síöast til heimilis í Smárahvammi
15, Hafnarfirði, verður gerð frá Hafnar-
fjarðarkirkju föstud. 19.10. kl. 13.30.
Þóröur Hinriksson, Strandgötu 33, Akur-
eyri, verður jarðsunginn frá Akureyrar-
kirkju föstud. 19.10. kl. 13.30.