Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2001, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2001, Side 28
FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö I DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MIÐVIKUDAGUR 17. OKTOBER 2001 Ýsuafli á Suðureyri: Gríðarlegur samdráttur Samdráttur víöa Ýsuafli allra skipa í verstöðvum á Vestfjörðum dróst verulega saman í september samkvæmt upplýsingum Fiskistofu. Á það við alla útgerðar- staði nema ísafjörö. Á Drangsnesi er ýsuaflinn nú t.d. aðeins tæpur þriðjungur þess sem var í sama mánuði í fyrra. Þá er ýsuaflinn um helmingi minni í Bolungarvík, Bíldudal og á Flateyri. Á Suðureyri hefur ýsuveiðin dregist langmest saman, eða úr 250 tonnum í septem- ber í fyrra í aðeins 58 tonn i ár. í september 2000 fiskuðu króka- aflamarksbátar samtals 3.081 tonn. í nýliðnum september fiskuðu króka- aflamarksbátar 2.454 tonn, þorskaflahámarksbátar ekkert og sóknardagabátar 50 tonn. Þetta ger- ir samtals 2.504 tonn. Munurinn milli septemer 2000 og september i ár er því 577 tonn. -HKr. tó IHiiTErii tahl TTiM T H i«Tft' Byr hjá deCODE Móðurfélag íslenskrar erfðagrein- ingar ehf., deCODE genetics Inc. er nú á talsverðum skriði á fjármála- markaði Nasdaq. Gengið fór lægst í tæpa 6 dollara í byrjun apríl og síð- an aftur í lok mai. Þá steig það á ný og náði í rúma 12 dollara á hlut í byrjun júlí. Síðan hallaði aftur und- an fæti og var gengið um síðustu mánaðamót komið niður undir 6 dollara. Eftir það hefur fyrirtækið fengið byr í seglin og við lokun markaða í gær var gengið komið i 8,5 dollara í viðskiptum með 67.300 hluti. Byrjunargengi gærdagsins var 8,27 dollarar. -HKr. Afli krókabáta á landsvísu hefur dregist saman um nær 500 tonn í september miðað við sama mánuð í fyrra. Vekur athygli mikill sam- dráttur ýsuafla á Vestfjöröum í kjöl- far afnáms frjálsra veiða krókabáta á ýsu, steinbít og ufsa. Þetta kemur m.a. fram í nýjum tölum Fiskistofu um afla í septem- ber fiskveiðiárin 2000 til 2001 og 2001 til 2002. Ein afleiðing lagasetn- ingarinnar er að svokallaðir þorskaflahámarksbátar eru ekki lengur til en afli þeirra var uppi- staða í afla krókabáta í september í fyrra. Hafa veiðarnar færst yfir á krókaaflamarksbáta, en samt vant- ar verulega upp á að krókabátar í heild haldi sínum hlut frá því í fyrra. Framsóknarsprettur dv-mynd hilmar þór Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins hugsar um heilsu sína eins og vera ber og tekur iðulega góðan sundsprett í Vesturbæjarlauginni í Reykjavík. Hér sést hann á tvö hundruð metra siglingu í blíðviðrinu í gærdag. Vinstri grænir veita áframhaldandi umboð til R-lista-viðræðna: Orkuveitan ekki einkavinavædd segir Alfreö Þorsteinsson og er mjög bjartsýnn á framtíö R-listans Vinstri grænir ákváðu á aðalfundi í gær að veita viðræðunefnd áframhald- andi umboð vegna sam- starfs um Reykjavíkur- lista. Aðeins einn greiddi atkvæði gegn þessu á fundinum en Sigríður Stefánsdóttir, endurkjör- inn formaður Reykjavík- urfélags vinstri grænna, segir óvarlegt að túlka Alfreö Þorsteinsson. niðurstöðuna sem svo að R-list- inn sé þar með kominn á skrið. „Það er ekki hægt að segja neitt til um það eða hrapa að neinum slfkum ályktunum," sagði Sigríð- ur í samtali við DV í morgun. Viðræðunefndin mun næst funda með aðilum Samfylkingar og Framsóknar í nóvem- ber. Helst hefur verið ágreiningur um rekstrar- fyrirkomulag Orkuveitu Reykjavíkur og segir Sig- ríður að vinstri grænir líti á hana sem grunnþjón- ustu. Algjör andstaða sé við það að hún verði hlutafélagavædd. Ekkert var farið út í uppstillingarmál enda er það algjörlega ótímabært, að sögn Sigríðar. Auk hennar sitja í stjórn Reykjavíkurfélags vinstri grænna eftir kvöldið í gær Björk Vilhelmsdóttir, Erla Sigurðar- dóttir, Kolbeinn Proppé, Stein- grímur Ólafsson, Tryggvi Frið- jónsson, Steinar Harðarson, Kol- brún Rúnarsdóttir og Rún- ar Sveinbjörnsson. Mar- grét Guðmundsdóttir, Ár- mann Jakobssson, Birna Þórðardóttir og Guðmund- ur Magnússon gengu úr stjórn. „Ég er mjög bjartsýnn fyrir hönd R-listans,“ sagði Alfreð Þorsteinsson, framsóknarmaður í borg- arstjórn, í samtali við DV í morgun. Hann sagðist Sigríöur Stef- ánsdóttir. fagna ákvörðun vinstri grænna án þess að hún kæmi á óvart. Viðræðurn- ar hafi verið í ágætum farvegi og brátt sjái fyrir endann á þessari rimmu. „Mér skilst að málefnin séu nokkurn veginn komin í höfn. Það á aðallega eftir að ræða hvort menn hafi prófkjör eða hvort þau mál verði útkljáð innan flokkanna sjálfra," sagði Alfreð. Alfreð er stjórnarfor- maður Orkuveitu Reykja- víkur en hann telur engar líkur á að rekstrarfyrir- komulag fyrirtækisins muni verða úrslitafyrir- staða. „Orkuveitan á að veita ákveðna grunnþjón- og á sem lægstu verði. í ustu anda þess höfum við starfað og svo mun verða áfram. Að mínu áliti kemur hvorki til greina að Orkuveitan verði einkavædd né einkavinavædd. Við erum ekkert ósammála um þetta, við og vinstri grænir.“ -BÞ Gísli Sigurðsson læknir segir miltisbrandinn barnaleik hjá eitrinu sarín: Búast má við mun hættulegra eitri - telur Osama bin Laden hafa aðgang að eitrinu sarín Gísli Sigurðsson. Gísli Sigurðs- son læknir segir ljóst að sá hern- aður sem nú er i gangi með dreif- ingu miltis- brandssýkla sé nánast barna- leikur á móti því sem búast megi við frá hryðju- verkamönnum. Hann segist telja það hafið yfir vafa að Osama bin Ladin hafi yfir að ráöa mun hættulegri eitur- vopnum sem hann kunni að beita. Gísli er sérfróður um málefni Arabalandanna og hefur m.a. ver- ið ráðgjafi í Sviss um málefni þeirra, þar á meðal hefur hann flutt erindi fyrir svissneska her- inn um hættuna á sýklahernaði hryðjuverkamanna. Gísli varð landskunnur þegar , hann varð eins konar „gísl“ í Kúvæt á dögum Persaflóastríðsins. Gisli segir að ekki sé hægt að nota miltisbrand til að drepa fjölda fólks á einu bretti og hann smitist ekki frá manni til manns. Hins vegar segir Gísli að hryðju- verkamenn Osama bin Ladens hafi án efa aðgang að efnavopnum eins og sarín. „Það er vitað að bin Laden hefur verið í sambandi við Saddam Hussein, en Hussein átti mjög mikið magn af efnavopnum. Það voru einnig til upplýsingar um annað eins magn sem aldrei hefur fundist en talið er að hafl veriö flutt til Jemen eða Sómalíu. Osama bin Laden hefur verið mjög virkur í báðum þessum lönd- um og ég er ekki í nokkrum vafa um að hann hefur aðgang að slik- um vopnum." Gísli segir aö sarín sé lyktar- laust og því sé t.d. hægt að dreifa með þeim hætti að setja það í litl- ar dósir og feröast með þær á áfangastað og auðvelt sé að kom- ast með slíkt t.d. í gegn um flug- vallaeftirlit. Þegar nota á efnin er einfaldlega hægt að gera göt á dós- imar og eitrið lekur út. „Þannig gerðist t.d. í Japan, eitrið var í dós sem sett var í poka undir sæti í neðanjarðarlestinni og gat stungið á dósina þegar hryðjuverkamenn- irnir yfirgáfu lestina. Þrátt fyrir að þeir blönduðu efnið rangt þannig að styrkur þess var ekki nema einn tíundi af því sem hann hefði getað orðið varð mannfall og þúsundir slösuðust. Ef þeir hefðu blandað efnið rétt hefðu þeir ef- laust drepið þúsundir manna og slasað tugþúsundir.“ -gk Skoðanakönnun Samfylkingarinnar í Hafnarfirði: Lúðvík Geirsson langefstur - uppstillingarnefnd vill hafa svigrúm til að stilla upp lista Lúðvík Geirsson blaða- maður varð samkvæmt heimildum DV langefstur f skoðanakönnun vegna upp- stillingar á framboðslista Samfylkingarinnar í Hafnar- firði, en könnunin fór fram um helgina. Hörður Zóphan- íasson, formaður uppstill- ingarnefndar vildi þó ekki staðfesta þetta í samtali við DV í morgun en á fundi nefndar- innar í gærkvöld með frambjóð- ungis nöfn sex efstu f könnuninni og þá ekki í hvaða sætum þau lentu. Þetta er gert að sögn Harðar í ljósi þess að skoðanakönn- S unin er ekki bindandi fyrir nefndina og vill hún hafa svigrúm til | að stilla upp sem jóna Dóra sterkustum lista. Að- Karlsdóttir. Lúðvík Gelrsson spurður á hann þó ekki von á öðru en þessir sex muni skipa efstu sæt- um eru í stafrófsröð: Ellý Erlingsdóttir, Guðmundur Rúnar Ármannsson, Gunn- ar Svavarsson, Hafrún Dóra Júlíusdóttir, Jóna Dóra Karlsdóttir og Lúðvík Geirs- son. Að sögn Harðar liggur engin ákvörðun fyrir um það hvort uppstillingin mið- ast við að í fyrsta sæti sé bæjarstjóraefni flokksins en á að liggja fyrir þann 31. merhiuélin fyrirfagmenn og fyrirtæki, heimili og skóla, fyrir röð tog reglu, mig ___ og þig. | flybýlauegi 14 • sfmi 5S4 4443 • if.ls/rafport endum var ákveðið að birta ein- in. Þau sem urðu í sex efstu sætun- listinn október, þegar bera á hann upp á félagsfundi. -BG Útiljós Rafkaup Ármúia24 • S. 585 2800 i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.