Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2001, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2001, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 DV Fréttir Héraösdómur Norðurlands eystra sneri viö blaðinu: Sagðist hafa hellt í sig áfengi eftir aksturinn - karlmaður dæmdur til sektar fyrir ölvunarakstur og sviptur ökuleyfi i m m m Akureyringur á sextugsaldri hef- ur i Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur vegna ölvun- araksturs innanbæjar á Akureyri á síðasta ári. Maðurinn var reyndar sýknaður af ákærunni i Héraðs- dómi nokkrum mánuðum eftir að atkvikið átti sér stað en Saksóknari ríkisins áfrýjaði þeim úrskurði til Hæstaréttar. Hæstiréttur ómerkti úrskurð Héraðsdóms og vísaði mál- inu heim í hérað að nýju þar sem felldur skyldi i því efnisdómur. Málsatvik eru þau að lögreglunni á Akureyri barst nótt eina í júní á sl. ári tilkynning frá ungum pilti um hugsanlegan ölvunarakstur bif- reiðar austur Undirhlíð. Fylgdist pilturinn með akstri bifreiðarinnar og vísaði lögreglu á hana er hún kom á vettvang við hús á Eyrinni. Kom fram að þegar pilturinn fylgd- ist með akstri bifreiðarinnar var henni ekið tvívegis á umferðarskilti og margsinnis upp á umferðareyjur. Lögreglumenn kvöddu dyra á hús- inu og kom ákærði til dyra og var hann færður á lögreglustöðina þar sem tekin var af honum skýrsla og úr honum tekið blóðsýni. Við rann- sókn á blóösýninu reyndist það innihalda 2,54 prómill alkóhóls. Jafnframt var tekið þvagsýni úr ákærða sem reyndist innihalda 3,01 prómill alkóhóls. Maðurinn var sviptur ökuleyfi til bráðabirgða nokkrum dögum síðar en fékk það að nýju í kjölfar dóms Héraðsdóms. Ákærði bar fyrir dómi að hann hefði daginn áður en hann var tek- inn grunaðu um ölvunarakstur keypt sér eina þriggja pela flösku af brennivíni og einn fleyg af vodka. Síðar um daginn hefði hann síðan heimsótt móður sína og komið flöskunni og fleygnum fyrir undir símaborði í íbúð sinni. Hann kvaðst á þessum tíma hafa átt við miklar svefntruflanir að stríða og ekki get- að sofið umrædda nótt. Því hefði hann þá um nóttina ekið að húsi móður sinnar og hefði tilgangur far- arinnar verið að nálgast áðurnefnt áfengi. Á leiðinni hefði hann fundið fyrir sljóleika vegna svefnleysisins og af þeim sökum keyrt yfir tvö um- ferðarmerki og einhverjar umferð- areyjar. Ákærði kvað það hafa verið sitt fyrsta verk er hann kom inn í íbúð móður sinnar að teyga 3/4 úr fyrr- nefndri brennivínsflösku. Stuttu síðar hefði lögregla bankað á dyr íbúðarinnar. Aðspurður kvaðst ákærði hafa verið um 7 mínútur inni í íbúðinni áður en lögreglu bar að. í áliti rannsóknarstofu kemur fram að etanólþéttni mældist 2,54 i blóði og 3,01 í þvagi. Bióð- og þvag- sýni hafi verið tekin um eða innan við 30 mín. frá því að fyrst var til- kynnt til lögreglu um grunsamlegan akstur ákærða og meirihluta þess tíma hafi hann verið í vörslu lög- reglu. Að það mikla magn áfengis sem mældist í blóði og þvagi ákærða væri til komið vegna áfeng- isneyslu hans á þeim stutta tíma sem leið frá tilkynningu um grun- samlegan akstur til handtöku, og að það hafi náð að frásogast frá melt- ingarfærum, berast út í blóðið og skiljast út í þvagi á þeim stutta tíma sem um var að ræða var fræðilega talið því sem næst útilokað. Dómurinn taldi að ákæruvaldinu hefði tekist að sanna, „svo haflð IMIM .i.l “* ;;;;; •» «¥• ••« ' ' ' < H II " 44 44 á — - „ni iiiMMI IIIIIÉIMMIMHl ifR Nýja ferjan Norræna Hún mun hefja siglingar áriö 2003 og getur flutt hátt í ÍOOO bíla. Núverandi ferja þykir þokkalega stór en getur þó einungis flutt um 300 þíla. Terra Nova tekur við farmiðasölu í Norrænu: Ný ferja hefur siglingar 2003 - í sumar var metár í flutningum til og frá landinu Ný og glæsileg farþega- og bílaferja mun hefja siglingar á milli íslands og Evrópulanda árið 2003. Kemur skipið i stað núverandi Norrænu sem vænt- anlega mun halda uppi siglingum hingað til lands næsta sumar. Nýja skipið verður um þrisvar sinnum afkastameira en núverandi Norræna sem getur flutt um 300 bila. Áætlað er að nýja Norræna geti flutt allt að 1000 fólksbíla í ferð. Hún á að taka 1482 farþega og ganghraði er áætlaður 21 sjómíla. Skipið er nú í smíðum hjá Flensburger Schiffbau Gesellschaft í Þýskalandi og á að verða hið glæsilegasta, eða eins og segir í upplýsingum frá Smyril Line, „sannkallað lystiskip". í sumar var metár í flutningum Norrænu til og frá íslandi. Farþegar voru samtals 16 þúsund og voru flutt yfir 4000 farartæki. Þær breytingar verða gerðar um næstu mánaðamót að skrifstofa Norrænu ferðaskrifstof- unnar ehf. að Laugavegi 3 í Reykjavík verður lögð niður, en fyrir helgi voru undirritaðir samningar um sölu ferða verði yfir skynsamlegan vafa“, þrátt fyrir neitun ákærða, að hann hefði ekið undir áhrifum áfengis um- rædda nótt. Að teknu tilliti til ým- issa hluta var það niðurstaða dóms- ins að dæma manninn í 100 þúsund króna sekt og til sviptingar ökuleyf- is í 19 mánuði. Var upphaflegi dóm- urinn ökuleyfissvipting í 2 ár en 5 mánuðir sem maðurinn var sviptur ökuleyfi fyrir fyrri úrskurð Héraðs- dóms kom til frádráttar. Þá var manninum gert að greiða allan málskostnað. -GK Héraðsdómur Norðurlands eystra Nýr söluaðili í Reykjavík Jónas Hallgrímsson, framkvæmda- stjóri Austfars, og Anton Antonsson, forstjóri Terra Nova, handsalá sam- starfssamning um afgreiöslu fyrir Norrænu í Reykjavík. í skipið við Ferðaskrifstofuna Terra Nova hf. í Stangarhyl 3. Það fyrirtæki og Austfar ehf. á Seyðisfirði munu því framvegis sjá um sölustarfsemi hér á landi fyrir p/f Smyril Line í Færeyjum sem gerir út skipið. -HKr. Eru naglarnir iiauosynlegir borgarinnar? i \. ■ 1 Heimilt er að aka á negldum hjólbörðum frá byrjun nóvember til 15. apríl eða í 167 daga alls. Að jafnaði erfærð í borginni þannig að naglar koma einungis að gagni örfáa daga vetrarins. Eru til aðrir valkostir? Mikil þróun hefur átt sér stað í framleiðslu ónegldra dekkja og er óhætt að mæla með þeim sem valkosti í stað nagladekkja. Um það bil 35-40% bílstjóra gera sér grein fyrir þessu og nota ekki negld dekk. Auk þess er notkun nagladekkja hvorki lagaleg skilda né forsenda fyrir tryggingavernd af hálfu tryggingafélaganna. Nokkur atríði til athugunar áður en vetrardekk eru valin. Akstur flesta daga vetrarins fer fram á auðu malbiki sem veldur því að: • hemlunarvegalengd eykst nokkuð ef ekið er á nagladekkjum • yfir vetrartímann nemur slit á götum borgarinnar af völdum nagladekkja u.þ.b. 10.000 tonnum af malbiki eða 60 tonnum á dag og nemur árlegur kostnaður eingöngu vegna þess um 200 milljónum króna • notkun nagladekkja veldur aukinni hávaðamengun • svifryk frá nagladekkjum mengar og veldur óþægindum • slithjólför í malbiki aukast til muna af völdum nagladekkja og valda hættu, einkum í bleytu. Því ættu varkárír bílstjórar að íhuga hvort ástæða sé til að nota nagladekk ef að mestu er ekið innan borgarmarkanna. Aktu varlega - aktu naglalaus. Gatnamálastjórinn í Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.