Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2001, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2001, Síða 11
11 Aðeins í Glæsibæ iuviðo í Útilíf Clæsibæ Rýmum fyrir 2002 módelunum ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 Norðurland DV Ferðaþjónustuaðilar á Norðurlandi eystra: Iðnaðarráðherra: Valgeröur Sverr- isdottir iönaöar- ráöherra. Rússunum leist vel á allt Jarövarmi frá Þeistareykjum verður að líkindum nýttur tii að knýja súráisverksmiðju í Eyjafirði ef hugmyndir rússneskra viðskipta- manna ná fram að ganga. Valgerður i Sverrisdóttir iðn- i aðarráðherra ít- i rekar að málið sé | á algjöru frum- 1 stigi og ótíma- I bært að spá fyrir um lyktir þess. Hún hitti hins ; vegar starfsmenn Russian Alumini- j um á Akureyri í fyrradag og fóru \ Rússarnir í skoð- unarferð á Dysnesið. Það svæði hef- ur um langa hríð veriö frátekið fyr- ir stóriðju þótt öll umræða um slíkt hafi legið niðri í meira en áratug. „Þeim leist vel á allt sem þeir sáu og mér finnst mest spennandi við þetta að þeir skuli vera að velta fyr- ir sér framleiðslu á súráli. Þar yrði jarðhitinn lykilatriði," segir Val- gerður. - Hafa rannsóknir sýnt að við gætum nýtt hann til þetta orkumik- illar starfsemi? „Á Þeistareykjum, já. Það er allt útlit fyrir að þar séu miklir mögu- leikar. Hins vegar urðu mikil von- brigði með Öxarfjörðinn. Þar er varla hægt að reikna með háhita- svæði,“ segir Valgerður. Aðspurð hvort Valgeröur telji pólitískan vilja fyrir stóriðju í Eyja- firði segir hún að það mál hafi ekki verið í umræðunni lengi og því sé erfitt að segja til um hvernig landið liggur. Hún telji hins vegar að menn skiptist nokkuð í tvo hópa. í framhaldi þessa fundar hafa Rússarnir ákveðið að láta gera hag- kvæmniathugun í Eyjafirði og mun iðnaðarráðuneytið aðstoða þá við öflun upplýsinga. Að sögn ráðherra standa Rússarnir straum af þeim kostnaði enda hafi þeim verið greint frá öðrum fyrirhuguðum stóriðjuáformum íslenskra stjórn- valda. -BÞ Skólanefnd Akureyrarbæjar: Systkinaafsláttur í daggæslu Bæjarstjóm Akureyrar beindi þeim tiimælum til skólanefndar að kannað- ur yrði kostnaður af því að veita systk- inaafslátt í daggæslu, sambærilegan við þann sem nú er veittur í leikskól- um og skólavistun. Einnig að kannað- ur yrði kostnaður af að veita 22% af- slátt af daggæslu til giftra foreldra og í sambúð frá þeim tíma er lengsta mögu- lega fæðingarorlofi lýkur. Daggæslufulltrúi vann samantekt fyrir skólanefnd þar sem fram kemur að ef miðað er við að veita 22% afslátt af daggæslu til giftra foreldra og for- eldra í sambúð frá 9 mánaða aldri bams yröi viðbótarkostnaður Akur- eyrarbæjar um 640 þúsund krónur á ári miðað við samsetningu og fjölda bama 1. október 2001. Einnig kemur fram að engin systkini em nú hjá dag- mæðrum en ef systkinaafsláttur yrði tekinn upp yrði viðbótarkostnaður Ak- ureyrarbæjar 40.161 króna á ári miðað við eitt systkini og 4 tíma vistun og 88.341króna á ári miðað við 8 tima vist- un. Skólanefnd hefur lagt tO að systk- inaafsláttur verði tekinn upp i dag- gæslu. Jafhframt bendir nefndin á að ef veita á 22% afslátt frá því að lengsta mögulega fæðingarorlofi (9 mánuðir) lýkur þurfi að auka við fjárhags- ramma næsta árs um kr. 700.000 að lág- marki. Á fundi skólanefndarinnar kom einnig til afgreiðslu erindi frá fióram aðilum sem fóra fram á að Akureyrar- bær greiddi niður laun „aupair" fyrir þá sem hafa valið að vera með „aupair" í stað dagmóður. Skóianefhd hafnaði þessu erindi þar sem nægjan- legt framboð væri af plássum hjá dag- mæðrum og auk þess félli slík þjón- usta, sem hér um ræðir, ekki undir reglugerð um daggæslu í heimahúsum. -gk Vilja sérstaka markaðsskrifstofu Meirihluti ferðaþjónustuaðila á Norðurlandi eystra hefur áhuga á að efna til samstarfs um sérstaka mark- aðsskrifstofu fyrir svæðið. Þetta kem- ur fram í könnun sem Ferðamálasetur íslands hefur unnið fyrir Ferðamáia- samtök Norðurlands eystra og kynnt var á Akureyri í gær. Fram kemur í þessari könnun að ferðaþjónustuaðilar á svæðinu telja að slík skrifstofa muni hafa jákvæð áhrif á sýnileika fýrir- tækja þeirra. Margir sýndu því áhuga að leggja fé í þessa skrifstofu og taka þátt í að stofna hana og reka en þó virðist það almennt skilyrði að fyrir- tækin vilja að sveitarfélögin taki líka þátt í fiármögnuninni. Sama viðhorf var hjá þeim fulltrúum sveitarfélag- anna sem rætt var við, þ.e. þeir telja að sveitarfélögin hafi ekki áhuga á þátt- töku nema ferðaþjónustuaðilar leggi sitt af mörkum. Flestir vilja að hlutverk Markaðs- skrifstofu Norðurlands verði að móta sameiginlega stefnu í ferðamálum fyr- ir allt svæðið í samvinnu við hags- munaaðila, ásamt markhópagreiningu og almennri markaðssetningu á þeirri þjónustu sem í boði er. Af öðram hlut- verkum sem lagt er til að verði á starfssviði skrifstofunnar má nefna: að aðstoða hagsmunaaðila við að setja saman, samræma og markaðssetja við- burði innan svæðisins; að mynda tengsl við upplýsingamiðstöðvar og samræma upplýsingagjöf til ferða- manna; að hvetja til nýsköpunar i ferðaþjónustu á svæðinu; og að setja saman ferðir, finna markhópa og markaðssetja í samvinnu við hags- munaaðila. 25. október - 4. nóv. ÚTILÍF GLÆSIBÆ Sími 545 1500 • www.utilif.is Líflegt í göngugötunni Feröamenn sem heimamenn spóka sig á göngugötunni á Akureyri. • Skíði • Skór • Bindingar • Stafir • Skíðafatnaður • og margt fleira ( brettadlagar) á sama tíma Aðeins í Smáralind Héraðsdómur Norðurlands eystra: Bónusvídeó dæmt til að borga hálfa milljón Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur gert Bónusvideói að greiða ungri konu ríflega hálfa milljón króna vegna vangoldinna vinnu- launa. Vídeóland á Akureyri var á síð- asta ári selt fyrirtæki í Reykjavík sem rak það í stuttan tíma áður en Bónusvídeó keypti fyrirtækið. Bón- usvídeó sagði starfsfólkinu upp störfum og fékk konan sem höfðaði málið greidd laun til 9. september á síðasta ári en uppsagnarbréf í hend- ur 12. september. Konan höfðaði málið til greiðslu launa á uppsagnarfresti ásamt or- lofi og desemberuppbót á þeim for- sendum að allar skyldur vinnuveit- enda hafi færst milli aðila við sölu fyrirtækisins. í vörninni var þvi hins vegar haldið fram að kaupin hafi einungis náð til tækja, tóla, áhalda og lagers Vídeólands en ekki til rekstursins. Dómurinn taldi hins vegar engan vafa leika á að kaupin hefðu einnig náð tii rekstursins og dæmdi því Bónusvídeó til að greiða konunni 531.453 krónur auk dráttarvaxta og 200 þúsund króna málskostnaðar. -gk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.