Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2001, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2001, Qupperneq 15
ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 15 ÐV Fréttir Á slóðum landnámsmanns í Ölfusi: Ingólfsfjallið lætur undan stórvirkum vinnuvélum mikil sjónmengun eftir áralangan námugröft IngólfsQaU í Ölfusi er talið kennt við landnámsmanninn Ingólf Arnar- son. í Landnámabók er sagt að Ingólfur hafi haft vetursetu undir fjallinu þriðja vetur sinn hér á landi og er fjallið talið bera nafn hans síð- an. Þetta merkilega fjall er farið að láta mjög á sjá hin síðari ár vegna gríðarlegs malarnáms í suðaustur- hlíðum fjallsins. Framan í fjallinu er vinsæl gönguleið upp hlíðina. Vegna malartekjunnar telja menn þessa leið hins vegar beinlínis orðna hættulega og óttast er að hún verði brátt ófær sökum malarnáms- ins. Mikil sjónmengun Af malarnáminu í Ingólfsflalli er mikil sjónmengun sem sést víða að. Mikið og stórt sár er í fjallshlíðinni sem blasir við vegfarendum sem leið eiga um þjóðveginn. Þykir þetta til marks um að oft er sótt í nauð- synlegt malarefni meira af kappi en forsjá. Malarnáman liggur reyndar sérlega vel við góðum samgöngu- leiðum. Skýrir það líklega staðarval námunnar líkt og varðandi fleiri námur, svo sem í Þrengslum og víð- ar. í ® ; :v Vy.'iOW * "• ‘KV* ' V":. ’ 'Í'-J r;.v-jW'- 4 * ’jás ■ /:• j ' 1 '•■ • ' s ' ■ ) DV-MYNDIR HARI Gönguleið á barmi hengifiugs Námugröftur undir Ingólfsfjalli er farinn aö höggva nærri vinsælli gönguleiö upp á fjalliö. Er svo komiö að fólk veigrar sér viö að fara þessa leiö, enda má ekkert út af bregöa svo menn hrapi ekki tugi metra fram afstálinu. Fjórði hluti Ingólfsfjall er 551 metri að hæð yfir sjó. Það er hömrum gyrt á þrjá vegu með mjög bröttum hlíðum. Rjallið er að mestu úr móbergi, en með hraunlögum inn á milli sem mest eru áberandi neðst og efst. Talið er að fjallið hafi myndast um miðja síðustu ísöld, en það er tengt Grafningsfjöllum með Grafnings- hálsi sem gengur út úr norðvestur- hlið Ingólfsfjalls. Yfir hálsinn er reyndar þekkt reiðleið frá Álfta- vatni norðaustan Ingólfsfjalls um Grafningsháls og niður Æðagil að sunnanverðu. Undir Arnarnípu, rétt norðan við þjóðveg númer eitt við suðvestur- horn flallsins, er mjög sérkennileg- ur grár og áberandi klettamúli sem heitir Silfurberg. Þar mun um bólstraberg að ræða sem líklega hef- ur myndast í eldgosi undir þykku ísfargi. í þessum móbergsmúla er talsvert af ljósum holufyllingum. Austan við þennan múla er malar- náman. Rétt sunnan þjóðvegarins sunnan Silfurbergs er annað þekkt kennileiti sem ber nafnið Kögunar- hóll. 'Er það sannarlega nafn með rentu, því af hólnum sést vel yfir undirlendið í Ölfusinu. Talið er að í lok síðustu ísaldar hafi Ingólfsfjall verið sæbrattur höfði og hafi ágangur sjávar skapað hinar bröttu hlíðar. Síðar hefur • • - ~y>k . *■ :.vrv * •'»■. Á.-5vf-'-'t ... ý r'|V - ■ r | Náman í Ingólfsfjalli Búiö er aö fjarlægja gríðarlegt magn af möl úr námunni. Er námubotninn nú víöa tugum metra fyrir neöan upphaflegt yfirborð. samspil jökla, eldgosa og árfram- gríðarlegt magn af nothæfu malar- áberandi staði og Ingólfsfjall óneit- burðar fyllt uþp landið í Ölfusinu efni. Því hlýtur það að vekja spurn- anlega er. -HKr. þar sem áður var opinn flói. Víst er ingar um hvort bráð nauðsyn sé á Heimild: Landiö þitt ísland. því að víða á Suðurlandi er að fmna að höggva óbætanleg skörð í jafn Kennt viö Ingólf Arnarson Talið er aö landnámsmaðurinn Ingólfur Arnarson hafi haft vetursetu undir Ing- ólfsfjalli sinn þriðja vetur á Islandi. Hann yröi líklega forviöa í dag ef hann mætti líta hverju mennirnir hafa áorkað í aö grafa út landiö þar sem hann rölti um fyrir meira en þúsund árum. Silfurberg undir Arnarnípu Sérkennilegir klettabólstrar eru viö suövesturhorn Ingólfsfjalls. Þarna er horft til austurs í átt aö malarnámunni. Jón Ingi Sæsarsson. Akureyri: Uppstilling hjá Samfylkingunni „Við erumbúin að slapa uppstill- ingamefnd sem á að stilla upp i öll sæti listans og á að hafa lokið störfum í janúar,“ segir Jón Ingi Sæsars- son, formaður Samfylkingarfé- lagsins á Akur- eyri, um framboðs- mál flokksins vegna bæjarstjóm- arkosninganna i vor. Jón Ingi segir að á félagsfundi um helgina hafi verið skipuð 5 manna uppstillingar- nefhd sem Þorgerður Þorgilsdóttir veiti formennsku. Nefhdin mun gang- ast fyrir skoðanakönnun meðal félags- manna og í framhaldi af henni skipa frambjóðendum í sæti listans. I kosningunum á Akureyri árið 1998 var boöinn fram Akureyrarlisti sem að stóðu Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur og Kvennalisti. Listinn fékk tvo bæjar- fulltrúa kjöma, þau Ásgeir Magnússon og Oktavíu Jóhannsdóttur og hafa þau setið í meirihluta bæjarstjórnar með 5 fulltrúum Sjálfstæðisflokksins. Þau Ás- geir og Oktavia em bæði í Samfylking- unni og segist Jón Ingi reikna með að þau muni gefa kost á sér í efstu sæti á lista fyrir kosningamar í vor. -gk Vinstri grænir, Akureyri: Vinnan gengur vel „Við emm að vinna okkar málefna- vinnu og það má segja að sú vinna gangi vel,“ segir Kristín Sigfúsdóttir hjá Vinstri grænum á Akureyri, en VG hefur lýst yfir að flokkurinn muni bjóða fram sinn eigin lista við bæj- arstjómarkosning- arnar í vor. Kristin segist ekki búin að ákveða hvort hún gefi kost á sér í eitt afefstu sætumlist- ans, en hún hefur Kristín Sigfúsdóttir. verið sterklega orðuð við efsta sætið. „Ég reikna siður með því að verða í framboði en það er þó ekki útilokað," segir Kristin. Hún segist reikna með því að ein- hvers konar könnun eða val verði gert um frambjóðendur og fari það ein- göngu fram meðal flokksmanna. Hvaða endanlega aðferð verði hins vegar notuð við lokaröðun á listann sé hins vegar ekki ákveðið. „Okkur ligg- ur ekki mjög mikið á með þetta en erum að vinna af krafti að öðrum mál- um og það er margt áhugasamt fólk sem vill taka þátt í þeirri vinnu,“ seg- ir Kristín. -gk Þrír diskar væntanlegir Þann 19. nóvem- ber sendir Björk Guðmundsdóttir frá sér þrjá DVD-diska en þeir eru frá þrennum tónleikum sem teknir vom upp á þremur stöðum. Fyrsti diskurinn var tekinn upp af tón- leikum hennar í Shephard Bush árið 1997 sem vom lokatónleikar hennar til kynningar á plötunni „Post“. Annar diskurinn inniheldur upptökur af tón- leikum hennar í Cambridge en það vom lokatónleikar hennar fyrir kynningu á plötunni „Homogenic". Þriðji diskurinn sýnir Björk órafmagnaða á tónleikum árið 1994 sem teknir vom upp fyrir tón- listarstöðina MTV. -DVÓ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.