Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2001, Side 30
34
ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001
íslendingaþættir___________________________________________________________________________________________________________py
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
90 ára_______________________________
Sigurður Samúelsson,
Háuhlíö 10, Reykjavlk.
85 ára_______________________________
Þórhallur Hálfdánarson,
Vitastíg 2, Hafnarfirði.
Guöfinna Jónasdóttir,
Fossheiöi 58, Selfossi.
80 ára_______________________________
Guðmunda Jónasdóttir,
Höföagötu 21, Stykkishólmi.
75 ára_______________________________
Anna Magnúsdóttir,
Selhóli, Snæfellsbæ.
Gunnar Hólm Sumarliðason,
Grundargötu 6, Isafiröi.
70 ára_______________________________
Kári Páll Friöriksson
pípulagningarmeistari,
Dalseli 8, Reykjavík. Eiginkona hans er
Sigrún Guödís Halldórsdóttir.
Ingibjörg Skarphéöinsdóttir,
Giljalandi 31, Reykjavík.
Ása Kristjánsdóttir,
Stífluseli 16, Reykjavík.
Friörik B. Þorbjörnsson,
Sunnubraut 10, Keflavík.
60 ára_______________________________
Kristján Thorlacius,
Kleifarvegi 8, Reykjavlk.
Sigurbjörg Símonardóttir,
Miðvangi 16, Hafnarfiröi.
Agnes Tulinius Svavarsdóttir,
Birkilundi 17, Akureyri.
Sigmundur Agnarsson,
Hrannarbyggð 10, Ólafsfiröi.
Anna Sigurbjórg Tómasdóttir,
Selási 9, Egilsstöðum.
Bergtjót Stefánsdóttir,
Ketilsstöðum, Egilsstööum.
Ragnar Elísson,
Hjaröarbrekku 2, Hellu.
50 ára_______________________________
Helga L Guömundsdóttir,
Brekkugeröi 5, Reykjavík.
Júlía Hannam,
Búlandi 16, Reykjavík.
Ásgeir Jónsson,
Kóngsbakka 12, Reykjavik.
Kristján Arnfjörö Guömundsson,
Þrastanesi 22, Garöabæ.
Sæmundur Stefánsson,
Heiöarhrauni 38, Grindavik.
Ragnhildur G. Guömundsdóttir,
Júllatúni 3, Höfn I Hornafirði.
40 ára_______________________________
Jóhann Svavar Jóhannsson,
Brúnastööum 46, Reykjavík.
Marteinn Karlsson,
Álfhólsvegi 18, Kópavogi.
Auöunn Helgi Herlufsen,
Efstuhlíö 21, Hafnafiröi.
Rosmary Aöalsteinsdóttir,
Suöurgötu 8, Keflavík.
---------~7-------------------------
IJrval
^___________________________________
Attatín og flmm árn
Runólfur Sæmundsson
fyrrv. forstjóri Blossa
Runólfur Sæmundsson forstjóri,
Skólavörðustíg 20, Reykjavík, er
áttatíu og fimm ára i dag.
Starfsferill
Runólfur fæddist við Grettisgöt-
una í Reykjavik og ólst upp í
Reykjavík, lengst af í Þingholtun-
um. Hann var í Miðbæjarskólan-
um og stundaði nám við VÍ og
lauk verslunarprófi þaðan 1936.
Runólfur var sendill hjá Skó-
verslun Jóns Stefánssonar á
Laugaveginum á unglingsárun-
um.
Að námi loknu var hann full-
trúi hjá Viðtækjaverslun íslands
um skeið, var framkvæmdastjóri
Sveins Egilssonar 1949-52, fulltrúi
hjá Agli Vilhjálmssyni 1952-53 og
deildarstjóri hjá Dráttavélum sf. á
vegum SÍS 1953-59.
Runólfur flutti með fjölskyldu
sinni til Buenos Aires 1959 þar
sem hann var fulltrúi hjá Cale-
fones Heineken til 1962. Hann
flutti þá aftur til Islands, stofnaði
fyrirtækið Blossa 1963 sem hann
starfrækti til 2001 er hann seldi
fyrirtækið sem sameinaðist fyrir-
tækinu Framtaki í Hafnarfirði.
Hann starfar þó enn í fullri vinnu
hjá því fyrirtæki, Framtaki
Blossa.
Fjölskylda
Runólfur kvæntist 18.2. 1940
Nönnu Halldórsdóttur, f. 22.7.
1918, d. 4.12. 1997, húsmóður, syst-
ir Sigfúsar tónskálds. Hún var
dóttir Halldórs Sigurðssonar, úr-
smiðs í Reykjavík, og k.h., Guð-
rúnar Eymundsdóttur, systur Sig-
fúsar bóksala.
Synir Runólfs og Nönnu: Logi, f.
31.1. 1941, d. 2.1. 2001, fram-
kvæmdastjóri í Reykjavík, var
kvæntur önnu Kristjánsdóttur
flugfreyju og eignuðust þau tvö
börn; Daði, f. 30.11. 1945, strætis-
vagnstjóri, búsettur í Mosfellsbæ,
kvæntur Ragnheiði Ríkharðsdótt-
ur skólastjóra og eiga þau tvö
böm en sonur þeirra er knatt-
spymumaður Ríkharður Daðason;
Haílldór Bjöm, f. 4.10. 1950, list-
fræðingur í Reykjavík, kvæntur
Margréti Auðuns kennara.
Systkini Loga eru Haraldur, nú
látinn, rafmagnseftirlitsmaður;
Otti, dekkjaviðgerðamaður, bú-
settur í Reykjavík; Sigríður, hús-
móöir, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Runólfs voru Sæ-
mundur Runólfsson, rafvirki í
Reykjavík, og k. h., Guðríður Otta-
dóttir húsmóðir.
Ætt
Sæmundur var sonur Runólfs,
verkamanns í Reykjavík, Gunn-
laugssonar. Móðir Runólfs Gunn-
laugssonar var Guðrún Sveins-
dóttir, b. á Lambalæk í Fljótshlíð,
Jónssonar og Sigríðar Jónsdóttur,
b. á Lambalæk, Einarssonar. Móð-
ir Sigríðar var Ingibjörg Arn-
bjarnardóttir, b. á Kvoslæk í
Fljótshlíð, Eyjólfssonar, ættfóður
Kvoslækjarættarinnar.
Móðir Sæmundar Runólfssonar
var Guðrún, systir Guðrúnar,
langömmu Guðlaugs Bergmanns í
Karnabæ og Guðlaugs Tryggva
Karlssonar hagfræöings. Bróðir
Guðrúnar var Guðbrandur, afi
Hauks Morthens og Kristins, föð-
ur Bubba Morthens og Tolla
myndlistarmanns. Annar bróðir
Guðrúnar var Sæmundur, afi
Guðrúnar hæstaréttardómara og
Sigríðar sagnfræðings Erlends-
dætra. Guðrún var dóttir Sæ-
mundar, b. í Lækjarbotnum á
Landi, Guðbrandssonar, ættföður
Lækjarbotnaættarinnar, bróður
Sigurðar, langafa Guðmundar
Daníelssonar rithöfundar. Guðríð-
ur var dóttir Otta, b. í Kúludalsá á
Hvalfjarðarströnd, Guðmundsson-
ar og Vilborgar Oddsdóttur.
Runólfur verður með börnum
sínum, tengdabörnum og barna-
börnum á afmælisdaginn.
Fertuftir Li Fertiig
Guöjón Smári Guðmundsson
búsettur í Reykjavík
Guðjón Smári Guð-
mundsson, Skúlagötu 60,
Reykjavík, er fertugur í
dag.
Starfsferill
Guðjón fæddist í
Reykjavík og ólst þar
upp, fyrst við Álftamýr-
ina en síðan við Berg-
staðastræti.
Guðjón var sendisveinn á ung-
lingsárunum. Hann lauk grunn-
skólaprófi frá Höfðaskóla, stund-
aði siðan verkamannastörf um
árabil, vann í Hampiðjunni, starf-
aði hjá Álafossi 1982-84 og var
starfsmaður Reykjavíkurborgar í
þó nokkur ár. Þá sá hann jafn-
framt um blaðburð fyrir Morgun-
blaðið í tólf ár.
Fjölskylda
Sambýliskona Guðjóns frá
1996-99 var Sigrún María Eyjólfs-
dóttir húsmóðir, dóttir Eyjólfs V.
Jónssonar.
Systkini Guðjóns eru Agnar
Guðmundsson, f. 15.7. 1952, stýri-
maður, búsettur í MosfeUsbæ, en
kona hans er María Eggertsdóttir;
Margrét Guðrúnardóttir, f. 15.7.
1952, skrifstofumaður hjá Vátrygg-
ingafélagi íslands, búsett í Reykja-
vik; Guðmundur Bjarni Guð-
mundsson, f. 15.3. 1956,
vörubifreiðarstjóri og
sendibifreiðarstjóri, bú-
settur í Reykjavík, en
eiginkona hans er Rut
Ólafía Friðriksdóttir;
Árni Sigurður Guð-
mundsson, f. 16.3. 1958,
en hann starfrækir fyr-
irtækið Kvóta- og skipa-
söluna í Hafnarfírði, bú-
settur í Reykjavík, en eiginkona
hans er Anna Sigurðardóttir.
Hálfbróðir Guðjóns er Garðar
Bergendahl, f. 19.9. 1943, lengst af
starfsmaður Sláturfélags Suður-
lands, búsettur í Reykjavík, en
eiginkona hans er Sigrún Hösk-
uldsdóttir.
Foreldrar Guðjóns: Guðmundur
Agnarsson, f. 14.3. 1933, sjómaður,
og Guðrún Bjarnadóttir, f. 1.6.
1923, d. 6.8. 1987, húsmóðir.
Ætt
Guðmundur er sonur Agnars
Sturlu Guðmundssonar, sjómanns
í Keflavík, og Margrétar Sig-
mundsdóttur húsmóður.
Guðrún var dóttir Bjarna Magn-
ússonar, b. við Búðardal, og Sól-
veigar Árnadóttur.
Guðjón verður ekki heima á
afmælisdaginn en hægt verður að
ná í hann í síma 821-8131.
Stella Ragnhildur Helgadóttir
læknaritari í Reykjavík
Stella Ragnhildur Helgadóttir
læknaritari, Álfhólsvegi 145,
Kópavogi, er fertug í dag.
Starfsferill
Stella fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hún lauk
stúdensprófi og læknaritaraprófi
frá FB 1981.
Á sínum yngri árum starfaði
Stella m.a. við járnabindingar
með föður sínum, stundaði
verslunarstörf á árunum 1982-83
hjá Tómstundahúsinu, var
dagmóðirá árunum 1986-98,
starfaði í Sælgætisverkmiðjunni
Freyju í nokkra mánuði og er nú
læknaritari hjá Landspítala -
háskólasjúkrahúsi að Grensási.
Auk þess stundar hún
verslunarstörf við 10-11 verslun.
Fjölskylda
Sambýlismaður Stellu er
Finnbogi Guðjón Holt
Finnbogason, f. 9.11. 1949,
verkamaður hjá ÍSAL. Hann er
sonur Finnboga Sigurðssonar
lögregluvarðstjóra, sem er látinn,
og Guðlaugar Guðlaugsdóttur,
húsmóöur í Holti í Garðahverfi.
Böm Stellu eru Kristinn Már
Finnbogason, f. 7.3. 1984, vinnur
hjá Aðalblikki; Anna Lísa
Finnbogadóttir, f. 1.8. 1985, nemi i
Iðnskóla Hafnarfjarðar; Fjóla
Dögg Finnbogadóttir, f. 23.1. 1991;
nemi í Hjallaskóla; Tinna Rut
Finnbogadóttir, f. 29.4. 1993.
Fyrir átti Finnbogi synina
Sævar Ara, f. 28.12.1970, og Guðna
Örn, f. 23.11. 1972, búsettur i
Finnlandi, kvæntur Anniku og
eiga þau einn son; Finn Trausta, f.
12.10. 1979.
Alsystkini Stellu eru Daníel
Brynjar Helgason, f. 11.4. 1957,
sjómaður, búsettur á Sauðárkróki,
en kona hans er Berglind
Ottósdóttir og eiga þau saman
þrjú börn en Berglind á eina
dóttur fyrir; Kristinn Helgason, f.
15.12. 1958, d. 13.10. 1981; Steinar
Björn Helgason, f. 10.1. 1966,
húsamálari, en kona hans er
Þórdís og eiga þau eitt barn
saman en fyrir átti Þórdís fjögur
börn, búsett i Reykjavík; Heiða
Dögg Helgadóttir, f. 8.3. 1972,
sjúkraliði, en maður hennar er
Guðmundur Eyjólfsson og eiga
þau tvö börn saman, búsett í
Reykjavík.
Foreldrar Stellu eru Jón Helgi
Kristinsson, f. 15.6. 1934, fyrrv.
sjómaður, núverandi verkamaður,
og Birthe Annelise Pedersen, f.
23.7. 1936, húsmóðir.
Sigfús Sumarliðason, fyrrv. sparisjóös-
stjóri, Borgarnesi, andaöist á gjörgæslu-
deild Landspítalans viö Hringbraut
þriðjud. 23.10.
Kristín Pétursdóttir, Grænuhlíð 14,
Reykjavik, er látin.
Hans Jörgensson, fyrrv. skólastjóri, Afla-
granda 40, Reykjavík, lést á Heilsu-
stofnuninni i Hveragerði 24.10.
Guömundur Kr. Kristinsson arkitekt, áö-
urtil heimilis í Vesturbæ, Álftanesi, lést
á dvalarheimilinu Holtsbúö 25.10.
Sigurgísli Melberg Sigurjónsson, Hlaö-
hömrum 2, andaöist á Landspítalanum I
Fossvogi 21.10. Jaröarförin hefur fariö
fram í kyrrþey aö ósk hins látna.
Lilja Guöjónsdóttir, Uröarholti 1, Mos-
fellsbæ, lést á heimili sínu 17.10. Jarð-
arförin hefur farið fram I kyrrþey aö ósk
hinnar látnu.
Mcritir Islendingnr
Hallgrímur Jónasson, kennari við Kenn-
araskóla Islands, fæddist í Fremri Kot-
um í Skagafiröi 30. október 1894, sonur
Jónasar Hallgrímssonar, bónda þar, og
k.h., Þóreyjar Magnúsdóttur húsfreyju.
Hallgrímur var albróðir Frímanns Jón-
assonar, skólastjóra í Kópavogi.
Hallgrímur stundaði nám við Al-
þýðuskólann á Hvítárbakka i Borgar-
firði, lauk kennaraprófi frá Kennara-
skólanum í Reykjavik 1920, stundaði
nám við Kennaraháskólann í Kaup-
mannahöfn og síðan við skólann í
Askov og fór námsferð til Englands og
fjölda slíkra ferða til Norðurlandanna.
Hallgrímur var kennari við Barnaskól-
ann í Vestmannaeyjum 1921-31 og bókavörður
Hallgrímur Jónasson
þar 1926-31 og síðan kennari við Kennaraskól-
ann frá 1931-1968.
Hallgrímur var einn af vinsælustu og
virtustu kennurum Kennaraskólans um
árabil en þegar verið var að koma upp
fjölmennri kennarastétt til að stórauka
almenna bamafræðslu hér á landi var
ævistarf hans einkar mikilvægt.
Hallgrímur var ágætur hagyrðingur
og auk þess mikill áhugamaður um
ferðalög, var fararstjóri hjá Ferðafélagi
íslands í tuttugu sumur frá 1940, sat i
stjóm félagsins 1944-1972 og var heið-
ursfélagi þess og Útivistar. Þá hélt hann
fjölda útvarpserinda, skrifaöi mikið í Ár-
bók Ferðafélagsins og samdi fjölda ferðalýs-
inga. Hann lést 1991.
Útför Rafns Eggertssonar fer fram frá
Langholtskirkju þriðjud. 30.10. kl.
10.30.
Útför Karls Sigurössonar pianókennara,
Kvisthaga 10, Reykjavík, fer fram frá
Langholtskirkju þriöjud. 30.10. kl.
13.30.
Guörún Björg Sigurðardóttir frá Hrísey,
Ægisíöu 50, Reykjavík, veröur jarösung-
in frá Neskirkju þriðjud. 30.10. kl.
13.30.
Indiana Margrét Jafetsdóttir veröur
jarösungin frá Kópavogskirkju þriöjud.
30.10. kl. 13.30.