Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2001, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2001, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2001 Fréttir „Óþörf“ lokun tæknifrjóvgunardeildar á Landspítalanum: Spitalinn fær 112 milljóna uppbót - Landspítalinn vissi ekki aö verðlagsbóta vegna s-lyfja var að vænta Þórður Óskarsson, yfir- læknir á tæknifrjóvgunar- deild Landspítala, sagðist sið- degis í gær ekki geta sagt til um það nákvæmlega hvenær unnt yrði að veita úrlausn þeim einstaklingum sem bíða eftir þjónustu deildarinnar. Sem kunnugt er var tilkynnt um það í síðustu viku að ekki yrðu tekin til meðferðar ný pör á deildinni vegna fjár- skorts en fjárveiting vegna s- merktra lyfja (sem eru sjúkrahúslyf sem eingöngu eru notuð á stofnun- um og eru yflrleitt mjög dýr) var uppurin. Það sem á vantaði voru um 5-10 milljónir króna til þess að hægt væri að halda áfram að taka fólk í meðferð út árið. Jón Kristjánsson tilkynnti á Alþingi í fyrradag að fyr- irhuguð lokun á deildinni hefði ver- ið óþörf og Magnús Pétursson, for- stjóri Landspítalans, segir að búið sé að gefa stjómendum tæknifrjóvgundardeildar fyr- irmæli um að óhætt sé að opna aftur fyrir inntöku nýrra aðila hjá deildinni, enda hafi sjúkrahúsið fengið 112 milljónir í verðlagsupp- bætur vegna s-merktra lyfja. Jón Kristjánsson segir að ástæðan fyrir orðalagi sínu um að lokunin hafi reynst „óþörf ‘ sé sú að þegar menn hafi far- ið að skoða verðlagsuppbætur til s- merktra lyfja, en þeir útreikningar lágu fyrir í síðustu viku, hafi komið í ljós að þær dugi nokkum veginn fyrir því sem á vantaði. „Þess vegna var þetta af fjárhagsástæðum óþarft, þ.e.a.s. vegna lyfjakostnaðarins," segir Jón Kristjánsson. Aðspurður um hvers vegna þessar verðlags- breytingar sem skyndilega dúkkuðu upp í síðustu viku hafi ekki verið uppi á borðum allan tímann, t.d. í tengslum við gerð fjáraukalaga nú í haust, segir Jón að þetta fari ekki inn á fjáaukalögin því heim- ildarákvæði sé í fjárlögum yf- irstandandi árs þar sem mæta á verðlagsbreytingum lyfja og breytingum í launakostnaði og þetta sé innan þess ramma. Magnús Pétursson segir það hafa legið fyrir frá því um mitt ár að Landspítalinn færi fram úr áætlunum vegna s-merktu lyfjanna en áætlanir gera ráð fyrir um 800 milljónum króna og það stefnir í að þessi kostnaður geti orðið um 920 milljónir vegna gengisþróunarinnar og verðhækkana. Magnús segir að engar upplýsingar hafi legiö fyrir um að viðbótarfjárveiting væri á leiðinni þrátt fyrir að ráðuneytinu hafi verið kynnt staða mála og það upplýst að spítalinn myndi sjá sig knúinn til að takmarka notkun lyfjanna. „Þetta hafði legið fyrir í margar vikur og þar kom að þvi að við litum á forgangs- lista heilbrigðisráðuneytisins til að sjá hvað væri neðst á þeim lista og stoppa það sem þar var. Þetta tel ég ábyrga afstöðu og tilkynnti ráðuneyti og ráðherra að þetta myndi verða gert,“ segir Magnús. Eftir að þetta var komið til framkvæmda komu þau viðbrögö úr ráðuneytinu - á fimmtudaginn var - að til spítalans mundu koma 112 milljónir vegna s- merktra lyfja, „á þeirri forsendu sem við höfðum áður bent á, að verðlagsforsendur og gengisþróun er önnur en í fjárlögum," segir Magnús Pétursson. -BG Jón Kristjánsson. Magnús Pétursson. Farsími í bílum: Handfrjáls skylda en sektir eftir ár Rannsóknarstofur víða í Evrópu rannsaka meint fölsuð málverk: Hátt í 180 málverk eru í lögreglurannsókn - bráðum ljóst hverjir verða yfirheyrðir Ökumönnum er skylt að nota handfrjálsan símabúnað við akstur frá og með deginum í dag. Lögregl- an hafði gert athugasemdir við far- síma hjá nokkrum ökumönnum þegar DV fór í prentun í morgun. Þeir sem tala í farsíma án hand- rjálsa búnaðarins verða þó ekki sektaðir fyrr en eftir 1. nóvember 2002 þar sem breytingin á umferðar- lögunum kveður á um árs aðlögun- artíma hvaö það varðar. Samkvæmt upplýsingum frá Um- ferðarráði er talið er að mörg slys, þar á meðal alvarleg slys og óhöpp sem orðið hafa í umferðinni hér á landi, megi rekja til þess að athygli ökumanns var skert, m.a. vegna þess að hann var að tala i farsíma í akstri. Við bætist að margir öku- menn hafa framið umferðarlaga- brot, af því að þeir hafa verið upp- teknir við eitthvað allt annað en aksturinn. Lög um handfrjálsan símabúnað gilda í flestum Evrópu- ríkjum. -Ótt Hannes tapaði fyrir Timman Ivan Sokolof sit- ur nú einn 1 efsta sæti á minningar- skákmótinu sem fram fer í Ráöhúsi Reykjavíkur þegar tvær umferðir eru eftir. Hannes Hlífar Stefánsson, sem var í efsta sæti ásamt Sokolof, tapaði fyrir Jan Timman í gær og er í fjórða til sjöunda sæti ásamt Ehlvest, Schandorff og Helga Ólafs- syni sem vann sína skák i gær gegn Leif Johannessen. í öðru til þriðja sæti eru Jan Timman og Peter Heine Nielsen. Níunda umferð verð- ur tefld í dag og þá tefla þeir saman Hannes Hlifar og Helgi, Jan Timm- an og Peter Heine Nielsen og Arnar Gunnarsson fær það verk að tefla á móti Sokolof. -HK Hannes Hlífar Stefánsson. Rikislögreglustjóri er með hátt í 180 málverk í rannsókn sem fer meðal annars fram hjá sérfræðing- um á rannsóknarstofum á Norður- löndunum og víðar í Evrópu. Jón H. Snorrason saksóknari segir að brátt komist málin á það stig að hægt verði að taka afstöðu til frekari rannsóknar lögreglu - t.a.m. hvort og hvenær skýrslur verða teknar af þeim sem hafa réttarstöðu grunaðra í málunum og öðru fólki tengdu verkunum. Hins vegar er nokkuð langt I land með að hugsanlegar ákærur verði gefnar út. „Kærendurnir skipta tugum,“ sagði Jón í samtali við DV. „í upp- hafi var kært vegna tuttugu mál- verka. Eftir það var ákært fyrir þrjú þeirra og málið tekið fyrir hjá dóm- stólum. í kjölfar þess kom holskefla af kærum, það er á tímabilinu frá 1999 og fram í byrjun árs 2000. Síð- an hafa fáar kærur komið fram. Hins vegar vitum viö að margir eig- endur málverka eru efms um upp- runa þeirra af ýmsum ástæðum," sagði Jón. Pétur Þór Gunnarsson, fyrrver- andi framkvæmdastjóri og eigandi Gallerís Borgar, var í Hæstarétti dæmdur í 6 mánaða óskilorðsbund- ið fangelsi vegna þriggja framan- greindra málverka sem fyrst var kært út af. Jón sagði að sem stendur sé verið að rannsaka framangreind 180 mál- verk með hliðsjón af pappír, litum og ýmiss konar efnum. „Þetta er mjög víðfeðmt," sagði Jón. Aðspurð- ur um kostnað sagði hann rann- sóknina gríðarlega kostnaðarsama en kvaðst ekki geta gefiö upp tölur í því sambandi. Bændasamtökin áminna Goða/Kjötumboðið: Milljónir í bakið á bændum - ef fyrirtækið stendur ekki við útflutningsskyldu sína Kjötið skal út Bændasamtökin þrýsta á um að kjöt sem slátraö hefur veriö á vegum Goöa veröi notaö til aö uppfylla útflutningsskyldu fyrirtækisins. Sauðfjárbændur hafa nú áhyggjur af því hvernig Goði/Kjötumboðið muni ljúka útflutningsskyldu sinni á dilkakjöti. Sam- kvæmt upplýsingum DV á fyrirtækið enn ólokið út- flutningi á 200-220 tonnum af kjöti. Hafa komið fram áhyggjur af því að þetta kjöt sé á innanlandsmarkaði og að ekki standi til að flytja það úr landi. Bændasamtök íslands hafa eftirlit með því að slát- urleyfishafar uppfylli út- flutningsskyldu sína. Að- spurður um stöðu þessa máls sagði Sigurgeir Þor- geirsson, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, að þau hafi ítrekað haft samband við Goða/Kjötumboðið á þessu hausti og áminnt fyr- irtækið um útflutnings- skylduna. „Fari svo að fyrirtækið ljúki ekki þessum útflutningi muni samtökin innheimta útflutnings- gjald, sem er lögum samkvæmt og krefjast þess að það verði viður- kennt sem forgangskrafa,“ sagði Sigurgeir enn fremur. Hann vildi ekki upplýsa um upphæð kröf- unnar, ef til kemur, en útflutn- ingsgjald mun nema um 200 krón- um á hvert kíló. Það myndi gera samtals um eða yfir 40 milljónir króna. „Við lítum á þetta sem fjárkröfu sem lúti sömu reglum og aðrar fjárkröfur á hendur Goða,“ sagði Brynjólfur Kjartansson, lög- maður og tilsjónarmaður Goða/Kjötumboðs. „Ef sam- þykktur verður nauðasamn- ingur þá komi þetta til nið- urskurðar eins og annað.“ „Ef þessari kröfu verður hafnað sem forgangskröfu þá kemur þessi upphæð i bakið á sauðfjárbændum í landinu," sagði Sigurgeir, „þvi þetta mun trúlega leiða til þess að ákveðin verður hærri útflutningsprósenta síðar fyrir vikið.“ Talið er að bændur eigi á bilinu 110-120 milljónir króna inni hjá Goða/Kjöt- umboði. Þá getur hópur sunnlenskra bænda átt á hættu að þurfa að tvíborga milljónir króna fyrir áburð, vegna aðferðar Goða við uppgjör áburöarkaupanna. Bændasamtök- in fara með mál fyrir nær 700 bænda gagnvart fyrirtækinu sem er I greiðslustöðvun til 20 nóvem- ber nk. -JSS Enn fréttabann Þórir Einarsson ríkissáttasemjari heldur enn fast í fréttabann á samn- inganefndir í deilu tónlistarkennara. Hann segir tilgang bannsins að spilla ekki viðræðum sem eru á mjög viðkvæmu stigi. Fundur í deilunni hefur verið boðaður í dag og er gert ráð fyrir að iaunanefnd sveit- arfélaga svari tillögum kennaranna frá í gær. Mbl.is greindi frá. Mjólkin verðlaunuð íslenskar mjólkurvörur fengu 64 verðlaun á vörusýningu í Herning í Danmörku. Sveppaostur frá Osta- og smjörsölunni og Melónujógúrt frá MB hlutu heiðursverðlaun. Alls voru sýndar 200 íslenskar vörutegundir. Nálgunarbann Dómstólar hafa sex sinnum kveðið upp úrskurð um nálgunarbann og einu sinni hafnað slíkri kröfu síðan nýtt lagaákvæði tók gildi fyrir hálfu öðru ári. Úrræðið hefur að markmiði að veita fórnarlömbum ofbeldis aukna vernd. Nató vill flugumferðarstjóra Nató hefur sent íslenskum stjóm- völdum ósk þess efnis að átta flugum- ferðarstjórar verði sendir til að stjórna flugumferð í Kosovo. Yrði þetta hluti af framlagi þjóðarinnar til friðargæslu á svæðinu. Ákvörðun um að verða við óskinni hefur ekki verið tekin. Evruvæðing Búast má við sjálfsprottinni evra- væðingu hérlendis eftir að notkun gjaldmiðilsins hefst í verslun og við- skiptum í tólf af löndum Evrópusam- bandsins um áramót. Þetta er skoðun Þorsteins Þorgeirssonar, hagfræðings Samtaka iðnaðarins. Ríkisstjórnin hyggst heimila íslenskum fyrirtækj- um, að uppfylltum skilyrðum, að færa bókhald og ársreikning sinn í erlendri mynt. Að mati Þorsteins kann þetta að leiða til tvímyntarkerf- is hér á landi. LSD á fyrirmyndargangi Ofskynjunarlyfið LSD fannst á fyr- irmyndargangi Litla-Hrauns og hefur ganginum verið lokað í kjölfarið. Laxveiðin betri Á nýliðinni vertíð veiddust 29.600 laxar á stöng í íslenskum ám. Veiðin þetta ár er 8% meiri en í fyrra og má einkum rekja til stóraukinnar veiði í Eystri- og Ytri-Rangá. Víst geta karlar Ámi Mathiesen sjávarútvegsráð- herra flutti erindi á jafnréttisráðstefn- unni „Víst geta karl- ar“ í Kaupmanna- höfn í gær. Þar sagði ráðherra að ekki væri tímabært að breyta lögum um fæðingarorlof þannig að foreldrar gætu framselt sjálfstæðan orlofsrétt sinn sín á milli. Það mál mætti hins vegar skoða síð- ar. Mbl.is greindi frá. Clinton fær ekki leyfi Nektarstaðurinn Club Clinton fær ekki vínveitingaleyfi. Úrskurðar- nefnd um áfengismál staðfesti í gær þá ákvörðun borgarráðs frá því í sumar að synja staðnum um leyfi til áfengissölu. -aþ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.