Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2001, Síða 6
6
FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2001
Fréttir
DV
Forsvarsmenn Jórvíkur íhuga að kæra til samkeppnisyfirvalda vegna TFMS:
Glórulaus og stór-
felld niðurgreiðsla
- segir rekstrarstjóri sem óttast hefnd Flugmálastjórnar
„Fréttir DV af niðurgreiddu ráð-
herraflugi undanfarna daga vöktu
okkur til umhugsunar um þessi
mál. Við munum funda í vikunni
þar sem tekin verður ákvörðun um
það hvort kært verður til sam-
keppnisyfirvalda," segir Einar öm
Einarsson, rekstrarstjóri flugfélags-
ins Jórvlkur, um þá samkeppni sem
Flugmálastjórn veitir einkaaðilum
með því að leigja vél sína ráðherr-
um og ríkisstofnunum. Vél Flug-
málastjómar, TF-FMS, er leigð á 85
þúsund krónur á hvern flugtíma.
Ekkert kostar að láta vélina bíða.
Einar Örn segir að ef hann ætlaði
að láta rekstur sambærilegrar vélar
bera sig þá kostaði flugtíminn um
Reynir
Traustason
ritstjórnarfulltrúi
Innlent fréttalj
110 þúsund krónur og hver klukku-
stund í bið ekki undir 15 þúsund
krónum. Árið 2000 leigöi ríkið TF-
FMS í samtals 113,5 flugstundir.
Miðað við verðskrá Flugmálastjórn-
ar fyrir árið í ár kostar slík leiga
tæpar 10 milljónir króna af al-
mannafé. Heimir Már Pétursson,
upplýsingafulltrúi Flugmálastjórn-
ar, lýsti því yfir við DV að flugferð-
ir ráðherranna væm gjarnan notað-
ar til að sinna öðrum verkefnum í
leiðinni. Fyrirkomulagið væri því
bæði stofnuninni og ríkissjóði hag-
stætt. Methafi í einkaflugi á TF-
FMS er Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra sem gjaman hefur
notað vélina til að skjótast um land-
ið til að taka skóflustungur, fara á
frumsýningar eða fagna verklokum
af ýmsu tagi. Alls hefur samgöngu-
ráðherra notað vélina í 58,4 klukku-
stundir eða fyrir sem nemur 5 millj-
ónir króna i leigu
samkvæmt núver- ^
andi verðskrá
Flugmálastjórnar.
Hefði ráðherrann
tekið vél á frjáls-
um markaði
myndi reikningur-
inn fyrir flugtím-
ana eina hafa numið
6,5 milljónum
króna. Engin leið
er að átta sig á því
hve lengi TF-FMS
beið ráðherrans
við hin ýmsu til-
efni og því ekki
DV-MYND HARI
Reiöur rekstrarstjóri
Einar Örn Einarsson, rekstrarstjóri flugféiagsins Jórvíkur, vill að samkeppnisyfirvötd skoði rekstur TF-FMS. Hann segir
að frjáisu flugfélögunum myndi muna mikið um að fá þaö flug sem ráðuneyti og ríkisstofnanir leigja af Flugmálastjórn.
Vinsæll Diskóflói
Ráðherrarnir Árni Mathiesen, Sólveig Pétursdóttir og
Valgerður Sverrisdóttir hafa öll leigt TF-FMS til
Grænlandsflugs.
hægt að reikna út þann kostnað.
Vitað er að vélin hefur beðið hans
tímunum saman af
ýmsu tilefni svo
með því að skipta við
Flugmálastjórn en
ekki einkarekin flug-
félög.
Ráðherrar á
Diskóflóa
Sumarið 2000 fór
TF-FMS í þrjár ferðir
til Uulissat við
Diskóflóa á Vestur-
Grænlandi með jafn-
marga ráðherra. Alls
tóku ferðimar 12
daga eða 22,8 tima
á lofti. Flugmálastjórn fékk rétt
tæpar 2 milljónir króna í
leigutekjur eða sem nemur
#•###
Niðurgreitt fiug
Það kostar ráðherra um 25
þúsund krónum minna á
klukkustund að leigja TF-FMS
heldur en að skipta við
einkarekin flugfélög. Þá kost-
ar þiðin ekkert.
sem þegar leikritið Fróð-
árundrin var frumsýnt á
Snæfellsnesi. Víst er að
samgönguráðherra
„sparaði" mikla peninga
Diskó-flói
Grænland
Ráðherraflug
Island
Reykjavík
rumum
600 þúsund
krónum af hverjum
ráðherra. Hefði verið skipt við
einkaaðila kostaði flugið eitt 2,5
milljónir króna og biðtimi í 11 daga
hefði kostað offjár því það kostar
um 360 þúsund krónur að láta véina
bíða í einn sólarhring. Ekkert var
tekið fyrir biöina sem, ef marka má
orð Heimis Más, var notuð til verk-
efna fyrir grænlensk
flugmálayfirvöld.
Tíðar ferðir til
Ilulissat sem er smá-
bær á Grænlandi
vekja grun um að
þær hafi ekki allar
nýst til annarra
verkefna en flutn-
ings ráðherranna. í
svari forsætisráðu-
neytisins vegna fyr-
irspurnar DV er til-
greint að í ferð Sól-
veigar Pétursdóttur
á fund norrænna
ráðherra hefði vélin
sinnt verkefnum fyr-
ir grænlensk flug-
málayfirvöld. í til-
viki Valgerðar Sverr-
isdóttur iðnaðarráð-
herra og Áma
Mathiesen sjávarút-
vegsráðherra er ekki
rgrai
getið um önnur verkefni en einka-
flug.
Ríkisbákn í flugrekstri
Einar Örn rekstrarstjóri segir
það leiguflug sem ráðuneytin nýta
sér geta orðið einkareknum flugfé-
lögum veruleg búbót.
„Okkur myndi svo sannarlega
muna um það að fá flug á vegum
ráðuneytanna. Þarna á sér stað stór-
felld og glórulaus
niður-
greiðsla. Það
getur varla
staðist að rikis-
báknið megi halda
úti flugrekstri til að
keppa við einkarekin
.n félög,“ segir Einar Örn.
fS Einar Örn segir að
flugfélögum sem leggja
fyrir sig leiguflug hafi stór-
fækkað á undanfómum 10
I áram. Nú sé Jór-
vík eina félagið
af þessari stærð-
argráðu í Reykja-
| vik.
„Nú eru aðeins
þrjú félög eftir
vegna þess að
höggvið er í þau
á afla kanta,“ seg-
' ir hann.
Hann segir að
burtséð frá sam-
keppni Flugmálastjórnar við einka-
reknu flugfélögin þá sé einkafélög-
unum einnig gert erfiðara fyrir en
Flugmálastjóm.
„Okkur er gert að skila inn flug-
rekstrarhandbókum, þjálfunarhand-
bókum fyrir flugmenn og viðhalds-
handbókum til að halda flugrekstr-
arleyfi. Ég er ekki viss um að Flug-
málastjórn sjálf hafl skilað sömu
gögnum vegna síns farþegaflugs,"
segir Einar Örn.
Hann viðurkennir að uggur sé
meðal forsvarsmanna leiguflugfé-
laganna vegna Flugmálastjórnar
sem hafi líf atvinnurekstrar þeirra í
hendi sér. Meðal annars þess vegna
hafi menn ekki skorið upp herör
gegn hinu ríkisrekna leiguflugi.
„Maður er auðvitað hræddur við að
gagnrýna þessi mál því Flugmála-
stjóm getur svipt okkur leyfinu.
Meðal okkar ríkir ákveðinn ótti,“
segir Einar Örn.
Heimir Már
Pétursson.
Umsjón: Hörður Kristjánsson
netfang: hkrist@dv.is
í einkarekstur
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra og æðsti yfirmaður Flug-
málastjórnar á undir högg að
sækja þessa dagana og þá ekki síst
vegna notkunar,
ráðuneyta og
stofnana á flugvél
Flugmálastjórnar
TF-FMS. Þykir
sætanýtingin með
ólíkindum og ekki
skaðar að hið dul-1
búna flugfélag I
Flugmálastjómar •
býr svo vel að rekstrinum að hægt
er að láta vélina staldra við dögum
saman á Grænlandi og víðar án
sérstaks endurgjalds. Velta menn
fyrir sér hvort næsta skref verði
ekki að há-effa þetta dulbúna ríkis-
flugfélag. Þannig geti félagið
skammlaust dembt sér út í beina
samkeppni um áætlunarflug til
Vestmannaeyja og víðar ...
Allt fyrir Austurlönd?
Á sama tíma og Jón Kristjáns-
son, heilbrigðisráðherra og fram-
sóknarmaður, þarf að láta loka
sjúkradeildum opinberra sjúkra-
húsa á íslandi
vegna fjárskorts
: þá er fjármunum
mokað út um
aðra glugga ráðu-
neytanna. Þannig
er samflokksmað-
ur hans, Halldór
nokkur Ásgríms-
son utanríkisráð-
herra, ekki á nástrái þessa dagana.
Flakkar hann um Austurlönd fjær
og spjallar við ráðamenn og opnaði
duggunarlítið sendiráð í Japan. Þar
er fermetraverðið ein milljón
króna, eða um tífalt fermetraverð í
Reykjavík og starfsmannaíbúð í
Tókýó er leigð fyrir milljónkall á
mánuði. f heita pottinum er talið
víst að Jón ráðherra hafi gripið
andann á lofti þegar Halldór flaug
frá Japan til Kína að spjalla við
þarlenda ráðamenn. Kína er miklu
stærra land og spuming hvað þurfi
að loka mörgum deildum til að
standa straum af útgerð íslendinga
þar í landi...
Spá suðlægum vindum
í Bæjarins besta á ísafirði er
vitnað í spár Veðurklúbbsins á
Dalvik sem nýtir sér gömul veður-
fræði sem byggja m.a. á atferli
fugla og dýra.
Ýmislegt megi úr I
því lesa svo sem
hvernig giktin
hegðar sér hverju |
sinni. Vitnar blað-
ið síðan í gamla |
bændur í ísafjarð-
ardjúpi (bæði með I
og án giktar) sem '
kunna líka sitthvað fyrir sér í veð-
urfræðum. Þeir telja að nokkuð
megi lesa úr hegðun músarinnar
um veðráttu komandi vetrar. Nú
snúa þar allar músarholur í norður
og megi því búast við að í vetur
verði suðlægar áttir ríkjandi...
Náralind
Enn er ekkert lát á umræðunni
um meint reðurtákn verslunarmið-
stöðvarinnar Smáralindar. í heita
pottinum kom þetta mál að sjálf-
sögðu
til um-
ræðu
og þá
nýjustu
upplýs-
ingar frá heimildarmanni eða
„Deep Throat,“ eins og slíkir eru
líka stundum nefndir. í sambandi
við Smáralind hafa menn áður rætt
um Limalind og feimni sumra við
að fara inn um stóru dyrnar á
norðurendanum, eða kóngsmegin
samkvæmt kyneðlisfræðilegri skil-
greiningu. Það nýjasta er að við
hinn endann sé þá auðvitað nár-
inn. Því sé augljóst að einhver
brenglun hafl orðið þegar nafn
miðstöðvarinnar var sett á blað.
Hún hafi auðvitað átt að heita
Náralind ...