Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2001, Page 11
11
FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2001__________________________________________
DV Landið
Góðum áfanga í vegamálum á Snæfellsnesi fagnað:
80 þúsund bílhlöss í nýja vegi
I síðastliðinni viku bauð bæjar-
stjórn Snæfellsbæjar til kaffisam-
sætis á veitingastaðnum Arnar-
bæ á Arnarstapa. Tilefnið var
ærið, að fagna góðum áföngum í
vegagerð sem náðst hafa á þessu
ári í hinu víölenda bæjarfélagi.
Þeir eru aðkeyrslan að Fróðár-
heiði að sunnanverðu og upp að
Egilsskarði og vegurinn út í
Breiðuvík en það var fyrirtækið
Klæðning hf. sem sá um það verk.
Einnig vegurinn á milli Arnar-
stapa og Hellna og að suðurmörk-
um Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls
og ennfremur vegurinn niður að
Hellnum en það var fyrirtækið
Stafnafell í Staðarsveit sem það
verk vann.
m
DVWYND PSJ
Áfanganum fagnaö á Arnarstapa
Gunnar Birgisson þingmaður, Helgi Hallgrímsson
vegamálastjóri, Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
Snæfellsbæjar, Bjarni Vigfússon, einn eigenda
Stafnafeiis, og Sturla Böðvarsson þiggja kaffiveit-
ingar í Arnarbæ.
Kristinn Jónasson,
bæjarstjóri í Snæfells-
bæ, bauð gesti vel-
komna en meðal
þeirra var Sturla
Böðvarsson, sam-
gönguráðherra og
þingmaður kjördæm-
isins, þingmenn,
vegamálastjóri, bæj-
arfulltrúar, forsvars-
menn verktakanna og
fleiri góðir gestir.
Kristinn lýsti mikilli
ánægju ibúa Snæfells-
bæjar með þau verk
sem unnin hafa verið
í vegagerð og sagði
frá óskum um fram-
gang þeirra mála sem næst væru.
Sturla óskaði íbúum Snæfellsbæj-
ar til hamingju með þá góðu
áfanga sem náðst hafa og sagði að
bæjarfélagið hefði eflt mjög stöðu
sína. Fleiri ferðamenn myndu
leggja leið sína á Snæfellsnesið og
það myndi styrkja svæðið.
Helgi Hallgrimsson vegamála-
stjóri þakkaði verktökunum báð-
um fyrir vönduð og góð vinnu-
brögð við vegagerðina sem alls
eru um 20 km. Gunnar Birgisson,
forstjóri Klæðningar., hf óskaði
heimamönnum til hamingju með
þessa áfanga og það kom fram hjá
honum að alls hefði þurft 80 þús-
und bílhlöss í þessa nýju vegi.
-PSJ.
Landsliðseinvaldurinn spaugsamur í hesthúsinu:
Járnað á Hólum
Það var líflegt í hesthúsinu á Hól-
um þegar tíðindamaður DV leit þar
inn á námskeið í jámingum. Hóla-
nemar voru í óðaönn að laga til
skeifur og máta undir, enda dugir
ekki annað en reiðskjótinn sé á góð-
um járnum fyrir langan og strangan
vetur í því tamningaferli sem nú er
fram undan hjá þeim.
Leiðbeinandinn var enginn annar
en landsliðseinvaldurinn í hesta-
íþróttum, Sigurður Sæmundsson frá
Holtsmúla í Landsveit, hress að
vanda og rakti m.a. helstu ættir
nemendanna og kosti fyrir tíðinda-
manni og var það greinilega glað-
værðin sem réð ríkjum þarna í hest-
húsinu. Áhugi nemanna er greini-
lega mikill og góð samvinna þeirra
áberandi. Aðspurður sagðist Sigurð-
ur koma þrisvar sinnum á vetri í
Hóla til að leiðbeina við járningarn-
ar, enda búið að þrískipta náminu í
hestamennskunni við skólann. -ÞÁ
Ný brú yfir Hólmsá:
Beina þarf ánni
í farveginn
Verið er að undirbúa byggingu nýrr-
ar brúar á Hólmsá á Mýrum. Brúin
verður 65 metra löng og kemur rétt
ofan við gömlu brúna. Það er bygging-
arfyrirtækið Mikael á Höfn sem sér um
verkið og á því að verða lokið í febrúar
á næsta ári.
Miklar breytingar hafa orðið á
Hólmsá í sumar og haust og stór hluti
árinnar hefur breytt um farveg og flutt
sig yfir í Hleypilæk og Djúpá. Hleypi-
lækur hefur verið vatnsmikill að und-
anfórnu og hefur þurft að halda honum
í skefjum svo ekki flæddi yfir þjóðveg-
inn. Hólmsá kemur undan Fláajökli
sem í sumar og haust hefur lækkað
mikið og hopað og við það hefur opnast
ný leið fyrir vatnið meðfram sandöld-
unum yfir i næstu ár.
Reynir Gunnarsson hjá Vegagerð-
inni segir aö byggja þurfi stóran vam-
argarð til að halda Hólmsá í sínum far-
vegi og verður það verk boðið út á
næstu dögum. Ef ekkert yrði að gert
myndi að likindum ailt vatn fara yfir í
Hleypilæk og Djúpá og valda miklum
landsspjöllum hjá bændum á Mýrum
og eftir stæði Hólmsárbrú yfir þurrum
farvegi.
Fyrir allmörgum árum meðan gamíi
þjóðvegurinn var i notkun í Suðursveit
færðu tvö vatnsfóll nokkru vestan
Hólmsár sig um set, þ.e. Stemma fór
yfir í Jökulsárlón og Heinabergsvötn i
Kolgrímu, og eftir standa gömlu brým-
ar eins og minnismerki um vatnsfóllin
sem þar vom. -JI
Ormurinn sloppínn úr þurrkví
Viðgerðin á farþegaferjunni Lagarfljótsorminum tók iengri tíma en áætlað var
en tíminn var einnig nýttur til endurbóta á hafnarsvæði og innsiglingu. Það
voru rekstraraðilar ferjunnar sem stóðu að þeim endurbótum en ekkert bólar
á hafnarframkvæmdum á vegum Hafnarsamlags Egilsstaða. Ferjan hefur ver-
iö tekin út af Siglingamálastofnun og er Ormurinn því sloppinn úr þurrkvínni
og tilþúinn í frekari siglingar.
Sóknarprestur í rúma hálfa öld og enn að:
Leysir af á Hofsósi
DV-MYNDIR ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON
íslensk-norsk samvinna
Það var góð samvinna hjá Hinriki Sigurðssyni frá Hafnarfirði og norsku
stúlkunni Bertu Kristjansen. Á innfelldu myndinni leiðbeinir Sigurður Sæ-
mundsson þeim Ragnheiði Þorvaldsdóttur frá Hvítárholti og Mie Hedebo
Knudsen frá Óðinsvéum í Danmörku.
Séra Gísli Kolbeins er kominn til
starfa i Hofsós- og Hólaprestakalli.
Hann kom í byrjun mánaðarins og
mun leysa séra Ragnheiði Jónsdótt-
ur af hólmi til 1. ágúst á næsta ári.
Ragnheiður ætlar að nýta tímann til
náms í sálgæslu í Minneapolis í
Bandaríkjunum. Að loknu þessu
námi hefur Ragnheiður mjög breið-
an grunn hvað áfallahjálp og sál-
gæslu varðar en auk guðfræði-
menntunar er hún einnig sjúkra-
þjálfari að mennt.
Séra Gísli Kolbeins er orðinn
hálfáttræður en í fullu fjöri enn þá
og segist ganga til starfa á Hofsósi
með ánægju og fullbúinn að leggja
sitt af mörkum til samfélagsins
fyrst honum sé treyst til starfans.
Séra Gísli leysti af á Sauðárkróki
haustið 1993 þannig að Skagfirðing-
um er hann ekki ókunnugur. Hann
hefur stundað prestskap víða í
rúma hálfa öld, var lengi á Melstað
i Miðfirði, um nokkurn tíma í
Stykkishólmi en fyrsta brauðið sem
Gísli vigðist til var á vestasta odda
landsins, Bjargtöngum, Sauðlauks-
dalsprestakall. -ÞÁ
Patreksfjörður:
Fjórði maðurinn
- í lögregluna
Búið er að ráða fjórða manninn í lið
Lögreglunnar í Barðastrandarsýslu,
sem var til skamms tima skipað aðeins
þremur mönnum og vantaði þar með
einn. Af því þóttu nokkrar viðsjár
skapast, ekki sist þegar flokkar óeirða-
manna fóru að gera usla á Patreksfirði
svo bæjarbúum þótti nóg um.
„Þeir sem ófriðlegast létu eru allir
famir héðan, sumir í skóla,“ sagði Ing-
þór Guðjónsson, sem er hinn nýbakaði
lögregluþjónn Barðstrendinga; fjórði
maðurinn. Hann segir friðsælt yfir
mannlífmu vestra þessa dagana, allt
hafi til að mynda verið með hinni
mestu spekt á dansleik á Bíldudal og
réttarballi í Örlygshöfn sem haldin
vom um helgina. -sbs
Efhún
er ekki
Veðurklúbburinn á Dalbæ:
Fyrsta vetrartunglið kviknaði
þriðjudaginn 16. október í vestri,
annað kviknar 15. nóvember í
austri, klúbbfélagar Veðurklúbbs-
ins á Dalbæ á Dalvík telja að fyrstu
3 vetrartunglin verði keimlík, þó
verði nóvembertunglið kannski
síst.
Til gamans má geta þess, án þess
að það hafi einhverja sérstaka þýð-
ingu, að það er fullt tungl fyrsta og
síðasta dag nóvembermánaðar og
hafði einn klúbbfélaginn það á orði
að þetta væri eitthvað dularfullt.
Veðrið í nóvember verður í
hefidina sæmUegt, það verður
snúningasamt, rysjótt fram undir
miðjan mánuðinn, á köflum leið-
inda skakstur og spörfuglasperr-
ingur en engin vonska og klúbbfé-
lagar búast ekki við miklum snjó i
mánuðinum eða yfirleitt fram yfir
áramót en meira um það síðar.
Fjúk og dimmviðri á Marteins-
messu 11. nóvember veit á ihlaupa-
saman og kaldan snjóavetur en aft-
ur á mót heiðríkt loft boðar stað-
viðri, samanber vísuna:
Á Marteinsmessu ef mundi loft
meöur regni, eg segi
veóradimmur verður oft
vetur frá þeim degi.
Til gamans birtum við hér brot
úr gamalli veðurdagbók sem
haldin var í Svarfaðardal: „Árið
er 1943, sumarið afleitt, nætur-
frost í júlí og ágúst, 24. september
gerði blindstórhríð og allt fór á
kaf í snjó, mikið af fé fennti, snjó-
inn tók svo upp að mestu 9. októ-
ber.“ -hiá
skaleg
heita!