Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2001, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2001, Side 13
13 FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2001________________________________________________________________________________________ 3>V Útlönd Bandaríkjamenn leggja nú alla áherslu á að styrkja sókn Norðurbandalagsins: Mesta sprengjuregnið frá því árásir hófust á Afganistan Bandarískar sprengjuflugvélar gerðu í gær hörðustu sprengjuárás- ir á Afganistan frá því árásir hófust á landið þann 7. október sl. og munu um 50 stórar sprengjuvélar hafa tek- ið þátt í árásunum. Varpað var svokölluðum „teppasprengjum" og segja sjónarvottar að sprengingarn- ar hafl skipt hundruðum. Áður- nefndar sprengjur eru mjög öflugar og sýndu myndir sem sýndar voru eftir árásimar þegar heilu hæðirn- ar tættust í sundur á svæðinu ná- lægt Tutakhan. Að sögn talsmanna Bandaríkja- hers var áhersla lögð á tvö hemað- arlega mikilvæg svæði í nágrenni borgarinnar Mazar-e Sharif, þar sem herir Norðurbandalagsins hafa sótt fram gegn hersveitum talíbana. Einnig var sprengjum varpað á höf- uðborgina Kabúl, en Bandaríkja- menn hafa loks viðurkennt að þeir vilji að Norðurbandalagið hertaki hana sem fyrst. Þá var sprengjum Talíbanar í höfuðvíginu Kandahar Talibanskir hermenn sitja hSr á skriödreka sínum i miöborg Kandahar sem er höfuövígi þeirra í Suður-Afganistan. Talibanar leyföu erlendum fréttamönnum aö skoöa aflelöingar sprengjuárása Bandaríkjamanna á borgina í fyrsta skipti í gær, eftir að sprengja haföi lent á sjúkraskýli Rauöa hálfmánans.. varpað á borgina Kandahar, helsta vígi talibana í suðurhluta landsins og segja talsmenn þeirra að þar hafi sprengjur lent á sjúkraskýli Rauða hálfmánans með þeim afleiðingum að eflefu manns létu lífið. Að sögn læknis sem særðist í sprengingunni voru bæði sjúklingar og starfsmenn meðal hinna látnu, auk þess sem sex aðrir hafa særst. Talsmenn Bandaríkjahers, sem sakaðir hafa verið um ónákvæmni i sprengjuvarpinu, neituðu að sjúkra- skýlið hefði verið skotmarkið en viðurkenndu að bæði sjúkrahús og áðurnefnt sjúkraskýli hefðu verið i nágrenni skotmarksins. Talsmenn talibana segja að alls hafi um 1500 óbreyttir borgarar falliö í árásunum til þessa, en það vilja Bandarikja- menn ekki viðurkenna og segja töl- urnar mjög ýktar. Þeir viðurkenna þó að í nokkrum tilfeflum hafi sprengjur villst af leið. REUTER-MYND Matur til Afganistans Hjálparstofnanir eru á fullu aö skipuleggja matvælaaöstoð. Áform um að varpa niður mat yfir Afganistan Matvælaaðstoð SÞ hefur í hyggju að varpa niður neyðaraðstoð úr flugvélum yfir þann hluta norðan- verðs Afganistans sem teppist vegna snjóa, ef ekki tekst að koma matvælum tfl þurfandi íbúa land- leiðina áður en vetur gengur i garð. Talsmaður matvælaaðstoðarinn- ar sagði á fundi með fréttamönnum í Pakistan í gær að þrjú svæði teppt- ust alla jafna vegna snjóalaga í des- emberbyrjun. Hjálparstofnanir áætla að 7,5 milljónir manna muni svelta í Afganistan þar sem ástandið er al- varlegt vegna langvarandi þurrka og loftárása Bandaríkjamanna. Stjórnvöld vestra sögðu í gær að þau ætluðu að kaupa hveiti erlendis frá og koma því til Afganistan tfl að koma í veg fyrir hungursneyð. Bush ver ákvörð- un sína um við- vörun við árás George W. Bush Bandaríkjafor- seti svaraði í gær fullum hálsi þeim sem höfðu gagnrýnt hann fyrir að gefa út viðvörun um hugsanlega nýja árás hryðjuverkamanna á Bandaríkin í þessari viku. „Það var ástæða fyrir því að ég setti landið í viðbragðsstöðu,“ sagði Bush á fundi með iðnrekendum í Hvíta húsinu. „Ég vildi að löggæsluyflrvöld vissu að við byggjum yfir upplýsing- um sem gerðu það nauðsynlegt að vemda þau svæði sem kynnu að vera viðkvæm." Bush hafði ekki áður tjáð sig um viðvörunina sem Ashcroft dóms- málaráðherra gaf út á mánudag. REUTER-MYND Ortega á endasprettinum Daniel Ortega, leiötogi sandinistahreyfmgarinnar i Níkaragva, heilsar stuöningsmönnum sínum á síöasta fundi sínum fyrir forsetakosningarnar sem veröa haldnar á sunnudag. Samkvæmt síöustu skoöanakönnunum er útlit fyrir spennandi baráttu milli Ortega og helsta keppinautar hans, Enriques Bolanos, um forsetaembættið. Nyrup boðar til kosninga í Danmörku eftir 3 vikur: Hörð barátta fram undan Poul Nyrup Rasmussen, forsætis- ráðherra Danmerkur, boðaði í gær til þingkosninga þann 20. þessa mánaðar, þrátt fyrir viðvaranir um að sveitarstjórnar- og amtskosning- arnar sama dag myndu falla í skuggann. Útlit er fyrir harða kosn- ingabaráttu milli vinstri- og hægri- flokkánna. Nyrup bar við mikilli óvissu i heimsmálunum þegar hann skýrði ákvörðun sína um kosningar fyrir fréttamönnum i gær. Kosningar hefðu að öðrum kosti verið haldnar um miðjan mars á næsta ári í síð- asta lagi. „Það hefði ekki verið gott fyrir Danmörku að hafa fjögurra mánaða kosningabaráttu á þessum tímum óvissu eftir árásirnar 11. september og þegar taka þarf mikilvægar ákvarðanir um öryggismál," sagði Poul Nyrup. Þótt jafnaðarmannaflokkur Nyr- ups hafi verið að sækja í sig veðrið REUTER-MYND Poul Nyrup Rasmussen Danski forsætisráðherrann batt í gær enda á langa þögn sína og boö- aöi til þingkosninga eftir þrjár vikur, eins og mikiö var búið að ræða. í fylgiskönnunum upp á siðkastiö benda nýjustu kannanir þó tfl að svo gæti farið að mið- og hægri- flokkarnir myndu velta jafnaðar- mönnum úr sessi. Kratar hafa setið við stjómvölinn síðan 1993. Þá sagði danski forsætisráðherr- ann að mikilvægt væri að gefa nýrri stjórn Danmerkur, hver svo sem hún yrði eftir kosningamar, nægan tíma til að búa sig undir að fara með formennsku innan Evrópusam- bandsins frá 1. júlí á næsta ári. Gert er ráð fyrir að í formennsku- tíð Danmerkur verði gengið endan- lega frá fyrirhugaðri stækkun ESB til austurs. Anders Fogh Rasmussen, leiðtogi íhaldsflokksins, sagði í gær að hann myndi reyna að mynda stjórn mið- og hægrimanna eftir kosningarnar. „Þessar kosningar snúast ekki um stríðið í Afganistan. Þær snúast um Danmörku og. hversdagsvanda Dana,“ sagði Fogh Rasmussen. Miltisbrandsrannsókn Lögreglan í New York rannsakar dauða fjóröa miltisbrandsfórnar- lambsins sem morðmál. Fjórða fórnar- lambið látið úr miltisbrandi Miltisbrandsplágan heldur áfram að breiðast út i Bandarikjunum og í gær lést fjórða fórnarlambið þegar 61 árs starfsstúlka sjúkramóttöku í New York lést á sjúkrahúsi i borginni eftir stutta legu. Ekki er enn vitað hvemig eða hvar hún smitaðist en hún mun hafa starfað í birgðarými nálægt póst- rými stofnunarinnar. Nákvæm rann- sókn fer nú fram og að sögn Bernards Keriks, lögregluforingja í New York, vinna nú tvær lögreglusveitir að rann- sóknarstörfum vegna málsins, bæði glæparannsóknadeild og tæknideild lögreglunnar í New York. „Við lítum á þetta sem morðmál og rannsóknin miðast við það,“ sagði Kerik og bætti því við að ekkert hefði enn fundist sem benti til þess að konan hefði smit- ast innan sjúkrastofnunarinnar. Hvattir til að hafa konur með Virt mannréttindasamtök hvöttu leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Afganistan i gær tfl að hafa konur og þjóðernisminnihlutahópa með í áformum sinum um nýja stjórn í landinu eftir fall talibana. Samtökin, Mannréttindasamtök lækna, sögðu aö sagan sýndi að kon- ur hefðu verið þátttakendur í opin- beru lífi og stjórnmálum i Afganist- an og að þær ættu að vera með í framtíðarstjórn landsins. Samtökin birtu i maí síðastliðn- um niðurstöður ítarlegrar könnun- ar þar sem 90 prósent aðspurðra á yfirráðasvæðum bæði talibana og stjórnarandstæðinga lýstu yfir stuðningi við jafnrétti kynjanna. REUTER-MYND John Bolton Aöstoðarutanrikisráðherra Bandaríkj- anna hefur áhyggjur af gjöreyðingar- vopnum i höndum öfgahópa. Aukinn ótti við kjarnorkuárásir í kjölfar hryðjuverkaárásanna í september er vaxandi ótti við að öfgahópar myndu gripa til gjöreyð- ingarvopna, þar á meðal kjarnorku- vopna, gegn Bandaríkjunum, að því er John Bolton aðstoðarutanríkis- ráðherra sagði i gær. Aðspurður spáði Bolton því á morgunverðarfundi með frétta- mönnum sem skrifa um varnarmál að ef hryðjuverkamenn kæmust yfir gjöreyðingarvopn, það er kjarn- orku-, sýkla- og efnavopn, myndu þeir beita þeim. Bolton neitaði að segja tfl um hvort bandarísk stjórnvöld vissu hvort Osama bin Laden, sem grun- aður er um árásirnar vestra, og hryðjuverkasamtök hans réðu yfir kjarnorkuvopnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.