Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2001, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2001, Síða 22
38 FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2001 Tilvera I>V Forskot á kvikmyndahátíð: Cult- myndir Filmundur stendur fyrir cult- myndahátíö frá og með deginum í dag og fram yfir helgi. Má segja að hér sé hitað upp fyrir Kvikmynda- hátíð i Reykjavík. Sýndar verða sjö erlendar myndir sem allar geta talist til tíðinda í cult-heimi kvik- myndanna. Cecil B. Dem- ented er nýjasta mynd John Wa- ters, en hann er þekktur fyrir myndir á borð við Pink Flam- ingos og Hair- spray. Brúðu- hryllingurinn Meet the Feebles eftir nýsjálenska leik- stjórann Peter Jackson er á dagskránni, fjöl- mörgum aðdá- endum hans til mikillar gleði. Jackson er nú að vinna að kvikmyndaaðlögunum á Hringdróttinssögu Tolkiens. Ein frægasta cult- mynd allra tíma, The Rocky Hor- ror Picture Show, verður á sínum stað og það sama má segja um Plan 9 from Outer Space sem hefur ítrekað verið kosin versta mynd sem gerð hefur verið, og það ekki að ástæðulausu. Leikstjóri henn- ar er Ed Wood, sem Tim Burton gerði ódauðleg- an i samnefndri mynd. Aðrar myndir eru Dark Star eftir John Carpenter, Swamp Thing eftir Wes Cra- ven og The Tox- ic Avengereftir Michael Herz og John Kaufmann. Einnig verða sýndar fimm ís- lenskar stutt- myndir sem hafa farið leynt í is- lenska kvik- myndalandslag- inu. Þaö eru myndimar Heddarin VI eft- verða ir Matthías Kristjánsson, Limir á lausu I og II og Efnis- leg ást eftir Grím Hákonar- son og Grátandi Api og Ballett í leynum eftir Jón Grétar Giss- urarson. Stuttmyndirnar sýndar allar saman. Til að fagna þessum tímamótum í islenskri kvikmyndamenningu mun lágmenning.is standa fyrir cult-kvöldi á Vegamótum annað kvöld. Þar munu hljómsveitirnar Suð, Lirmill, PhutureFX, 3gis og Corall halda uppi stuðinu. Glensið hefst um leið og sýningu mynd- anna er lokið á föstudagskvöldinu og eru allir Filmundarvinir og vinir þeirra velkomnir. Að cult-hátíðinni lokinni mun Filmundur taka sér frí í tvær vik- ur, á meðan Kvikmyndahátíð í Reykjavík stendur yfir. Bíógagnrýni Sambíóín - Princess Diaries: i Joy Ride: Smávægilegt grín verður að alvöru Sykursætir stelpudraumar “| Allir leggjast á eitt Það leggjast allir á eitt til aö bjarga sumrinu því enginn vill hafa eintóm- an vetur. Recess School’s Out: Til bjargar sumrinu Krakkarnir í teiknimyndinni Recess School’s Out sem frumsýnd verður á morgun í Sambíóunum lenda í ýmsum ævintýrum í sumar- fríinu sínu. Myndin sem á íslensku kallast Skólalíf skólaslit segir frá T.J. sem er búinn að bíða lengi eftir sumrinu. Honum fer hins vegar fljótt að leiðast þegar allir vinirnir eru farnir í sumarbúðir. Þegar hann kemst síðan að því að hinn brjálaði Dr. Benedict sem er fyrrum skóla- stjóri hefur í hyggju að breyta veðr- inu þannig að það verði alltaf vetur, gengur hann til liðs við „Recess" klíkuna. Ásamt Miss Finster og Principal Prickly reyna þau að gera allt til að bjarga sumrinu. Myndin er full af fjöri, skemmti- legum lögum og skrautlegum per- sónunum sem uppgötva fljótlega að inni í þeim leynast hetjur sem láta ekkert stoppa sig. Meðal þeirra leik- ara sem ljá þeim rödd sína í ensku útgáfuna eru James Woods, Robert Goulet og Dabney Coleman auk fjölda annarra. Myndin verður einnig sýnd með íslensku tali og meðal þeirra sem tala inn á þá út- gáfu eru Öm Árnason, Hanna Mar- ía Karlsdóttir, Guðmundur Ólafs- son, Jakob Þór Einarsson, Ólafur Hrafn Steinarsson, Ámi Egill Örn- ólfsson og Kolbrún Erna Pétursdótt- ir. -MA Venna Þaö er leikkonan Leelee Sobieski sem leikur Vennu. Smávægilegt grín getur orðið að grafalvarlegu máli og það fá aöalpersónur spennumyndarinn- ar Joy Ride að upplifa af eigin raun. Hún verður frumsýnd á morgun í Smárabíói og Regnbog- anum. Joy Ride segir frá háskóla- nemanum Lewis Thomas sem ákveður að fara í ferðalagt þvert yfir Bandaríkin með ástinni sinni Vennu í sumarfríinu. Fyrst þarf hann hins vegar að sækja hana og verða nokkrar breyting- ar á því plani þegar hann neyð- ist til að koma eldri bróður sín- um til bjargar. Þeir halda síðan áfram til Vennu og á leiðinni ákveða þeir að gera grín að vöru- bílstjóra í gegnum talstöð. Grín- ið snýst hins vegar upp í alvöru þegar bílstjórinn drepur saklaus- an mann og ákveður að hefna sín á bræðrunum fyrir grikkinn Venna blandast síðan inn í málið og leggja þau á flótta undan morðingjanum. Þríeykið er leikið af þeim Paul Walker, Leel- ee Sobieski og Steve Zahn sem öll hafa ver- ið að reyna fyrir sér á kvikmyndasviðinu síðustu árin með mis- góðum árangri. Fyrsta mynd Zahn var kvikmyndinni Reality Bites og meðal annarra mynda hans má nefna That Thing Bræður Paul Walker og Steve Zahn leika bræöurna sem lenda í miklum hremmingum. You Do, You’ve Got Mail, Out of Sight og The Object of My Affection. Síðast mátti sjá Walker í myndinni The Fast and the Furious sem nýlega var sýnd hér á landi og Sobieski vakti mikla athygli fyrir hlutverk sitt í hinni umdeildu mynd Stanley Kubrick, Eyes Wide Shut. -MA Prinsessudagbókin er ekki nú- tímaævintýri. Leikstjórinn, Garry Marshall, er frekar að endurgera sinn stærsta smell til þessa, Pretty Woman, fyrir yngri áhorfendur (sem svo aftur er útúrdúr á Pygmalion). Prinsessudagbókin fjallar ekki um unga stúlku sem tekst á við ákveðið verkefni og vinn- ur sigra, hún slæst hvorki við dreka né tröllkarla og þarf hvorki að nota gáfur né styrk til að komast lífs af og ná ástum prinsins. Nei, Prinsessudagbókin fjallar um al- gengan stelpudraum: að vakna upp einn morgun í blúndum og tjulli með kórónu á höfði og þjóna á hverjum fingri sem segja yðar há- tign af minnsta tilefni. Anne Hathaway er rúmlega tví- tug stúlka, afskaplega svipfríð og elskuleg, sem hér leikur hina 15 ára ótótlegu Miu Thermopolis. Mia er með óstýrilátt krullað hár og gler- augu með svartri MJÖG áberandi umgjörð og þegar hún á að halda ræðu í skólanum þá verður hún svo taugaóstyrk að hún ælir. Mia býr hjá móður sinni, listmálaranum, í gamalli slökkvistöð í San Francisco og á sér þann draum æðstan aö komast lifandi í gegnum unglingsár- in og verða kysst af sætum strák. Einn daginn kemst hún svo að því að nýdáinn pabbi hennar, sem hún hafði aldrei hitt, hafði verið erfingi krúnunnar í Genóvíu (sem er Hollywood-land milli Spánar og Frakklands), og þar sem hann er ekki meðal á vor lengur þá er hún sjálf orðin ríkiserfingi. Sú sem ber henni fréttirnar er drottningin, Clarisse Renaldi (Julie Andrews), afskaplega siðsöm kona sem kann að koma rétt fram við allar aðstæð- ur. En getur ljóti andarunginn orð- ið svanur - tekst spænska hár- greiðslumeistaranum að greiða úr stríðum lokkunum, fer hún að nota linsur, hættir hún að æla og tekur hún gamla vininn sinn fram yfir súpertöffarann sem tók aldrei eftir henni fyrr en hún varð prinsessa? Það væri svindl að ljóstra upp svör- unum við þessum spurningum! Hathaway er glæsileg stúlka með fallegt bros og það er ágæt skemmt- un að fylgjast með henni berjast við prinsessuæfingarnar, detta af stól- um, brjóta glös o.s.frv., en textinn hennar er ansi heimskulegur, eins og allra annarra, og á endanum verður sykurhúðuð elskusemin þreytandi. Julie Andrews klikkar ekki þrátt fyrir einfeldningslegt handrit og reynir virkilega að flytja myndina á hærra plan ásamt Hect- or Elizondo sem leikur tryggan þjón hennar hátignar drottningarinnar. Persónulega sagði myndin mér ekki margt nýtt og spennandi um lífið en það var greinilegt að hálf- fullur salur af stelpum frá 7-77 hafði gaman af og lifði sig inn í prinsessu- draumana. Ég er ekki frá því að sumar hafi gengið með höfuðið sér- staklega reist á leiðinni út til að kórónurnar högguðust ekki. Þannig að ef þið haldið að þið gætuð aldrei sofið rótt á baun skulið þið endilega drífa ykkur - en farið ekki með mik- ið nammi með ykkur inn - það sem gerist á tjaldinu er nógu sætt. Leikstjóri: Garry Marshall. Handrit: Gina Wendkos. Kvikmyndataka: Karl Walter Lindenlaub. Tónlist: John Debney. Aðal- leikarar: Julie Andrews, Anne Hathaway, Hector Elizondo, Heather Matarazzo, Ro- bert Schwartzman, Terry Wayne.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.